Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 27 Sport Arsene Wenger og Sir Alex Ferguson hafa skipst á skotum í gegnum árin. Liö þeirra mætast í kvöld og þá get- ur Arsenal fagnaö meistaratitli vinni liðið sigur í leiknum eða honum lykti með jafntefli. Lið Arsenal hefur leikið mjög vel á leiktíðinni og er mjög líklegt til að hampa titlinum. Myndir Reuter - sigrar i A kvold? m Bland í poka Arsenal meistari í kvöld? Romario fékk ekki náö yfir augum Felipe Scolaris, þjálfara brasilíska landsliðsins, og er ekki meðal þeirra 23 sem spila fyrir Brasilíu á komandi heimsmeistaramóti. Romario hefur átt frábært tímabil í brasilíska boltanum. Rivaldo og Ronaldo eru hins vegar báðir í hópnum þrátt fyrir að hafa spil- að lítiö og glímt við langþráð meiösli. Hópurinn er annars þannig skipaöur: Markveróir: Marcos (Palmeiras), Dida (Corinthians), Rogerio (Sao Paulo). Varnarmenn: Cafu (AS Roma), Beieti (Sao Paulo), Junior (Parma), Roberto Carios (Real Madrid), Lucio (Bayer Leverkusen), Roque Junior (AC Milan), Anderson Polga (Gremio), Edmilson (Lyon). Miöjumenn: Gilberto Silva (At- letico Mineiro), Kleberson (Atletico Paranaense), Émerson (AS Roma), Vampeta (Corinthians), Ronaldinho Gaucho (Paris Saint Germain), Juninho Paulista (Flamengo), Kaka (Sao Paulo). Sóknarmenn: Edilson (Cruzeiro), Denilson (Real Betis), Rivaldo (Barcelona), Luizao (Gremio), Ronaldo (Inter Milan) Nicolas Anelka er ekki í HM-hópi Frakka en það kom i ljós þegar Roger Lemerre, landsliðsþjálfari heims- og Evrópumeistara Frakka, valdi þá 23 leikmenn sem leika á HM en Frakkar leika opnunarleikinn við Senegel þann 31. maí. Hópurinn er þannig: Markveróir: Fabien Bartez (Manchest- er United), Gregory Coupet (Lyon), Ul- rich Rame (Bordeaux). Varnarmenn: Vincent Candela (Roma), Philippe Christanval (Barceiona), Marcel Desa- illy (Chelsea), Christophe Dugarry (Bordeaux), Franck Leboeuf (Marseille), Bixente Lizarazu (Bayern Miinchen), Willy Sagnol (Bayern Mtinchen), Mikael Silvestre (Manchest- er United), Lilian Thuram (Juventus). Miöjumenn: Alain Boghossian (Parma), Claude Makelele (Real Ma- drid), Johan Micoud (Parma), Emmanu- el Petit (Chelsea), Patrick Vieira (Arsenal), Zinedine Zidane (Real Ma- drid). Sóknarmenn: Djibril Cisse (Aux- erre), Youri Djorkaeff (Bolton), Thierry Henry (Arsenal), David Trezeguet (Juventus), Sylvain Wiltord (Arsenal). - jafntefli nægir Arsenal til að hrifsa meistaratitilinn af Manchester United Úrslitin í ensku úrvals- deildinni í knattspymu gætu hæglega ráðist á Old Trafford í kvöld þegar Manchester United fær toppliðið Arsenal í heim- sókn. Fyrir leikinn hefur Arsenal fimm stiga forskot á Manchester United en að- eins þessi tvö lið geta unnið titilinn. Bæði Arsenal eiga einn leik eftir í deildinni eftir leikinn í kvöld og bæði á heimavelli. Arsenal fær Everton í heimsókn og United mætir Charlton. Arsenal nægir því jafntefli á Old Trafford i kvöld til að tryggja sér meistaratitilinn. Sigur Manchester United myndi hleypa nokkurri spennu í lokaslaginn næsta laugardag. Telja verður þó afar líklegt að Arsenal vinni heimasigur á Everton og tryggi sér þá titilinn á laug- ardag takist það ekki í kvöld. Framkvæmdastjórar lið- anna, Arsene Wenger hjá Arsenal og Sir Alex Fergu- son, hafa oft eldað grátt silf- ur utan við knattspyrnu- völlinn. Undanfarin ár hef- ur Ferguson undantekning- arlítið haft betur á vellinum sjálfum en nú virðist hon- um og lærisveinum hans vera að takast ætlunarverk sitt, nefnilega að hrifsa meistaratitilinn af United. Eftir þessu hefur Arsenal lengi beðið og ekki myndi það draga úr hamingju leik- manna og stuðningsmanna liðins ef titillinn yrði end- anlega innbyrtur á heima- velli United. Arsene Wenger segist sannfærður um að sínir menn vinni titilinn og það strax í kvöld. Ferguson hef- ur á hinn bóginn sagt að Arsenal sé ekki búið að vinna og ef liðið misstígi sig á Old Trafford í kvöld geti óvæntir hlutir gerst næsta laugardag. Annað eins hef- ur gerst í vetur. -SK Matthias Sammer, þjálfari Borussia Dortmund, hugsi á æfingu fyrir úrsiitaleikinn í Evrópukeppni féiagsliöa gegn Feyenoord. Reuters Evrópukeppni félagsliða: Hart barist - Feyenoord og Dortmund mætast Hollenska liðið Feyenoord og