Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Side 10
24
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2002
Sport
Það er mikil uppgangur í hniti á
Islandi og mikiö af bömum og ung-
lingum sem stunda þessa skemmti-
legu íþróttagrein. Siðustu helgi réð-
ust úrslitin í meistaraflokki en úr-
slitin í yngri flokkunum réðust í
mars þar sem þátttaka var vonum
framar.
Skemmtileg íþrótt
Unglingasíðan fór í vikunni á æf-
ingu hjá Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur og fékk að fylgjast
með. TBR hefur verið mjög sigur-
sælt í greininni.
Krakkarnir voru allir sammála
um hversu skemmtilegt hnitið væri.
Ekki ætluðu aflir að verða keppnis-
menn í framtíðinni heldur æfðu sér
til ánægju.
Byrjaði út af bróður mínum
Iðunn María Sigurðardóttir er ein
af þeim sem æfir hnit sér til gamans
og hreyfingurinnar vegna.
„Þetta er annað árið sem ég æfi
hnit. Bróðir minn hefur æft í mörg
ár og fannst mér afltaf gaman að
fara með honum á æfingar. Síðan
ákvað ég að fara að æfa sjálf. Þá var
gaman að fara í hnit í leikfimi,"
sagði Iðunn þegar hún var spurð
hvað fengið hefði hana tfl að byrja
að æfa.
Iðunn, sem er 13 ára, hefur ekki
keppt enn og segir það ekkert vera
að fara að gerast á næstunni. „Ég
ætla að æfa hnit allavega næstu árin
en ég stefni ekki á neinn feril í fram-
tíðinni. Ég hef ekki keppt á móti enn
og finnst bara gaman að æfa.“
Æfingar byrja strax eftir skóla
Það er óhætt að segja að TBR-hús-
ið sé í notkun meira og minna allan
daginn en krakkarnir æfa snemma á
daginn, strax eftir skóla, en síðan
taka þeir eldri við og þá eru útleigu-
tímarnir á kvöldin.
TBR er með vinsæl leikjanánskeið
á sumrin sem eru alltaf vel sótt og
geta börn farið á slík námskeið í
sumar og kynnst íþróttinni.
-Ben
Á myndinni fyrir ofan eru hress-
ir strákar sem æfa hnit hjá TBR,
en þeir eru, talið frá vinstri:
Klemenz Freyr Friðriksson, Páll
Guðjónsson og Pétur Örn
Ágústsson. Páll og Klemenz
eru frændur og börðust hart sín
á milli á vellinum.
Á myndinni til vinstri eru þær
Kristín Sveinsdóttir, Berta
Sandholt, Ásta Ægisdóttir, Sig-
rún Ósk Stefánsdóttir og Sunna
Ösp Runólfsdóttir.
Pær eru vinkonur og eiga þaö
allar sameiginlegt að æfa hnit.
Þær eiga einnig önnur áhuga-
mál en hnitið er það eina sem
þær eru allar í. Pær eru ýmist í
kór, ballett, blaki, fótbolta, tón-
list eða skátunum. Þær eru all-
ar í sama bekk í Langholtsskóla
og segja að það sé geðveikt
gaman aö æfa hnit.
Asta og Berta eru búnar aö æfa
lengst af þeim öllum, eða í sex
ár, og allar segjast þær ætla að
æfa áfram.
DV-mynd Ben
Þeir Sverrir Sigfússon, Orri Ólafsson, Ingvi Pór Georgsson, Ármann Kristjáns-
son, Sölvi Pétursson og Pétur Einarsson eru allir úr Arbænum. Þeir voru kok-
hraustir þegar DV ræddi við þá og hafa mikla trú á eigin getu. DV-mynd Ben
Skilar sér
- krökkum í grunnskólum boöið á æfingar
TBR hefur í mörg ár boöið
krökkum í grunnskólum í grennd-
inni upp á fríar æfingar til að
kynna þeim hnit. Böm 1 Lang-
holtsskóla hafa lengi notið góðs af
þessu framtaki TBR en í dag æfa
13 bekkir úr skólum á svæðinu
einu sinni í viku.
4. S úr Laugarnesskóla á
æfingu
Þetta framtak TBR hefur svo
skilað sér í því að börnin fá áhuga
á hniti og fara síðan að æfa reglu-
lega með félaginu. Það verður ekki
annað sagt en þetta sé frábært
framtak hjá TBR sem skilar sér
margfalt til baka. Þegar DV kom í
heimsókn voru krakkar úr Laug-
amesskóla að spila en þeir em í 4.
S. Það var ekki annað sjá en þeir
kynnu vel við sig og hefðu gaman
af.
Þeir létu sig ekki muna um að
stifla sér upp fyrir myndatöku i
lok æfingarinnar. -Ben