Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Side 8
22
MÁNUDAGUR 15. APRlL 2002
Sport
ETÍ, ÞÝSKALAND
L ^--------------------------
Numberg-Bayem Munchen . . 1-2
Krzynowek (73. mín., víti) - Elber
(12.), Pizarro (42).
Gladbach-Wolfsburg .......0-2
Klimowicz 2 (49., 60.).
1860 Miinchen-Freiburg....5-2
Suker (25.), Riseth (29.), Max 2 (45. ,
90., víti), Cemy (60.) - But (33.),
Miiller (67.).
Köln-St. Pauli ...........2-1
Lottner 2 (8., 90.) - Inceman (46.).
Hamburger-Leverkusen......1-1
Barbarez (5.) - NeuviUe (13.)..
Werder Bremen-Schalke 04 .. 3-0
Baumann (24.), Ailton (64.), Frings
(77.).
Hertha Berlin-Hansa Rostock 1-0
Alves (2.).
Stuttgart-Energie Cottbus ... 0-0
Kaiserslautem-Dortmund . . . 1-0
Pettersson (48.).
Staða efstu liöa:
Leverkusen 31 20 6 5 74-34 66
Dortmund 31 18 7 6 54-28 61
B. Míinchen 31 17 8 6 58-23 59
HerthaB. 31 17 7 7 58-33 58
Schalke 04 31 17 7 7 49-31 58
Kaisersl. 31 16 5 10 54-46 53
W. Bremen 31 15 5 11 48-38 50
gi») imia
Atalanta-Torino..............1-1
Berretta (15.) - Franco (50.).
Bologna-Piacenza .............1-2
Fresi 62 - Tosto (3.), Francesco (50.).
Fiorentina-Lazio .............0-1
Castroman (24.).
Inter-Brescia.................2-1
Ronaldo 2 (79., 83.) - Guardiola (29., víti).
Juventus-AC Milan.............1-0
Sjálfsmark (78.).
Lecce-Chievo..................2-3
Chevanton 2 (26. , 40.) - Legrottaglie
(16.), Perrotta (70.), Eriberto (80.).
Roma-Parma...................3-1
Delvecchio (8.), Cassano (41.), Samu-
el (46.) - Aimo (41.).
Venezia-Pemgia...............0-2
Baiocco (36.), Bazzani (39.).
Verona-Udinese...............1-0
Frick (33.).
Staða efstu liða
Inter 31 19 8 4 55-28 65
Roma 31 17 12 2 52-24 63
Juventus 31 17 11 3 56-23 62
Chievo 31 13 11 7 53-44 50
Bologna 31 14 7 10 38-36 49
AC Milan 31 12 12 7 42-32 48
Lazio 31 12 11 8 41-29 47
SPÁNN
Úrslit í 1. deild
Osasuna-Real Madrid .......
Zaragoza-Atletico..........
Tenerife-Betis ............
Barcelona-Alaves...........
Viliarreal-Celta...........
Sevilla-Las Palmas ........
Rayo Vallecano-Valladolid ..
Real Sociedad-Malaga ......
Deportivo-Espanyol.........
Mallorca-Valencia..........
Staöan í 1. deild
Valencia 34 17 12 5 44-26 63
Real Madrid 34 18 8 8 65-37 62
Deportivo 34 18 7 9 57-38 61
Barcelona 34 16 9 9 57-33 57
Celta 34 14 12 8 60-42 54
Real Betis 34 13 14 7 36-28 53
Atletico 34 13 10 11 48-58 49
Malaga 34 12 12 10 40-39 48
Alaves 34 15 3 16 38-40 48
Espanol 34 12 8 14 42-49 44
Valladolid 34 11 9 14 37-52 42
Sevilla 34 10 11 13 45-39 41
VUlareal 34 10 10 14 42-46 40
R. Sociedad 34 11 7 16 41-49 40
Las Palmas 34 9 12 13 37-43 39
Mallorca 34 10 8 16 37-48 38
Osasuna 34 9 11 14 32-44 38
Vallecano 34 9 10 15 38-50 37
Zaragoza 34 9 9 16 32-48 36
Tenerife 34 9 8 17 27-46 35
Fjórum umferðum er ólokið á Spáni
og útlit fyrir mjög spennandi baráttu
um spænska meistaratitilinn eftir tap
Real Madrid um helgina. Það er ljóst
að efstu liðin geta enn misstigið sig og
allt getur gerst. Fallbaráttan er líka
spennandi og enn geta mörg lið fallið
á Spáni.
3-1
2-2
2-1
3-2
2-1
1-1
1-0
2-1
3-1
1-1
r>v
Eiður óð í færum
- Chelsea leikur til úrslita gegn Arsenal um enska bikarinn
Eiöur Smári Guðjohnsen f mikilli baráttu við varnarmenn Fulham f gær. Eiður fékk nokkur mjög góð færi til
að skora í leiknum . Chelsea leikur til úrslita um bikarinn gegn Arsenal.
