Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2002, Síða 32
V ' * ' M ijJial iÍJÍfjJj'Jfj ig® £l JjJdjjJj J JiJjJjJjJÍJUjlJl] Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz® - Loforð er loforð Sími: 533 5040 - www.allianz.is DV-MYND GVA Feögin á feröalagi Þaö er misjafn feröamátinn sem fólk velur sér í gegnum lífiö. Hér má sjá Sögu Huld, sem er tæplega tveggja ára, una sér vel í handtösku fööur síns á ferö þeirra um miöbæinn, útsýniö ergott og farartækiö hiö þægilegasta. DV-MYND NH Umsóknir um aðstoð til Hjálparstarfs kirkjunnar innanlands aukast mjög: Yfirtökutilboð fimmmenninga á SPRON: ast um sinn hag - hætt við fund stofnfjárfesta á morgun Mikil ólga er meðal starfsmanna Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis vegna yfirtökutilboðs Búnaðarbanka og fimm stofnfjáreigenda á SPRON. Greini- legt er að starfsmenn óttast um sinn hag þrátt fyrir yfirlýsingu í tilboði fimm- menninganna um óbreyttan rekstur. Sendi starfsmannafundur frá sér yfirlýs- ingu vegna málsins í gær og lýstu and- stöðu við yfirtökutilboð Búnaðarbanka íslands á SPRON þar sem seilst er 1 eig- in fé sparisjóðsins fyrir brot af raun- virði, eins og segir í yfirlýsingu fundar- ins. Viðbrögð stjómar SPRON á fundi S gær við tilboðinu voru að afboða fyrir- hugaðan fund með stofnfjárfestum á morgun þar sem taka átti afstöðu til þess að breyta SPRON í hlutafélag. Hóp- ur stofnfjáreigendanna fimm, Pétur H. Blöndal alþingismaður, Gunnar A. Jó- hannsson, framkvæmdastjóri, Gunn- laugur M. Sigmundsson framkvæmda- stjóri, Ingimar Jóhannsson skrifstofu- stjóri og Sveinn Valfells, verk- og við- skiptafræðingur, sendi frá sér yfirlýs- ingu vegna harkalegra viðbragða við til- boði þeirra. Þeir segja fullyrðingu um afhendingu eigin fjár SPRON og að Jón G. Pétur H. Tómasson. Blöndal. hægt verði að tæma alla sparisjóði landsins vera ranga. Enginn geti sett hömlur á að stofnfjáreigendur selji eig- ur sínar gegn sanngjamri greiðslu, enda sé eignarrétturinn tryggður í stjómar- skrá. Reynir hópurinn nú að safna sam- an 1/3 hluta stofnfjáreigenda til að knýja það fram að fundur verði haldinn í SPRON. Harpa Gunnarsdóttir, forstöðumaöur starfsmanna og þjónustu, segir að fund- urinn með staifsmönnum hafi verið nyög vel sóttur. „Það er mikill samhugur hjá starfs- mönnum SPRON. Það hefur alla tíð ein- kennt starfsemi fyrirtækisins hversu vel starfsmenn hafa staðið saman. Það var einróma samþykkt ályktun og starfsmenn em á einu máli um að þessi fyrirhugaða yfirtaka sé ekki af hinu góða. Menn óttast um sinn hag þrátt fyr- ir yfirlýsingar í tilboði um að ekki verði breytingar á neinu fyrir starfsmenn, nema það sem eðlileg þróun segir til um. Hvað er eðlileg þróun þegar svona yfirtaka verður? Fólk veltir því auðvit- að fyrir sér. Við teljum enga tryggingu fyrir að engar breytingar verði gerðar. Þeir segja líka í málflutningi sínum að þeir muni hagræða og sameina útibú. Loforð em í raun ekki nein því það er hægt að láta allt teljast eðlilegt ef af slik- um sammna verður. Svo sem fækkun starfsmanna." Fjöldi starfsmanna og maka þeirra em jafnframt stofhfjáreigendur í SPRON. í heild em stofnfiáreigendur 1107 og þar af em yfir 100 af 170 starfs- mönnum SPRON í hópi stofnfiáreig- enda. Stór hluti af mökum starfsmanna er líka stofnfiáraðilar. „Það er einróma stuðningur starfs- manna við stjóm Sparisjóðsins. Ég treysti því að það verði farsæli endir á þessu máli,“ sagði Harpa Gunnarsdóttir. Stjóm Sparisjóðs Reykjavikur og ná- grennis hvetur stofnfiáreigendur tii þess að halda að sér höndum og hafna yfir- tökutilboði í SPRON, hvort sem það verður talið standast lög eða ekki. Fái tilboðið staðist mun stjómin undirbúa málið í ljósi nýrra viðhorfa og leita hag- kvæmari kosta fyrir SPRON og stofn- fiáreigendur en Búnaðarbanki íslands býður.