Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Page 14
14
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002
Skoðun DV
Stundarðu líkamsrækt reglulega?
(Spurt á Akureyri)
María Tryggvadóttir,
náms- og leiósögumaður
Nei. Þaö er aöallega vegna tímaieysis og
áhugaieysis. Ég vel frekar útivistina en lík-
amsræktina sem slíka.
Valgerður Kristjánsdóttir
framkvæmdastjóri
Já, en meö hléum samt. Þaö er helst ef
maöur fer í frí eöa einhverjar breytingar
veröa tímabundiö sem þetta fellur niöur.
Guðlaugur Jóhannsson,
starfsmaður Vífilfells
Nei, ekki reglulega, aöallega vegna tímaleys-
is. Ég ferþó á veiöar á vetuma og slíkt. Fæ
reyndar þó nokkuö út úr því aö lyfta kössum
í vinnunni.
Steinar Óli Gunnarsson
sjómaður
Óreglulega. Ég er sjómaöur og reyni aö fara
í ræktina þegar ég er í landi auk þess sem
viö höfum allargræjur úti á sjó.
Já, ég fer í vaxtarræktina reglulega. Síöan
hjóla ég auövitaö oggeng. Þaö gefst alltaf
einhver tími.
Sigurgelr Júlíusson
sjómaður
Já, viö hjónin göngum nokkra kílómetra á
hverjum degi, heima í Hrísey. Síöan fer ég á
trílluna mína og dreg fisk mér til gamans.
Slysagildra segja foreldrar í Grafarvogi
- lítil hætta á feröum, segir gatnamálastjóri. Hér sést tjörnin sem um ræöir.
„Staðsetning tjamarinnar
inni í miðju umferðarmann-
virki gerir hana óaðgengi-
lega, langtímum saman verð-
ur vatn í henni gruggugt og
lítið freistandi.“
verður vatn í henni gruggugt og
lítið freistandi. Einnig eru bakkar
hallalitlilr og oftast er mesta dýpi
eimmgis rúmur metri.
Komi í ljós að börn sæki í tjöm-
ina þannig að af stafi slysahætta
verður hún girt af.
Sigurður I.
Skarphéðinsson,
gatnamálastjóri
Reykjavíkurborgar,
skrifar:
Föstudaginn
14. júní sl. birtist
í blaðinu grein
um settjörn sem
verið er að gera á gatnamótum
Vikurvegar og Vesturlandsvegar. í
greininni er því haldið fram að
dýpi tjarnarinnar verði allt að 3,5
metrar, henni sé ætlað að taka við
yfirborðsvatni ásamt skólpi og að
af henni stafi slysahætta.
Hlutverk tjamarinnar er að taka
við regnvatni af nálægum götum,
gönguleiðum og húsþökum og er
gert ráð fyrir að verulegur hluti
þeirra óhreininda sem í ofanvatn-
inu eru nái að botnfalla i tjörninni
áður en því er veitt úr henni i Úlf-
arsá.
Engu skólpi er veitt í tjömina.
Bakkar tjamarinnar eru með
litlum halla, 1 á móti 3, og mesta
dýpi í þurrviðri er um 1,15 m. í
aftakarigningu getur dýpið orðið
allt að 2,0 metrar og hámarksdýpi,
sem reiknað er með að komi á
u.þ.b. 10 ára fresti og standi ein-
ungis stuttan tíma, er um 2,50 m.
Að mínu mati stafar því lítil sem
engin slysahætta af tjöminni. Stað-
setning tjarnarinnar inni í miðju
umferðarmannvirki gerir hana
óaðgengilega, langtímum saman
Gatnamálastjórinn í Re^kjavík:
Lítil sem engm slysa-
hætta af tiörninni
Gyðingar í Palestínu
munu fá harðan dóm
„Sá fasismi sem þama á sér
stað er argasta drepkýli
jarðarinnar. Einn góðan
veðurdag á það kýli eftir að
springa. Þá hefst þriðja
heimsstyrjöldin - Harma-
geddon. “
S.R. Haralds,
Bakkakoti, Reykjavík, skrifar:_____
Markmiðið hjá gyðingum í Palest-
ínu er að losna fyrir fullt og allt við
alla Palestínu-Araba úr landinu.
