Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
Fréttir DV
Halamiðum
Örn KE kom með fullfermi af
loðnu til Bolungarvíkur í gær og
var í morgun á fullu skriði á leið á
Halamið þar sem bátamir voru að
moka upp fiskinum. Sveinbjörn
Orri Jóhannsson stýrimaður sagði í
morgun að þeir hefðu verið sólar-
hring aö fylla og sigldu inn til Bol-
ungarvíkur með 1.050 tonn af fal-
legri loðnu sem fór til bræðslu. Ekki
er enn vitað um verðið.
Á miðunum voru nokkrir norskir
bátar að veiðum en ekki var svo að
sjá neina umferð íslenskra báta á
miðin. Þeir á Erninum byrjuðu leit
að loðnunni fyrir viku. -JBP
Þrír piltar dæmdir:
Skipulögöu
rán á
pitsusendli
Þrir piltar hafa fengið fangelsisrefs-
ingar fyrir að hafa skipulagt rán á pitsu-
sendli í Vallarhúsum í Grafarvogi í apr-
íl síðastliðnum. Þeir sammæltust um að
panta frá fyrirtækinu Pizza-pizza og láta
senda sér í íbúð í Vallarhús sem þeir
vissu að stóð auð. Pitsa var pöntuð
ásamt kókílösku. Þremenningamir
höfðu ákveðið að taka peninga af pitsu-
sendlinum er hann kæmi.
Fyrir lá að piltamir ætluðu sér að ná
fram ætlun sinni með því að taka verð-
mætin af sendlinum nauðugum. Hann
kom í Vallarhús eins og ráð hafði verið
fyrir gert. Piltamir höfðu þá hulið and-
lit sín með trefli eða sett upp kraga eða
húfu.
Þegar pitsusendiilinn varð þess
áskynja að enginn svaraði í íbúðinni
gengu þremenningamir að honum og
skipuðu honum að afhenda peninga eða
peningabuddu. Einn árásarmannanna
bar hjólabretti sem hann hafði tekið við
húsið. Sendillinn gerði eins og honum
var sagt, rétti fram buddu með tæpum
7.800 krónum og lagði frá sér pitsuna og
kókið.
Ákærðu hlupu síðan á brott með pen-
ingana, sem þeir skiptu i þrennt, einnig
pitsuna og kókið. Dómarinn í málinu
tekur fram að þremenningamir hafl
hulið andlit sín og einn þeirra haldið á
hlut sem nota mátti sem barefli og skip-
að sendlinum að láta peningana af
hendi. „Var þetta ekki aðeins fallið til
þess að vekja um það ótta hjá sendlin-
um að ofbeldi yrði beitt þegar í stað ef
hann léti ekki að vilja þeirra, heldur
vakti það beinlínis fyrir ákærðu,“ segir
í niðurstöðu dómsins.
Einn ákærðu var einnig sakfelldur fyr-
ir að stela 578 lítrum af bensini og notað
til þess kreditkort VífUfelis frá Olís. Hann
er dæmdur til að greiða 204 þúsund krón-
ur í bætur fyrir bensinið. Pilturinn, sem
nýlega varð 18 ára, er dæmdur i 4 mán-
aða fangelsi en 64 daga gæsluvarðhald
dregst frá. Hinir tveir, sem vom með hon-
um í ráninu, fá 6 mánaða fangelsi en
framkvæmd refsingarinnar er frestað
haldi piltamir skilorð í 3 ár. -Ótt
Fréttablaðið:
Nýtt útgáfufélag
Nýtt félag hefur gert samning um út-
gáfu og rekstur Fréttablaðsins að því
er fram kemur í fréttatilkynningu. Þar
segir að félagið sé undir forystu Gunn-
ars Smára Egilssonar og hóps fjárfesta.
Hið nýja félag muni á næstu dögum
leita samninga við samstarfsaðila,
birgja og starfsmenn og tryggja fjár-
magn að verkefninu. Ákveðið hafi ver-
ið að gera hlé á útgáfu Fréttablaðsins á
meðan.
1 tilkynningunni segir enn fremur
að ekki verið gefið upp hverjir hinir
nýju fjárfestar séu að svo stöddu. Þá sé
kaupverð trúnaðarmál. -JSS
Unglæknar áttu fund með fulltrúum Landspítala og LÍ:
I stöðugu sambandi
vegna öryggismála
- segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra
Annir á sjúkrahúsi
Það eru jafnt þrengsli og miklar annir á sjúkrahúsum landsmanna og dæmi
þess að læknar vinni allt aö 80 stunda vinnuviku.
„Við erum í stöðugu sambandi við
forsvarsmenn Landspítala vegna ör-
yggismála og vinnuálag er einn þátt-
urinn af því,“
sagði Jón Krist-
jánsson heilbrigð-
isráðherra um
stöðu þá sem kom-
in er upp í málefn-
um unglækna sem
starfa á sjúkra-
húsum.
