Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 28
-> 44 Tilvera MÁNUDAGUR 11. MARS 2002 5 > í f iö Ástin í ýmsum myndum Dagskrá helguð ástinni verður flutt í kvöld á vegum Listaklúbbs Leikhúskjallarans. í öndvegi verða ástarljóð eftir Jóhannes Brahms í flutningi Vox Feminae. Einnig munu leikarar flytja óð til ástarinnar í bundnu og óbundnu máli. Dagskráin er önnur af þremur um sama þema hjá Lista- klúbbnum. Hún hefst kl. 20.30 en húsið verður opnað kl. 19.30. Sýningar ■ SVinÐ SEGLUM ÞONDUM I dag lýkur í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjaröar, sýníng- unni Svifiö segtum þöndum frá sjó- minjasafni Álandseyja og Sjóminja-, deild Þjóðminjasafnsins í Astralíu. A sýningunni er rakin saga seglskip- anna sem fluttu hveiti frá Ástralíu til Finnlands. Siglingaleiðin, sem var bæöi löng og hættuleg, er rakin og aðbúnaður mannanna og lífið um borð rifjað upp í myndum, máli og með hlutum úr daglegu lífi sjómann- anna. Á sama tíma eru sýnd í Sverrissal skipamódel Gríms Karls- sonar. ■ AÐFÖNG LISTASAFNSINS Á und anförnum fjórum árum hafa rúmlega fjögur hundruö listaverk bæst í eigu Reykvíkinga og eru þau varðveitt í Listasafni Reykjavíkur. Úrval þess- ara nýju aöfanga eru nú til sýnis í Listasafni Reykjavíkur. Verkin eru unnin frá árinu 1826 til ársíns 2001. ■ YLUR OG ORKA Guðfinna A. Hjálmarsdóttir er með sýningu í Galleríi Reykjavík, Skólavörðustíg 16. Ylur og orka háhitasvæöanna fæðir af sér draumkenndan gróðurheim sem er yrkisefni sýningarinnar. Verkin eru raflýst og sýnd í myrkvuðu rými. Sýningin er opin frá 12-18 á virkum dögum og lengur um helgar. ■ GRJÓT, HROSSHÁR OG VATN Sýnlngin Þetta vil ég sjá í Geröubergi er samansafn listaverka sem dagskrárgerðarkonan Eva María Jónsdóttir hefur valið. Verkin eru eftir fjölmarga íslenska listamenn og þar getur að líta vatn, grjót, hrosshár, útsaum, Ijósmyndir og olíumálverk. ■ GLER OG MÓSAÍK Rósa Matthíasdóttlr sýnir á Café Rue Royale í Smáralind. Verkin hennar heita: Elding, Enginn eins, Fullt tungl, Gleym mér ei, Klettur, Skýjabólstur og Spáðu I mig. Þau eru unnin I gler og mósaík. ■ ÓÐÓL OG INNRÉTTINGAR Ljósmyndasýni.ng Guðmundar Ingólfssonar, Óðöl og innréttingar, stendur enn í Grófarsal, Grófarhúsi og er opin frá 12-17 virka daga og 13 til 17 um helgar. ■ MYNPHÖCGVARAR SÝNA Myndhöggvararnir Hallstelnn Sigurðsson og Þór Vigfússon eru með sýningu i miðrými Kjarvalsstaða um þessar mundir. ■ HELGA í KAFF1 MÍLANÓ Helga Erlendsdóttir, listakona í Arnanesi, sýnir olíumálverk á Kaffi Mílanó í Faxafeni í Reykjavík. Þar er um að ræöa bæði abstrakt verk og fígúratívar landslagsmyndir. ■ DIABOLUS Á USTASAFNINU Nú stendur yfir í Listasafni Islands sýning á Diabolus, verki Finnboga Péturssonar sem er innsetning í formi hljóðskúlþtúrs. Æskan og hesturinn: visa ! Electron Knapar fara á kostum Glæsileg hestasýning fór fram í Reiðhöllinni í Víðidal á sunnudag- inn sem bar yfirskriftina Æskan og hesturinn. Tvær sýningar voru haldnar og fylltist Reiðhöllin