Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Side 12
12
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002
DV
Frá vettvangl slysslns.
Tveggja daga
þjóðarsorg
Björgunarmenn hafa gefið upp
alla von um að finna einhvern á lífi
í rústum lestarslyssins í Tansaníu
sem kostaði minnst 200 manns lífið
á mánudag. 900 til viðbótar eru al-
varlega slasaðir.
Benjamin Mkapa, forseti lands-
ins, lýsti í morgun yfir tveggja daga
þjóðarsorg um leið og hann sagði að
slysið og orsakir þess yrðu rannsak-
aðar til hlítar. Forsetinn var á slys-
stað í gær og sagði að ekkert hefði
verið hægt að gera til að koma i veg
fyrir stórslys en sumir farþeganna
hafa sakað lestarstjórann um van-
rækslu.
„Allt bendir til þess að um slys sé
mn að ræða,“ sagði Mkapa. „Og við
erum bjargarlaus gagnvart slysum."
Rassskellingar
eru af hinu slæma
Þó að foreldrar nái athygli bama
sinna um leið þegar þeir rassskella
þau getur það hins vegar haft slæm-
ar afleiðingar þegar til lengdar
lætur. Samkvæmt rannsókn Eliza-
beth Thompson, sálfræðings við
Columbia-háskólann í New York,
geta þau börn sem refsað er með
rassskellingum orðið árásargjöm á
fullorðinsárum, jafnvel ofbeldisfull.
„Líkamleg refsing er góð leið til
að fá bömin til að hlýða tilmælum
foreldra sinna umsvifalaust en
jafnframt getur það leitt til þess að
bömin geti á fullorðinsárum farið
að leggja hendur á eigin böm eða
maka sína,“ sagði Thompson.
Refsing af þessu tagi er hvergi
meira stunduð en í Bandarikjunum,
þar sem rannsóknin fór fram.
REUTERSMYND
Farinn
Nebojsa Pavkovic hershöfðingi hefur
látið undan og hætt sem yfirmaður
júgósiavneska herráðsins eftir að
Kostunica forseti rak hann.
Hershöfðinginn
lét loks undan
Nebojsa Pavkovic hershöfðingi,
sem var rekinn úr starfi yfirmanns
júgóslavneska heraflans, hefur tekið
poka sinn og skipaður eftirmaður
hans tekið við stjómartaumunum.
Pavkovic, sem var fyrram banda-
maður Slobodans Milosevics, hafði
haft uppi hótanir um að hlýðnast
ekki Vojislav Kostunica forseta sem
rak hann. Að sögn fjölmiðla í
Belgrad i morgun hafði Kostunica
aflað sér stuðnings yfirmanna hers-
ins í málinu.
Arafat lagöi „hryðju-
verkasamtökum" lið
- samkvæmt heimildum Bush Bandaríkjaforseta
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti fékk fregnir af því í síðustu
viku að Yasser Arafat hefði stutt
samtök fjárhagslega sem hafa staðið
fyrir mörgum sjálfsmorðsárásum í
ísrael undanfarið. Það var embætt-
ismaður í Bandaríkjunum sem
greindi frá því i gær að leyniþjón-
usta Bush hefði fært sönnur á þetta
í síðustu viku.
Bush hélt til Kanada i gær á leið-
togafund G8-ríkjanna þar sem aðrir
leiðtogar hikuðu við að standa á
bak við orð Bush um að Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna, ætti að
vikja frá hið fyrsta og í stað hans
kjósa nýjan leiðtoga. Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, talaði
varfærnislega um Arafat og sagðist
ekki hafa skoðun á því máli sérstak-
lega en Jean Chretien, forsætisráð-
herra Kanada, sagði að það gæti
verið „góð hugmynd“.
Bush og Chretien funduðu við
komuna í gær en talið er að við-
brögð við tillögum Bush um nýtt
REUTERSMYND
Arafat undir smásjá
Bandaríkjamenn segja Arafat hafa
stutt fjárhagsiega hóp sjálfsmorösliða
sem hafa undanfarið ráöist á ísrael.
palestínskt ríki muni verða mest
áberandi á leiðtogafundinum sjálf-
um. Meðal þess sem Bush hefur
krafist af Palestínumönnum vilji
þeir stuðning Bandaríkjastjómar
eru miklar lýðræðislegar breytingar
á stjómarkerflnu, stjómarskrá og
nýtt öryggiskerfi sem ísraelsmenn
geta tekið mark á.
Á fundi Bush með Chretien varði
hann rétt ísraelsmanna að „verja
sig“ og sagði það sjálfsagðan rétt
allra manna. Talsmenn Chretien
sögðu að það sem hann meinti með
„góðu hugmyndinni" væri að ef
Palestínumenn ákveða sjálfir í
kosningum að leyfa öðrum en Ara-
fat að leiða landsmenn sína væri
það af hinu góða. Chretien bætti því
við að kosningamar yrðu aðeins
marktækar ef þær færa fram af
fullri alvöru.
Palestínsku borgimar sjö á Vest-
urbakkanum í ísrael eru nú her-
teknar af ísraelsher og hóta þeir að
gera slíkt hið sama á Gaza-svæðinu.
REUTERSMYND
Æðsta setur „svartagaldurs"
Áhugamenn um svartagaldur hafa safnast saman í hofí hindúagyðjunnar Kamakhya í bænum Guwahati í vesturhluta
Indlands þar sem þeir telja að hofið sé æðsta setur svartagaldurs í heiminum. Maðurinn á myndinni heitir Shiva Nath
Aghur og er af iðkendum svartagaldurs talinn heilagur maöur.
