Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002
DV
Fréttir
Uppbygging við Viðskiptaháskólann á Bifröst með nýju skólahúsi og nemendabústöðum:
Byggt fýrir milljarð
á menntasetri
- 500 manna þorp í Norðurárdal
DV-MYNDIR: SBS
Viö nýja skólahúsiö
„Þetta veröurallt aö vera tilbúiö um helgina," sagöi Runólfur Ágústsson. Aö
baki hans er nýja 1.200 fermetra skólahúsiö en fyrsti hluti þess veröur tek-
inn í notkun um heigina.
Um eitt hundrað iðnaðarmenn eru
nú að leggja lokahönd á umfangsmikl-
ar framkvæmdir við Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst í Borgarfirði. Þar verð-
ur um helgina tekinn í gagnið fyrsti
hluti 1.200 fermetra skólahúss, þar
sem verður meðal annars nýr fyrir-
lestrarsalur, vinnu- og rannsóknarað-
staða fyrir kennara og þjónustuver
skólans. Þá er einnig verið að taka í
notkun nemendagarða með 16 fjöl-
skylduíbúðum og 20 íbúðum fyrir ein-
staklinga. Allt er þetta hluti af upp-
byggingu í háskólaþorpinu á Bifröst
sem staðið hefur yflr sl. þrjú ár. Segir
Runólfur Ágústsson, rektor skólans,
að nauðsyn hafi verið að mæta vexti í
skólastarfinu með þessum hætti, en
hann segir að kostnaður við fram-
kvæmdir á svæðinu nemi nær einum
milljarði króna.
Hér hefur fólk allt til alls
„Þetta verður allt að vera tilbúið
um helgina," sagði Runólfur Ágústs-
son þegar hann kynnti stöðu mála á
staðnum fyrir tíðindamanni DV í gær.
Mikið er eftir enn - en allt verður að
hafast í tæka tíð. Ekki einasta er ver-
ið að stækka skólahúsið og byggja
fleiri nemendabústaði við þá sem fyr-
Á Bifröst
Nýir nemendagaröar sem nemendur
eru aö fiytja inn í þessa dagana. Faríö
veröur í frekari framkvæmdir viö íbúö-
arhúsnæöi á næstu mánuöum.
ir eru. Á vegum Borgarbyggðar er
verið að stækka leikskólann á staðn-
um - þannig að rými verður fyrir sex-
tíu börn í stað 25. Einnig hefur verið
lagt nýtt holræsakerfi á staðnum og
Vegagerðin hefur fært þjóðveginn um
Norðurárdal nokkuð fjær skólaþorp-
inu.
Nemendafjöldi í Viðskiptaháskólan-
um á Bifröst hefur aukist mikið und-
anfarin ár, meðal annars með tilkomu
lögfræðideildar. Breytingar á starfs-
umhverfi háskóla gera Bifröst nú
einnig mögulegt að útskrifa fóik með
formlega viðskiptafræðimenntun, sem
Háskóla íslands var einum heimilt til
skamms tíma að gera. Svonnefnt
MBA-nám í viðskiptafræðum og
stjórnun er jafnframt á dagskrá í allra
næstu framtíð. 1 vetur munu á Bifröst
verða alls 260 nemendur í staðnámi
auk þess sem sjötíu eru í fjarnámi.
Aðsókn að skólanum er mikil og
mörgum umsækjendum um nám er
hafnað.
500 manna samfélag
„Hér í samfélaginu á Bifröst verða í
vetur í kringum 500 manns, og eru þá
inni í þeirri tölu nemendur, fjölskyld-
ur þeirra, kennarar, annað starfsfólk
og fleiri," segir Runólfur, sem segir að
nýjar námsbrautir og ýmiss konar
vaxtarbroddar í skólastarfinu sem
verið sé að hlúa aö gefa fullt tilefni til
þess að ætla að innan þriggja til fjög-
urra ára verði íbúar í samfélaginu á
Bifröst kannski um 800 talsins.
Runólfur segir að sérstaða Við-
skiptaháskólans á Bifröst sé tvímæla-
laust sú að i kringum hann sé ákveð-
ið samfélag. „Hér búa fimm hundruð
manns og þörfum þess fólks verður að
mæta. í nýju skóla- og þjónustubygg-
ingunni sem við tökum í notkun um
helgina verður til dæmis bankaútibú,
kjörbúð og kaffihús. Fyrirlestrasaln-
um nýja verður einnig hægt að breyta
og efna þar til kvikmyndasýninga og
tónleika. Hér hefur fólk allt til alls.“
Skólahúsið nýja á Bifröst er byggt
af þeirri sjálfseignarstofnun sem
stendur að rekstri skólans. Kostnaður
á hvem fermetra er 170 til 180 þús.
krónur og er það nokkru lægri kostn-
aður en við byggingu sambærilegra
mannvirkja í opinberri eigu. Hvað
varðar nemendabústaðina þá eru það
félagslegar leiguíbúðir sem íbúðalána-
sjóður hefur lánað til. Segir Runólfur
að strax á næstu mánuðum verði að
fara í byggingu fleiri íbúða því í dag
séu tugir nemenda og kennara sem
ekki hafi húsnæði á staðnum og þurfi
jafnvel að aka langan veg til náms eða
starfa.
