Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Side 9
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002
ÐV
Fréttir
9
— er meö eftirsóttustu lúxusvörum heims.
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. júlí 2002 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 42. útdráttur
3. flokki 1991 - 39. útdráttur
1. flokki 1992 - 38. útdráttur
2. flokki 1992 - 37. útdráttur
1. flokki 1993 - 33. útdráttur
3. flokki 1993 - 31. útdráttur
1. flokki 1994 - 30. útdráttur
1. flokki 1995 - 27. útdráttur
1. flokki 1996 - 24. útdráttur
3. flokki 1996 - 24. útdráttur
Æðardúnn handa auðkýfingum
Sæng úr íslenskum æðardúni
kostar sem svarar 1,2 milljónum
króna út úr búð i Kína og er eftir-
spurnin meiri en framboðið. Sam-
kvæmt blaðinu Beijing Today er ís-
lenski dúnninn talinn með dýrustu
lúxusvöru sem völ er á.
Samanburðurinn er handsmíðað-
ur Bentley sem er nákvæmlega eins
og sá sem Elísabet II fékk á 50 ára
krýningarafmæli sínu og Schimmel-
píanó sem aðeins þrjú eru til af.
Þessar vörur eru seldar í verslun
sem hefur aðeins á boðstólum varn-
ing fyrir hina forríku, en þeim fjölg-
ar i Kína með batnandi efnahag og
hagvexti.
Bíllinn var seldur á yfir 90 millj-
ónir króna og píanóið á 12 milljónir.
Verslunin, sem sérhæflr sig í lúx-
usvöru fyrir milljarðamæringa, vel-
ur aðeins hið besta og dýrasta af
framleiðsluvöru sem ekki er ætluð
öðrum en þeim sem eiga morð íjár
og eru gefnir fyrir það allra besta
sem hægt er að fá fyrir peninga.
Nöfn kaupenda eru ekki gefln upp,
en þó fékk blaðið að vita að það var
kona sem keypti æðardúnsængina.
Þótt hún léti ekki mikið yflr sér í
bland við demantaskreytt platínuúr,
hátískufatnað og handsmíðaða eðal-
gripi, var kaupandinn ekki í vafa
um að snara út fyrir sænginni þeg-
ar hún tók á henni og fann hve
mjúk og hlý hún er. Það fylgdi sög-
unni að sængin var keypt á heitum
miðsumardegi.
Blaðið segir að verðmæti íslenska
æðardúnsins felist ekki síst í því að
fuglinn gefi ekki dún í nema tíu
sængur á ári. Þess vegna var ekki
nema ein sæng i hillum Scitechbúð-
arinnar í höfuðborg kínverska al-
þýðulýðveldisins.
Markhópur lúxuverslunarinnar
eru 10 þúsund fjölskyldur sem hafa
gert það gott i borgum uppgangstím-
ans sem fylgdi í kjölfar mark-
aðsvæðingar stöðnunartimabils
Maós og félaga. -OÓ
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
laugardaginn 13. júlí.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
íbúðalánasjóður
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800