Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Síða 32
notuðum bttum
a
SFRETTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 11. MARS 2002
Mýrdalur:
Snjóflóðaæfing
og snjóflóð um
somu helgi
EUefu ungliðar frá Björgunarsveit-
inni Vikveija héldu upp á Mýrdals-
jökul á fóstudagskvöld til snjóflóðaæf-
inga. Með í för voru þrír reyndir
björgunarsveitarmenn sem kenndu
unglingunum snjóhúsagerð og
skyndihjálp. Lítið vissi hópurinn um
það að sú kunnátta gæti nýst svo
fljótt sem raun bar vitni en snjóflóða-
æfingunni var varla fyrr lokið en
raunverulegt snjóflóð féll á Reynis-
hverfi. Hópurinn var því ekki til taks
sem að sögn Bryndísar Harðardóttur
hjá Björgtmarsveitinni Víkverja kom
þó ekki að sök því nógur mannskap-
ur var á svæðinu. 30 björgunarsveit-
armenn voru við störf í allan gærdag
og er sá hópur klár í startholunum ef
■^frekari flóð verða. Leiðbeinendumir
af snjóflóðaæfingunni mættu einnig
beint til starfa þegar þeir komu niöur
af jöklinum eftir hádegi í gær. -snæ
Sjá bls. 2
Eldur við
heimilisstörf
Á laugardagsmorgun barst
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
tilkynning um eld í fjölbýlishúsi við
(-_^Fálkagötu. Þar hafi kviknað í
'þvottavél og þurfti að reykræsta
íbúðina. Sama dag um kvöldmatar-
leytið var slökkviliðið svo kallað að
Hringbraut en þar hafði reykskynj-
ari látið í sér heyra. Eldurinn í
þeirri íbúð var minni háttar en
hann hafði kviknað út frá elda-
mennsku.
-snæ
Lögreglan í Kópavogi:
Andlát
rannsakað
Lögreglan í Kópavogi rannsakar
nú andlát sextugs karlmanns sem
lést í heimEihúsi í Kópavoginum.
Það var rétt eftir miðnætti á laug-
■ ardagskvöld að lögreglunni barst
tilkynning um andlátið en þegar
lögreglan kom á staðinn þá voru,
auk hins látna, karl og kona í íbúð-
inni sem voru undir áhrifum
áfengis. Þau voru tekin á stöðina
þar sem þau voru látin sofa úr sér
og skýrsla síðan tekin af þeim og
var þeim sleppt að henni lokinni.
Dánarorsök er að svo stöddu
ókunn en lögreglan rannsakar
málið. -snæ
Lést í bílslysi
Maðurinn sem lést í tveggja bila
árekstri rétt austan við Selfoss á
föstudagskvöld hét Ingvar Guð-
pmundsson, til heimiiis að Banka-
vegi 2 á Selfossi. Ingvar var fæddur
árið 1979 og heföi orðið 23 ára í gær.
STURLA V\ÐAR
AÐ SÉR!
Svona lítur hinn 21 árs gamli Týri út en
eigendurnir eru hræddir um aö hann
fari sér aö voöa vegna lélegrar sjónar.
Fjörgamall högni:
21 árs högni
er tyndur
Söknuður
Guömunda og Gunnar eru miöur sín yfir hvarfi hins aldraöa Týra af heimilinu. Þeir sem hafa séö högnann geta haft
samband í síma 553 2543.
„Hann er ekki vanur því að vera ut-
andyra núorðið. Hann er orðinn svo
gamall og er líka orðinn hálfblindur,“
segir Guðmunda Petersen sem er mið-
ur sín yfir því að kötturinn hennar sé
týndur. Týri, sem er svartur högni
með aðeins hvítt í andliti og á skotti,
er hvorki meira né minna en 21 árs
gamail og því veldur hvarf hans eig-
endum hans töluverðum áhyggjum.
Þetta er ekki fyrsti kötturinn í eigu
þeirra hjóna, Guðmundu og Gunnars
Petersen, því að eigin sögn hafa þau
haft ketti allt frá því þau byrjuðu bú-
skap fyrir tæpum 50 árum. Enginn
köttur í eigu þeirra hefúr þó náð eins
háum aldri og Týri. Aðspurð hvað hún
telji valda þessum háa aldri segist
Guðmunda ekki vita það, hún hafi alið
hann bæði á kattafóðri sem og kjöti og
fiski. Týri er búsettur á Kambsvegi 36
og er vel merktur. -snæ
Aðalfundur Landssímans í dag:
/
Stjórninni mun skipt út |
- ræðu Friðriks Pálssonar beðið með eftirvæntingu
Samkvæmt heimildum DV gekk ekki
þrautalaust að manna nýja stjóm
Landssimans, sem tekur við á aðalfundi
fyrirtækisins í dag. Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hefur lýst þvi yfir
opinberlega að enginn núverandi stjóm-
armanna sitji áfram. Fækkað verður í
stjóminni úr 7 í 5. Sturla mun á fundin-
um í dag gera tillögu um nýja stjóm og
er öraggt að hún verður samþykkt, enda
fer ráðherrann með yfir 90% atkvæða í
fyrirtækinu.
Ljóst er að ekkert samráð var haft við
stjómarandstöðuflokkana um stjómina
að þessu sinni. En þótt gera megi ráð
fyrir að nýir stjómarmenn verði fremur
úr hópi stuðningsmanna ríkisstjómar-
innar er stefnt að því að stjómin verði
skipuð „ópólitísku" fólki með reynslu
úr viðskiptalífinu.
