Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 8
MÁNUDAGUR 11. MARS 2002
nv
8
Fréttir
DV-ljósmyndarar sigursælir
Ljósmyndarar DV voru sigursæl-
ir í hinni árlegu samkeppni Blaða-
ljósmyndarafélags íslands sem 28
ljósmyndarar tóku þátt í. Bæði
Gunnar V. Andrésson og Þorvaldur
Öm Kristmundsson kræktu sér í
verðlaun. Mynd Gunnars V., „Þing-
maður bugaður" sem hann tók af
Árna Johnsen í Klaufinni í Vest-
mannaeyjum skömmu eftir að
meint brot hans komust í hámæli,
var valin fréttamynd ársins 2001.
Ummæli dómnefndar voru eftirfar-
Mynd ársins 2001
eftir Gunnar Gunnarsson. Hún er af
Ármanni Reynissyni.
DV-MYND ÐNAR J.
Við opnun
Forseti íslands opnaói sýningu Blaöaljósmyndarafélags íslands og Ljósmyndarafélags íslands í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafni, á laugardaginn. Hér er hann á milli þeirra Gunnars V. Andréssonar og Þorvalds Arnar Kristmundssonar,
Ijósmyndara DV.
andi: „Hér tekst ljósmyndaranum
vel að draga fram þá staðreynd að
hver frétt á sér fleiri en eina hlið.
Ámi Johnsen, fyrmm alþingismað-
ur, hugleiðir hildarleik liðinnar
viku í fjöruborðinu." Myndröð Þor-
valds Amar af afleiðingum örlaga-
atburðanna 11. september í Banda-
ríkjunum var valin myndröð ársins
2001. Um hana sagði dómnefnd:
„Enginn atburður liðins árs á eftir
að verða jafneftirminnilegur og
árásimar á Bandaríkin 11. septem-
ber. Myndröðin nær fram þeirri
samkennd og örvinlun sem ríkti í
borginni fyrstu dagana á eftir.“
Mynd ársins 2001 á Gunnar Gunn-
arsson. Hún er af Ármanni Reynis-
syni og þykir sterk portrettmynd
þar sem umhverfi, fatnaður, smáat-
riði og myndbygging ná að skapa
öfluga heild. Þá mynd keypti Blaða-
mannafélagið til eignar fyrir hundr-
að þúsund krónur.
Alls komu 512 myndir inn í for-
val keppninnar og valdi dómnefnd
172 á sýninguna sem nú stendur yfir
í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.
Af þeim voru sjö valdar til verð-
launa: fréttamynd ársins 2001,
íþróttamynd, portrettmynd, mynd-
röð; og í opnum flokki vora valdar
tímaritamynd, landslag og daglegt
líf. -Gun.
Mynd úr myndröð ársins
eftir Þorvald Örn Kristmundsson, Ijósmyndara DV, tekin í Bandaríkjunum í
kjölfar atburöanna 11.. september 2001
Fréttamynd ársins
Bugaður þingmaöur heitir þessi mynd eftir Gunnar V. Andrésson, Ijósmyndara DV.
Við leggjum okkar af mörkum til að halda verðbólgunni
niðri og veitum 4% afslátt af völdum bílum.
Renault Laguna II
fólksbíll
Renault Scénic
fólksbfll
23.449
Bílalán.afborgunámán.
Renault Mégane Berline
fólksbíll
Rekstrarietga: 39.299
Verðáður 2090.000
Verðnú 2.006.000
23.008
Bílaián.afborgunámán.
Rekstrarteiga: 38.627
18.332
Bílalán.albotgunámán.
Rekstiarieiga:31.731
Verðáður 1.630.000
Verðnú 1365.000
Vetðáður 2050.000
Verðnú 1.968.000
Grjóthóls 1. Stml 57S 1200
Sölud.lld 57S 1220 • www.bl.i*
Rekslrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og erlenda myntkörfu. Rekstrarleiga er aðeins í boði lil rekslraraðila (fyrirtækja).
Bilalán miðast við 30% útborgun og 84 mán. samning. Allar tölur em með vsk. Tilboðið gildir út mars
Verðlaunahafar 2001
Þau hlutu verölaun fyrir hina ýmsu flokka mynda 2001.
Svarfhólsskógur í Svínadal:
Brotist inn í bústaði
Lögreglunni í Borgarnesi barst
um helgina tilkynningar um inn-
brot í þrjá bústaði í Svarfhólsskógi í
Svínadal. Nýlega var tilkynnt um
innbrot í aðra þrjá bústaði á .sama
stað þannig að alls er um sex bú-
staði að ræða á skömmum tíma. Að
sögn lögreglunnar er ekki ólíklegt
að sömu þjófamir hafi veriö á ferð í
þessum bústöðum og er ekki heldur
útilokað að fleiri bústaðir í ná-
grenninu hafi orðiö fyrir barðinu á
þjófunum en yfir vetrartímann eru
ferðir eigenda í bústaðina strjálli en
ella. Litlar skemmdir hafa verið
unnar á bústöðunum en þjófarnir
hafa látið greipar sópa innandyra.
Aðallega hafa þeir sóst eftir áfengi,
rafmagnstækjum og lyfjum. Málið
er í rannsókn. -snæ