Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Blaðsíða 9
9 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002 DV Fréttir Náttúrufræðistofnun íslands: Alls 32 fuglar eru í útrýmingarhættu Náttúrufræðistofnun íslands hef- ur gefið út annan hluta íslensks vá- lista: Válista 2 - Fuglar, sem er skrá yfir þær tegundir íslenskra fugla sem eiga undir högg að sækja hér á landi, eru í útrýmingarhættu eða hefur veriö útrýmt. Listinn, sem tekinn er saman af sérfræðingum Náttúrufræðistofnunar, byggist á al- þjóðlegum stöðlum Alþjóða náttúru- verndarsamtakanna IUCN. 32 tegundir af 76 íslenskum varp- fuglum eru á válistanum, eða 42%. Síðustu geirfuglarnir í heiminum voru drepnir við ísland 1844 og er það eina tegundin á listanum sem er útdauð i heiminum öllum. Tvær tegundir eru útdauðar sem varpfuglar í íslenskri náttúru, haftyrðiil hætti varpi um 1995 og keldusvín um 1970. Sex tegundir eru taldar í bráðri hættu og er stofnstærð þeirra talin innan við 50 fuglar. Þetta eru brandönd, fjöruspói, gráspör, skut- ulönd, snæugla og strandtittlingur. Fimm tegundir eru taldar í hættu; haförn, helsingi, húsönd, skeiðönd og þórsháni. Stofhstærðir þessara tegunda eru innan við 250 fuglar, nema húsandar, sem er inn- í útrýmingarhættu 42% íslenskra varpfugla eru á válistanum frá Náttúrufræöistofnun sem þýöir að þeir eru í útrýmingarhættu eöa hefur veriö útrýmt. an við 2500 fuglar en hefur fækkað stöðugt á undanfómum áratugum. Fimmtán tegundir em taldar í yf- irvofandi hættu. Fjórar þeirrá; sjó- svala, skrofa, stormsvala og súla, verpa á mjög fáum stöðum á land- inu. Stofnstærð sjö tegunda; branduglu, fálka, flórgoða, gargand- ar, gulandar, hrafnsandar og himbrima, er innan við 1000 fuglar og hefur flórgoða auk þess fækkað á undanfömum árum. Stofnum grá- gæsar, hrafns, stuttnefju og svart- baks hefur einnig fækkað á undan- fómum ámm. Loks em grafond, stormmáfur og straumönd taldar í nokkurri hættu og háöar vemd. Til hvers er válisti? Fiestar þjóðir sem íslendingar bera sig saman við hafa fyrir mörg- um ámm gefið út opinbera válista og verndaráætlanir fyrir tegundir í útrýmingarhættu og búsvæði þeirra byggðar á listunum. Útgáfu válista er m.a. ætlað að auðvelda þeim sem taka ákvarðanir um landnotkun, auðlindanýtingu og mannvirkjagerð á íslandi að sinna sínum lögboðnu skyldum, sérstak- lega við gerð skipulagsáætlana og við mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmda. Með útgáfunni er Náttúrufræði- stofnun íslands ekki síður að sinna alþjóðlegum skuldbindingum ís- lands, þ.e. afla áreiðanlegra upplýs- inga um tegundir sem eiga undir högg að sækja, skrá þær með skipu- legum hætti og gera tillögur um frekari rannsóknir og aðgerðir þeim til vemdar. -vig Frændsystkinin Jóhanna Lan og Hjalti Snær skírð á Akureyri: Lét skíra barnið og barnabarnið sama dag Gleðistund var í garðinum að Ásabyggð 9 á Akureyri undir kvöld á þriðjudag þegar tvö böm í sömu fjölskyldu voru skírð, Jóhanna Lan Hjaltadóttir, 15 mánaða, og Hjalti Snær Ámason, sex vikna. Hjónin Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, og Svanhvít Magnúsdótt- ir kennari ættleiddu Jóhönnu litlu Lan í Kína 8. maí síðastliðinn. Dag- inn eftir fæddist svo Hjalti litli Snær - heima á Akureyri. Foreldrar hans eru Gerður Ósk, dóttir Hjalta Jóns, og Ámi Jökull Gunnarsson. Hjalti Jón var því að láta skíra bæði bara og bamabarn á heimili sínu. En hvers vegna var þriðjudagur valinn til að skíra bömin? Ástæðan er sú að Jóhanna er skirð í höfuðið á látinni systur föðurins, Hjalta Jóns. Jóhanna heitin Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur og rithöfund- ur, átti einmitt afmæli þann 25. júní og því var tilvalið að skíra á þeim degi. Hún lést af slysförum á frönsku eynni Belle Isle en Mer árið 1995. Það var Harines Öm Blandon, prófastur í Eyjafirði, sem skírði Hjalta Snæ og Jóhönnu Lan. Skírn- arfonturinn var myndarlegur stuðlabergssteinn úr Hólahnjúkum í Hrunamannahreppi sem Hannes Fjölskyldan við skímlna Frá vinstri, hjónin Árni Jökull Gunnarsson og Geröur Ósk Hjaltadóttir meö Hjalta litla Snæ, Hannes Örn Blandon prófastur, Una Sveinsdóttir, Hjalti Jón Sveinsson meö Jóhönnu litlu Lan og eiginkona hans, Svanhvít Magnúsdóttir, og sonur hennar, Daöi Sveinsson, bróöir Unu. Auk Geröar Óskar á Hjalti Jón tvö önnur börn, þau Tómas Frey og Ingu Rut. Öm helgaði og vígði vatnið i honum fyrir athöfriina. Kátínu vakti þegar prófasturinn hafði lokið við að skíra og sagði: „Nú lýkur þessari athöfn.