Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Side 5
MÁNUDAGUR 15. APRlL 2002
19
x>v
Sport
- hjá Njarðvík eftir annan sigur gegn Keflavík
Njarðvík er komið í mjög svo væn-
lega stöðu í einvígi sínu gegn Keflavík
eftir annan sigur sinn á laugardag en
Njarðvíkingar höfðu betur í ljóna-
gryfjunni, 96-88. Því má kannski segja
að önnur höndin sé komin á bikarinn
því ekkert lið hefur sigrað eftir að
hafa lent 2-0 undir en Keflvíkingar
eru væntanlega með annað í huga.
Keflvíkingar komu ákveðnir til
leiks eftir afhroð í fyrsta leiknum.
Gunnar Einarsson var í miklum ham
til að hyrja með og skoraði 10 af fyrstu
12 stigum liðsins. Hann fékk þrjár
villur í fyrsta leikhluta og varð að yf-
irgefa völlinn og náði sér aldrei á
strik aftur. Gestimir voru duglegir
að ná sér i villur og margar hverjar
óþarfar þar sem menn voru að brjóta
af sér eftir að leikmenn Njarðvíkur
voru búnir að taka vamarfrákast.
Leikurinn var nokkuð jafn fram í
miðjan annan leikhluta en gestirnir
gerðu 22 stig gegn aðeins sjö heima-
manna það sem eftir lifði fyrri hálf-
leiks og voru því með 13 stiga forskot
í hálfleik, 44-57. Vamarleikur Njarð-
vikur var ekki nærri því eins sterkur
og í fyrsta leiknum og Keflvíkingar
búnir að gera aðeins 11 stigum færra
fyrir hlé en þeir gerðu allan fyrsta
leikinn. Það átti þó eftir að breytast
og hefur Friðrik Ragnarsson farið vel
yfir vömina í hálfleik. Hittni Kefla-
víkur var þó mun betri að þessu sinni
og margir að finna fjölina sína. Þá
áttu Davíð Jónsson og Gunnar Stef-
ánsson mjög góða innkomu af bekkn-
um í öðrum leikhluta og kveiktu
ákveðinn neista.
Njarðvík spilaði ekki sem heild í
öðrum leikhluta og var Pete Philo
driplandi boltanum út í eitt. Hann
skoraði 19 stig fyrir hlé en driplaði
menn eins og Loga Gunnarsson út úr
leiknum. Það lagaðist þó aðeins í
seinni hálfleik en betur má ef duga
skal. Hann leitar allt of mikið að síð-
ustu sendingu fyrir körfu í stað þess
að dreifa boltanum og hafa flæði í
sókninni.
Njarðvík herti vömina í byrjun
seinni hálfleiks og tók gestina rúmar
fjórar mínútur að skora sína fyrstu
körfu. Páll Kristinsson skoraði
grimmt i upphafi hálfleiksins en Guð-
jón Skúlason sá tfl þess að Keflavík
var sjö stigum yfir fýrir flórða og síð-
asta leikhluta.
Lokaspretturinn var allur heima-
manna. Þeir komust yfir, 78-77, þeg-
ar rúmar sex mínútur voru eftir. Það
var síðan jafht, 84-84, en þá gerðu
Njarðvíkingar næstu 10 stigin og sigr-
uðu glæsUega. Teiti Örlygssyni var
vikið af velli undir lokin fyrir sitt
annað tæknivíti og fer væntanlega í
eins leiks bann.
Njarðvíkingar virðast vera með
langbesta liðið í dag og em á góðri
leið með að tryggja sér íslandsmeist-
aratitUinn annað árið i röð. Þeir eru
afltaf bestir í lok leikjanna og vömin
smaU heldur betur saman í seinni
hálfleik. Brenton Birmingham spUaði
frábæra vöm á Damon Johnson og
lenti Damon í miklu basli. Brenton
fékk fina hjálp fyrir aftan sig þegar
þess þurfti. Minna bar á honum í
sókninni enda ekki mikið með bolt-
ann en engu að síður hörkuleikur hjá
honum.
Páll orðinn stöðugur
PáU Kristinsson heldur áfram að
spUa eins og engiU, bæði í vöm og
sókn. Hann virðist loksins vera búinn
að ná stöðuleika i sínum leik og hefur
reynst liðinu óborganlegur í úrslita-
keppninni. Friðrik Stefánsson skUaði
sinu í vörninni en fékk boltann lítið í
sókninni og nýttu Njárðvíkingar sér
ekki hæð og styrk kappans undir körf-
unni. Logi var ekki í takt við leik liðs-
ins og mátti telja á fingrum annarrar
handar hversu oft hann fékk að snerta
boltann framan af. PhUo verður að
nýta sér hæfileika drehgsins betur og
koma honum inn í leikinn enda
körfuknattleiksmaður ársins á ferð.
Teitur klikkaði ekki frekar en fyrri
daginn og kom með stórar körfúr á ör-
lagstundu. PhUo gerði marga góða
hluti en verður að geta skorað án þess
að taka frá öðrum, eins og Brenton
gerir svo snUdarlega.
Eftir að hafa spUað vel í fyrri hálf-
leik fór áUt í baklás hjá Keflavík i
seinni hálfleik. Njarðvík lagði mUda
áherslu á að stoppa Damon og nutu
aðrir leikmenn liðsins góðs af því
framan af en menn voru ekki nógu
hreyfanlegir í sókninni eftir það.
