Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Page 18
34
MÁNUDAGUR 11. MARS 2002
Skoðun
Hver er þinn
■át uppáhaidsmatur?
Vala Hafstaö nemi:
Mexíkóskur matur.
Kristín Stefánsdóttir nemi:
Humar.
Aðalbjörg Eiríksdóttir nemi:
Hálfmáni.
Þorbergur Atli Sigurgeirsson nemi:
Maturinn hennar ömmu.
Þröngur sjon-
deildarhringur
Leikurinn endist ævilangt
- frá vöggu til grafar.
Hér í blaðið
skrifaði einn af
mörgum góðum
lesendum þess
stuttan pistil um
skort á stjórnend-
um, einkum í
stofnunum og fyr-
irtækjum. Hann
sagði að þar sem
ekkert aðhald
væri ríkti stjórn-
leysið sem smám saman yrði
óviðráðanlegt. Þetta stafar, sagði
þessi lesandi í pistli sínum, af
vanhæfni stjómendanna.
í þessu sambandi vitna ég í
annan og þekktan skríbent, Þor-
vald Gylfason hagfræðing, sem
sagði í Lesbókar-rabbi nýlega að
sjaldgæft væri um íslenska stjóm-
málamenn að þeir hefðu búið í út-
löndum við nám eða störf. Þetta
þrengdi sjóndeildarhring þeirra
og ýmissa bandamanna þeirra í
atvinnulífínu og skerti möguleika
þeirra til að ná góðum árangri í
starfi. Og skýrði að nokkru hvers
vegna ísland ætti miklu minni við-
skipti við umheiminn en efni stæðu
til. - Þetta á að sjáifsögðu einnig, og
ekki síður, við um stjómendur í fyr-
irtækjum.
En lítum okkur nær. - Hvað skeð-
ur á heimili sem er stjómlaust og
sem stenst ekki þá þrekraun að
forðast hávaðann, hraðann og helg-
amar? Það getur tekið á taugamar,
t.d. þar sem unglingar eru uppistað-
an á heimilinu. Nema þar sem gild-
ismat og ábyrgð hefur sérstaklega
verið haft í fyrirrúmi allt frá upp-
„í íslensku nútímaþjóðfé-
lagi er ofvirkjanum tekið
tveim höndum. Flótti hans
frá sjálfum sér er hertur
með þeirri velþóknun sem
þjóðfélagið hefur á hraða,
atorku, snöggum viðbrögð-
um og glymþörf. “
hafi stofnfjölskyldunnar. En í is-
lensku nútímaþjóðfélagi er ofvirkj-
anum tekið tveim höndum. Flótti
hans frá sjálfum sér er hertur með
þeirri velþóknun sem
þjóðfélagið hefur á hraða,
atorku, snöggum við-
brögðum og glymþörf. -
Ofvirkinn er því i senn
konungur og þræll sam-
tíðar sinnar.
Sjóndeildarhringur ís-
lendinga er satt best að
segja í þrengra lagi. Trú-
lega má rekja það til þess
að frá blautu bamsbeini
hefur einstaklingurinn
hér engar skyldur frá
vöggu til grafar, utan
grunnskólaskylduna. í
flestum löndum eru
a.m.k. lagðar skyldur á
herðar ungra manna þar
sem er herskyldan, oftast
12 til 18 mánuðir. Hér er
ekki einu sinni þegn-
skylduvinna af nokkru
tagi. Það er skaði.
Það er líka skaði að
stjórnendur fyrirtækja og stofnana
hér (einnig svonefndir millistjóm-
endur) skuli ekki skyldaðir til að
starfa í viðlíka fyrirtækjum á er-
lendum vettvangi. Bara til að kynn-
ast öðram viðhorfum tii ábyrgðar,
stjórnunar og starfsanda.
Það myndi strax lina kvalimar af
daglegum fréttum af misgengi, mis-
klíð og misferli innan fyrirtækja.
Við þurfum ekki að vera þátttak-
endur í ESB til að fá inni í erlend-
um fyrirtækjum fyrir starfskynn-
ingu. Við myndum örugglega fá inni
hjá Svisslendingum, okkar mikil-
vægustu viðskiptaþjóð. - Þeir era
ekki í ESB.
Dreifstýrð miðstýring
Birgir Haraldsson nemi:
Það er fýil, mamma matreióir hann.
Ásthildur Ástudóttir nemi:
Píta.
