Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Qupperneq 12
12 Útlönd MÁNUDAGUR 11. MARS 2002 DV Friðarhorfur aukast fyrir botni Miðjarðarhafs: Sharon léttir ferða- banninu af Arafat Morgan Tsvangirai Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Simbabve, greiðir atkvæði á kjörstað í höfuðborginni Harare. Þingkosningar framlengdar í Simbabve Hæstlréttur í Sirababve úrskurðaöi í gær að þingkosningarnar í landinu, sem hófust á laugardag og ljúka átti i gærkvöldi, yrðu framlengdar um einn dag að kröfu stjórnarandstöðunnar. Kæra stjómarandstæðinga kom til vegna mikilla tafa við atkvæða- greiðslu í höfuðborginni Harare, þar sem þúsundir kjósenda biðu enn þá í biðröðum við allt of fáa kjörstaði þeg- ar kosningu átti að ljúka klukkan nítján i gærkvöldi. Samkvæmt fréttum frá Simbabve í gærkvöldi höíðu stjómvöld ekki sýnt nein viðbrögð við úrskurðinum önnur en þau að Patrick Chinamasa dóms- málaráðherra hefði sagt það í sjón- varpsviðtali að honum yrði örugglega áfrýjað. Dómsmálaráðherrann hafði áður lofað að allir sem biðu í biðröð- unum fengju að kjósa þó svo aö tím- inn væri útrunninn og þess vegna væri algjör óþarfi að fara fram á fram- lengingu um einn dag. Um 5,6 milljónir manna eru á kjör- skrá i Simbave og um miðjan dag í gær höfðu um 2,4 milljónir manna, eða minna en helmingur kjósenda, notað kosningarétt sinn. Spennan í landinu er nú í há- marki og búist við að stjórnarand- staðan með Morgan Tsvangirai í broddi fylkingar geti þjarmað ræki- lega að sitjandi stjómvöldum Ro- berts Mugabes, sem setið hefur viö völd í landinu í 22 ár, eða frá því landið hlaut sjálfstæði frá Bretum. Ariel Sharon, forsætisráöherra ísraels sagðist í gær tilbúinn að létta ferðabanninu af Yasser Arafat, leið- toga Palestínumanna, þar sem hann situr í gíslingu í höfuöstöðvum sínum í bænum Ramallah á Vesturbakkan- um. „Arafat hefur nú loksins farið aö kröfum mínum um að handtaka meinta morðinga Rehavams Zeevis, fyrrum ferðamálaráðherra, og því stend ég við mitt loforð um að aflétta ferðabanninu," sagði Sharon. Þetta þýðir að Arafat getur sótt þing Arababandalagsins í Beirút í Lí- banon seinna í mánuðinum þcU- sem friðartilboð Sádi-Araba verður vænt- anlega afgreitt og einnig beitt sér fyr- ir vopnahléi á svæðinu vegna fyrir- hugaðrar komu bandaríska samninga- mannsins Anthonys Zinnis á ófriðar- svæðið næstu daga þar sem hann ger- ir þriðju tilraun sína til að koma á friði, en seinna í vikunni er Dick Cheney, varaforseti Bandarikjanna, einnig væntanlegur til Israels í ferð sinni um Miö-Austurlönd. Að sögn Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hefur Zinni ver- ið skipað að reyna samningaleiðina til fulls. „Hann mun ekki snúa heim fyrr en í fulla hnefana," sagði Powell. Auk þess að létta feröabanninu af Arafat lét Sharon af þeirri kröfu sinni að friðarviðræður undir forystu Zinn- is hefjist ekki fyrr en eftir vikuhlé á ófriði og er talið að þar hafi hann lát- ið undan kröfum Bush Bandaríkjafor- seta. „Við verðum að koma á vopna- hléi með öllum tiltækum ráðum,“ sagði Sharon og bætti við að krafa sín um sjö daga án blóðsúthellinga væri óhugsandi. Þessi sinnaskipti Sharons koma í kjölfar sprengjuárása ísraela á höfuð- stöðvar Arafats í borginni Gaza í fyrrinótt, þar sem bækistöðvarnar voru gjörsamlega lagðar í rúst til að hefna fyrir sjálfsmorðsárás palest- ínsks Hamasliða á kaffihús í vestur- hluta Jerúsalem á laugardaginn, þar sem ellefu ísraelsk ungmenni létu líf- ið og að minnsta kosti fimmtíu særð- ust. Þá gerðu tveir palestínskir sjálfs- morðsliðar, félagar í al-Aqsa-samtök- unum, vopnuðum armi Fatah-hreyf- ingar Yassers Arafats, skotárás á hóp fólks í bænum Netanya í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að tveir létust, þar af níu mánaöa gamalt barn. Þrátt fyrir sinnaskiptin hélt ófrið- urinn áfram i gær og féllu þá að minnsta kosti fimm Palestínumenn, þar af tveir grunaðir sjálfsmorðsliðar í bil sínum þegar hann sprakk í loft upp í nágrenni Jerúsalem. Höfuöstöðvar Arafats í Gaza lagðar í rúst ísraelskar herþyrlur og byssubátar hófu í fyrrinótt öfiugar árásir á höfuðstöðvar Arafats í hafnarborginni Gaza og iögðu þær