Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Side 11
11 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 DV Útlönd Fólksfækkun ógnar ísrael - og landleysi Palestínumönnum Oddur Ólafsson blaðamaður Heimsljós Viöskiptin viö ísrael minnka því stöðugt og er efnahagur sjáifstjóm- arsvæöanna í rúst og versnar með hverjum deginum eftir því sem striðsástandið varir lengur. Palest- inskir íbúar í eystri hluta Jerúsal- em em eins illa komnir og landar þeirra á sjálfstjómarsvæðunum. ísraelska stjómin hefur lýst yfir að sá hluti borgarinnar sem áður tO- heyrði Palestínumönnum sé nú ísraelskt yfirráðasvæði og má allt eins búst við landhreinsun þar eins og á mörgiun svæðum öðmm sem Palestínumenn telja sín heimkynni. Til að fara á milli sjálfstjórnar- svæðanna þurfa Palestínumenn að sýna vegabréf sem gefm eru út af ísraelskum yfirvöldum og gilda í mánaðartíma. Þá vera erlendar hjáparstofnanir að notast við er- lendu bílstjórana sem fara um ísra- elskt yflrráðasvæði með matvæli, lyf og önnur hjálpargögn sem skort- ur er á. Sýnt er fram á að það stefhi í stór- slys ef stöðva á allan samgang palestínskra borga og svæða við umheiminn. En engu er líkara en einangra eigi það sem eftir er af Palestínumönnum í sínum heima- byggðum og fer þá að verða vandlif- að þar og stjómarfarið allt í skötu- líki. Fleiri gyðingar flytja nú frá ísra- el en til landsins. Að sama skapi fjölgar arabískum fsraelum hröðum skrefum og ef heldur sem horfir verða gyðingar í minnihluta í rik- inu eftir þrjátiu ár. Þeir sem hér eru taldir vera gyðingar eru það samkvæmt skilgreiningu rabbína- ráðs rétttrúaðra. Síðan Óslóarsam- komulagið var gert árið 1993 hafa hundrað þúsund Palestínumenn flust til ísraels með því að ganga í hjónaband með ísraelskum aröbum. Samkomulag var gert um að inn- flytjendalöggjöf hindraði ekki að fjölskyldum yrði ekki sundrað vegna þess að þær hafa ólíkt rikis- fang. Svona ákvæði er víðast hvar að finna. Nú eru ísraelar að undirbúa ströng skilyrði um hverjir fá að setj- ast að í landinu. Tekið verður al- gjörlega fyrir að Palestinumenn fái að flytja til yfirráðasvæða gyðinga þótt þeir gangi í hjónaband með arabískum fsraelum. í ráði er að nýju ákvæðin um ríkisfang verði afturvirk þannig að hægt verði að senda þá Palestínumenn heim aftur sem á undafórnum árum hafa gifst eða kvænst arabískum ísraeium og hlotið viss réttindi sem íbúar í Landinu helga. Lítill vafi leikur á að til hjóna- banda af þessu tagi er ekki siður stofnað af pólitískum ástæðum en vegna þess að Palestínumenn leggi sérstakan hug á ísraelsku arabana. Sem stendur eru um 28 af hundraði íbúa í ísrael ekki gyðingar. Þeim fjölgar svo ört að verði ekki að gert verða þeir komnir i meirihluta inn- an skamms og málin fara fyrst að vandast þegar arabar verða komnir Það er fleira en aðflutn- ingurinn einn sem skekk- ir framtíðarsamsetningu ísraela. Gyðingakonur eignast mun færri börn en hinar arabísku og sem fyrr segir er aðflutningur gyðinga úr öðrum heims- hornum orðinn minni en hinna sem flytja frá ísra- el. Það er einnig nokkurt áhyggjuefni rétttrúaðra að á síðari árum flytjast einkum gyðingar frá Austur-Evrópu til lands- ins. Yfirleitt eru þeir snauðir og lítt menntað- ir. Aftur á móti flytja þeir sem betur mega og hafa yfir að ráða verald- arauði og málakunnáttu sem gerir þeim auðvelt að setjast að í efnaðri löndum Norðurálfu. í meirihluta í Þjóðþinginu. Þarf því engan að undra þótt síonistamir grípi til harðra aðgerða til að sporna við hröðum aðflutningi Palestínumanna sem um síðir munu bera réttrúaða gyðinga ofur- liði. Það er fleira en aðflutningurinn einn sem skekkir framtíðarsamsetn- ingu ísraela. Gyðingakonur eignast mun færri böm en hinar arabísku og sem fyrr segir er aðflutningur gyðinga úr öðrum heimshornum orðinn minni en hinna sem flytja frá ísrael. Það er einnig nokkurt áhyggjuefni rétttrúaðra að á síðari árum flytjast