Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2002, Page 11
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2002
25
I>V
Sport
burðir Schumachers algjörir
- á Imola-brautinni á Ítalíu. Schumacher hringaði David Coulthard
„Það var auðvitað mjög ánægju-
legt að sigra hér á okkar heimavelli.
Áhorfendur voru stórkostlegir og ég
er stoltur af þvi að hafa sigrað fyrir
framan allt þetta fólk,“ sagði Mich-
ael Schumacher eftir öruggan sigrn-
í Formúla 1 keppninni á Ítalíu í
gær.
Þetta var þriðji sigur
Schumachers á árinu í fjórum
keppnum og hafði hann gríðarlega
yfirburði yfir alla aðra keppendur í
gær. Strax í upphafi hélt hann
fyrsta sætinu og lét það aldrei af
hendi. Náði enginn ökumaður að
ógna sigri hans og Schumacher
virðist vera að stinga aðra ökumenn
af í baráttimni um heimsmeistara-
titilinn.
Schumacher slær hvert metið af
öðru. í gær náði hann að verða sá
ökumaður Ferrari sem oftast hefur
verið á ráspól í sögu liðsins í
kappakstri. „Þetta met er mér mik-
ils virði og sýnir ekki einungis að
ég sé góður ökumaður heldur frekar
hve ég hef góða menn með mér.
Þetta er frábært lið þar sem allir
leggjast á eitt og útkomur hafa líka
verið eftir þvi,“ sagði Schumacher.
Ralf Schumacher náði að skjótast
fram fyrir Rubens Barrichello í
startinu en þó var ljóst fljótlega að
Barrichello ók mun hraðar. Við
fyrra viðgerðarhléið komst
Barrichello fram fyrir Ralf og hafði
annað sætið í hendi það sem eftir
var keppninnar. Þetta var í fyrsta
skipti sem Barrichello náði að klára
keppni á árinu og hann er til alls
líklegur í næstu keppnum.
„Það var frábært að ná að ljúka
þessari keppni og hafna i öðru sæt-
inu. Þetta hefur verið frábær helgi
hjá mér og nánast allt gengið upp.
Líklega er þetta besta helgi sem ég
hef átt í Formúlunni. Það var frá-
bært að sigra fyrir framan okkar
áhorfendur og ég er mjög stoltur af
því að aka bíl eins og þessum,“
sagði Barrichello.
Ralf Schumacher var mjög örugg-
ur í þriðja sætinu. Williams-bílam-
ir virkuðu þó ekki eins vel i gær og
í fyrstu þremur keppnunum. „Við
geröum allt sem við gátum í þessari
keppni en því miður dugði það ekki
til betri árangurs að þessu sinni.
Við erum með mjög gott lið en ár-
angurinn var ekki nægilega góður
hér í dag,“ sagði Ralf eftir keppnina.
Það er til marks um gríðarlega yf-
irburði Michaels Schumachers í
gær að þegar sjö hringir voru eftir
af keppninni hringaði hann David
Coulthard og rétt í lokin gerði
Barrichello reyndar það sama. Þess-
ar staðreyndir segja meira en mörg
orð um yfirburði Ferrari eins og
staðan er í dag og hve erfiðleikam-
ir em miklir hjá McLaren. Fyrir
keppnistímabilið voru langflestir
spekingar á því að Schumacher og
Coulthard myndu berjast um heims-
meistaratitilinn. Þeir spádómar
virðast ekki ætla að ganga eftir.
Keppnin í gær gekk mjög rólega
fyrir sig. Enginn árekstur varð í
allri keppninni. Ellefu bílar af 21
komust alla leið í mark. í öllum til-
fellum var um tæknilegar bilanir að
ræða og enginn útafakstur sást í
keppninni. -SK
Formúlu-
punktar
Alls tók 21 bíll þátt í kappakstr-
inum í gær en aðeins 11 komust i
mark. Einn keppandi, Alex Yoong
á Minardi, náði ekki lágmarks-
tima í tímatökunni og var því
meinuð þátttaka í tengslum við
107% regluna. Oft hafa keppnis-
stjómir séð gegnum fingur sér
varðandi þetta atriði en um helg-
ina var engin miskunn hjá Magn-
úsi.
Sigur Ferrari var kærkominn
á Ítalíu I gær. I fyrra datt Michael
Schumacher úr leik á heimavelli
sínum og fannst það ekki
skemmtilegt. Þá vann bróðir hans
Ralf og var það fyrsti sigur hans á
ferlinum.
Reyndar hefur McLaren náð
mjög góðum árangri á Ítalíu und-
anfarin ár. Þetta breyttist verulega
í gær og útlitið er svart hjá Ron
Dennis og félögum hjá McLaren.
Það er greinilega eitthvað mikið
að hjá liðinu og bílamir virka alls
ekki.
Rubens Barrichello náði að
klára keppni í fyrsta skipti á tíma-
bilinu. Hann keppti í fyrsta skipti
á nýja Ferrari-bílnum og hrósaði
honum í hástert fyrir og eftir
keppnina.
McNish á Toyota var fyrstur til
að detta úr keppni en eftir aðeins
nokkrar sekúndur var Toyotan öll
og Nish úr leik. Félagi Nish, Finn-
inn Mika Salo datt einnig úr
keppni.
Michael Schumncher var eins
og kóngur á brautinni í Imola í
gær. Þegar hann hafði aðeins ekið
þriðjung hringjanna 62 fór hann
að hringa öftustu bílana.
Kimi Raikkonen hjá McLaren
er greinilega ökumaður ffamtiðar-
innar hjá McLaren eða öðrum lið-
um. Þessi ungi Finni sýndi og
sannaöi í gær hversu snjall hann
er en ekki er sömu sögu að segja
um bílinn sem liðið útvegar hon-
um. Hann bilaði í lok keppninnar
en Raikkonen var þá nokkuð ör-
uggur með 5. sætið, sæti á undan
David Coulthard.
Um tima leit út fyrir að það ætl-
aði að rigna á meðan keppnin fór
fram. Það hefði verið kærkomið
fyrir Michael Schumacher sem
þykir ekki bara besti ökumaður
heims við þurrar aðstæður heldur
era yfirburðir hans eflaust enn
meiri þegar blautt er.
„Þessi timotaka hér á Ítalíu
var ekki neitt frábragðin öðrum
tímatökum. Ég hef alltaf þurft að
beijast fyrir mínum stað í
rásmarkinu og svo var einnig nú,“
sagði Michael Schumacher eftir
tímatökurnar en hann náði besta
tíma allra í tímatökunum og var á
ffemsta stað við ráslínuna í 45.
skipti á ferlinum.
Úrslitin á Ítalíu
1. Michael Schumacher, Ferrari.
2. Rubens Barrichello, Ferrari.
3. Ralf Schumacher, Williams.
4. Juan Pablo Montoya, Williams
5. Jenson Button, Renault
6. David Coulthard, McLaren
Staða í keppni ökumanna
1. Michael Schumacher........34
2. Ralf Schumacher ..........20
3. Juan Pablo Montoya .......17
4. Jenson Button .............8
5. Rubens Barrichello.........6
6. David Coulthard ...........5
Staða í keppni liðanna
1. Ferrari ...................40
1. Williams ..................37
3. McLaren ...................9
4. Renault ...................8
5. Jaguar ....................3
6. Sauber ....................3
tl------ftl--------------------—