Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2002, Blaðsíða 11
Dreifbýlingum verður á næstu dögum færð djasstónlist beint í æð. Nokkrir ungir tónlist-
armenn, sem kenna sig við Jazzkvartettinn Camival, lögðu nefnilega af stað í hringferð
um landið í gær en þeir ætla að halda fánum djasstónlistarinnar á loft næstu daga.
Djassinn í vandræðum
„Þetta eru allt í allt 11 tónleikar á 10 dög-
um sem við erum að fara að spila á, víðs vegar
um landið,“ segir Ómar Guðjónsson, gítar-
leikari hópsins. Hann hefur ásamt þeim
Helga Sv. Helgasyni slagverksleikara,
Eyjólfi Þorleifssyni saxófónleikara og Þor-
grími Jónssyni bassaleikara sett saman
Jazzkvartettinn Carnival sem mun á næstu
dögum ferðast um landið í þeim tilgangi að
leika djass fyrir landsmenn.
Auka fjölbreytnina
„Með þessu erum við að reyna að auka
menninguna í okkar landi,“ segja pihamir.
„Það vantar meira af djassviðburðum á Islandi
og þá sérstaklega úti á landi. Héma í Reykja-
vík fáum við nóg að gera en það er bara al-
mennt lítið um lifandi tónlist úti á landi. Yf-
irleitt eru það bara sveitaböll og svo er
kannski stöku tónlistarklúbbur sem styrkir
einhverja klassíska viðburði. Við ætlum því að
reyna að ýta undir að það verði meira að gerast
en bara þetta tvennt.“
Jazzkvartettinn Camival hóf tónleikaferð
sína í gær með tónleikum í Stykkishólmi, í
kvöld verða þeir í Grundarfirði og á morgun
munu þeir bæði leika á Blönduósi og Siglu-
firði.
„Flestir tónleikanna verða á litlum kaffi-
húsum þannig að við ætlum bara að reyna að
skapa góða stemningu þann tíma sem við
erum á hverjum stað. Þetta er ekki mest
hardcore djassmúsík sem fyrirfinnst þannig
að fólk sem hefur ekki bijálaðan áhuga fyrir
djassi getur haft gaman af þessu líka. Mörg
lögin þekkir fólk en þetta eru t.d. gömul
söngleikjalög sem við höfum sett í aðeins
djassaðri búning.“
Djassinn í vandræðum
Drengimir segjast hafa fúndið fyrir aukn-
um áhuga á djasstónlist á síðustu ámm og
munar þar mestu um að djassinn er farinn að
Jazzkvartettinn Carnival verður á flugi um landið næstu vikuna og mun koma víða við. Þeir Þorgrímur, Eyjólfur, Ómar og Helgi munu alls
leika á ii tónleikum á 10 dögum þar sem léttur djass, sem allir ættu að geta haft gaman af, verður á dagskránni.
renna saman við það sem er að gerast f tónlist-
inni í dag. Einnig hefur fólk mætt djassinum
með opnari hug heldur en off áður.
„Ahuginn fyrir djasstónlist hefur aukist
mjög mikið, t.d. meðal fólks á okkar aldri. í
dag er fólk líka farið að sækja mikið í þá tón-
list sem er í gangi og notar í djassinn hvort
sem það er drum ‘n bass, hip hop eða raftón-
list. Þetta skilar sér líklega í auknum áhuga.
En þegar sumir heyra orðið djass halda þeir að
þetta sé bara eitthvað fyrir afa og ömmu.
Hugtakið djass er bara svo teygjanlegt og
angamir svo margir að það er mjög erfitt að
leggja fingurinn á það. Það sem sumir kalla
rokk köllum við t.d. impróviseraðan djass.
Hugtakið er bara búið að vera víðtækt svo
lengi að það er búið að koma sér í vandræði,"
segja þeir að lokum.
KLIKKAÐ TILBOÐ!!!
m nýjum áskrífendum
færð þú gefins
Aiwa TVC-140014”sjónvarp
ísl. textavarp - A/V-tengi
Euro scart-tengi -fullkomin fjarstýríng.
Áskriftorskuldbindinq er6 mánuðir*
550 50 00