Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Qupperneq 28
28
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2002
' Sport
DV
4
Áhorfendur setja alltaf sterkan svip á keppnir á borö viö heimsmeistara-
keppnina og þessi brasilíska yngismær er þar engin undantekning. Og þó
aö ýmislegt viröist vera aö sleppa í augsýn sem menn sjá kannski ekki dags
daglega á almannafæri er greinilega ekkert veriö aö kippa sér upp við þaö.
Reuters
Rudi Völler um væntingar sínar til Þjóöverja fyrir HM:
Taldi vörnina
vera vandamálið
- Þjóðverjar hafa aðeins fengið á sig eitt mark í keppninni
Það er mikil heíð fyrir knatt-
spyrnu í Þýskalandi. Og það sannast
á gengi Þjóðverja á HM að menn geta
farið langt á heíðinni því enginn átti
von á því, eftir allt sem á undan var
gengið, að menn myndu horfa á þetta
lið spila úrslitaleikinn á HM.
Margir afskrifuðu þýska liðið
strax í byrjun, enda ekki að ástæðu-
lausu því liðið var í töluverðu basli í
undankeppninni. Það sýndi meðal
annars 5-1 tapið gegn Englendingum
á heimavelli enda gefur slíkt tap
ekki tilefni til mikillar bjartsýni. Og
þó að Þjóðverjar hafl komist í umspil
þar sem þeir unnu Úkraínu nokkuð
sannfærandi þótti mönnum það ekki
gefa tilefni til bjartsýni.
Og ofan á þetta allt saman komu
meiðslin, sérstaklega í vörn liðsins.
„Nánast öll vörnin hvarf úr liðinu og
ég varð því að standa í dálítilli til-
raunastarfsemi. Ég tók áhættu en
það hefur gengið vel og leikmennirn-
ir sem ég hef valið hafa gert það sem
ég hef ætlast til af þeim,“ segir Rudi
Völler, landsliðsþjálfari Þjóðverja.
Völler missti Jens Novotny og
Christian Wöms í meiðsli strax á
undirbúningstímabilinu og tO við-
bótar átti Marko Rehmer í meiðslum
og var nokkuð frá sinu besta. En
þrátt fyrir þetta hefur þýska liðið að-
eins fengið á sig eitt mark í keppn-
inni. Og það er ekki á neinn hallað
þó sagt sé að mestan þátt í því eigi
markvörðurinn Oliver Kahn, sem er
tvímælalaust einn af bestu mark-
vörðum heims og hefur leikið frá-
bærlega í þessari keppni.
Varnarmennirnir frábærir
En þeir varnarmenn sem Þjóðverj-
ar hafa teflt fram hafa einnig staðið
sig meö prýði. Þar ber fyrst að telja
Christoph Metzelder, sem hefur ver-
ið í hyrjunarliðinu í öllum leikjum
Þjóðverja í keppninni og á svo sann-
arlega framtíðina fyrir sér, en hann
er aðeins 21 árs gamall. Thomas
Linke hefur leikið nánast gallalaust
alla keppnina og er mjög vanmetinn
leikmaður og Carsten Ramelov tók
við leiðtogahlutverki varnarinnar í
keppninni af Jens Novotny.
Þessir þrír hafa myndað hina
hefðbundnu varnarlínu en ekki má
heldur gleyma þeim miðjumönnum
sem hafa varnarskyldum að gegna.
Þetta eru Thorsten Frings hægra
megin, Dietmar Hamann á miðjunni
og Christian Ziege vinstra megin.
Völler hefur reyndar tvisvar skipt
yfir í fjögurra manna vörn með góð-
um árangri. Fyrst í leiknum gegn
Kamerún í riðlakeppninni þegar
Ramelow fékk rauða spjaldið og það
varð til þess að Kamerún fékk varla
færi eftir það, og síðan i síðari hálf-
leiknum gegn Suður-Kóreu þegar
þeir tefldu djarft og spiluðu með þrjá
menn frammi. „Maður verður að
vera sveigjanlegur eins og fótboltinn
er í dag,“ segir Völler.
