Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Blaðsíða 4
18
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2002
Sport
Haukar unnu öruggan sigur á Víkingum í Víkinni i gær:
Nína var frábær
- skaut Hauka áfram i úrslit íslandsmótsins
Víkingur-Haukar 23-31
0-3, 3-6, 5-9, 10-10, (12-12), 13-12, 15-17,
16-21,17-28, 20-30, 23-31.
Vikinaur:
Mörk/viti (Skot/víti): Gerður Beta Jóhann-
esdóttir 13/7 (27/9), Guðrún Drífa Hólm-
geirsdóttir 5/1 (8/1), Guðbjörg Guðmanns-
dóttir 2 (6), Anna K. Ámadóttir 1 (2), Stein-
unn Bjamason 1 (2), Margrét Egilsdóttir 1
(5), Helga Guðmundsdóttir (2), Helga Bima
Brynjólfsdóttir (3).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Guðrún
Drífa 2, Gerður Beta 1, Steinunn 1).
Vítanýting: Skorað úr 8 af 10.
Fiskuð víti: Helga Bima 4, Steinunn 3,
Anna K. 1, Helga G. 1, Gerður Beta 1.
Varin skot/viti (Skot á sig): Helga Torfa-
dóttir 14/2 (45/7, hélt 6, 31%, 1 víti i stöng).
Brottvisanir: 2 mínútur.
Haukar:
Mörk/víti (Skot/víti): Nina K. Bjömsdóttir
14/5 (20/7), Harpa Melsteð 7 (8), Hanna G.
Stefansdóttir 4 (8/1), Inga Friða Tryggva-
dóttir 1 (1), Tirrna Halldórsdóttir 1 (1),
Sandra Anoulyte 1 (1), Ema Þráinsdóttir 1
(2), Brynja Steinsen 1 (4), Thelma B. Áma-
dóttir 1 (4).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 10 (Nína 3,
Harpa 3, Hanna 2, Ema 1, Inga Fríða 1).
Vítanýting: Skoraö úr 5 af 8.
Fiskuð vítU Nína 2, Hanna 2, Brynja 1, Inga
Fríða 1, Harpa 1, Sonja Jónsdóttir 1.
Varin skot/viti (Skot á sig): Jenný Ás-
mundsdóttir 19/1 (42/9, hélt 9, xx%, 1 víti í
slá). Brottvisanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og
Anton Gylfi Pálsson (8).
Gœði leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 250.
Ma&ur leiksins:
Nína K. Björnsdóttir, Haukum
Haukar tryggðu sér sæti í lokaúr-
slitum Esso-deildar kvenna í hand-
knattleik með öruggum sigri á Vík-
ingum, 23-31, í Víkinni á sunnudag-
inn. Þar með unnu Haukar báða
leikina með sannfærandi hætti og
liðið er greinilega á réttu róii og það
verður ekki auðvelt fyrir Stjömuna
að hrifsa af þeim íslandsmeistaratit-
ilinn. Þetta er í fimmta sinn sem
Haukar komast í lokaúrslitin, í
fyrra, 1996, ‘97, ‘98, og svo nú, og
þrisvar hefur liðið hampað þeim
stóra, ‘96, ‘97 og svo í fyrra.
Það var þó ekki eintóm gleði hjá
Haukum í leiknum því Inga Fríða
Tryggvadóttir meiddist á hné í leikn-
um en ekki var vitað hversu alvarleg
þessi meiðsli eru.
Jafnt í leikhléi
í leiknum á sunnudaginn byrjuðu
Haukar mun betur og náðu fljótlega
fjögurra marka forskoti en Víkingar
fóru að saxa á það um miðjan fyrri
hálfleikinn og þegar tuttugu og tvær
mínútur voru liðnar af hálfleiknum
höfðu þær jafnað. Jafnt var í leikhléi
og Víkingum tókst að skora fyrsta
mark síðari háifleiks og ná forystunni
i fyrsta sinn en sú sæla var skamm-
vinn.
Gerður Beta stoppuö
Haukar voru ekki lengi að endur-
heimta forystuna og ná heljartökum á
leiknum. Aðalástæðan fyrir því var
sú að liðið fór að taka Gerði Betu Jó-
hannsdóttur úr umferð en hún hafði
farið hamförum í fyrri hálfleik og
haldið liði sínu á floti. Við því mátti
lið Víkings alls ekki enda er breiddin
ekki neitt sérstök hjá liðinu auk þess
sem sjúkralistinn er orðinn nokkuð
langur og nokkrir lykilleikmenn auk
þess að spila meiddir.
Haukaliðið gaf allt í botn og staðan
breyttist úr 15-17 í 17-28 á rétt rúmum
tíu mínútum. Á lokakaflanum fengu
svo varamenn beggja liða að spreyta
sig enda úrslitin ráðin.
Best á landinu?
Hjá Víking var áðumefnd Gerður
langbest og þá átti Helga Torfadóttir
ágætan leik í markinu en hún fékk á
sig mörg opin skot sem lítið var hægt
að gera við.
