Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Side 8
8
Fréttir
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
!DV
Hlaut meðaleinkunnina 9,43 frá Háskóla íslands:
Las 700 blaðsíður á dag
- lokaritgerðin um eignastýringu lífeyrissjóða
DV-MYND HARI
Dúx viðskipta- og hagfræöideildar Hl
Marinó Örn Tryggvason, dúx frá viöskipta- og hagfræöideild Háskólans meö meöaleinkunnina 9,43. Þann árangur
þakkar hann því aö taka námiö eins og vinnu. Hann segir námiö hafa falliö mjög vel aö áhugasviöi hans.
Akureyringurinn Marinó Öm
Tryggvason náði þeim einstæða árangri
nýverið að útskrifast frá viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla íslands með með-
aleinkunnina 9,43. Deildin með stuðn-
ingi Hollvinafélags deildarinnar afhenti
Marinó peningaverðlaun fyrir þennan
einstæða árangur. BS-ritgerð Marinós
nefnist „Eignastýring og fiárfestinga-
stefna lífeyrissjóða."
En hvemig næst svona glæsilegur ár-
angur? Marinó segir að þegar verið sé í
skóla séu alltaf einhver fóg sem gaman
sé að glíma við en önnur sem era lesin
af skyldurækni. En þegar nemandi hafi
áhuga á því sem hann er að gera sækist
námið mun betur og þannig hafi það
verið í langflestum greinum námsins í
Háskólanum.
„Ég er ekki mjög skipulagður að eðl-
isfari, t.d. glósaði ég aldrei, hvorki í tím-
um né utan þeirra, en ég reyndi að vera
búinn að lesa svolítið það efni sem átti
að fjalla um á fyrirlestrum eða annars
staðar. Ég les mjög hratt, kemst yflr að
lesa kennslubók sem er allt að 700 blað-
síður á einum degi og láta töluvert sitja
eftir. Ég kemst því yfir mikið efni á
stuttum tíma en reyndi þó að taka fyrir
eitt fag i hverri viku, væri það mögu-
legt. Ég satt að segja veit ekki hvort ár-
angurinn kemur mér sérstaklega á
óvart en ég reyndi að lesa í 8 til 10 tíma
á dag, tók námið eins og vinnu, sem það
auðvitað er. Ég sleit það ekki í sundur
með því að fara á þeim tíma út í búð,
það gerði ég eftir þann tíma. Ég stefndi
að því að ná 1. einkunn, 7,25 en ég fann
að námið gekk strax mjög vel. Það að
fara í þetta nám var ekki löngu ákveðið,
ég ætlaði fyrst í sagnfræði en þegar ég
fór að lesa ævisögur stjómmálamanna
stönguðust oft á pælingar þeirra hvað
varðar fjármál og þegar ég fór að kynna
mér betur þann bakgrunn sem lá að
baki orðum þeirra vaknaði áhugi á hag-
fræði.“
Þú fjallai' um fjárfestingarstefnu
lifeyrissjóða í ritgerð þinni. Er henni
ábótavant?
„Ég var nokkuð búinn að hugsa hvað
lífeyrissjóðir gætu best gert til að
tryggja félagsmönnum öragga afkomu
þegar starfsævi þeirra lyki og hvaða
áhrif það hefði aö lífeyrissjóðimir ættu
svona miklar fjárfestingar erlendis. Nið-
urstaða mín er sú að íjárfestingar lífeyr-
issjóða séu það sem íslendingar geti ver-
ið hvað stoltastir af, næst á eftir arðsöm-
um og skipulögðum fiskveiðum."
Er þessi ritgerð skrifuð á máli sem
allt venjulegt fólk skilur eða er hún
skrifúð á stofnanamáli?
„Auðvitað eru í henni kaflar sem era
kannski torskildari almenningi og svo
era i henni ýmsar stærðfræðijöfnur.
Þetta er tæknileg útfærsla á því t.d.
hvemig á að fara með gengishagnað.
Lífeyrissjóðimir í landinu era af stærð-
argráöunni 700 miiljarðar króna svo það
er gríðarlega mikiivægt að fjárfesta þær
eignir sem best með sem bestri ávöxtun.