Ráðherra hefur
borist bréf frá
Vinnueftirliti rík-
isins og landlæknisembættinu þar
sem sagt er brýnt að hvíldartímaá-
kvæði þau sem almennt gildi á vinnu-
markaði nái einnig til unglækna og
lækna í framhaldsnámi. Þetta sé
brýnt bæði vegna öryggishagsmuna
almennings og vinnuverndar. í bréf-
inu er bent á að ónóg hvild vegna
langs vinnudags auki líkur á slysum í
vinnu og leik og spilli fjölskyldulífi
starfskraftsins.
Félag ungra lækna á'tti fund með
fulltrúum stjórnar Landspítala Há-
skólasjúkrahúss og Læknafélags ís-
lands í gær þar sem staða sú er upp er
komin var rædd. í kjölfar fundarins
verður farið yfir málið og það kynnt
samninganefnd rikisins. Unglæknar
mótmæla þeirri túlkun ríkisins að í
kjarasamningum frá því í vor gildi
vinnutíma- og vinnuverndarákvæði
ekki um þá. DV ræddi í gær við
unglækni sem vinnur um 80 stunda
vinnuviku á bráðamótttöku Landspít-
ala Háskólasjúkrahúss.
„Það er ljóst að sólarhringsvaktir
eru ekki ástand sem menn vilja hafa,“
sagði heilbrigðisráðherra við DV í
morgun. Hann kvaðst þó ekki vilja
kveða upp úr með það hvað teldist
eðlilegur vinnutími.
„Ég fer yfir þær ábendingar sem til
mín hafa borist frá Vinnueftirlitinu
Arctic Open-golfmótið var sett i gær-
kvöldi í 17. sinn og fer að vanda fram á
Jaðarsvelli við Akureyri. Þátttakendur
eru á milli 160 og 170 en mótið líður
nokkuð fyrir það að um helgina fer
einnig fram íslandsmótið í holukeppni á
Hvaleyrarvelli og því vantar þó nokkra
af sterkari íslensku kylfmgunum sem
hugðust verða með á móti nætursólar-
innar. Að venju er margt erlendra kepp-
enda eða nærri 50, flestir frá Bandaríkj-
unum og nokkrir mjög góðir spilarar.
og landlæknisembættinu með viðkom-
andi aðilum. Að öðru leyti hefur mál-
ið ekki komið formlega á mitt borð,“
sagði ráðherra. -JSS
„Þetta byrjaði frábærlega, veðrið var
eins og eftir pöntun, eins og það getur
best orðið,“ sagði Kolbeinn Sigubjöms-
son mótsstjóri i samtali við DV. Hann
vildi lítið segja um hverjir væru sigur-
stranglegastir á mótinu en sagðist hafa
augastað á nokkmm einstaklingum.
Keppt verður í tveimur nýjum flokkum
á mótinu að þessu sinni, kvennaflokki
og öldungaflokki. Mótið sjálft fer af stað
kl. 16 í dag og stendur fram á laugar-
dagsmorgun. -ÓK
Arctic Open:
Veðrið eins og best verður
Megn fýla berst frá fiskverksmiðju í Innri-Njarðvík:
Tugir kvartana á
hverjum degi
- heilbrigðiseftirlitið hugar að aðgerðum
„Við höfum gefið fyrirtækinu
tækifæri til að laga sín mál en ef
þeir geta það ekki mun Heilbrigð-
iseftirlitið hikstalaust grípa til að-
gerða til að vernda hagsmuni íbú-
anna.
Það er einfaldlega skylda okk-
ar,“ sagði Magnús H. Guðjónsson,
heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðis-
eftirliti Suðurnesja, þegar DV
spurði hann hvort aðgeröir af
þeirra hálfu væri að vænta gegn
verksmiðju fyrirtækisins Lauga-
fiskur ehf., sem staðsett er i Innri-
Njarðvík og sérhæfir sig í þurrkun
fiskhausa.
Mikið hefur verið kvartað und-
an ólykt sem komiö hefur frá verk-
smiðju fyrirtækisins undanfarin
ár og eru íbúar í nágrenninu óá-
nægðir með að ekkert skuli vera
gert í málinu. Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja staðfestir að undir-
kriftaiistar hafi verið gerðir. Að
sögn íbúa er ástandið verst þegar
sól og norðanátt er því þá beinist
fnykurinn yfir byggðina.
Að sögn Magnúsar eru kvartan-
ir daglegt brauð þegar vel viðrar.
„I gær bárust 10 kvartanir til okk-
ar en dæmi eru um að 20-30 kvart-
anir hafi borist á einum degi. Við
höfum reynt að fá fyrirtækið til að
setja upp búnað sem virkar sem
skyldi en ástandið helst alltaf
óbreytt," segir Magnús.
Laugafiskur ehf.
Mikill fnykur ligguryfír byggö þegar vel viörar og krefjast íbúar aögerða.
