Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 13. JÚLf 2002 / / c> / cj ct rb l í7 ú X>"V 53 Jón Elías Bjömsson fyrrv. bóndi og starfsmaður Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, verður sjötugur á morgun Jón Elías Björnsson, fyrrv. starfsmaður Mjólkur- samsölunnar í Reykjavík, Miklubraut 72, Reykjavík, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Elías fæddist að Þverá í Fremri-Torfustaðahreppi í Vestur-Húnavatnssýslu en flutti á fyrsta ári að Reyni- hólum í Miðfirði og ólst þar upp við öll almenn sveita- störf þess tíma. Hann tók við búi foreldra sinna 1966 og bjó til 1976. Þá flutti hann í Sandgerði. Elías var starfsmaður Sandgerðisbæjar og sinnti ýmsum almennum störfum fyrir bæjarfélagið til 1987. Þá hóf hann störf hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík og starfaði þar til 1998 er hann lét af störfum af heilsufarsástæðum. Fjölskylda Eiginkona Eliasar er Ása Tulinius, f. 28.4.1941, hús- móðir. Hún er dóttir Karls D. Tulinius, f. 13.7. 1902, d. 8.9. 1945, og Guðrúnar M. Tulinius, f. 16.9.1902, d. 28.3. 1998. Börn Elíasar og Sjafnar Kristinsdóttur eru Sigurð- ur Kristinn, f. 21.9. 1966; Jóna Guðrún, f. 30.1. 1968; Andrea, f. 21.10. 1969. Börn Eiíasar og Svövu Valgerðar Kristinsdóttur, eru Tryggvi, f. 19.5. 1970; Ingibjörg, f. 18.11. 1971; Sig- rún, f. 2.7. 1974; Arthúr, f. 27.2. 1976; Ingvar Bingir, f. 30.6. 1977. Systkini Elíasar: Hólmfríður, f. 5.9. 1917, d. 24.11. 2000, húsmóðir í Sandgerði; Jóhanna, f. 27.1.1919, hús- freyja að Skarfshóli í Miðfirði; Guðmundur, f. 28.8. 1920, fyrrv. bóndi í Tjarnarkoti, nú að Laugarbakka; Björgvin, f. 16.6. 1925, d. 15.1. 2000, afgreiðslumaður í Kópavogi: Ólöf, f. 14.12. 1926, húsmóðir í Reykjavík; Jóhannes Ingvar, f. 1.1. 1930, fyrrv. hreppstjóri að Reynihólum, nú að Laugarbakka. Foreldrar Elíasar: Björn Guðmundsson, f. 23.2.1885, d. 24.3. 1985, bóndi að Reynihólum, og k.h., Ingibjörg Jónsdóttir, f. 9.12. 1891, d. 4.6. 1974, húsfreyja. Sjötíu og fimm ára Ætt Björn var sonur Guðmundar, b. í Reynihólum, Jó- hannessonar, b. á Dalgeirsstöðum, Ólafssonar. Móðir Guðmundar var Agnes Eiríksdóttir, b. á Efri-Núpi, Ei- ríkssonar, pr. á Staðarbakka, Ólafssonar, b. á Kjörs- eyri, bróður Þórðar, afa Helga Thordarsen biskups. Ólafur var sonur Þórðar, b. á Kjörseyri, Ólafssonar, bróður Guðrúnar, langömmu Björns Gunnlaugssonar stærðfræðings. Móðir Björns var Þorbjörg, systir Sigurðar, afa Skúla Guðmundssonar alþm. Bróðir Þorbjargar var Jónas, faðir Guðmundar Hlíðdals, póst- og símamála- stjóra. Þorbjörg var dóttir Jónasar, b. á Tittlingastöð- um, Sigurðssonar og Ragnhildar Aradóttur. Móðurbróðir Elíasar var Helgi, faðir Marinós, fyrrv. kaupmanns í Brynju. Annar móðurbróðir Elí- asar var Jóhannes, faðir Ólafs, aðalumsjónarmanns Happdrættis SÍBS. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. í Huppahlíð í Miðfirði, Jónssonar. Móðir Ingibjargar var Ólöf Helgadóttir, b. I Huppa- hlíð, Jónssonar frá Tannastöðum í Hrútafirði. Móðir Ólafar var Jóhanna Jóhannesdóttir frá Nýjabæ í Rifi á Snæfellsnesi. Elías verður að heiman á afmælisdaginn. Ég ætla að þessu sinni að byrja þáttinn á braghendu sem ég lærði nýlega. Höfund hennar veit ég ekki en hún lýsir á myndrænan hátt áhyggjuleysi unga fólks- ins: Æskuhryggó er eins og mjöll á apríldegi. Á augabragöi einu hjaönar óöar en fyrir sólu glaönar. Sturla