Hjá Haukum var Nína K. Björns-
dóttir hreint út sagt frábær og skoraði
mörk í öflum regnbogans litum. Hún
er án efa besti handknattleiksmaður
landsins þegar sá gállinn er á henni.
Fyrirliðinn Harpa Melsted var virki-
lega sterk og er að koma upp á hár-
réttum tíma og þá var Jenný Ás-
mundsdóttir að venju góð í markinu.
Ema Þráinsdóttir, 16 ára stelpa
kom inn á sínum fyrsta meistara-
flokksleik með Haukum og skoraði
eitt mark. -SMS
Jóna Margrét Ragnarsdóttir brýst hér fram hjá Evu Björk Hlö&versdóttur í Gróttu/KR en Jóna Margrét skora&i 5 mörk í leiknum.
DV-mynd ÞÖK
Stjörnuvörnin
^ - sá um Gróttu/KR og skilaöi liðinu í úrslit
„Þetta var kærkomið að fara ekki
í oddaleik, við erum orðnar það
gamlar og beyglaðar,“ sagði Halla
María Helgadóttir, leikmaöur
Stjömunnar, eftir sigur á
Gróttu/KR í öðrum leik liðanna í
undanúrslitum íslandsmótsins,
22-26. Þetta þýðir að Stjarnan mæt-
ir Haukum í úrslitarimmunni.
72% markvarsla
Staðan í hálfleik var 17-13,
heimaliðinu í vil, og sést á því
greinilega hversu kaflaskiptur leik-
urinn var. Tvisvar náði Grótta/KR
afgerandi forystu í fyrri hálfleik en
í þeim síðari tóku gestimir öll völd
og skoruðu 13 mörk gegn einungis 5
frá Gróttu/KR. Enn fremur til
marks um góðan vamarleik Stjöm-
unnar í síðari hálfleik varði Jelena
Jovanovic, markvörður liðsins, 13
af þeim 18 skotum sem hún fékk á
sig sem gerir 72% hlutfallsmark-
vörslu. Það gefur augaleið að það er
afar sjaldséður árangur.
Vorum sofandi í fyrri hálfleik
„Við sáum í hálfleiknum hvað við
vorum sofandi í þeim fyrri og við
vissum að við þyrftum bara að bæta
markvörsluna og þá kæmu hraða-
upphlaupin og forystan á endan-
um,“ sagði Halla María.
Alla Gorkorian, sem skoraði 8
mörk í fyrri hálfleik, var algjörlega
stoppuð af í þeim síðari og fékk afar
fá tækifæri til að beita sér. Þó svo
að stöllur hennar reyndu hvað þær
gátu var vamarmúr Stjömunnar
einfaldlega of sterkur.
Misstum einbeitinguna
„Við byrjuðum af krafti fyrstu
5-10 mínútumar í síðari hálfleik og
svo fór aflt í stopp. Við vorum enn
þá að spila okkur inn í góð færi,
fannst mér, en Jelena varði vel og
síðan hljóp tíminnn frá okkur í
raun og veru. Við misstum svo ein-
beitinguna í vamarleiknum og fá-
um á okkur allt of mörg mörk síð-
asta fjóröung og því ekkert annað
að gera fyrir okkur en að óska
Stjörnunni til hamingju með sigur-
inn og sætið í úrslitakeppninni,"
sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari
Gróttu/KR, eftir leik.
Þær Hálla María, Margrét, Anna
Bryndís og Herdís voru máttarstólp-
ar vamarinnar sem skilaði liðinu
svo miklu. Það var svo gaman að
fylgjast með Önnu skora nokkur
glæsileg mörk í sókninni og Mar-
grét var góð á línunni. Seigla Höflu
Maríu er alrómuð enda mikill bar-
áttuhundur. Jelena var svo sem áð-
ur segir gífurlega sterk í markinu.
1-1 í vetur
Spurð um möguleika Stjömunnar
gegn Haukum sagði Halla María
einfaldlega: „Það er 1-1 þar í vetur.
Við eigum auðvitaö jafna möguleika
þar.“
-esá
Grótta/KR-Stjarnan 22-26
1-0,2-2,4-2, 7-4,8-5,8-9,9-10,12-13, (17-13),
18-13,18-16,19-17, 20-22, 21-25, 22-26.
Grótta/KR:
Mörk/víti (Skot/viti): Alla Gorkorian 10/5
(14/7), Kristin Þórðardóttir 3 (4), Eva Björk
Hlöðyersdóttir 3 (6), Heiða Valgeirsdóttlr 2
(7), Ágústa Edda Bjömsdóttir 2 (7), Edda
Hrönn Kristinsdóttir 1 (1), Ragna Karen Sig-
urðardóttir 1 (4).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 6 (Kristin 3,
Eva Björk 2, Ragna Karen 1).
Vítanýting: Skorað úr 5 af 7.
Fiskuð vitU Eva Björk 2, Kristín 2, Ragna
Karen 2, Heiöa 1, Ágústa Edda 1.
