Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.2002, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2002 Sport Handknattleikur: Austurrískur liðstyrkur til Eyjastúlkna Bikarmeisturum ÍBV í handknattleik kverma barst í gær góöur liðstyrkur fyrir næsta tímabil þegar tveir austurrískir leikmenn gengu í raðir félagsins. Önnur heitir Birgit Engi, 23 ára gömul, kemur frá spænska liðinu Sagunto og á að baki 55 landsleiki. Hin heitir Sylvia Strass, 27 ára og lék síðast með þýska liðinu SG Hessen Hersfeld. Hún hefur leikið 114 landsleiki fyrir Austurriki. Þessar stúlkur búa yfir mikilli reynslu og miðað við feril þeirra er hér um að ræða mikinn hvalreka fyrir ÍBV. -JKS KA ekki með á Evrópumótinu íslandsmeistarar KA í hand- knattleik taka ekki þátt í meist- aradeild Evrópu en frestur til að tilkynna þátttöku rennur út um mánaðamótin. Þetta var niður- staða handknattleiksdeildar á fundi hennar i vikunni. „Því miður var þetta niður- staðan en skynsemin réð ferð- inni í þessari ákvörðun og um hana var einhugur. Áhættan er mikil hvaö fjármálahliðina varð- ar en reksturinn almennt séð er nógu erfiður fyrir þótt maður bæti ekki þátttökunni í Evrópu- keppninni ofan á allt saman. Undir niðri hefði ég viljað sjá liðið taka þátt í meistaradeild- inni en stjórnin hefur tekið þá ákvörðun að vera ekki með,“ sagði Árni Þór Freysteinsson, framkvæmdastjóri handknatt- leiksdeildar KA. -JKS Heimir Örn til Haslum? Heimir Örn Árnason, hand- knattleiksmaður úr röðum ís- landsmeistara KA, gerði norska liðinu Haslum gagntilboð á dög- unum og samkvæmt heimildum blaðsins er ekki loku fyrir það skotið að hann leiki með lið- inu á næsta tímabili. Heimir Öm skoðaði aðstæður hjá Haslum ekki alls fyr- ir löngu og gerði norska liðið honum tilboð. Hann gerði síðan liðinu gagntilboð og bíður hann svara við því. -JKS Kanslarinn fagnar Þýska þjóöin réö sér ekki fyrir kæti í gær þegar Ijóst varö aö þýska landsliö- iö haföi tryggt sér sæti í úrslitum heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu. Gífurlegur fjöldi kom saman í borgum og bæjum um allt Þýskaland og horfði á leikinn viö S-Kóreu á risaskjám sem haföi veriö komið upp. Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, er mikill áhugamaöur um knattspyrnu og aö sjálfsögöu fylgdist hann meö leiknum í beinni útsendingu. Hann var aö vísu staddur i Kanada í tengslum viö fund stærstu iönríkja heims. Kanslarinn sést hér rísa upp úr stól sínum og fagna þegar Þjóöverjar skoruöu mark sitt gegn Kóreumönnum. JKS/Reuter Breytingar hjá íslandsmeisturunum í körfuknattleik: Brenton til Frakklands - og Logi Gunnarsson með tilboð frá evrópskum liðum Það er orðið ljóst að Brenton Birming- ham leikur ekki með Njarðvík á næsta keppnistíma- bili en hann hefur samið við Rueil- Malmaison i 2. deild- inni í Frakklandi. Brenton, sem fékk íslenskt ríkisfang síðasta sumar, leik- ur í Frakklandi sem Evrópuleikmaður. Brenton hefur átt glæsilegan feril hér á landi en hefur leikið sinn síðasta leik hér á landi í bili. Hann mun í Brenton Birmingham hefur leikiö stórt hlutverk meö sumar leika með ís- íslandsmeisturum Njarövíkinga í körfuknattleik. lenska landsliðinu sem tekur þátt í Norðurlandamóti landsliða i lok ágúst. Það er ljóst að Njarðvík veikist þónokkuð við að missa Brenton. Logi meö tilboö frá Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi Þá er nánast öruggt að Logi Gunnarsson leikur ekki heldur með Njarðvík næsta vetur þar sem hann er orðinn nokkuð eftir- sóttur meðal liða í Evrópu. Logi hefur fengið nokkur tilboð frá lið- um í