Varist frá fremsta manni
Margir ráku upp stór augu þegar
Þjóðverjar byrjuðu keppnina með
látum og rótburstuðu Sádi-Arabíu
8-0. Sú skýring hefur verið gefin að í
undirbúningsleikjunum hafi Þjóð-
verjar skorað töluvert af mörkum en
ekki verið nógu agaðir í varnarleikn-
um. Þeir hafi þó leikið sóknarleik í
þessum fyrsta leik en eftir það hafi
þeir hugsað meira um að fá ekki á
sig mörk.
Þarna er kannski kominn lykill-
inn að þessu góða gengi Þjóðverj-
anna. Allir eru að sinna varnar-
skyldum sínum, jafnvel fremstu
mennirnir, og það gerir liðið í heild
mjög þétt. Svo þétt, að mótherjar
þeirra hafa aðeins einu sinni fundið
leiðina í gegnum þá. Spennandi verð-
ur að sjá hvemig Brasilíumönnum á
eftir að ganga á þeirri leið. -HI
Hinn ungi Christoph Metzelder hefur komið sterkur inn í þýsku vörnina. Hér
á hann í höggi við Suður-Kóreumanninn Cha Du-ri. Reuters
jii k< vj > Mætum í réttu litunum á leikinn í kvöld!!
3.990
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
www. mitre. com
Guðjón Guðmundsson og Hreinn Sigurðsson við Berghylinn í Korpu í
gær. Áin hefur gefið níu laxa. DV-myndir G.Bender
Leirvogsá:
Núll á fyrsta degi
Laxveiðin virðist ekkert vera
að lagast, laxarnir eru fáir á
þurrt enn þá. Fyrsta daginn í
Leirvogsá í fyrra veiddust 13 lax-
ar en núna veiddist enginn fisk-
ur.
Þetta eru ótrúlegar sveiflur í
veiðiskapnum og lýsir vel
ástandinu í veiðinni þessa dag-
ana. í Stóru-Laxá i Hreppum hef-
ur verið það sama uppi á
teningnum.
Veiðimenn sem voru á svæði
eitt og tvö í Stóru-Laxá í Hrepp-
um fyrir nokkrum dögum
veiddu bara bleikjur.
„Ég sá laxa í Brúarhylnum en
þaö er ekki mikið af fiski í Leir-
vogsá núna,“ sagði Skúli Skarp-
héðinsson, veiðivörður við Leir-
vogsá, er blaðamaður hitti hann
við Leirvogsá i gærmorgun.
Meðal þeirra sem voru að
Rólegt á Korpubökkum
„Við erum ekki búnir aö veiða
neitt enn þá, en við sáum laxa
hérna í Berghylnum áðan, einn
eða tvo laxa,“ sögðu þeir félagar
Guðjón Guðmundsson og Hreinn
Sigurðsson er við hittum þá við
Korpu i gærmorgun.
„Það verður reynt áfram,“
sagði Hreinn Sigurðsson sem
kastaði flugunni fimlega við
Berghylinn.
Korpa hefur gefið 9 laxa, lax- Hreinn Sigurðsson kastar flugunni
inn er greinilega mættur, þó 1 Berghylnum í Korpu í gær.
veiða í Leirvogsá í gær var Al-
freð Þorsteinsson borgarfulltrúi.
Vatnið er ekki mikið í Leir-
vogsá núna, laxarnir sem eru
komnir eru fáir enn þá.
En þetta er rétt að byrja og
Leirvogsá er laxveiðiá sem
stendur undir nafni.
auðvitað mættu vera fleiri fisk-
ar og i Elliðaánum hafa veiðst 15
laxar.
Veiðimenn voru að kasta flug-
unni á Breiðunni í Elliðaánum
en fiskurinn tók ekki. Áin hefur
gefið 15 laxa. -G.Bender