einkum gyðingar frá Austur-Evrópu til landsins. Yfirleitt em þeir snauðir og lítt menntaðir. Aftur á móti flytja þeim sem betur mega og hafa yfir að ráða verald- arauði og málakunnáttu sem gerir þeim auðvelt að setjast að í efnaðri Gráir fyrir járnum Eftir hverja hryðjuverkaárás sem öfgamenn gera á ísrael ræðst ísraelski herinn á borgir og bæi Palestfnumanna. löndum Norðurálfu. Á þessu má sjá að innflytjenda- málin í ísrael era ekkert grín og að draumur gömlu síonistanna um öfl- ugt ríki allra gyðinga getur mnnið út í sandinn vegna óhagstæðrar mannfjölgunar og atgervisflótta sem hvergi má tala opinberlega um af tilfinningaástæðum. Sérstök deild í innanríkisráðu- neytinu mun annast samskipti Palestínumanna og arabískra ísra- ela. Sú breyting verður gerð að íbúi á Vesturbakkanum eða Gaza sem gengur í hjónaband með ísraelskum borgara fær ekki að flytja til yfir- ráðasvæöa gyðinga og nýtur engra sérstaka réttinda fram yfir aðra araba. Sama á að gilda um þá Palestínu- menn sem þegar eru i hjónaböndum með israelskum þegnum og verður hægt að vísa þeim til þeirra svæða sem tilheyra Palestínumönnum. Þá verður upphæðin sexfólduð sem það kostar fyrir íbúa á Vesturbakkan- um eða Gaza að fá að sækja um landvist í ísrael. Enn má benda á að Israelsstjóm hefur ávallt neitað harðlega að palestinskir flóttamenn sem búið hafa áratugum saman í nágranna- rikjum fái að snúa aftur til Palestinu eða þeirra svæða sem landar þeira ráða yfir, að takmörkuðu leyti þó. Landhreinsun og einangrun Farið er að reisa veggi umhverfis bæi Palestínumanna á Vesturbakk- anum og ísraelski herinn fer um borgimar að geðþótta og lætur sem hann ráði þar lögum og lofum. Eftir því sem hryðjuverkaárásum á ísra- elska borgara fjölgar og fómarlömb- um að sama skapi færist her- námsliðið í byggðum Palestínu- manna allt í aukana og herðir á ein- angran íbúanna. Virðist sem í und- irbúningi sé að búta Palestínú niður í mörg borgríki sem hafi takmarkað samband sín á milli. Ljóst er að fari svo verður ekkert til sem kalla má sjálfstæða Palestínu. Samgöngur milli byggða Palest- ínu eru mjög takmarkaðar og er þeim stjómað af ísraelska hemum. Palestínumönnum sem starfa í ísra- el fækkar stöðugt enda er þeim gert stjóm hans lítils megandi. ísraelar lítillækka hann og ráðast á höfuð- stöðvamar hvenær sem þeim býður svo við að horfa og sýnast Palest- ínumenn næsta stjómlausir. Stjóm- völdum þeira tekst ekki að halda aftur af öfgasamtökum sem herða í sífellu á sjálfsmorðsárásum á ísra- elska borgara og valda með því skelfingu og ringulreið í landinu þar sem enginn er óhultur fyrir óvæntum skyndiárásum. Arafat tekst heldur ekki að halda uppi vömum fyrir málstað landa sinna gegn Israel og bendir flest eöa allt til að valdaskeið hans sé á enda runn- ið. Síðan sjálfsmorðsárásimar á ísra- elska borgara hófust árið 2000 hefur hallað mjög undan fæti. Efnahagur Palestínu fór að versna eftir hið margfræga Óslóarsamkomulag 1993, sem ekki reyndist sá happadráttur eða friðarboði eins og látið hefur verið í veðri vaka. Bjargarleysi og skortur verður æ meira áberandi í bæjum Palestínumanna og eftir því sem þeir eru meira einangraðir versnar ástandið. Hryðjuverkamenn færa sig upp á skaftið og ísraelar gera hefndarárás- ir og reisa múra og friðflytjendur gera sig sífellt að fiflum með því að þykjast kunna einhver ráð til að binda enda á ofbeldið og ósvífnina á báða bóga. En hetjur og ofbeldis- menn semja ekki frið þegar ófriður er í boði og með þvi hugarfari læð- ast hryðjuverkamenn að borgurum í ísrael sem eiga sér einskis ills von og drepa þá og limlesta í stórum stíl og hermenn Sharons láta sitt ekki eftir liggja að þjarma að palestínsk- um borgurum og neita þeim um lífs- nauðsynjar og jörð til að ganga á. Málin horfa því þannig við um þessar mundir að þjóðemi og við- gangur ísraelsmanna er í hættu vegna fólksflótta og fjölgunar fólks sem þeir kæra sig ekki