Varin skot/víti (Skot á sig): Hildur Gísia-
dóttir 8 (23/1, hélt 4,35%), Asa Ingimarsdótt-
ir 3 (14/1, hélt 2,21%, 1 vítt I stöng).
Brottvisanir: 2mínútur.
Stiarnan:
Mörk/víti (Skot/víti): Margrét Vilhjálms-
dóttir 7 (9), Anna Bryndís Blöndal 6 (8),
Haila Maria Helgadóttir 5/2 (10/2), Jóna
Margrét Ragnarsdóttir 5 (11), Ragnheiður
Stephensen 2 (6/1), Kristin Jóhanna
Clausen 1 (1), Herdís Sigurbergsdóttir (1).
Mörk úr hraóaupphlaupunu 4 (Anna
Bryndís 2, Halla María 1, Margrét 1).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Fiskuð vitU Margrét 2, Halla María 1.
Varin skot/viti (Skot á sig): Jelena
Jovanovic 20/1 (42/6, hélt 14, 45%, 1 víti í
slá).
Brottvísanir: 6 mínútur.
Dómarar (1-10): Jónas Elíasson og
Ingvar Guðjónsson (5).
Gϗi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 163.
Ma&ur leiksins: Halla María
Heigadóttir, Stjörnunni
Blcsnd í polca
Egill Már Markússon milliríkja-
dómari mun dæma vináttuleik u-21
landsliða Noregs og Svíþjóðar sem
fram fer I Björgvin i Noregi þriðju-
daginn 16. apríl næstkomandi. Áð-
stoðardómarar í leiknum verða þeir
Gunnar Gylfason og Siguröur Þór
Þórsson. Leikurinn er liður í af-
mælishátíð norska knattspyrnusam-
bandsins, sem er 100 ára um þessar
mundir.
A-landslið kvenna leikur gegn ítaliu
i undankeppni HM 8. júní næstkom-
andi. Leikið verður i Arzachena á
eynni Sardiníu og hefst leikurinn kl.
18 að staðartima. íslenska liðið leik-
ur í afar sterkum riðli í undankeppn-
inni og er afar tvísýnt um það hver
lokastaðan verður, en efsta liðið fer
beint i úrslitakeppni HM, 2. sætið
gefur aukaleiki um sæti á HM, og lið-
ið sem hafnar í neðsta sæti þarf að
leika aukaleiki um fall i 2. styrk-
leikaflokk.
U-17 landslið karla í knattspyrnu
hafnaði í sjöunda sæti á alþjóðlegu
móti á Spáni sem lauk um helgina.
Islenska liðið lék gegn Moldavíu um
sjöunda sætið á mótinu og vann
þann leik, 2-0, en hafði áður tapað
1-3 fyrir Georgiu og fyrir Aserbaídsj-
an í vitakeppni.
Hjálmar Þórarinsson úr Þrótti
skoraði í öllum leikjum islenska liðs-
ins og alls fjögur af fimm mörkum
þess en það fimmta gerði ívar
Björnsson, Fjölni, úr vítaspyrnu i
siðasta leiknum gegn Moldavíu.
HSK og HSÞ urðu á laugardag ís-
landsmeistarar í sveitagímu. HSK
tók Víkverja í kennslustund í karla-
flokki og vann 23-2 en HSÞ vann
HSK 13-3 í úrslitunum hjá kvenfólk-
inu. I sveit HSK eru: Jóhannes
Sveinbjörnsson, Lárus Kjartans-
son, Olafur Sigurösson, Stefán
Geirsson, Helgi Kjartansson og
Daníel Pálsson. 1 sveit HSÞ eru:
Inga Geröa Pétursdóttir,
Hildigunnur Káradóttir, Brynja
Hjörleifsdóttir og Arna Hjörleifs-
dóttir. HSK sýndi síðan sína miklu
breidd í yngri flokkunum og sigraði
þar örugglega í öllum flokkum.
Guðmundur E. Stephensen, Vík-
ingi, varð um helgina Reykjavíkur-
meistari i borðtennis þegar hann
vann félaga sinn úr Víkingi, Markús
Árnason, 3-1, í úrslitaleik. Halldóra
Ólafs úr Vikingi varð Reykjavíkur-
meistari kvenna eftir 3-2 sigur á
Kristínu Hjálmarsdóttur, KR, í úr-
slitum. Guðmundur vann einnig tví-
liðaleikinn ásamt Adam Harðarsyni
úr Vikingi en í tvíliöaleik kvenna
unnu þær Kristin Hjálmarsdóttir
og Aldís Lárusdóttiur, báðar úr KR.
Þá varð Ólafur H. Ólafsson, Ernin-
um, meistari í eldri flokki.
Khalid Khannouchi, hlaupari frá
Marokkó, sló sitt eigið heimsmet i
maraþoni í gærmorgun þegar hann
bar sigur úr býtum i London-
maraþoninu. Khannouchi, sem býr f
Bandaríkjunum, hljóp á tímanum
2.05,38 og bætti met sitt frá árinu
1999 um fjórar sekúndur. -ÓÓJ