Guðjón Skúlason var góður og
mætti spUa meira. Davið Jónsson er
að koma sterkur upp og hefur spUað
báða leikina mjög vel. Gunnar Einars-
son var í miklum ham í byrjun en
vUluvandræði sáu tU þess að hann
kólnaði á bekknum. Gunnar Stefáns-
son átti fínan leik og Jón Hafsteinsson
gerði það sem hann gat. Hann má þó
líta meira á körfuna í sókninni því
hann hefur aUa burði tU að skora
meira enda hæfileikaríkur strákur
þótt hann einbeiti sér of mikið af
ruslavinnunni. Damon virðist vera að
lenda á vegg eftir að hafa gert það sem
hann vUdi gegn Grindavík í undanúr-
slitum. -Ben
Njarövík-Keflavík 96-88
Úrslitakeppni karla 13. aprll 2002
0-2, 6-2, 8-10, 15-14, 17-22, (21-24),
27-27, 33-29, 33-35, 37-35, 37-46, 41-53,
(44-57), 51-57, 57-61, 57-65, (62-69),
67-73, 75-75, 84-84, 94 84, 96-88.
é tJD
Mfn. Skot Víti c« V c«
Philo 37 12/9 14/10 4 9 30
Logi 26 7/2 2/2 3 # 7
Brenton 40 11/6 7/3 5 4 16
Páll 27 14/7 4/3 11 3 17
Friðrik 26 4/1 8/4 9 2 6
Teitur 21 7/4 2/2 6 1 12
Ragnar 15 2/1 2/2 2 0 5
Halldór 8 2/1 2/1 2 1 3
Sævar
Sigurður
Skotnýting: 59/31, 53%. Fráköst: 42.
Sóknatfráköst: 8 (Friðrik 2, Páll 2,
Philo, Brenton, Logi, HaUdór).
Stolnir boltar: 9 (Brenton 4, Friðrik 3,
Philo, Páll).
Varin skok 8 (Friðrik 4, Páll 3, Teitur).
3ja stiga skot 18/7 (PhUo 4/2, Teitur
5/2, Brenton 1/1, Ragnar 2/1, Logi 4/1,
PáU 2/0).
Tapaöir boltar: 18. Villur: 19.
fHSTKffTI -*■» </5 wi o 2
Mfn. Skot Vití £ OO OO
Sverrir 30 10/2 o/o 1 3 4
Magnús 28 12/5 0/0 4 2 12
GimnarE. 23 10/4 0/0 1 1 10
Jón 24 1/1 0/0 6 0 2
Damon 40 19/7 4/4 14 5 18
Guðjón 24 14/7 3/3 0 1 21
Falur 6 2/1 0/0 0 0 2
Davíð 11 5/4 2/2 4 1 12
Gunnar S. 14 5/2 1/1 1 1 7
Haildór 0 0/0 0/0 0 0 0
Skotnýting: 78/33, 42%. Fráköst: 32.
Sóknarfráköst: 8 (Jón 2, Davíð, Sverrir,
Magnús, Gunnar E., Gunnai- S., Damon).
Stolnir boltar: 15 (Sverrir 4, Damon 4,
Jón 3, Magnús 2, Gunnar E., Gunnar S.).
Varin skot 8 (Damon 4, Gunnar S. 2,
Jón 2).
3ja stiga skot 38/12 (Guðjón 10/4, Davið
3/2, Gunnar S. 5/2, Gunnar E. 5/2,
Magnús 6/2, Falur 1/0, Sverrir 3/0,
Damon 5/0).
Tapaóir boltar: 11. Villur: 33.
Dómarar (1-10): Leifur Garöarsson
og Jón Bender (8).
Gϗi leiks (1-10): 9.
Áhorfendur: Um 700.
Maöur leiksins:
Brenton Birmingham, Njarövík
Njarðvíkingar standa meö pálmann í höndunum eftir sigur gegn Keflavík á
heimavelli sínum um helgina. Hér reynir Logi Gunnarsson körfuskot en
hann skoraði aöeins 7 stig í leiknum. DV-mynd Víkurfréttir
Er ruslakarl
- segir Njarövíkingurinn Páll Kristinsson
Páll Kristinsson hefur reynst Njarðvík vel í úrslitakeppninni til þessa og
hefur griðarlega mikilvægu hlutverki að gegna 1 liðinu. Hann vildi þó ekki
gera mikið úr frammistöðu sinni þegar DV-Sport ræddi við hann eftir leikinn.
„Við spiluðum slaka vöm í fyrri hálfleik og þeir fengu of mikið af fríum
skotum, sérstaklega í homunum. Keflvíkingar hittu vel fyrir hlé og nýttu sér
það vel að við vorum á hælunum í vöminni."
Hvaó gerðist sióan i hálfleik því aó það var allt annað sjá varnarleik-
inn i seinni hálfleik ?
„Það var engin áherslubreyting hjá okkur heldur bara ákveðin hugafars-
breyting. Okkur tókst að loka vel á þriggja stiga skotin og það hafði sitt að
segja."
Hvað segir þú mér af sjálfum þér? Þú virðist stöðugri en áður og hefur
spilað griðarlega vel i úrslitakeppninni.
„Ég veit ekki hvort minn leikur hefur tekið neinum stakkaskiptum. Ég
undirbý mig bara vel andlega fyrir leiki. Maður hefur verið í því hlutverki
að vera eins konar ruslakarl. Maður skorar eftir sóknarfráköst en síðan hef-
ur Philo verið að finna mig undir körfunni, “ sagði Páll. -Ben
Jói útherji
Kníittspyriuivorslun
Arnlúlíi 30 • simí 500 1500
www.joiuthprji.iu