í bæði skiptin. Eins og nafnið gefur til kynna voru það einkum yngstu knapar hestamannafélaganna sem sýndu þar listir sínar, fjölbreytt skemmtiatriði sem öll byggðust á þátttöku þarfasta þjónsins. Komu krakkarnir fram í litríkum og skrautlegum búningum og einstaka hestur var meira að segja dubbaður upp í tilefni dagsins. Augljóst er að mikil vinna og þrotlausar æfingar liggja að baki atriðunum og greini- lega enginn skortur á nýstárlegum og frumlegum hugmyndum hjá yngstu hestamönnum landsins. Var jafnt knöpum sem hestum að von- um vel fagnað af ánægðum áhorf- endum að sýningu lokinni. DV-MYNDIR EINAR J. Lína langsokkur Lína langsokkur leit viö í Reiðhöll- inni um helgina og var aö sjálf- sögöu á hestbaki. Eg berst á fáki fráum ... Þátttakendur léku mikiö meö búninga og litasamsetningar í atriöum sín- um. Þetta atriöi kallast Svart og hvítt og byggist á samspili hvít- og dökkklæddra knapa og hrossa í sama lit. Tónlist og hestamennska Hestamönnum er margt til lista lagt og eru ófáir myndlistarmenn, leikar- ar og tónlistarmenn sem bregða sér á bak í frístundum. Þessar systur léku á fiðlu fyrir gesti Reiöhallarinnar á sunnnudaginn. DV-MYND EINAR J. Utihátíðarstemning Jón Atli Jónasson og Ágúst Jakobsson, tveir aöstandenda heimildarmynd- arinnar Eldborg 2001 - sönn íslensk útihátíö, ásamt fríöum flokki ung- meyja fyrir frumsýningu myndarinnar á föstudaginn. Eldborg á hvíta tjaldið Á fóstudaginn var frumsýnd í Há- skólabíói ný, íslensk heimildarmynd um Eldborgarhátíðina sem fram fór um verslunarmannahelgina i fyrra. Undirtitill myndarinnar er sönn ís- lensk útihátíð en þetta ku vera í fyrsta sinn sem gerð er heimildarmynd um þetta íslenska menningarfyrirbæri. Á myndin án efa eftir að draga að sér fjölda áhorfenda en Eldborgarhátíðin var afar umdeild og umtöluð á sínum tíma svo ekki sé fastar að orði kveðið. Fengu aðstandendur hennar á sig margvíslega gagnrýni að henni lokinni meðal annars vegna skipulagsleysis og ónógrar öryggisgæslu. Biogagnryní ráðið og Aliiance Franpaise á íslandi. Opn- unarsýning kvikmyndahá- tíðarinnar var á kvik- myndinni Hefnd Matthi- eusar (Selon Matthieu) með leikurunum Nathalie Baye og Benoit Magimel í aðalhlutverkum. Var leik- stjóri myndarinnar, Xa- vier Beauvois, viðstaddur frumsýninguna en flestar myndimar sem sýndar eru á Frönskum kvikmynda- dögum eiga það sameigin- legt að vera tiltölulega nýjar og hafa vakið mikla athygli jafnt I heima- Sambíóin - Leikstjörinn í góðum félagsskap Sebastian Nollet, menningarfulltrúi franska sendiráösins, ásamt þeim Friöberti Traustasyni frá Góöum stundum og Xavier Beauvois, leik- stjóra myndarinnar Hefnd Matthieusar. landinu sem og á alþjóðlegum vett- vangi. Ást er ekki nóg I Ám Sam; ★ ★ Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Frönsk kvi1 myndaveisL Á laugardaginn hófust Franskir kvikmyndadagar í Regnboganum en að þeim stendur fyrirtækið Góðar stundir og Regnboginn í samtarfi við franska sendi- Sean Penn leikur