Leiðtogar auðugustu landa heims funda í Kanada:
Andstæðingar hnattvæðingar
ráku rassinn út í loftið
Andstæðingar hnattvæðingarinn-
ar afklæddu sig fyrir utan fataversl-
un fyrirtækisins Gap í miðborg Cal-
gary í Kanada i gær, hundraðum
starfsmanna í nærliggjandi bygg-
ingum til óblandinnar skemmtunar.
Með þessu vildu mótmælendur lýsa
áliti sínu á steinu Gap í starfs-
mannamálum.
Mótmælin í gær vora liður í að-
geröum sem andstæðingar hnatt-
væðingar hafa boðað vegna leið-
togafundar hins svokallaða G-8 hóps
auðugustu ríkja heims sem haldinn
er i fjallabænum Kananskis, um 90
kílómetra frá Calgary.
Leiðtogamir hefja tveggja daga
fund sinn í dag þar sem þeir munu
ræða ástandið fyrir botni Miðjarð-
arhafs, baráttuna gegn hryðjuverka-
starfsemi og aðstoð við Afríkuríki.
Kanadísk stjómvöld, gestgjafar
REUTERSMYND
Rasslnn út í loftið
Andstæðingar hnattvæðingarinnar
ráku rassinn út í loftið í Kanada í
gær til að sýna andúö sína á fjöl-
þjóöafyrirtækjum og stefnu þeirra.
fundarins, hafa gætt þess vandlega
að mótmælendur komist hvergi
nærri leiðtogunum, eins og gerðist
á fundinum í Genúá á Ítalíu í fyrra.
Hermenn með skriðdreka og leysi-
stýrð flugskeyti að vopni gæta þess
að óboðnir gestir komist ekki í tæri
við leiðtogana. Meira að segja bjam-
dýrin sem lifa í grennd við fundar-
staðinn fá ekki að fara frjáls ferða
sinna. Komið hefur verið fyrir
senditækjum á þeim til að koma
megi í veg fyrir að varðmenn og dát-
ar eyði púörinu aö óþörfu.
Reikna má með að umdeildar
hugmyndir Georges W. Bush
Bandaríkjaforseta til lausnar deil-
um ísraela og Palestínumanna verði
aðalumræðuefnið. Jean Chrétien,
forsætisráðherra Kanada, er hins
vegar staðráðinn í að beina kastljós-
inu að fátækum Afríkulöndum.
msmm
Til í að loka búðum
Nicolas Sarkozy,
innanríkisráðherra
Frakklands, sagði i
gær að hann vildi
loka Sangatte flótta-
mannabúðunum
sem hafa valdið
titringi í samskipt-
um Frakka og
Breta. Hann sagðist þó aðeins
myndu gera það ef Bretar hertu lög
sín um innflytjendur.
Sprengjugabb tafði för
Sprengjugabb tafði fór flugvélar
ísraelska flugfélagsins E1 A1 frá
Kaíró í Egyptalandi um tvær
klukkustundir seint í gærkvöld.
íhuga ríkisábyrgð á iáni
Stjórnvöld í Washington íhuga að
veita lestarfyrirtækinu Amtrak að
minnsta kosti 100 milljóna dollara
ríkisábyrgð til að bjarga megi því
úr fjárkröggum.
Mahathir ætlar að fara frá
Fjölmiðlar í Malasíu voru bæði
undrandi og hrifnir vegna opinberr-
ar tilkynningar um að Mahathir
Mohammed forsætisráðherra ætlaði
að fara frá og afhenda varaforsætis-
ráðherranum völdin.
Hundruð deyja í flóðum
Gífurleg flóð í Kína hafa orðið að
minnsta kosti 543 að bana í Kína í
þessum mánuði og búast má við
fleiri fómarlömbum þegar flóðatím-
inn nær hámarki í júlí og ágúst.
Á leið yfir Andesfjöll
Bandariski auð-
kýfmgurinn, ævin-
týramaðurinn og
loftbelgsfarinn
stefhdi hraðbyri í
átt til Andesfjalla í
gær á leið sinni
kringum hnöttinn í
loftbelg. Veður var
nokkuð gott og hefur ferðinni miðað
vel til þessa. Vika er síðan Fossett
lagði upp í hnattflugið frá Ástralíu.
Veiða mýs til að græða
íbúar þorps eins í Kambódíu hafa
ákveðið að reyna að græða aðeins á
öllum músunum sem eru á
ökrunum og selja þær til matar í ná-
grannalandinu Víetnam.
Dóms að vænta 1. júlí
Dómari í Perú
sagði í gær að hann
myndi kveða upp
fyrsta úrskurð sinn
í máli gegn Vla-
dimiro Montesinos,
fyrrum yfirmanni
leyniþjónustunnar,
þann 1. júlí næst-
komandi. Montesinos er í gæslu-
varðhaldi, ákærður fyrir margvis-
lega glæpi svo sem fjármálaspill-
ingu, morð og peningaþvætti.
Tvíburaaðgerð frestað
Læknar í Bandaríkjunum ákváðu
í gær að fresta aðgerð þar sem skilja
átti að síamstvíbura sem vaxnir era
saman á hvirfliniun. Vandræði
komu upp eftir að aðgerðin var
byrjuð á mánudag.
Hvítir bændur mótmæla
Tveir hvítir bændur í Simbabve
höfðuðu mál í gær til að reyna að fá
ógilta ákvörðun stjómvalda um að
hvítir bændur skuli yfirgefa jarðir
sínar á næstu 45 dögum.