Halldórsson fyrrv. hafnarvörður Sturla Halldórsson, skipstjóri og fyrrv. hafnarvörður, íbúð 305, Hlíf 2, Torfnesi, Isafirði, er átt- ræður í dag. Starfsferill Sturla fæddist á fsafirði og ólst þar upp. Hann öðlaðist vél- stjóraréttindi , 1940, skipstjóra- réttindi 1942 og hin meiri skipstjó'rnarréttindi fiski- skipa 1950. Sturia byrjaði þrettán ára til sjós á ms ísbirni ÍS 15, var skipstjóri á ms Særúnu SI, Sæfara ÍS, Auðbimi ÍS 17, Vébimi ÍS 14, Sólborgu ÍS 260 og Gylfa fS 303, og var hafnarvörður við ísafjarðarhöfn 1964-1993. Sturla var félagi í Vélstjórafélagi fsaíjarðar, Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Bylgjunni, Félagi opin- berra starfsmanna á ísafirði og Stangaveiðifélagi ísa- íjarðar og er félagi í Kiwanisklúbbnum Básar. Fjölsltylda Sturla kvæntist 31.12. 1944 Rebekku Stígsdóttur, f. 29.6. 1923, húsmóður. Hún er dóttir Stígs Haraldsson- ar, bónda á Horni í Hornvík, og Jónu Jóhannesdóttur húsfreyju. Börn Sturlu og Rebekku eru Guðjón Elí, f. 15.9.1945, d. 21.2. 1958; Frímann Aðalbjöm, f. 12.6. 1947, skipa- tæknifræðingur en kona hans er Auður Harðardóttir og eiga þau þrjú börn; Jónína, f. 4.11.1949 og var fyrri maður hennar Guðmund'ur G. Jóhannesson en seinni maður hennar er Helgi Jóhannesson og á hún þrjú börn; Stígur Haraldur, f. 20.10. 1953 en kona hans er Ásgerður Ingvadóttir og eiga þau fjögur böm; Guðjón Elí, f. 7.7. 1959, blikksmíðameistari, var kvæntur Hrafnhildi Haraldsdóttur en þau skildu og eiga þau tvö börn; Friðgerður Ebba, f. 4.7. 1965 og á hún eitt barn. Systkini Sturlu: Anna, f. 18.8.1913, d. 24.11. 1978, var gift Jóni Einarssyni og eignuðust þau tíu börn; Katrín, f. 15.8. 1915, d. 28.4. 1935, var gift Einari Jó- hanni Eiríkssyni og áttu þau eitt barn; Guðjón, f. 18.8. 1917, d. 2.10. 1991, var kvæntur Karlottu Einarsdóttur og eignuðust þau sex börn; Lilja, f. 4.6. 1919, gift Guð- mundi E. Guðmundssyni og eiga þau fjögur börn; Sig- urður, f. 8.9. 1921, d. 7.7. 2002; Guðjón Guðmundur, f. 2.1. 1926, d. 2.9. 1954; Steindór, f. 24.9. 1927, kvæntur Guðrúnu Pétursdóttur; Ólafur, f. 16.7. 1929, d. 19.6. 1999, var kvæntur Sesselju Ásgeirsdóttur og eignuðust þau átta böm; Málfríður, f. 22.5. 1931, gift Arnóri Stígssyni og eiga þau fjögur böm; Jón Laxdal, f. 7.6. 1933, kvæntur Catherine Laxdal og eiga þau tvö börn. Foreldrar Sturlu: Halldór Friðgeir Sigurðsson skip- stjóri og Svanfríður Albertsdóttir húsmóðir. Sturla verður meö opið hús í Kiwanishúsinu á ísafirði 1 dag, laugardag, kl. 15.00-18.00. Anna Sigurkarlsdóttir ellimálafulltrúi Anna Sigurkarlsdóttir elli- málafulltrúi, Bjarmhólastíg 17a, Kópavogi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Anna fæddist í Kaupmanna- höfn en ólst upp í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1948 og kennaraprófí frá KÍ 1956. Anna var búsettt á Eyrarbakka 1953-73 og hefur verið búsett í Kópavogi frá 1978. Anna stundaði kennslu frá 1971, var forstöðumaöur Félagsstarfs aldraðra í Kópavogi 1979-94 og síðan stjórnandi Kirkjustarfs aldraðra í Digraneskirkju. Anna hefur setið í ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar frá 1982. Hún ritstýrði bókinni Saga Félagsstarfs aldraðra í Kópavogi, útg. 1994, var ritari Sambands sunn- lenskra kvenna í tólf ár og sat í ritstjórn bókar þess, Gengnar slóðir. Fjölskylda Anna giftist 14.7. 1950 Magnúsi Guðjónssyni, f. 26.6. 