gjör- samiega í rúst til að hefna fyrir sjálfsmorðsárás Hamasliða í kaffihúsi í Jerúsaiem þar sem ellefu ísraelsk ungmenni iétu lífið. Meistaranám í Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands Kynningarfundur um meistaranám í Viðskipta- og hagfræðideild verður haldinn þriðjudaginn 12. mars í Odda, stofu 101, kl. 16.00- 17.00. Umsjónarmenn meistaranáms verða ásamt kennurum til viðtals. M.A í mönnðuðafltiórnun M S. í viðskiptöfroiði M13A í við«k*pt/»frr^)ð* M«)iHtöropróf i högfrwð* ») Sfjórr.i.i b) fjérmíti vkinktftti h Dick Cheney Cheneys bíður erfítt verk í tólf landa ferð hans um Evróþu og Mið-Austurlönd Dick Cheney á ferð og flugi Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, hélt í gær í tíu daga heim- sókn til tólf landa í Evrópu og Mið- Austurlöndum til aö ræða ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs og tryggja stuðning og ræða áframhaldandi bar- áttu Bandaríkjamanna gegn hryðju- verkaöflunum í heiminum. Þetta er fyrsta opinbera ferð varaforsetans til útlanda, en fyrsta stopp varaforsetans verður í L'ondon þar sem hann fundar með Tony Blair í dag áður en hann heldur áfram ferð sinni til Kúveits, Egyptalands, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sádi-Arabiu, Bahrin, Qatars, Tyrklands, Ómans, Jórdaniu, ísraels og Jemens. mnm j' . Bin Laden á lífi? Dagblað í Sádi- Arabíu greindi frá því fyrir helgina að hr y ðj uverkaforing- inn Osama bin Laden hefði flutt til fialla með fiöl- skyldu sína skömmu fyrir hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkj- unum þann 11. september sl. Þetta kemur fram í viðtali við eina eigin- konu bin Ladens, sem segist telja að hann sé enn þá á lífi. Skotar fórust í snjóflóði Tveir fiallgöngumenn fórust í snjóflóði í skoska hálendinu um helgina þegar þeir klifu tindinn Beinn Dearg. Mikill snjóbylur gekk yfir svæðið um helgina og féll snjó- flóðið yfir mennina á laugardags- kvöld, en leitarhundar fundu lík þeirra í gær. Tveggja annarra fiall- göngumanna var saknað á Ben Nev- is-fialli, en þeir fundust á lífi í gær eftir að hafa grafið sig í fönn. Straw í símasambandi Jack Straw, utan- rikisráðherra Bret- lands, lagði um helgina sitt lóð á vogarskálamar til að koma á friðar- viðræðum fyrir botni Miðjarðarhafs þegar hann hafði símasamband við samstarfsráð- herra sína í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandarikjunum og hvatti til samvinnu þjóðanna við að leysa vandann. Að sögn talsmanna breska utarikisráðuneytisins var hann m.a. í sambandi við Shimon Peres, utan- rikisráðherra ísraels, og Colin Powell, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, og lagði mikla áherslu á að ESB-löndin og Bandaríkin stæðu þétt saman við að leysa vandann. Sjóslys rannsakað ítölsk stjómvöld hafa fyrirskipað rannsókn á meintu afskiptaleysi hafnaryfirvalda á eyjunni Lampedusa af því þegar lítill bátur með um fimmtíu flóttamenn innan- borðs fórst úti fyrir ströndum Ítalíu á fimmtudaginn með þeim afleiðing- um að tólf manns fórust. Fiskimenn sem komu fyrstir á slysstaðinn kenna hafnaryfirvöld- um á Lampedusa um afskiptaleysi og seinagang og að þau hafi ekki sinnt neyðarkalli bátsins. Bush gagnrýndur Akbar Hashemi Rafsanjani, fyrram forseti írans og mikill stuðnings- maður Ayatollah Ali Khamenei, trú- arleiðtoga írana, gagnrýndi Bush Bandaríkjaforseta harðlega í gær vegna frétta um að bandarísk stjómvöld hefðu skipað varnarmálaráðuneytinu að vinna áætlun um hugsanlegar kjarnorku- árásir gegn íran og sex öðrum lönd- um og sagði þessa framkomu Bandaríkjamanna skammarlega og ekkert annað en kúgun gegn öðrum þjóðum. Síðasta tækifærið Sfundar 22ja utanrík- inn var í Kaíró í Eg- Sharon, forsætisráðherra Israels, fær til að ná sáttum í deilunum við Palestínumenn, en ráðherrarnir hittust til að undirbúa þing Arabasambandsins sem fram fer í Beirút í Libanon 27. og 28. mars nk. Flest arabaríkin hafa lýst yfir stuðningi við tilboðið sem gerir m.a. ráð fyrir að ísraelar hverfi á brott með allt sitt hafurtask frá hernumdu svæðunum í skiptum fyrir viðurkenningu Arababanda- lagsins á tilvist Ísraelsríkis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.