Undanúrslit ensku bikarkeppninnar fóru
fram í gær og er niðurstaöan sú að stórliðin
Chelsea og Arsenal leika til úrslita. Leikimir,
sem voru báðir háðir á hlutlausum velli, lauk
báðum með 1-0 sigri fyrrgreindra liða. Chelsea
vann Fulham með marki Johns Terrys og Gi-
anluca Festa skoraði sjálfsmark sem skilaði
Arsenal áfram en lið hans, Middlesbrough, sat
eftir með sárt enniö. Það verður því Lundúna-
slagur í bikarúrslitunum i Cardiff 8. maí.
Chelsea fékk ótal færi til þess að gera út um
leikinn og var þar fremstur í flokki Eiður
Smári Guðjohnsen. Ásamt því að fá nokkur
dauöafæri sjálfur tókst honum að skapa önnur
fyrir liðsmenn sína, þó án árangurs. Markið
kom hins vegar frá John Terry á 42. mínútu
eftir horn frá Jimmy Floyd Hasselbaink. Terry
fékk þar með nokkurn veginn uppreisn æru en
hann hafði fyrr í vikunni mætt fyrir rétti
vegna ákæra um líkamsárás og óspektir.
Fulham fékk einnig nokkur færi en mark-
vöröur Chelsea, Carlo Cudicini, sá um að
halda markinu hreinu.
Emmanuel Petit, fyrrum Arsenal-maður og
núverandi leikmaður Chelsea, sagði við BBC
eftir leikinn: „Þetta verður stór leikur fyrir
bæði félög, þó sér i lagi fyrir mig.“
Enginn andstæðingur Middlesbrough í bik-
arkeppninni skoraði mark gegn liðinu í keppn-
inni. Því miður fyrir þá fengu þeir hins vegar
á sig fyrsta markið i keppninni í ár með sjálfs-
marki Festa í leiknum gegn Arsenal í gær.
Hlýtur þessi sérstaki árangur Middlesbrough
að vera einsdæmi í keppninni, að minnsta
kosti fyrir lið sem náði alla leið inn í undanúr-
slit.
Þótt markið hafi komið gegn gangi leiksins
var Arsenal líklegra til að bæta við marki en
Middlesbrough að jafna. „Þetta var mjög erfið-
ur leikur," sagði Arsene Wenger, stjóri
Arsenal, eftir leikinn. „Middlesbrough lék
mjög vel og við þurftum á öllu okkar að halda
til að vinna þá.“
Leikirnir voru hins vegar hálfgerð martröð
fyrir Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfara
Englendinga. Hann var vart búinn að jafna sig
af meiðslum Davids Beckhams fyrr í vikunni
þegar hann sér tvo enska varnarmenn, þá Sol
Campbell hjá Arseanl (tognaði f lærvöðva) og
Ugo Ehiogu hjá Middlesbrough meiðast illa en
markaskorarinn Festa kom einmitt inn á sem
varamaður fyrir Ehiogu.
TO að bætu gráu ofan á svart meiddist þriðji
enski varnarmaðurinn, Graeme Le Saux hjá
Chelsea, í gær og engu líkara en það þurfi að
pakka afgangnum af enska landsliðinu í frauð-
plast svo að þeir verði með lið á HM í Japan og
Suður-Kóreu. -esá
Ronaldo kom til bjargar
- skoraði tvö mörk í lokin sem tryggðu Inter tveggja stiga forustu á toppnum
Brasilíumaðurinn Ronaldo, sem hefur
glímt við slæm meiðsl síðustu árin og allt
þetta tímabil, skoraði tvö dýrmæt mörk
fyrir lið sitt, Inter, í toppbaráttunni
ítölsku knattspymunni í gær.
„Ég vil þakka ítölsku þjóðinni
stuðninginn því að hún hefur alltaf óskað
mér góðs bata og hér á Ítalíu kann ég best
við mig,“ sagði þessi 25 ára knatt-
spymumaður sem ætti að vera kominn á
fullt fyrir heimsmeistaramótið sem hefst
eftir tæpa tvo mánuði. Sigur Inter færði
liðinu tveggja stiga fomstu á Roma en það
er orðið ljóst að baráttan um titilinn
stendur nú á milli þess og Juventus sem
er þremur stigum á eftir Inter.
Bayer Leverkusen í góöum
málum
Bayer Leverkusen náði fimm stiga
forustu í þýsku Bundesligunni um helgina
þegar aðeins þrjár umferðir em eftir
þrátt fyrir að ná aðeins 1-1 jafntefli gegn
Hamburg. Tap Dortmund gegn
Kaiserslautern þýddi hins vegar að
Dortmund mistókst að minnka muninn
niður í þrjú stig en Leverkusen getur
orðið þýskur meistari í fyrsta sinn verði
úrslitin þeim í hag um næstu helgi.
-ÓÓJ
Ronaldo fagnar öðru marka sinna sem hann skoraöi í gær en bæöi komu á lokakafla leiksins og tryggöu Inter
2-1 sigur á liði Brescia en Inter hefur nú tveggja stiga forustu á Roma. Reuters