Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Page 29
LAUCARDAGUR 13. JÚLf 2002 H elcjO rblaö DV 29 það trúir þvi enginn þegar ég segi að ég sé dauðfeim- inn.“ Ferðu kannski í einhvern karakter? „Þegar ég er að spila þá fer ég í karakter, það er al- veg á hreinu. Þá breytist ég í einhvem töffara, verð ofboðslega svalur og er með einhverja stæla.“ Þú lendir aldrei í neinni hlutverkaspennu þ.e. hver þú átt að vera hverju sinni? „Ég er orðinn svo vanur að fást við þetta. Þessi karakter er bara hluti af mínu lífi.“ En hver ertu þá? „Ég er bara Helgi,“ svarar hann feimnislega og greinilega undrandi á spumingunni. Kynlíf, dóp og rokk og ról Sex, drugs and rock and roll. Er eitthvað til i þessu? „Það hlýtur að vera. Maður les alla vega um það í blöðunum,“ segir Helgi og bendir á tónlistartímarit sem liggur á borðinu okkar. En hver er þín reynsla? spyr ég mátulega ýtinn. „Já og nei. Ég hef lifaö kynlifi eins og flestir og prófað vímuefni en ég hef aldrei dottið ofan í neina neyslu. Ég prófaði þetta á hippaárunum en þegar maður eldist gengur þetta ekki. Mér finnst gaman að drekka vín þegar ég er í góðum félagsskap. Ég hef heyrt margar dópsögur af mér og hljómsveitinni. Ég man að við áttum einu sinni að spila á Gauknum árið 1994 og á þessum tíma var ég með magasár. Ég hafði nokkrum sinnum komið fram á sviði þrátt fyrir að vera með mikla verki og því ákvað ég að láta slag standa og klára giggið þrátt fyrir sársaukann. Síðan byrjuðum við að spila og ég finn um leið að ég klára ekki þessa tónleika. Mér sortnaði fyrir augum og fékk. mér sæti fyrir framan trommusettið en hélt samt áfram að syngja. Eftir smá stund fann ég að þetta gengi ekki og náði mér í vatnsglas og sturta því yfir mig um leið og ég strunsa í gegnum áhorfendaskar- ann. Ég fer beinustu leið upp á loft og þar líður yfir mig í einhverju bakherbergi. Svo kemur sjúkrabíll og sækir mig og ég kemst undir læknishendur. Það mun- aði ekki miklu að ég hefði dáið en ég var búinn að missa mikið blóð. En um leið byrjuðu sögurnar að fara á kreik: „Helgi Björnsson tekur of stóran skammt á tónleikum." Allar fréttastofur virtust hafa griðar- legan áhuga á málinu þannig að ég veitti viðtal, liggj- andi í rúminu mínu á sjúkrahúsinu og sagði frá því sem gerðist í raun og veru. En þetta er svona dæmi um sögumar sem ég hef heyrt og þær eiga ekki viö nein rök að styðjast. Ég veit alveg að ég var og er nett flippaður á svið- inu og kannski í einhverjum fríkuðum stellingum. Snemma varð þessi sviðspersóna til sem ég sýni á tónleikum og ákveðnar sögur komust á kreik um að ég væri á bólakafi í dópi en ég var bara að lifa mig inn i tónlistina. Og ég hef eiginlega ekkert gert til að slá sögurnar niður. Ég hef ýtt undir þær frekar en hitt. Þetta er hluti af rokkímyndinni, þessi dulúð.“ Ertu þá að leika þér að hlutverki rokkstjörnunnar? „Já, oft er ég að því. Eins og Svavar Gests sagði ein- hvern tímann þegar hann var að spila á einhverjum stað úti á landi: „Strákar, ekki láta nokkum mann sjá ykkur fyrir ball, ef það gerist er ljóminn farinn." Þetta var alveg rétt hjá honum. Það er miklu skemmtilegra þegar hljómsveitin er að koma úr borg- inni og bæjarbúar bíða spenntir. Síðan kemur bandið fram um kvöldið, böðuð sviðsljósum og allir ærast, bæði hljómsveitin og áhorfendur. Það sama myndi ekki gerast ef þú færir út í búð og þar stæði Raggi Bjarna við kjötborðið og boraði í nefið. Hann myndi einhvern veginn missa ljómann. Þetta vissi Svavar Gests fyrir öllum þessum árum síðan.“ Ég trúi á hjónabaiidið oklíar Þú ert búinn að búa með sömu konunni í mörg ár og á dpgunum kvæntist þú henni loksins. Hefur aldrei verið erfitt að standast allar þær freistingar sem óneitanlega hljóta að fylgja rokklífeminu? „Jú, jú. Auðvitað hefur þetta oft verið erfitt en ég á líka enga venjulega konu og einhvern veginn hef- ur strengurinn á milli okkar aldrei slitnað. í raun hefur þetta gengið furðuvel miðað við allar fjarvist- imar sem kannski voru af hinu góða.