Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002
Helqarblað I>V
31
Smáauglýsingar
DV
Þjonustu-
auglýsingar
W 550 5000
\ /
SOlAKMtti
iseOí - w rinos
Cj
Sólarkaffi isbúö - kaffihús • Laugavegi 85 • opiö frá kl. 11 - 20
aðvera
r
r I | ■■
alslandi
vikuna 11.-17. júlí. Geymið auglýsinguna.
veröi hátæknivæddar. En mannlegi
þátturinn ætlar að verða út undan
sem fyrr og velferð fólkins sem á að
grafa eftir gullinu og dæla olíunni
upp skiptir ekki máli.
Embættismenn Pútíns forseta eru
ekki á einu máli um hvernig mögu-
legt sé að byggja upp heilbrigt efna-
hagslíf í Síberíu. Sérstakur land-
stjóri sem forsetinn hefur sett yfir
endurreisn mikils hluta þurrlendis
heimsins er ekki allt of bjartsýnn á
að það takist að snúa þróuninni við
og fá fólk til að flytja til Síberíu í
stað þess að flýja frá heimshlutan-
um. Hann heldur því fram að ríkið
verði að gripa til stórfelldra ráðstaf-
ana og leggja í kostnað við að gera
byggöir austursvæðanna fýsilegar til
búsetu og að þeir sem þangað flytja
fái hlutdeild í auðlindunum og þeim
hagnaði sem þær gefa af sér.
En „oligarchamir" og öflug hand-
bendi þeirra í stjómmálum og stjórn-
sýslu eru blindaðir af gullæði og ljá
ekki máls á öðru en að hirða auð-
lindirnar og nýta þær á fljótvirkan
hátt og gefa skít í byggðasjónarmið
eða hvemig íbúum reiðir af.
Einn af þingmönnum Síberíu í
þinginu í Moskvu segir að miðstýr-
ingartilburðir Pútíns komi illa við
allar framfarir i Síberíu. Hún er skil-
in eftir og vestan Úralfjalla kæra
menn sig kollótta um afdrif hennar
eða íhúanna. Boris Reznik orðar það
svo að ástandið í Síberiu sé eins og
sameinaðar kreppur iðnríkjanna og
þróunarríkjanna. í hinum ríku Vest-
urlöndum mun ört lækkandi fæðing-
artíðni leiða til vandræðaástcuids
eins og há dánartíðni, minnkandi
lífslíkur og slæmt heilsufar í þróun-
arríkjunum mun leiða til hnignunar.
Samkvæmt spám mannfjöldafræð-
inga mun Rússum fækka úr 143 millj-
ónum í 90 mUljónir á næstu tveim
mannsöldrum og fólki á starfsaldri
fækkar um milljón á ári.
En ekki ber öllum saman um mik-
ilvægi Síberíu í framtíðarríki Rúss-
lands. Nokkrir vestrænir sérfræðing-
ar halda fram að örlög Síberíu séu
prófsteinn á framtíð Rússlands. Með
því að flytja aUa íbúana vestur fyrir
Úralfjöll, tU gamla Rússlands, fær
þaö loks tækifæri tU að samlagast
vestrinu.
Hvað þá verður um Síberíu og þær
miklu auðlindir sem landið býr yfir
mega guðirnir einir vita.
(Heimildir m.a. Guardian)
iRrnníöími'jh'ev öe áó OSOS ðhó rQÖ
Ýmsar skemmtanir
ísafjörður 11. júlí.
Sumarkvöld í Neðstakaupstað.
Suðureyri 11.-14. júlí.
Sæluhelgi, árviss fjölskylduhátíð
á Suðureyri við Súgandafjörð.
Seyðisfjörður 13. júlí.
Opnuð sýning um olíuskipið El Grillo.
Kirkjubólshreppur 13. júlí.
Leikjadagur á Kirkjubóli fyrir alla
fjölskylduna, hefst kl. 14.00.