Reynir Antonsson
skrifar:
Fyrir nokkra var verið að ræða í
þinginu byggðaáætlun sem raunar
var þá fallin úr gildi og ekki skiptir
nú máli nema hvað þar kom nefnd-
ur þingmaður Pétur H. Blöndal
fram með þá kenningu að ríkinu
væri miðstýrt. Þarna fellur þing-
maðurinn að sumu leyti í sömu
gryfjuna og margir fleiri allt frá
tímum Loðviks konungs 14. sem
einfaldlega sagði „Ríkið þaö er ég“,
sem eiginlega er sama rökvillan og
hjá þeim sem setja samasemmerki
milli rikis og stjórnsýslu.
Að skilgreina ríkið hefur verið
helsta viðfangsefni stjómmálafræð-
inga og heimspekinga alit frá tíma
Hér á íslandi er stjórnsýsl-
an með einfaldasta móti,
enda stjórnsýslustigin að-
eins tvö, ríki og sveitar-
stjórnir, en í flestum Evr-
ópuríkjum eru þau að
minnsta kosti þrjú.“
Platons. Sú skilgreining sem líklega
kemst hvað næst raunveruleikan-
um er sú, að ríkið sé eins konar
skipulagsform eða safn leikreglna
sem tiltekinn hópur á tilteknu
svæði kemur sér saman um. Stjóm-
sýslan sé hins vegar eins konar
tæki til að framfylgja því og útfæra.
Hér á íslandi er stjómsýslan með
einfaldasta móti, enda stjómsýslu-
stigin aðeins tvö, ríki og sveitar-
stjómir, en í flestum Evrópuríkjum
eru þau að minnsta kosti þrjú. Að
ekki sé nú talað um ríki sem í raun-
inni eru ekki ríki heldur samband
eða bandalag ríkja, eins og Banda-
ríkin, Sviss og að nokkru Þýska-
land. ísland ætti samkvæmt þessu
að vera miðstýrt ríki, en til dæmis
Símamálið, sem er á allra vörum
þessa dagana, gæti bent til þess að
svo sé ekki endilega. Skýringin
kann að vera einfóld: að aðilamir
að ríkinu, þ.e. þjóðin, hafi í raun-
inni engan vilja í reynd til að draga
menn til ábyrgðar.
Með lækni og prest í liðinu
jn Reykjavíkurlistinn hafði mikinn viðbúnað
og lét sig ekki muna um að boða til sérstaks
blaðamannafundar á föstudag þegar tilkynnt
var hverjir skipa myndu 9. og 12. sæti listans í
kosningunum í vor. Þegar var þó lýðum orðið
ljóst að Dagur B. Eggertsson, læknir og spak-
mælaritari Denna dæmalausa, myndi skipa 9.
sætið. Enginn sá þó 12. sætið fyrir. Ekki einu
sinni heimildamenn Garra í innsta hring
stjómmálanna sem þó eru þefvísar á flest sem
þar kann að gerast. En útkoman var sem sagt
vígð kona með hvítan kraga, séra Jóna Hrönn
Bolladóttir. Hún er mikil og sver um sig - og
upp kemur í hugann erindi úr Áfongum Jóns
Helgasonar þar sem segir „ ... ein er þar kona
krossi vígð,/ komin i bland við tröllin".
Þegar Bjöm Bjarnason gaf kost á sér í borg-
arstjómarslaginn fyrr á þessum vetri boðaöi
hann í samtali við DV að baráttanyrði átaka-
mikil. Garra var f fyrstu ekki ljóst hvað fælist
1 þessum orðum. Vildi satt best að segja ekki
trúa að Bjöm hygðist leggja upp í átök af
þeim toga sem ráðherrann fyrrverandi hefur
þó góða þekkingu á, sem einn helsti hernaðar-
sérfræðingur íslendinga. Garri bjóst við orra-
hríðum meö orðsins brandi og rökræðum fyr-
ir augum og eyrum kjósenda þannig að þeir
gætu með góðum og glöggum hætti gert sér
grein fyrir hvort skynsamlegra væri að kjósa
D eða R nú í vor. Sitthvaö bendir hins vegar
til þess að átökin sem Sjálfstæðisflokkurinn
boðaði séu af öðrum toga. Hér sé átt við
spjótalög, víg og leiftursóknir en síðarnefnda
hemaðarbragðið hefur flokkurinn áður notað.
Flestum mun hins vegar þykja skárra aö um
árangur þess sé ekki fjölyrt hér.