Ý“Búnaðarbankinn ætlar að komast yfir SPRON fyrir tvo milljarða króna en bókfært verð sparisjóðsins er 3,2 milljarðar og matsverð á hendi eins aðila a.m.k. 5 milljarðar," segir í til- kynningu stjómarinnar. -HKr. Fe ætlað til aðstoðar nauðstöddum er uppurið - meira fé veitt í ár en allt árið í fyrra - gripið til lokana þar til í ágúst Bæjarráð fundar Frá upphfi bæjarráösfundar í Árborg í morgun. Árborg: Öllum hafnað Fulltrúar í bæjarráði Árborgar mættu til fundar í ráðhúsi Árborgar í morgun. Aðalmál fundarins var tfilaga um að hafna öllum 17 umsóknunum sem bárust um stöðu bæjarstjóra. Menn standa því að nýju á byrjunar- reit eftir ágreining siðustu daga á mfili meirihlutaflokkanna, Framsóknar og Samfylkingar, um tvo einstaklinga sem sóttu um starfið, þá Þorvarð Hjaltason og Björgvin Njál Ingólfsson. DV hafði samband við Þorvarð í gær- kvöld vegna málsins, hann vildi ekkert gefa upp um sína afstöðu til þess. Ekki náðist í Björgvin Njál. Fundur bæjar- ráðs stóð enn yfir þegar blaðið fór í prentun. -NH Fé sem ætlað var til aðstoðar í tengslum við innanlandsaðstoð Hjálp- arstarfs kirkjunnar á þessu ári hefur þegar gengið til þurrðar vegna auk- innar eftirspumar og ásóknar þeirra sem þurfa fiárhagsaðstoð. Fólki hefur verið bent á að lokað sé fram yfir verslunarmannahelgi. Meira fé hefur nú verið veitt á fyrri hluta ársins heldur en lagt var fram tfi umsækj- enda aUt árið 2001. „Við þurfum að gera nýjar ráðstaf- anir tU að sinna verkefnum á haust- mánuðum, afla fiár og taka nýjar ákvarðanir eftir sumarhlé starfs- manna," sagði Einar Karl Haraldsson, formaður stjómar Hjálparstarfs kirkj- unnar, við DV í morgun. Hann segir að fólk sem vantar aöstoð geti sótt um tvisvar en yfirleitt séu það prestar sem vísi á hjálparstarfið. Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknar- prestur i HaUgrímskirkju, sagði við DV að dapurlegt væri að upplifa það mánuð eftir mánuð að sjá aukningu á fátækt i landinu sem birtist i þessum miklu og auknu umsóknum um að- stoð af hálfu þeirra sem em í fiárhags- erfiðleikum. „Það er sorglegt að horfa upp á þetta," sagði Jón Dalbú. Einar Karl sagði að ákvörðun um að taka hlé í sumar helgist líka af því að hjálparstarfíö sé ekki félagsmála- stofnun. „Starfið er ekki byggt á lög- bundnum rétti einstaklinga eins og gagnvart ríki eða sveitarfélögum. Við vUjum ekki taka að okkur hlutverk hins opinbera eða skapa slikt viðhorf hjá umsækjendum hjá okkur." Einar Karl bendir á að félagsráðgjafi hefði verið ráðinn hjá hjálparstarflnu - starfsmaður sem hafi unnið gott starf, m.a. við að veita fólki aðstoð tU að leita réttra leiða tU frambúðar. -Ótt Vanskil langdýrust hjá Búnaðarbankanum Það er dýrara að lenda í vanskil- um með skuldabréf hjá Búnaðar- bankanum en öðrum íslenskum lánastofnunum. Búnaðarbankinn tekur sérstakt vanskilagjald um- fram þessa lögbundnu 20% van- skUavexti, sem nemur 9.400 krón- um ef komið er 60 daga fram yfir síðasta gjalddaga. Búnaðarbank- inn er fyrstur banka tU að taka upp þessar hertu innheimtuað- gerðir og er reyndar einn banka til þess, a.m.k. enn sem komið er. 7 dögum eftir gjalddaga er send út fyrsta aðvörum og þá bætast við 525 krónur og 30 dögum eftir gjald- daga aðrar 575 krónur en þessar upphæðir hafa verið lengi við lýði. 15 dögum síðar bætast við 2.750 krónur og loks 60 dögum síðasta aðvörun áður en bréfið fer í lög- fræðiinnheimtu og þá bætast við 5.500 krónur, aUs 9.350 krónur. Segja má að oft lendi þetta á þeim sem búi við kröppust kjörin. Ólafur Héðinsson, skrifstofu- stjóri Búnaðarbankans á Akureyri, segir litla reynslu komna á áhrif þessarar innheimtu en þeir fari ekki í grafgötur um að mörgum finnist þetta harkalegar inn- heimtuaðgerðir. Þeir séu hins veg- ar tilbúnir að skiUdbreyta gjald- föllnum lánum ef viðkomandi geti sýnt fram á batnandi tíð í hans fjármálum. Ekki náðist í fuUtrúa Neytenda- samtakanna vegna þessa máls. -GG Sportvörugerðin hf. Skipholti 5, s. 562 8383 _____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________! 40% AFSLATTUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.