“ Hvenær kynntust þið? „Við kynntumst árið 1977. Við féllum bæði fyrir hvort öðru og ég held að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn. Ég man að hún var að kenna á ísafirði þennan vetur og eins og kemur fram i texta sem ég samdi fyrir löngu þá dönsuðum við tangó eina haustnótt og sváfum síðan saman eins og lög gera ráð fyrir á íslandi. Þannig að þetta byrjaði með stór- um smelli." Hvað heillaði þig við hana? „Hún var falleg, framandi, spennandi og það var einhver undarleg angan sem heillaði vitin. Einhvem tímann var mér sagt að það væri undirstaða þess að maður gæti heillast af manneskju og ég hætti ekki að hafa gaman af því að hjúfra mig í hálsakotið á henni og finna lyktina af henni. Og þessi kona held- ur alltaf áfram að heilla mig eftir öO þessi ár.“ Var einhver sérstök ástæða fyrir því að þiö giftuð ykkur núna? „Þetta hefur komið til tals í gegnum árin og okk- ur hefur langað til þess lengi. Þegar við voram að „Ég man að hún var að kenna á ísafirði þennan vetur og eins og kemur fram í texta sem ég samdi fyrir löngu þá dönsuðum við tangó eina haustnótt og sváfum síðan saman eins og lög gera ráð fyrir á íslandi.“ kynnast fyrir 25 árum síðan þótti bara hallærislegt að giftast. Ég lifði i þessum hippaanda og mér fannst miklu meira spennandi aö fara á einhverja eyju við Miðjarðarhafið og fá sér eina jónu á nektarströnd. Þú veist, liggja endilangur einhvers staðar undir bemm himni og horfa á stjörnumar, pælandi í til- gangi lífsins. Þetta stóð manni mun nær en að steypa sér í einhvern materíalisma, gifta sig, stofna heimili og aOt sem því fylgir. Mér fannst á þessum tíma að ég væri ekki einungis að giftast þessari stúlku held- ur líka að giftast ákveðnum gildum sem ég var á móti.“ Ertu búinn að giftast þeim núna? „Að mörgu leyti. í gegnum árin hef ég nálgast þessi gildi, alla vega betri partinn af þeim og núna er ég óðum að verða miðaldra maður og reynslan hefur kennt mér margt. Ég veit aOa vega hverju ég er að hafna þegar ég fer inn í kjarnann. Ég er búinn að sjá að anarkí gengur ekki. Það er nauðsynlegt að hafa einhverja festu og hjónabandið er grunnurinn að henni.“ Þú hefur öðlast trú á hjónabandið? „Ég trúi á hjónaband mitt og Vilborgar." Stend alltaf á tíniamótuni „Mér finnst eins og lífið sé rétt að byija. Það er það skemmtOegasta við þessa giftingu. Mér finnst eins og við séum byrja upp á nýtt þó það hafi í sjálfu sér ver- ið óþarfi. Við trúlofuðum okkur í febrúar þegar Vil- borg útskifaðist úr háskólanum, siðan giftum við okk- ur í sumar og fórum í brúðkaupsferö. Nú er eins og við séum að hefja nýtt líf, kannski eignumst við fleiri böm, leitum okkur að nýrri íbúð eða þannig. Mér finnst gaman að vera í þessari stöðu. Það eru svo margir valkostir. Ég gæti þess vegna farið og lært arkitektúr sem ég hef aOtaf vOjað gera eða farið og gert eitthvað aOt annað. Kerfið setur manni oft ein- hverjar skorður og oft eru menn settir í eitthvert hlutverk sem þeir komast ekki úr. Ég og VOborg höf- um aOtaf vOjað brjóta hlutina aðeins upp, ekki gera hlutina eins og allir aðrir og það gefur manni tæki- færi tO að vera frjáls. Mér finnst stundum að ég sé í sömu stöðu og 25 ára gamaO maður. Ég er auðvitað búinn að koma mér að- eins betur fyrir en ég þarf aö berjast fyrir öOu sem ég ætla að taka mér fyrir hendur. Ef ég vU fara að leika þá þarf ég að berjast fyrir því aö ná mér í hlutverk og ef ég vU fara að spOa þarf ég aö bretta upp ermar og fara í harkið." Stendurðu á tímamótum í lífi þínu? „Ég veit það ekki. Eða kannski jú, ég var náttúrlega að gifta mig. Annars finnst mér ég aUtaf standa á tímamótum," segir Helgi Björnsson, skemmtikraftur og eiginmaður, og hlær. -JKÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.