Hvaða undirskriftalistar?
Lúðvík Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri Laugafisks, segist
ekki hafa fengið neina undirskrifta-
lista upp á borð til sín og segir jafn-
framt að þessi verksmiðja búi vel að
hreinsunarmálum. „Við erum með
fullkomnasta hreinsibúnað sem völ
er á hérlendis en auðvitað geta orð-
ið mannleg mistök. Við höfum jafn-
framt eytt miklum fjármunum og
afli í að bæta útblásturinn frá verk-
smiðjunni."
Lúðvík sagði að vissulega hefði
hann setið fundi með bæði Heil-
brigðiseftirliti og Áma Sigfússyni,
bæjarstjóra Reykjanesbæjar, en að
öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um
þeirra samskipti. „Það mál er ein-
faldlega í höndum lögfræðinga,"
sagði Lúðvík.
-Vig
Örn Báröur í Nesprestakall
Séra Öm Bárður
Jónsson var valinn í
embætti prests í
Nesprestkalli 1
Reykjavík á fundi
valnefhdar í vik-
unni. Verður hann
skipaður í embætti
til fimm ára. Neftid-
in var einróma í niðurstöðu sinni.
Luc Besson myndar á íslandi
Kvikmyndafyrirtækið Pegasus mun
koma að gerð tveggja leikinna franskra
kvikmynda sem að hluta til verða kvik-
myndaðar hér á landi. Önnur er
kappakstursmynd sem gerð er á vegum
hins þekkta leikstjóra Luc Besson. Hin
myndin er hluti af sjónvarpsseríu.
Morgunblaðið greindi frá.
Jórvík fær flugrekendaskírteini
Flugfélagið Jórvik hefur hafið starf-
semi á ný en flug á vegum félagsins hef-
ur legið niðri frá 1. júní. Félagið hefur
nú aftur fengið útgefið flugrekendaskir-
teini samkvæmt kröfum evrópskra
JAR-Ops-reglna eftir athugun Flugmála-
stjómar og er starfsemin komin í gang.
Morgunblaðið greindi frá.
Nýr lungnasjúkdómur
Nýr lungnasjúkdómur, sem nefndur
hefur verið kúfisksótt, hefur verið
gi-eindur með umfangsmiklum rann-
sóknum á starfsmönnum kúfiskvinnslu
Hraðfrystihúss Þórshafnar. Starfsfólk
hefur ekki fundið fyrir einkennum eftir
að miklar breytingar vora gerðar á
vinnuaðstæðum, meðal annars með
stóraukinni loftræstingu og öndunar-
grímum. RÚV greindi frá.
Gagnagrunnur um húsgögn
Bandarísku hjónin Reese og Marilyn
Palley hyggjast smíða gagnagrunn um is-
lenska húsgagnalist 20. aldarinnar en þau
eru stödd hér á landi af því tilefhi. Þau
lýsa eftir myndum af íslenskum húsgögn-
um og upplýsingum um þau. Reikna þau
með að vinnan við gagnagrunninn muni
taka eitt ár. Morgunblaðið greindi frá.
Club Diablo sviptur leyfi
Borgarráð hefur á grundvelli áfengis-
laga svipt handhafa áfengisleyfis fyrir
veitingastaðinn Club Diablo í Austur-
stræti tímabundnu leyfi til áfengisveit-
inga dagana 28.-30. júni. Er þetta gert
vegna ítrekaðra brota í reksfri. Morgun-
blaðið skýrði frá. -HK
Göngudeildin opin
í grein DV mn Vífilsstaði var rang-
lega hermt að göngudeild í lungnasjúk-
dómum og ofnæmissjúkdómum væri
lokað á sumrin. Hið rétta er að göngu-
deildinnni verður ekki lokað í sumar
heldur er hún enn starfrækt á sínum
gamla stað á fyrstu hæð Vifilsstaðaspít-
ala. Hún verður hins vegar flutt um
miðjan ágúst á gang A-3 á Landspítala í
Fossvogi. Er beðist velvirðingar á mis-
tökunum.
f ókus
»Á MORGUN
Mottuhlaup og
módelstörf
í Fókus á morgun
er viðtal við Nönnu
Guðbergsdóttur sem
hefur starfað sem
fyrirsæta í Þýska-
landi um margra
ára skeið. Nanna
segir frá dvöl sinni
ytra og því að hún
er snúin heim, búin
að opna kaffihús og á von á bami innan
tíðar. Við fýlgjumst með Mottuhlaupinu
sem nokkrir karlmenn á Seltjamamesi
hafa hlaupið á hverju ári í tíu ár og ræð-
um við ungan íslenskan rappara í Nor-
egi. Þá kíkjum við á nýjustu tískuna hjá
karlmönnum og í Lífmu eftir vinnu
finnurðu allt það helsta sem er að gerast
um helgina og meira til.