Garra þykir fullljóst að það fólk sem skipar
sér í raðir Reykjavikurlistans hafi fýrir all-
löngu séð það sem hér er að framan reifað; að
baráttan í vor verði átakamikil þannig að
mannfall geti eitthvað orðið. Hemaðarsérfræð-
inginrinn í Háuhlíð, Bjöm Bjamason, sé farinn
að tygja til vopn sín. Hinn tveggja metra hái
lögregluforingi borgarinnar, Geir Jón Þóris-
son, sé farinn að búa sina menn undir hiö
versta. Sjúkrahúsin að fullskipa vaktir sínar
og hafi tiltækar nægar birgðir frá Blóðbankan-
um. Svona má áfram telja af þeim viðbúnaði
og varúðarráðstöfunum sem Garri hyggur að
séu nú kortlagðar. Borgarstjóri, sem jafnframt
er formaður Almannavamanefndar Reykjavík-
ur, veit svo sem hvaða viðbúnaðarráðstafanir
er verið að skipuleggja í hverjum ranni. Ingi-
björg Sólrún hyggur einnig að eigin herliði,
Reykjavíkurlistanum, og leggur Upp í barátt-
una með lækni og prest í liðinu.
(\xrrL
Góðmálmur eða ryðjám?
- Ekki einu sinni „litlir starfsmenn“.
Starfsmannahreinsun
Stefán Jónsson skrifar:
Menn eru nú á hraðferð í þjóðfélag-
inu til þess að komast hjá þvi að
lenda í „myllunni" (eins og það var
orðað svo snilldarlega í sögunni af
Oliver Twist eftir Dickens), m.ö.o. að
forða sér undan því að vera bendlað-
ir við hneykslismál sem efst eru á
baugi í dag. Nú síðast sá ég í sjón-
varpsfréttum um Ámamálið fræga að
forsvarsmaður ístaks fullyrti að
starfsmenn þess fyrirtækis hefðu ekk-
ert saknæmt aðhafst í þvi máli. En
var einhver að efast um það? Það er
„litli maðurinn á gólfinu" sem hingað
til hefur komist á skrá sem þjóðhetja
en yflrmenn og stjómendur þeir sem
helst hafa sætt ávirðingum.
Ógildur ráðningar-
samningur?
Sigvaldi Ólafsson skrifar:
Sé einhver vafi á að ráðningar-
samningurinn við Þórarin Viðar Þór-
arinsson hafi verið löglegur, hljótvun
við (almennir borgarar) að kreíjast
þess að starfslokasamningurinn við
hann verði gerður ógildur og Þórar-
inn endurgreiði þá upphæð sem hann
hefur fengið greitt upp í hann.
Johnny Cash
söngvari
- Ókrýndur
konungur
bandarískrar
sveitatóniistar.
Johnny Cash sjötugur
Brynjar skrifar:
Ef eitthvert vinsælt
lag Bítlanna á útgáfu-
afmæli er það básún-
að á útvarpsstöðvun-
um, allt að því veislu-
höld um gervallan
heim. Kannski ekki
furða því vinsældir
þessarar frábæru
hljómsveitar í dægur-
lagasögunni eru gríð-
arlegar. En það væri
ekki úr vegi þótt önn-
ur stórmenni 20. aldarinnar á tónlist-
arsviðinu fengju eins og eina auma
tilkynningu í fjölmiðlum ef þeir
standa á merkum tímamótum.
Johnny Cash, ókrýndur konungur
bandarískrar sveitatónlistar, varð sjö-
tugur í febrúar sl. Ekki þótti ástæða
að minnast á það. Lítið fór nú líka fyr-
ir sextugsafmæli hins stórmerka
Pauls Simon í október. Spuming er
hvað tónlistarmenn þurfa að hafa af-
rekað tO að fá eins og lítið brot af
þeirri athygli sem mismerkilegar dag-
setningar úr Bítlabiblíunni fá. Hár er
filabeinsturninn sem búinn hefur ver-
ið til i kringum þennan heilaga kaleik
í líki fjórmenninga frá Liverpool!
Sturla sleppur ekki
Guðmundur Gíslason skrifar:
Það ráku margir
upp stór augu, vænti
ég, þegar frétt birtist
um það að samgöngu-
ráðherra hefði
skyndilega dottið í
hug að koma eignar-
hlut ríkisins í Síman-
um í hendur íjármála-
ráðherra. -1 ljósi þess
að einkavæðingu
Simans hefði seinkað
og svo miklar breyt-
ingar fram undan á
fjarskiptasviðinu!
Svona billega getur samgönguráð-
herra varla sloppið frá því að vera
ábyrgur fyrir því klúðri og óstjórn
sem upplýst hefur verið um hjá
Landssímanum. Þetta er greinilega
mótleikur samgönguráðherra gegn
niðurstöðu skoðanakönnunar um að
hann eigi að víkja sæti sem ráðherra
fyrir Landssímaklúðrið og fleiri mál
honum tengd í ráðherratíðinni.
Sturla
Böðvarsson
s amgönguráö-
herra.
- Vill losna viö
hlutabréfiö?
PVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.