Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2002, Qupperneq 46
50
Helgarblctð H>"V LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 2002
Sportlegir
aksturseiginleikar
og meira rými
Kostir: Aksturseiginleikar, fjöörun, rými í aftursœtum
Gallar: Vantar inniloftsstillingu, framsœti í minna lagi
Ford Fiesta kom fyrst á markað 1976 en nýjasta út-
gáfa hennar er nú komin til landsins. Framan af verð-
ur hún aðeins fáanleg fjögurra dyra en þriggja dyra bíll
kemur væntanlega ekki fyrr en á næsta ári. Ford von-
ast eftir að Fiesta eigi aftur eftir að ná fyrri vinsældum
því að gamli bíllinn var orðinn frekar úreltur og salan
þvi minnkað um 10% í Evrópu í fyrra. Nýi billinn sæk-
ir útlit sitt til hins vinsæla Ford Focus, eins best
heppnaða bils síðasta áratugar, og því ekki leiðum að
likjast.
Stærri í sniðum
Mikil vinna var lögð í innanrými bílsins og þá sér-
staklega þannig að það hentaði öllum stærðum af bíl-
stjórum. Búið er að lengja gírstöng um 95 mm og öku-
mannssæti er fjölstillanlegt. Það verður þó að segjast
eins og er að seta i framsætum er frekar stutt og lítill
stuðningur við bak. Fiestan er með ný hljómtæki sem
eru fest með öflugum boltum til að minnka hættu á
þjófnaði. Gallinn við þau er auðvitað sá að þeir sem
vilja meiri græjur lenda í vandræðum með að koma
þeim fyrir. Ford lagði líka áherslu á að bíllinn myndi
rúma fimm fullorðna með farangur, enda fótapláss í
JmuuESTunE
Nýttu þér Formúluna og
veldu sömu dekk og meistararnir
BRÆÐURNIR
IORMSSON
Lágmúla 8 • Slmi S30 2800
aftursætum heilum 60 mm lengra en áður. Hurðir eru
stórar svo að auðvelt sé að koma inn barnabílstólum og
þess háttar. Fimmti farþeginn má þó ekki vera mjög
mikill um sig til að komast með en bíllinn fær samt
plús fyrir gott pláss i aftursætum sem eru þægilegri en
framsætin. Farangursrýmið er 285 lítrar í venjulegri
stöðu sem er nokkuð gott og búið er að færa afturfjöðr-
un i lárétta stöðu þannig að það er breitt og nýtist vel.
Bíllinn er vel búinn, jafnvel í grunnútgáfu, og geisla-
spilari og fjórir öryggispúðar staðalbúnaður. Fjaropn-
un er á skotti sem er til þæginda og einnig hægt að
opna með fjarstýringu en bæta hefði mátt við hand-
virkri opnun á hlerann. Eitt vekur furðu í búnaði bíls-
ins, það að engin stilling er í miðstöð fyrir inniloft.
Hvort síurnar í bílnum eru orðnar svona góðar veit ég
ekki en lyktin af rotnandi baggarúllum aftan i traktor
fannst vel í reynsluakstrinum uppi í sveit.
Góður akstursbíll
Þessi 1,4 lítra vél er nokkuð spræk og þægileg í
vinnslu. Hana vantar aðeins afl á hærri snúningi en
ætti að duga flestum nokkuð vel. Aukin stærð kemur
bílnum einnig til góða í akstri og yfírbyggingin er mun
stífari en áður. Bíllinn er því nokkuð sportlegur hvað
varðar aksturseiginleika, þ.e. hann svarar vel í stýri og
liggur ágætlega. Fjöðrunin er vel heppnuð, leggur bíl-
inn vel í beygjumar og á möl étur hún upp nánast all-
ar holur. Giramir em þægilegir í skiptingum og
bremsumar, sem eru með hjálparátaki, virka vel við
allar aðstæður. Aðeins eitt skyggði þó á ánægjuna í
akstri; það var leiðindavindýlfur frá hliðargluggum, en
tekið skal fram að það kom aðeins fram á mikilli ferð.
Ford vonast til þess að bíllinn taki forystuna í sínum
flokki þegar kemur að árekstraröryggi. Allt að sex ör-
yggispúðar era í boði og telja hönnuðir Ford fjórar
stjömur vera tryggðar, jafnvel þó að þriðja þriggja
punkta beltið vanti aftur í. Mesta salan verður liklega
í þessari útgáfu með Duratec-vélinni hér á landi en
samkeppnin í þessum flokki er erfið og margir um hit-
una, nýr VW Polo til að mynda og bílar eins og Toyota
Yaris, Renault Clio og Peugéot 206.
-NG
©1,4 lítra vélin ætti að duga flestum enda hefur
hún þokkalega vinnslu.
FORD FIESTA
Vélbúnaður:
Vél: 1,4 lítra, 4ra strokka bensínvél.
Rúmtak: 1388 rúmsentímetrar.
Ventlar: 16
Þjöppun: 11:1
Gírkassi: 5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fiöðrun framan: Sjálfstæð MacPherson
Fjöðrun aftan: Snúninqsfjöðrun
Bremsur: Diskar/skálar, ABS, EBD
DEKKJASTÆRÐ: 175/65 R14
Ytri tölur:
Lenqd/breidd/hæð: 3915/1680/1460 mm
Hjólahaf/veghæð: 2485/140 mm.
Beyqjuradíus: 10,3 metrar.
INNRI TÖLUR:
Farþeqar m. ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/örvqqispúða: 5/4
Faranqursrými: 285-950 lítrar.
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 6,4 lítrar
Eldsneytisqeymir: 45 lítrar
Ábvrqð/ryðvörn: 3/6 ár
Verð: 1.450.000 kr.
Snúninqsvæqi/sn.: 124 Nm/3500.
Hröðun 0-100 km: 13,2 sek.
Hámarkshraði: 168 km/klst.
Eiqin þynqd: 1045 kq.
Umboð: Brimborq
STAÐALBÚNAÐUR:
Rafdrifnar rúður að framan, fjarstýrðar samlæsingar, 4 ör- yggispúðar, hæðarstillanlegt ökumannssæti, geislaspilari og útvarp, leðurklætt stýrishjól, litað gler, fjaropnun á
skotti,
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 80/5700
Snúninqsvæqi/sn.: 124 Nm/3500.
Hröðun 0-100 km: 13,2 sek.
Hámarkshraði: 168 km/klst.
Eiqin bvnqd: 1045 kq.
QAfturhlerinn opnast mjög vel upp og plássiö í
skottinu er einnig gott til hliöanna.
Qljósin eru óvenjustór og ásamt brettabogunum
bera þau keim af útliti Ford Focus.