“ Þá Komnir á kreik Geitungarnir eru sprottnir fram úr fylgsnum sínum og hafnir handa viö aö byggja bú. Þaö sem fyrst og fremst kemur upp í huga fólks þegar geitunga ber á góma er sú árátta þeirra aö verjast af hörku og beita til þess heldur ógeöþekkum ráöum. Geitungarnir mættir: Meindýraeyð- ar byrjaðir að eyða búum í blíðviðrinu undanfarnar vikur hafa geitungar sprottið fram úr fylgsnum sínum en þeirra fyrstu varð vart 25. maí síðastliðinn. Undanfarin vor hefur einmitt mátt vænta þeirra um það leyti. Fyrr- um var um meiri óreglu að ræða, þannig að það virðist sem að geit- ungamir hafi aðlagast íslenskum staðháttum. Síðan hefur viðrað vel og þeir sprottið fram úr fylgsnum sínum unnvörpum. Þeir fyrstu eru þegar farnir að byggja bú. Oftast taka þeir þó nokkra daga í að nærast og hressa upp á orkubúskapinn eftir vetrarsvefninn áður en hafist er handa við að koma þaki yfir höf- uöið. Alls hafa fjórar tegundir geit- unga numið hér land. Þær eru trjágeitungur, holugeitungur, húsageitungur og roðageitungur. Trjágeitungur er sá sem kemur fyrst á stjá og hefur fólk orðið vart við hann undanfarið. Smári Sveinsson, meindýraeyð- ir hjá Meindýr-Varnir og Eftirlit ehfi, segir að fólk sé þegar byrjað að hringja inn og biðja um að fjar- lægja bú. „Um leið og sólin kemur upp fara þeir á kreik og ég þurfti m.a. að eyða einu nú í nótt. Þetta eykst síðan eftir því sem líður á sumarið og í ágúst og september eru það að meðaltali um fjögur bú á nóttu,“ segir Smári, en öll bú eru fjarlægð á nóttunni meðan geit- ungarnir sofa. Þessi fjöldi er þó misjafn og fjarlægði Smári t.d. 17 bú eina nóttina í fyrra. Aðspurður segist Smári ekki verða var við sjáanlega fjölgun á geitungum. „Það er náttúrlega allt of snemmt um það að segja en þetta virðist vera svipað og undan- farin ár.“ -vig horfði Jóhanna Lan, 15 mánaða, sem þykir afar brosmilt bam, fram- an í prestinn og klappaði saman lóf- unum. -hlh Díoxín-reglugerð ESB gild 1. júlí nk.: Framfylgni hennar í molum Reglugerð ESB um hámark díoxíns í fiskafurðum, dýra- og fiskafpðri tek- ur gOdi 1. júlí nk. Framleiðendur og þeir sem stunda viðskipti með þessar vörar hafa verulegar áhyggjur af framkvæmd reglugerðarinnar, eink- um vegna þess að ESB hefur enn ekki tekist að ná samkomulagi um aðferð- ir við efnagreiningu og sýnatöku. Einnig að misræmi verði í fram- kvæmd reglugerðarinnar á milli hinna ýmsu innflutningshafna. Efna- greining díoxína er flókin, dýr og tímafrek, getur tekið 3 vikur, og mjög fáar efnagreiningarstofur til sem hafa búnað og þjálfað starfsfólk til að framkvæma greininguna. Þar fýrir utan er nákvæmni greiningarinnar ónóg, þegar miðað er við þau lágu mörk sem ESB gerir ráð fyrir, og má vænta mikils munar, eða allt að 50%, á milli einstakra rannsóknarstofa. Ekki er heldur ljóst hvað gera skuli við vörusendingar sem kæmu til með að verða yfir þeim mörkum í díoxín- innihaldi sem reglugerðin segir til um. Verður sendingunum fargað eða endursendar til framleiðenda? Hafa framleiðendur og/eða seljendur áfrýj- unarrétt ef díoxin mælist yfir mörk- unum? Eitt er víst að kostnaður við fram- kvæmd reglugerðarinnar verður verulegur hver svo sem niðurstaðan verður með að framfýlgja henni. Þessi kostnaður kemur niður á selj- endum og endanlega niður á fram- leiðendum. Iffo (Intemational Fish Meal and Fish Oil Organisation) og GAFTA (Grain and Feed Trade Association) hafa beitt áhrifum sín- um við viðkomandi aðila innan Evr- ópusambandsins til þess að reyna að fá gildistöku reglugerðarinnar frestað á meðan menn komi sér niður á raun- hæfar leiðir til að framfylgja henni. Hafa þessi samtök fyrir utan sín eig- in bréfaskrif og viðræður við þessa aðila fengið Straan Stevenson, sem er formaður Sjávarútvegsnefndar Evr- ópuþingsins, til að skrifa kommisör- unum David Byme og Franz Fischler og lýsa áhyggjum sínum yfir þeim af- leiðingum sem gildistaka reglugerð- arinnar hefur á meðan framfýlgni hennar er í molum. -GG OPNA TOP-FLITE - ETONIC Opna TOP-FLITE - ETONIC mótið verður haldið hjá Golfklúbbnum Kili á Hlíðavelli í Mosfellsbæ laugardaginn 29. júní 2002. Það verður ræst út kl. 08:00-10:20 og 13:00- 15:00.18 holu höggleikur með og án forgjafar. Hámarksvallarforgjöf: Konur: 28 Karlar: 24 Glæsileg verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti með og án forgjafar. Nándarverðlaun á 1./10. og 6./15. braut. Mótsgjafd kr, 2.500,- Skráning á netinu á golf.is og i síma 566-7415 TO^fUTE Ausíurbakki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.