ný- krýndir þýskir meistarar Borussia Dortmund mætast í úrslitaleik Evr- ópukeppni félagsliða í Rotterdam í Hollandi í kvöld. Nokkrar vangaveltur voru uppi um hvort leikurinn myndi fara fram vegna morðsins á hollenska stjórnmála- manninum Pim Fortuyn. Forráðamenn hollenska liðsins auk borgarstjórans í Rotterdam voru mjög á móti því að leikurinn færi fram en stjórn Knatt- spymusambands Evrópu ákvað í gær að leikurinn skyldi spilaður samkvæmt upphaflegum áætlunum. Hafa komið á óvart Leikmenn Feyenoord hafa komið mjög á óvart í Evrópukeppninni í vetur og slógu meðal annars ítalska stórliðiö Inter Milan út úr undan- úrslitunum. Þeir hafa innan sinna raða sterka leikmenn eins og sókn- armennina Pierre Van Hooijdonk og Danann Jon Dahl Tomasson og eru til alls liklegir. Þeir misstu af hollenska meist- aratitlinum í hendumar á Ajax og vilja örugglega gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja sér þennan eftirsótta titil. Ekki skemmir að leikurinn fer fram á heimavelli liðsins, De Kuip leik- vanginum. Bert Van Marwijk, þjálf- ari liðsins, sagði í samtali við fjölmiðla í gær að hann byggist við mjög erfiðum leik gegn Borussia Dort- mund á morgun enda taldi hann að þýska liðiö væri eitt það sterkasta í Evrópu um þessar mundir. í sigurvímu Leikmenn Borussia Dortmund mæta til leiks eftir að hafa tryggt sér þýska meistaratitil- inn um síðustu helgi. Þjálfari liðs- ins, Matthias Sammer, hefur á að skipa frábæru liði þar sem fremstir fara Brasilíumennirnir Marcelo Amoroso og Dede og Tékkamir Jan Koller og Tomas Rosicky. Sammer sagði að Feyenoord væri búið aö sýna að þar væri sterkt lið á ferð og það væri hans verkefni að koma sinum mönnum niður á jörðina eftir fagnaðarlætin um helgina. -ósk Bert Van Marwijk. Það kom fátt á óvart í HM-hópi Þjóð- veija sem Rudi Völler tilkynnti í gær en hann fann þó ekki pláss fyrir marka- hæsta mann þýsku Bundesligunnar í vetur, Martin Max. Hópurinn er þannig: Markveröir: Jorg Butt (Bayer Leverkusen) Oliver Kahn (Bayern Munich) og Jens Leh- mann (Borussia Dortmund) Varnar- menm Jorg Heinrich (Borussia Dort- mund), Sebastian Kehl (Borussia Dort- mund), Thomas Linke (Bayern Mun- ich), Christoph Metzelder (Borussia Dortmund), Marko Rehmer (Hertha Berlin), Christian Worns (Borussia Dortmund) og Christian Ziege (Totten- ham Hotspur). Miöjumentu Michael Ballack (Bayer Leverkusen), Sebastian Deisler (Hertha Berlin), Torsten Frings (Werder Bremen), Dietmar Hamann (Liverpool), Jens Jeremies (Bayem Munich), Carst- en Ramelow (Bayer Leverkusen) og Bemd Schneider (Bayer Leverkusen) Sóknarmenn: Gerald Asamoah (Schal- ke 04), Oliver Bierhoff (Monaco), Marco Bode (Werder Bremen), Carsten Jancker (Bayem Munich), Miroslav Klose (Kaiserslautem) og Oliver Neu- vilie (Bayer Leverkusen). Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana í knattspyrnu, hefur valið þá leikmenn sem hann ætlar að taka með til S-Kóreu og Japans á úrslitakeppni HM í lok mánaðaríns. Athygli vekur að Allan Nielsen og Per Frandsen eru ekki í lið- inu. Danska liðið er þannig skipað: Markverðir: Thomas Sorensen (Sund- erland), Peter Kjær (Aberdeen) og Jesper Christiansen (Vejle/Glasgow Rangers). Varnarmenn: Niclas Jensen (Manchester City), Thomas Helveg (Milan), Kasper Bogelund (PSV), Mart- in Laursen (Milan), Steven LustU (Lyn), René Henriksen (Panathinaikos) og Jan Heintze (PSV). Miöjumenn: Thomas Gravesen (Ev- erton), Stig Tofting (Bolton), Claus Jen- sen (Charlton), Brian Steen Nielsen (Mabno FF) og Christian Poulsen (FC Kobenhavn). Sóknarmenn: Ebbe Sand (Schalke 04), Dennis Rommedahl (PSV), Peter Loven- krands (Glasgow Rangers), Jan Michaelsen (Panathinaikos), Jon Dahl Tomasson (Feyenoord), Martin Jargen- sen (Udinese), Jesper Gronkjær (Chel- sea) og Peter Madsen (Brondby). Real Madrid bar sigurorð af landsliði Japans, 1-0, æfmgaleik í Madríd í gær- kvöldi. Það var kólumbíski framherjinn Edwin Congo sem skoraði sigurmarkið á 27. mínútu með skalla eftír auka- spyrnu frá Roberto Carlos. Real Madrid hvíldi nokkra af sinum lykilmönnum en Philippe Troussier, þjálfari Japana, var ánægður með leikinn og sagði hann mikilvægan í undirbúningi liösins fyrir HM. -ÓÓJ/ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.