Fjárfestingarstefha snýst ekki síst um
það að skilgreina áhættu samfara fjár-
festingu en hún verður öll að vera skil-
greind að mínu mati. Það skiptir máli
hvert prósent sem við gætum bætt
ávöxtun lífeyrissjóðanna um og þannig
aukið lífeyrisgreiðslur landsmanna þeg-
ar á eftirlaunaaidur kemur.
Lífeyrissjóðakerfið er í dag mjög gott.
Þeir sem eiga að njóta þeirra eflir t.d. 40
ár era vel settir og það eru litlar likur á
að sjóðimir verði gjaldþrota, þótt það sé
svolítið misjafnt, miðað við að eignir
þeirra aukist um 3,5% á ári að raun-
giidi. Jafnvel þó aðeins yrði keypt ríkis-
ábyrgð sem er með lægstu ávöxtun
stendur kerfið vel. OECD hefur sagt að
lífeyrissjóðimir hér séu of margir, það
hefur batnað en þeir vora yfir 100 þegar
þeir vora flestir. Ný lög frá Alþingi hafa
fækkað þeim en um leið tryggt afkomu
sjóðfélaga."
Marinó Öm hefur hafið störf hjá
Kaupþingi. -GG
Margir vilja
í bæjar-
stjórastóla
Nokkrar bæjar- og sveitarstjóra-
stöður eru auglýstar lausar þessa
dagana og vekja greinilega mikinn
áhuga. 20 manns sóttu um stöðu
bæjarstjóra á Austur-Héraði en um-
sóknarfrestur um stöðuna rann út
20. þessa mánaðar. Umsækjendur
eru
Ágústa Björnsdóttir, Austur-Hér-
aði, Ámi Múli Jónasson, Reykjavík,
Ásmundur Helgi Steindórsson, Nes-
kaupstað, Bjarki Már Karlsson,
Hvanneyri, Bjöm Helgason, Garða-
bæ, Daðey Þóra Ólafsdóttir, Akra-
nesi, Eiríkur Bjöm Björgvinsson,
Akureyri, Guðjón Viðar Valdimars-
son, Reykjavík, Hilmar Þór Haf-
steinsson, Hveragerði, Jóhann F.
Kristjánsson, Reykjavík, Jón Kr.
Amarson, Hallormsstað, Jónas Eg-
ilsson, Reykjavík, Magnús Kristján
Hávarðarson, Bolungarvík, Óskar J.
Sandholt, Reykjavík, Pétur Björns-
son, Reykjavík, Reynir Þorsteins-
son, Raufarhöfn, Stefán Arngrims-
son, Reykjavík, Steinn Kárason,
Danmörku, Theodór Blöndal,
Reykjavík og Ævar Einarsson, Dan-
mörku.
Um starf sveitarstjóra á Hólma-
vík sækja Ásdís Leifsdóttir og Bjöm
Helgason, bæði í Garðabæ, Jón Ingi
Jónsson og Pétur Einar Traustason,
báðir í Kópavogi, Magnús Már Þor-
valdsson og Reynir Þorsteinsson,
báðir á Raufarhöfn, Kristján Eiríks-
son og Egill Rúnar Sigurðsson, báð-
ir í Reykjavík, og Jón Skjöldur
Karlsson á Akureyri. Einn umsækj-
enda óskaði nafnleyndar.
Ólafur Öm Ólafsson, viðskipta-
fræðingur í Kanada, hefur verið
ráðinn bæjarstjóri í Grindavík.
-GG
A æfingunni verða m.a. David Beckham
og fleiri stjörnur úr enska boltanum.
Allt sem þú þarft að gera er að senda okkur mynd af þér sem lýsír best
hversu mikill fótboltaáhugamaður þú ert og af hverju þú ættir að fá að
fara í draumaferð DV og Pepsi. Skilafrestur er til 2. júlf 2002.
ATH! Ferðin er fyrir ungan fótboltaáhugamann ásamt forráðamanni. Farið
verður þann 20. júlf. Senda skal myndir á DV, Skaftahlíð 24,105 Reykjavík,
merkt „Draumaferð DV og Pepsi”
Orval mynda mun birtast á síðum DV.
Láttu drauminn rætast
09 fleiri stjörnuvn
úr enska boltanum?
Ungum lesendum DV gefst kostur á að
vinna sér inn ferð fyrir tvo (ungan fót-
boltaáhugamann ásamt forráðamanni)
til Englands og æfa undir handleiðslu
Alex Ferguson hjá Manchester United.