Þetta land tóku ísraelsmenn með
valdi og blóðsúthellingum frá Aröb-
um eftir 1000 ára búsetu þeirra. Það
var aðeins hægt með dyggri aðstoð
Bandaríkjamanna og peningum frá
Þýskalandi. Heimurinn horfði á
miskunnarlaus hryðjuverkin og
pyntingar fómarlambanna án þess
að hafast að.
Nú ætti flestum að vera ljóst að
ísraelsmenn munu ekki linna látum
fyrr en síðasti Arabinn er farinn,
eða drepinn. Sá fasismi sem þama á
sér stað er argasta drepkýli jarðar-
innar. Einn góðan veðurdag á það
kýli eftir að springa. Þá hefst þriðja
heimsstyijöldin - Harmageddon.
Þegar það gerist munu allar Araba-
þjóðir verða tilbúnar að beijast og gera
út af við gyðingana. Spádómar i Biblí-
unni nefna gyðingabyggð í Palestínu
„glæpaland" og fólkið „lýðinn sem
Drottinn er eilíflega reiður." Drottinn
er reiður af því að þeir krossfestu ekki
aðeins Jesúm heldur drápu flesta spá-
menn þeirra. Enn munu þeir drepa tvo
i viðbót i náinni framtíð. Því er spáð í
Opinberunarbókinni 11:1 -13.
Þegar Jesús var handtekinn öskruðu
prestamir og múgurinn: „Komi blóð
hans yflr oss og yfir böm vor, eins og
segir í Matteusi. Einmitt þetta gerðist i
helfórinni í síðustu heimsstyijöld.
Drottinn beið í 2000 ár fyrir gyðinga að
iðrast en það hafa þeir ekki enn þá
gert. Þeir munu því hljóta harðari dóm
eins og Jesaja spáði forðum.
Friður í Mið-Austurlöndum er
draumur sem mun ekki rætast fyrr
en eftir þriðju heimsstyrjöld. Þetta
em spádómar Biblíunnar og
Nostradamusar.
i
I
Síminn, leyniregla
Einhverra hluta vegna hefur Garri alveg
ómældan og gott ef ekki ótrúlegan áhuga á
stjómum fyrirtækja. Fátt finnst Garra jafn-
skemmtilegt og að fletta í ársskýrslum fyrir-
tækja og kynnast því hvaða menn og konur sitja
i stjórnum þeirra og fara með raunverulegu
völdin sem skipta sköpum þegar á reynir.
Garri er svolítið manískur á stundum og þar
af leiðandi hefur þessi árátta hans að fylgjast
með stjórnum fyrirtækja leitt hann út á nafír
þær sem stundum eru kenndar við nörda. Hann
á nú þegar gott safn um allar helstu stjórnir fyr-
irtækja landsins og hefur komið sér upp lltilli
aðstöðu í kytru undir stiga heima hjá sér þar
sem hann geymir allar helstu úrklippumar sín-
ar af starfandi stjórnarformönnum landsins.
Eina mynd hefur vantað í þetta góða safn
Garra í alltof langan tima, eða í nálega sex vik-
ur og tveimur dögum betur. Það er myndin af
Rannveigu Rist, álkonunni góðu sem gerð var
að stjórnarformanni Landssímans eftir að fjöl-
miðlum tókst að eyðileggja það fyrirtæki og all-
an þess mannskap á liðnum vetri.
Garri hefur reynt allt til að ná mynd af þess-
ari konu á stjórnarfundi Símans og notað til
þess margvíslegar aðferðir en allar án árangurs.