Ekkert hefur fengist staðfest um nýja
stjómarmenn en einn þeirra sem oft
hefur verið nefndur í þessu sambandi er
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Urðar Verðandi
Skuldar og formað-
ur útvarpsráðs.
Hann sagði í sam-
tali við DV í gær-
kvöld aö hann yrði
hvorki næsti
stjómarformaður
né forstjóri Lands- _________ ________
simans enda heföi
hann nóg annað að
gera. Heimildar- Friörik
maður blaðsins Pálsson.
taldi auk þess að Gunnlaugur væri of
tengdur Sjálfstæðisflokknum til að
framsóknarmenn gætu samþykkt hann.
Sturla
Böövarsson.
Tilgátur
Samkvæmt heimildum DV hafa
nokkrir verið beðnir að taka sæti í
stjóm Landssimans en afþakkaö það.
Hörður Sigurgestsson, fyrrverandi for-
stjóri Eimskips, er sagður einn þeirra
en Hörður neitaði því í samtali við blað-
ið í gærkvöld og sagðist enn fremur
hafa nóg að gera. Aðrir sem nefndir eru
sem hugsanlegir
stjómarmenn era
Hildur Petersen,
stjómarformaður
ÁTVR og fýrrver-
andi framkvæmda-
stjóri Hans Peter-
sens, Brynjólfur
Bjamason, fram-
kvæmdastjóri
Granda, Guðfinna
S. Bjamadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík og stjóm-
armaður í Baugi, og Láras Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri sölu- og markaðs-
mála hjá Marel. Heimildarmenn blaðs-
ins era ekki samstiga í mati á þvi hvort
þetta fólk er líklegt til að taka sæti i
stjóminni. Guðfinna var sú eina sem
náðist í og hún sagðist ekkert hafa heyrt
um málið. Mörgum viðmælenda blaðs-
ins kom á óvart að engar staðfestar upp-
lýsingar um skipan stjómarinnar
skyldu hafa lekið út.
Ein athyglisverð tilgáta átti hljóm-
grunn hjá mörgum, en hún er sú að leit-
að verði eftir því við Bjarna Ármanns-
son, annan bankastjóra íslandsbanka,
að setjast í forstjórastólinn í Landssím-
anum.
/
Flosa og Sigrúnu „boðið“
Rétt til setu á aðalfundinum hafa um
tvö þúsund hluthafar í fyrirtækinu. Auk
þess bauð fráfarandi sfjóm Landssím-
ans þeim Flosa Eiríkssyni og Sigrúnu
Benediktsdóttur að koma til fundarins,
en þau sögðu sem kunnugt er af sér
stjómarmennsku í fyrirtækinu. Hvor-
ugt þeirra sagðist í samtali við blaðið
gera ráð fyrir að láta nokkuð að sér
kveða á fundinum.
Ræðu Friðriks Pálssonar, fráfarandi
stjómarformanns, er hins vegar beðið
með mikilli eftirvæntingu. Líkur era
taldar á að hann noti þetta tækifæri til
þess að rétta hlut sinn eftir þá miklu
gagnrýni sem sett hefur verið fram á
störf hans undanfamar vikur.
-ÓTG
Aðalfundur íslandsbanka í dag:
Jón Olafsson á útleið
Jón Ólafsson er samkvæmt heim-
ildum DV að ganga frá sölu á um
það bil 6% hlut sínum í íslands-
banka. Ekki er vitað hver kaupir en
Kaupþing hefur milligöngu um
kaupin fyrir einstakling.
Sjáifkjörið verður i stjóm bank-
ans á aðalfundi í dag. Meirihluti
stjórnarinnar heldur velli og Þor-
steinn Már Baldvinsson og Jón Ás-
geir Jóhannesson verða fulltrúar
Orca-hópsins. Staða sjöunda stjóm-
armannsins, Gunnars Jónssonar
lögmanns, verður hins vegar ótrygg
- gæti haft áhrif á stjórn bankans
Jón Olafsson.
stjórnarmanninn
til lengri tíma lit-
ið gangi það eftir
að Jón Ólafsson
selji hlutinn, þar
sem litið hefur
verið á Gunnar
sem fulltrúa Jóns
í bankaráðinu.
Samkvæmt heim-
ildum DV er ríf-
lega 7% hlutur á
bak við síöasta
í bankanum
þannig að kaupandinn að bréfum
Jóns Ólafssonar þyrfti ekki að bæta
miklu við til þess að tryggja sér sæti
í bankaráðinu. Eigandi eða eigend-
ur að samtals tíu prósenta hlut í
bankanum geta krafist hluthafa-
fundar og látið reyna á hvort hann
eða þeir hafa stuðning til að breyta
skipan bankaráðsins.
Kaupverð bréfa Jóns mun vera
hátt í þrír milljarðar króna. Talið er
líklegt að drjúgur hluti verði notað-
ur til þess að renna sterkari stoðrnn
undir rekstur íslenska útvarpsfé-
lagsins. -ÓTG
mtrkluélin:
fyrirfaamenn
og fyrirtœki,
heimlllog \
skíta, fyrir rflð
og regtu, mig
og þig. 'i
nmgnivejl 14 » stal SS4 4443 « If.H/rtfyort