Seyðisfjörður 15.-30. júlí.
LungA - listahátíð ungs fólks.
Listviðburðir, dansleikir, tónleikar o.fl.
Skriðuklaustur 1. júní- 30. september.
Opið alla daga.
Fáskrúðsfjörður
Fransmenn á íslandi. Opið alla daga frá
10-17. Lýkur 31. ágúst.
Seyðisfjörður
Á seyði - listahátíð. Stendur sumarlangt.
Myndlist
Reykjavík
Þrír veggir, verk eftir þrjár konur.
Gallerí i8. Lýkur 17. ágúst.
Reykjavík
Ísland/Colorado. Grafísk verk eftir
Valgerði Hauksdóttur og Kate Leonard.
Listasafn ASÍ. Lýkur 28. júlí.
Hafnarfjörður
Málverk eftir David Alexander frá
Kanada, textílverk eftir Distil-hópinn.
Hafnarborg. Lýkur 22. júlí.
Reykjavík
Mynd. í samvinnu viö Listahátíð
í Reykjavík. Listasafn Reykjavíkur,
Hafnarhús. Lýkur 11. ágúst.
Reykjavík
Listin á meðal fólksins.
í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn.
Lýkur 31. desember.
Akureyri
Akureyri í myndlist II. Samsýning
23 listamanna. Listasafn Akureyrar.
Lýkur 21. júlí.
Reykjavík
Sumarsýning á verkum í eigu safnsins.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir.
Lýkur 25. ágúst.
Reykjavík
Sumarsýning Listasafns íslands.
Úrval verka í eigu safnsins.
Lýkur 1. september.
Tónlist
Reykjavík 11. júlí.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju.
Akureyri 11. júlí
Heitir fimmtudagar. Jasstónleikar
í Deiglunni kl. 21.30.
Skálholt 13. júlí.
Erindi kl. 14.00. Nýir fornleifafundir
í Skálholti. Dr. Gavin Lucas fornleifa-
fræðingur. Tónleikar kl. 15.00. Georg
Philipp Telemann, Marta Halldórsdóttir
sópran, Camilla Söderberg, blokkflauta,
Hildigunnur Halldórsdóttir, barokkfiðla
og Guðrún Óskarsdóttir, semball.
Tónleikar kl. 17.00.
Ný verk eftir Þórð Magnússon. Eþos
strengjakvartettinn, einsöngur: Marta
Halldórsdóttir sópran.
Reykjavík 13. júlí.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju.
Skálholt 14. júlí.
Tónleikar kl. 15.00. Ný verk eftir Þórð
Magnússon. Eþos strengjakvartettinn,
einsöngur: Marta Halldórsdóttir sópran.
Orgelstund fyrir messu kl. 16.40.
Messa kl. 17.00. Þættir úrtónverkum
helgarinnar. Stólvers úrfornu handriti,
Marta Halldórsdóttir sópran.
Akureyri 14. júlí.
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
kl. 17.00.
Reykjavík 14. júlí.
Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju kl. 20.00.
Reykjavík 18. júlí.
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju.
Seyðisfjörður 1. júní - 31. ágúst.
Bláa kirkjan - sumartónleikar.
Miðvikudagskvöld kl. 20.30.
Eiðar 1. júní - 31. ágúst
Bjartar nætur í júní. Óperustúdíó
Austurlands flytur klassísk verk.
Leiklist
Reykjavík
The Saga of Gudridur, flutt á ensku.
Sýningar á fimmtudögum, föstudögum
og sunnudögum kl. 20.30.
Reykjavík
Bjartar nætur, flutt á ensku. Sýningar
á hverjum degi nema sunnudögum í
Tjarnarbíói kl. 21.00.
m
ÍSLAND SÆKJUM ÞAÐ HEIM
PÓSTURINN
©
Fer-amálará* íslands
ifffBf
RllOSÚTWRPtÐ
SAMCÖNCURÁÐUNEYTIÐ