Þess vegna hugsaði Garri sér gott til glóðarinn-
ar í gær þegar hann hafði spurnir af því að
stjóm Símans væri að funda. Hann tjaldaði með
prímusgræjurnar sínar á Austurvelli og beið
þar með kíkinn góða sem hann fékk í fertugs-
gjöf frá félögunum um árið. Dagurinn leið, já al-
veg frá morgni til kvölds, en ekki vottaði fyrir
hjálmi úr ísal á stangli. Hins vegar var þeim
mun meira af ágætlega græjuðum öryggisvörð-
um allt í kringum aðalstöðvar Símans og upp úr
klukkan fimm síðdegis tóku almennir starfs-
menn Símans að raða sér hringinn í kringum
hús félagsins við Austurvöll. Þar héldust þeir í
hendur og vart hefði annað en fuglinn fljúgandi
komist inn fyrir raðir þeirra. Sá fugl reyndist
vera þyrla. Hún lenti á planinu framan við að-
albygginguna. Þar steig stjómin út og skaust
inn í skjóli öryggisvarða. Rétt sást í stöku
frakkalaf. Garri náði engri mynd og reyndar
engum áttum eftir þetta sjónarspil.
Hann gefst samt ekki upp og hefur beðið
drátthagan bróður sinn um að teikna andlitin af
stjórnarfólki Símans eftir minni sínu. Það mun
takast einhvem veginn.
CiXrrl
Presturinn og
baráttan gegn
næturlífinu
JMG skrifar:
Það var gott
framtak hjá Land-
lækni og Geðhjálp
að stofna til ráð-
stefnu um for-
dómana í þjóðfé-
laginu - og ekki
síst var það al-
deilis prýðilegt að
leggja aðaláherslu
á eigin fordóma
en ekki annarra.
Ég sá á myndum
að miðborgar-
presturinn, séra
Jóna Hrönn
Bolladóttir, sat við háborðið þegar
verkefninu var hleypt af stokkun-
um og þótti mér það vel við hæfi.
Þessi prestur hefur haft uppi mikla
fordóma gegn skemmtanalífinu í
miðborginni og sérstaklega gegn
næturklúbbunum. En vonandi
tekst henni nú að vinna bug á þess-
um fordómum sínum með guðs
hjálp. Við sem stundum nætur-
klúbbana leggjum mikið upp úr
því að hafa prestinn á okkar bandi.
Séra Jóna
Hrönn Bolla-
dóttlr
- berst gegn
næturlífi miö-
borgarinnar.
GO-flugfélagið var mlkll kjarabót
- en er von á annarri eins
þjónustu í sumar?
Hvar eru lágu
fargjöldin?
Kona hringdi með fyrirspurn:
Hvað varð um ódýra leiguflugið
sem boðað var í fréttum í vetur eða
vor? Talað var um að eitthvert er-
lent flugfélag, hvers nafn ég ekki
man, mundi koma í stað Go-flugfé-
lagsins, sem mér skilst að Flugleið-
ir hafi hrakið út af Islandsmark-
aði. Gaman væri ef fjölmiðlar gætu
flutt meiri fréttir af þessu máli.
Það munar almenning í þessu
landi heilmiklu hvort borgaðar eru
20 þúsund krónur fyrir skuthð til
útlanda eða kannski 50 þúsund.
Minningargrein-
ar geta verið
skemmtilegar
KK sendi eftirfarandi pistil:
Minningargreinar geta verið
kostulegar og skemmtilegar, enda
vinsælasta efhi sumra fjölmiðla.
Ég læt flakka nokkur gullkom,
eins konar sumarskaup, sitt af
hverju sem hefur farið í gegnum
prófarkalesturinn, en ekki
ábyrgist ég að alveg rétt sé eftir
haft: „Hann giftist eftirlifandi eig-
inkonu sinni og átu þau tvö böm“.
Eða þetta. „Gönguíferðin þeirra
varð styttri en menn vonuðu. Ban-
vænn sjúkdómur beið hennar bak
við stein og sló hana fljótt til jarð-
ar.“ Um sannan íslending sagði:
„Hann var sannur Islendingur og
dó á 17. júní.“ Og um konu eina:
„Hún hafði þaö sterka skapgerð að
smá rigningarsuddi setti hana ekki
úr jafhvægi." Og: „Þrátt fyrir góða
greind gekk hún aldrei í kvenfé-
lag.“ Eflaust kunna lesendur ýmis-
legt af þessu tagi og geta þá bætt
við.
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.ls
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24,105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.