Sam, þroskaheftan mann sem býr í eigin íbúð ásamt dótt- ur sinni Lucy (hann skírði hana eftir Bítlalaginu Lucy in the Sky with Di- amonds, en Bítlamir og lögin þeirra era kjölfesta hans í lifinu). Lucy eign- aðist hann með heimilislausri konu sem stakk af strax að lokinni fæðingu - en kveðjuorð hennar vora: mig vant- aöi bara stað til að sofa á. Ekki mikil rómantík þar. Lucy er nýorðin sjö ára þegar mynd- in hefst og strax farin fram úr pabba sínum í vitsmunalegum þroska, hún er klár lítil stelpa og löngu búin að skilja að pabbi hennar er alls ekki eins og fólk flest. Henni gengur vel í skólanum þar til það rennur upp fyrir henni að með aukinni þekkingu fjarlægist hún pabba sinn og þá hættir hún að vilja læra. Þá fyrst taka yfirvöld við sér og ákveöa að Sam sé ekki fær um að ala hana upp og vilja koma henni fyrir hjá fósturforeldrum. Sam berst á móti og fær hina klára Ritu (Michelle Pfeiffer) til að verja sig. Sam er sérstaklega ánægður með hana af því hún heitir sama nafni og Bítlalagskona - Lovely Rita Metermaid. Hún er dæmigerð framakona (á la Hollywood), falleg, stressuð og fúllkomlega búin að að- skilja sig frá eiginmanni og bami. Til að sarrna fyrir samstarfsfólki sínu að hún sé líka „góð kona“ ákveður Rita að taka að sér að verja Sam ókeypis og í gegnum þeirra kynni lærir hún sitt- hvað um ást og hjartahlýju. Sjaldan hefúr maður séð aðra eins vannotkun á góðum leikurum og hér. Sean Penn hefur endurtekið sannað yf- irburðaleikhæfileika sína, síðast í hinni frábæra Woody Allen-mynd, Sweet and Lowdown. Hér bætir hann því miður ekki rós í hnappagatið. Hann er ekki að leika illa, hann er ef- laust ófær um það, heldur flýtur í gegnum hlutverkið á sjálfstýringunni. Michelle Pfeiffer er heldur ekki að sýna okkur sína bestu hlið, hún leikur hlutverk Ritu eins og í svefhi. Dakota Fanning sem leikur Lucy er hins veg- ar yndisleg og verður öragglega tiður gestur á hvíta tjaldinu eftir þetta með fríða, alvöragefna andlitið sitt. Handritið af I Am Sam er götótt eins og svissneskur ostur og í litlum ef nokkrum tengslum við raunveruleik- ann. Það er sjaldan sem maður heldur með saksóknaranum í réttarhalds- drama af þessu tagi en maður gæti ekki verið meira sammála honum þeg- ar hann heldur því fram að Lucy eigi betra skilið. Ást er ekki nóg - þótt Bítl- amir hafi haldið öðra fram. Það sem er samt vel gert og skemmtilegt í kvik- myndinni er samband Sams við þær Lucy og Ritu. Samtöl þeirra era skemmtileg, persónuskýrandi og þró- ast með kvikmyndinni. Einnig era prýðilega fyndin atriði með mis- þroskaheftum vinum Sams. En ég er hrædd um að leikstjórinn hafi lagt af stað með meiri metnað en svo að skapa mynd með glettilega skemmti- legum atriðum í annars losaralegri og ósannfærandi mynd. Sif Gunnarsdóttir Leikstjóri: Jessie Nelson. Handrlt: Kristine Johnson & Jessie Nelson Kvlk- myndataka: Elliot Davis. Aðalleikarar: Sean Penn, Michelle Pfeiffer, Dakota Fanning o.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.