um að hafa í sínu ríki eða nágrenni. Og síðan er þrengt svo að Palestínumönnum að þeir hafa tæpast lengur land til að lifa á eða möguleika að afla sér lífs- viðurværis vegna yfirgangs ná- grannanna. (Heimlldir: The Observer og Le Monde) erfitt fyrir að sækja vinnu. Vaming- ur sem fluttur er frá yfirráðasvæð- um Palestinumanna til ísraels er skoðaður gaumgæfilega og er flutn- ingabílstjórum gert að tæma farar- tækin við landamærastöðvar og um- ferma vaminginn þar. Aðdrættir verða einnig mjög erfiðir og dýrir en íbúar Vesturbakkans verða að ferðast um yfirráðasvæði ísraela hvenær sem þeir þurfa að komast milli byggða sinna. Allt á niðurleið Arafat er orðin einangraður og Undraveröld Kinder-eggjum smyglaö Tollayfirvöld í Bandaríkjunum standa í ströngu þessa dagana en unnið er hörðum höndum í því að stöðva ólöglegan innflutning á al- ræmdum Kinder- eggjum sem Is- lendingum ætti eða vera vel kunn. Eggin era ólögleg í Bandaríkjun- um vegna þess að verðlaunin inn í þeim eru talin hættuleg smábömum sem gætu reynt að borða litlu plast- stykkin sem fylgja eggjunum. Að j stærstum hluta kemur varningurinn frá Kanada þar sem enn er leyfilegt að selja vörana. Einn smyglarinn hafði orð á því að hann hefði ekki undan að annast pantanir sem hann afgreiðir í kassa- vís á þreföldu markaðsvirði. „Þetta stækkar og stækkar. Ég hef meira að segja fengið pantanir frá skólum sem vilja heilu bílfarmana af þessu.“ Þvagmaðurinn lögsækir Shemuel Nahum Ben Yisrael nefn- ist maður nokkur sem býr i Yemassee-bæ í Suður-Karólínuríki í Bandaríkjunum. Sumir myndu segja að hann væri heimilislaus ræfill en samkvæmt því sem hann sjálfur segir hefur hann það gott á landeign „sinni“ þar sem hann hefur haldið sig síðustu 10 ár. Lögreglan hefur þurft að handtaka hann í ein 20 skipti fyrir að halda fyr- ir á einkalóð - þeirri sömu og hann telur sig eiga fyrir þær sakir að hann hefur sest að á landinu (sem annar maður á réttilega) svo lengi. Gallinn er sá að í hvert sinn sem lögreglan nálgast hleypur hann til og hellir yfir sig þvagi, málningu, saur og hverju því sem hann kemur hönd- um yfir. Bara til að gera lögreglunni erfitt fyrir. En nú er hann búinn að fá nóg og hefur lögsótt lögregluna fyr- ir ólögmæta handtöku og krefst hann tæpra 800 milljóna króna í skaðabæt- I ur. Krókódíll át hinn grunaða Tuttugu og átta ára gamall maður frá Panama komst ekki langt þegar hann reyndi að flýja úr fangelsinu þar sem hann var i haldi, grunaður um að hafa myrt dómara. Kauði stakk sér út i nærliggjandi á og ætl- aði að synda aftur til síns heima. Hann komst þó aldrei alla leið þvi að- vífandi kom krókódíll einn og gerði sér mat úr honum, í bókstaflegri merkingu. Hinn ólánsami, Oswaldo Martinez hét hann, var sakaður um að hafa myrt dómarann í misheppnaðri til- raun til ráns í Panamaborg. Martinez tókst að flýja til nágrannaríkisins Kostariku þar sem hann var gómað- ur nokkrum dögum síðar og stungið í steininn. Fangelsið reyndist ekki mannhelt en króksi gat ekki hugsað sér að láta girnilega bráðina ekki sleppa og því fór sem fór. Svitabælið San Antonio Ekki er víst að íbúar hinnar gull- fallegu San Antonio í Texas séu ánægöir með nýjasta titil borgarinn- ar. Heimkynni hins fræga Alamo- virkis vora nefnilega kjörin mesta svitabæli í gjörvöllum Bandaríkjun- um um daginn, í fyrstu kosningu sinnar tegundar. Og er þó af nógum svitabælum að taka. Hermt er að á dæmigerðum sum- ardegi missi íbúar San Antonio meira en einna lítra af svita við það að stunda líkamsrækt, eins og göngu- ferðir. Tvær aðrar borgir í Texas vora í hópi fimm mestu svitabæl- anna, Houston og Dallas-Fort Worth. Það voru framleiðendur svitalykt- areyðis sem stóðu fyrir kjörinu en spurning er hvort sigurvegararnir snúi sér ekki annað þar sem þeir kunni lyktareyðismönnum litlar þakkir fyrir að minna á þessa óþægi- legu staðreynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.