1926, presti á Eyrarbakka og síöar biskupsritara. For- eldrar hans voru Guðjón Jónsson verkamaður og Steinunn Magnúsdóttir húsmóðir. Börn Önnu og Magnúsar eru Sigríður, f. 18.5. 1953 hjúkrunarfræðingur, gift Stefáni N. Stefánssyni lyíja- fræðingi og eru börn þeirra Anna, Lýdia, Davíð og Kristín; Sigurkarl, f. 19.2.1957, landfræðingur, smiður og kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, kvæntur Agnesi Eydal líffræðingi og eru börn þeirra Magnús Freyr og Hildur Hllf; Guðjón, f. 6.11. 1960, fiðluleikari og tónlistarkennari á Reyðarfirði og Eskifirði, kvæntur Gillian Haworth, skólastjóra Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og eru börn þeirra Dan- íel Kári og Gabriel Rán en sonur Gillian frá fyrra hjónabandi er Ævar Stormur. Bræður Önnu eru Stefán, f. 12.7. 1930, fyrrv. lyfsali í Reykjavík, kvæntur Önnu Guðleifsdóttur lyfjatækni; Guðjón, f. 17.10. 1931, fyrrv. læknir á Selfossi, kvænt- ur Unni Baldvinsdóttur meinatækni; Sigurður Karl, f. 30.9. 1939, framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra hf., kvæntur Amalíu Svölu Jónsdóttur hjúkrunarfræð- ingi; Gísli Kristinn, f. 24.1. 1942, lögfræðingur í Reykjavík, kvæntur Arnheiði Ingólfsdóttur hjúkrun- arfræðingi; Sveinn, f. 2.11.1943, héraðsdómari, kvænt- ur Ragnhildi Jóhannesdóttur viðskiptafræðingi. Foreldrar Önnu voru Sigurkarl Stefánsson, f. 2.4. 1902, d. 30.9. 1995, stærðfræðingur og yfirkennari við MR og kennari við verkfræðideild HÍ, og Sigríður Guðjónsdóttir, f. 25.11. 1903, d. 20.10. 1984, húsmóðir. I tilefni afmælisins býður Digranessöfnuður vinum og ættingjum til kaffisamsætis í Safnaðarheimili Digraneskirkju mánudaginn 15.7. kl. 20.00. Ég þekki ekki heldur höfund næstu vísu en hún fjallar um mál sem reyndar hefur áður borið á góma hér í þættinum. Það er sú staðreynd að þegar hérvist okkar lýkur gagnar okkur ansi lítið að eiga gnótt þessa heims auðæva. Allt það sem mölur og ryð grandar verður eftir hérna megin. Vísan er þannig: Þóít þú eigir fegri flík og fleiri í vösum lykla, okkar verður lestin lík á lokadaginn mikla. Auðunn Bragi Sveinsson las það í bók eftir Gunnar Dal að þegar efnið verði tæmt breytist allt í ljós. það verður að milljón ljósárum liðnum. Þetta varð honum að yrkisefni: Á efsta degi er efnió tœmt, allt er baöaó Ijóss í flóði. Er þaö kannski eitthvaö slæmt eftir milljón Ijósár, góöi? Og Auðunn Bragi er lítt hrifinn af þeim mönnum sem yrkja án þess að nota stuðla. Um það kveður hann: Eru þeir á einu máli; allt er kallaö Ijóö, þó hvorki örli á stuölastáli né stefja- dýrri -glóö. Þeir félagar Kristján frá Djúpalæk, Rósberg G. Snæ- dal, Heiðrekur Guðmundsson og fleiri góðir hagyrð- ingar og skáld á Akureyri ortu í félagi margar góðar vísur. Eitt sinn þegar Kristján bjó í Hveragerði fór hann norður um land til æskustöðva sinna á norð- austurhorninu án þess að líta við hjá vinum sín- um á Akureyri. Þeim þótti sér misboðið og ortu: Vini alla einskis mat, yfir fjalliö strekkti. Meira gallaö mannrassgat maöur varla þekkti. Ég enda á nýlegri vísu eftir Sigurð Ó. Pálsson á Egilsstöðum. Þegar hann frétti að borgaryfirvöld í Reykjavík ætluðu að gera bílastæði undir Tjörninni varð þessi til: Höföingjum vorum heiöur sé, hver og einn fœr sitt lof. Davíð óó bara upp í hné en Ingibjörg fór í klqf. Umsjón Ragnar Ingi Aðalsteinsson ria@isinennt.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.