Þýskalandi, bæði efstu og næstefstu deild, og einnig frá Belgiu. Þá hafa lið frá Frakklandi sýnt honum áhuga. Hann hefur þó ekki ákveðið hvert hann fer en segir að það muni ráðast á næstu vikum. -Ben United á eftir Rio Ferdinand - verðlagður á 4 milljarða króna Peter Kenyon, stjórnarformað- ur Manchester United, staöfesti við Reuters-fréttastofuna að hafa átt í viðræðum við Leeds United um hugsanleg kaup liðsins á enska landsliðsmanninum Rio Ferdinand. Málið er sagt á byrjunar- reit en engu að síð- ur er fullyrt að Manchester United hafi mikinn áhuga á að krækja í þenn- an sterka varnar- mann. Ekki er þó víst að United sé eitt um áhuga á Ferdinand en í gær kom fram að ítalska liðiö Juventus sýndi leikmanninum einnig áhuga. Vitað er að fjár- hagsstaða Leeds er ekki sterk um þess- ar mundir fremur en reyndar margra annarra liða. Leeds er talið skulda rúma þrjá milljarða króna og ekki verður grynnkað á skuld- unum nema selja leikmenn. Ferdinand gekk í raðir Leeds fyr- ir um einu og hálfu ári frá West Ham. Leeds greiddi þá 2,4 milljarða fyr- ir leikmanninn sem hefur siðan hækkað töluvert í verði. Peter Kenyon sagði að ekkert gerðist í þessum efnum fyrr en eftir heimsmeistara- keppnina en fyrir utan þessi hugsan- legu kaup gæti orð- ið einhver breyting á leikmannahópi United fyrir næsta tímabil. Liðið ætlar sér stóra hluti næsta vetur en það vann enga titla á siðasta tímabili. -JKS Rio Ferdinand er í hópi bestu varnarmanna heims í dag. Ronaldinho fer ekki frá PSG - segir forseti franska félagsins Italska stórliðið Inter Milan fékk orð í eyra frá forseta franska liðsins Paris St. Germain í gær sem sagði að Brasilíumaðurinn Ronaldinho færi hvergi frá félaginu eins og látið hefur verið uppi. Forsvarsmenn Int- er lýstu því yfir í siðustu viku að þeir hefðu mikinn áhuga á því að fá Ronaldinho til félagsins. Félagi hans í brasilíska landsliðinu, Ron- aldo, er á mála hjá Inter og sáu Int- er-menn þá félaga fyrir sér í fremstu víglínu. Forseti Parísarliðsins, Laurent Perpere, sagði I gær engin áform þess efhis að Ronaldinho væri á for- um frá París. Hann væri leikmaður félagsins og myndi leika með því á næsta tímabili undir stjóm Luis Femandez. Ronaldinho, sem þykir eiga mikla framtíð fyrir sér, hefur þó sagt sjálf- ur að hann hafi mikinn áhuga á að leika á Italíu og þangað stefndi hann leynt og ljóst. Hann hefur skorað tvö mörk á heimsmeistara- mótinu en hefur samhliða því verið að skapa mikinn usla í vömum and- stæðingana. Hann var fjarri góðu gamni gegn Tyrkjum í undanúrslit- unum í morgun þar sem hann tók út leikbann. Hann fékk að lita rauða spjaldið i leiknum gegn Englending- um, að mörgum fannst mjög ósann- gjarnt. -JKS Hinn brasilíski Ronaldinho er ungur aö árum og framtíðin blasir viö honum í knattspyrnunni. Norskir hefja spark að nýju Verkfalli hjá stærstum hluta liða í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu var aflýst í gær en það hafði staðið yfir frá því um siðustu helgi. Leikmennimir hófu verkfall vegna óánægju með ýmsa þætti sem lutu að samningi þeirra viö félögin og má í því sambandi nefna tryggingar og félagaskipti. Nýju samningamir ná einnig til annarra íþróttagreina, eins og handknattleiks og íshokkis. í samningnum felst m.a. að íþróttayfirvöld fari ofan í saumana á tryggingamálum og fáist lausn i þeim efhum eigi síðar en á næsta ári. Ekki verður hróflað við at- vinnumannasamningum og munu félögin eftir sem áður sjá um þá en leikmennimir vildu koma meira að þeim en áður en fá ekki. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.