Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Síða 11
11 MANUDAGUR 11. MARS 2002 DV Landið Vetrarleikar á ís: Hestamenn nýta sér mikla og góða ísa Húnvetnskir hestamenn komu saman og öttu kappi á Hnausatjöm um síðustu helgi. Þar kom fram margt góðra hesta en sigurvegari í ístöltinu var stóðhesturinn Gamm- ur frá Steinnesi. Knapi var Tryggvi Bjömsson. í öðru sæti var mikil gæðingshryssa Svanhildar Hall á Gauksmýri. Margt annarra góð- hrossa kom þar fram, m.a. vakti at- hygli stóðhestur á fjóröa vetri úr ræktun þeirra hjóna Indriða og Her- dísar í Grafarkoti, en hann var kynntur í flokki stóðhesta. DV-MYND MAGNÚS ÓLAFSSON Gammur frá Steinnesi. Miklir og góðir ísar eru nú víða um Húnaþing sem hestamenn nýta vel til útreiða. Margt hrossa er í tamningu í héraðinu. -MÓ DV-MYND JÚLÍA IMSLAND Stjórnað með tölvu Allri vinnslu í bræöslunni er stjórnað í tölvum. Strákarnir á þessari vakt eru: Zoravko Boloban, Haraldur Jónsson,Gunnar Björn Haraldsson og Björn Traustason verksmiöju- stjóri. Brætt dag og nótt og engin peningalykt Búið er að taka á móti 20 þúsund tonnum af loðnu í loðnubræðslunni Óslandi í Hornafirði. Björn Trausta- son verksmiðjustjóri segist vera ánægður með vertíðina, þetta sé svipað og var í fyrra og hann á von á nokkrum þúsundum tonna í viö- bót. Það eru eingöngu loðnuskip Skinneyjar-Þinganess, Ásgrímur Halldórsson SF og Jóna Eðvalds SF, sem séð hafa bræðslunni fyrir loðnu. Bjöm Traustason segir það liðna tíð að bæjarbúar kvarti yfir loðnuólykt, öðru nafni peningalykt, i bænum enda sé nýja verksmiðjan ein sú fullkomnasta á landinu. Starfsmenn í Óslandi eru tuttugu og er unnið á vöktum allan sólarhring- inn. -JT Þúsundasti fundurinn Bæjarráð Grindavíkur kom saman tO síns 1000. fundar á miðvikudag. Var samþykkt tiilaga til bæjarstjómar að stefnuyfirlýsingu: „Bæjarstjóm Grindavíkur stefnir að því að Grinda- vík verði fjölskylduvænn bær, sem byggi á sjávarútvegi, þjónustu við ferðamenn og möguleikum sem jarð- hitinn skapar. Markmiðið er að Grindavík verði eftirsóttur bær til bú- setu hvað snertir atvinnumöguleika, menntun og þjónustu." Þá var samþykkt beiðni um viðbót- arstyrk til heimildamyndar um Guð- berg Bergsson. Verður heildarstyrkur- inn ein milljón króna. Þá var sam- þykktur samningur um stækkun kirkjugarðsins á Stað. -ÞGK Lyftarar fyrir vöruhús VEIAVERf Lágmula 7 Reyk javik stmi 5S82600 Dalsbraut 1 Akurcyri sími 4614007 jwjr '''' Maiiliiil mm A-.- , ■■ - ' BTi \. X' .' V*.- jf-ÍI%dM«apk 'V v $rágg| ,>M§f - , - .V ~ S jjjljg jl - %§§ oaSirbilai n Viltu spara, vnw &-__ MikiU afelattur. i í Bú- og vinnuvéiadeiid. Risaútsala^f^^a , °g **~SXXn~" H»fið ÆAM*070. OplðvlriadagaW-90 , 8* : :■ wmáiM ....

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.