Mikilvægt fyrir Borgarfjörð
„Skólinn er að styrkja byggð hér og
mannlíf afar mikið. Margir nemendur
setjast að á Vesturlandi og fá þá í
krafti mennntunar sinnar góð laun.
Það er nokkuð sem landsbyggðin þarf
á að halda. Sömuleiðis hafa kennarar
hér við skólann verið að sinna fiöl-
þættum rannsóknarverkefnum, sem
meðal annars snúa að málefnum þessa
svæðis. Ég held að enginn fari í grafgöt-
ur um hvaða þýðingu skólinn á Bifröst
hefur fyrir byggð og mannlíf í Borgar-
firði og raunar mun víðar," sagði Run-
ólfur Ágústsson að lokum. - sbs
Solargangur o
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 20.55 20.40
Sólarupprás á morgun 06.03 05.48
Síödegisflóó 22.17 13.56
Árdegisflóð á morgun 10.00 02.50
Veðrið í kvöl
Bjartviðri
Norðlæg átt, 10 til 15 metrar á sek-
úndu , en hægari sunnan- og aust-
antil fram eftir degi. Bjart með köfl-
um suðvestan- og sunnanlands, en
annars rigning eða súld meö köfl-
um. Léttir heldur til austanlands
þegar líður á daginn.
Skýjað með köflum
Fremur hæg breytileg átt og bjart-
viðri vestanlands á morgun, en skýj-
að meö köflum og dálítil súld öðru
hverju austantil.
Veðrið næstu daga
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
w
Hiti 7° H'iti 7° Hiti 5°
til 16« til 16° til 14°
Vindur 10-15 "’A Vlndun 13-23«"/* t Vindun 8-14 nV* 7»
Rigning vestan- lands, en hæg- ari og þurrt aö kalla austantll fyrri part dags. Rlgning á sunnudag, vlöa 18 tll 23 metrar á sekúndu vestantil, en annars hægari. Skuraveöur og kófnar í veöri
m/s
Miklar kvartanir út af nýju sameiginlegu símakerfi Landspítalans:
Það er ekkert að kerfinu sjálfu
- segja fulltrúar spítalans en búist við vandamálum fram á vetur
Landspítali - háskólasjúkrahús
Margvíslegir hnökrar hafa komiö upp viö þaö aö skipta um símakerfi sem nú
er sameiginlegt fyrir allar deildir spítalans.
I sumar hefur verið unnið að því að
taka upp nýtt og samræmt símakerfi
hjá Landspítala - háskólasjúkrahúsi.
Miklar kvartanir hafa borist vegna
vandamála sem upp hafa komið í
sumar, bæði vegna samskipta sjúk-
linga, aðstandenda og starfsmanna
um nýja kerfið. Þá datt símakerfið
hreinlega út 2. ágúst sl. og var óvirkt
í um fiórar klukkustundir með til-
heyrandi truflunum á tölvukerfi spít-
alans.
Ingólfur Þórisson, framkvæmdar-
stjóri skrifstofu, tækni og eigna hjá
spítalanum, segir að ástæðan fyrir bil-
un í byrjun ágúst hafi ekkert með
nýja símakerfið að gera. Þar hafi ver-
iö um bilun í gagnaflutningsneti spít-
alans að ræða. Nýja símakerfið sem
slikt virki hins vegar vel og mikil
ánægja sé með það.
Samskiptavandræði
Skiptiborð sjúkrahússins er nú á
einum stað og þar er svarað í nýja að-
alnúmerinu 543-1000 fyrir allar deildir
í öllum húsum spítalans. Á þá að gilda
einu hvort það er í Fossvogi, á Hring-
braut, Landakoti, Kleppi eða annars
staðar. Síðan framkvæmdir hófust við
uppsetningu nýja kerfisins hefur fólk
hins vegar lent í margvíslegum vand-
ræðum. Dæmi eru þó um að leita hafi
þurft eftir upplýsingum um sjúklinga
í gegnum lögregluna í Reykjavík
vegna vandræða í samskiptum innan
stofnunar. Þá munu starfsmenn oft á
tíðum hafa þurft að treysta á notkun
farsíma sem þó er bannað að nota inn-
an veggja spítalans.
Jón Baldvin Halldórsson upplýs-
ingafulltrúi segist ekki telja að neitt
sé að kerfinu sem slíku sem ættað er
frá bandaríska framleiðandanum
Cisco, en skiptiborðið er sænskt að
uppruna. Hann segir þó mjög flókið
að koma símakerfum spítalanna sam-
an í eitt og menn hafi aldrei gert ráð
fyrir að það gengi hnökralaust fyrir
sig.
Einhver vandamál ftam á vetur
„Ég hef heyrt að það hafi orðið ein-
hver vandræði, en það að skipta um
stærsta símakerfi landsins með um
5000 símum er aðeins meira en að
segja það og gríðarlega flókið. Ég held
að það hafi ekki nokkur lifandi maður
búist við að þetta myndi gerast þegj-
andi og hljóðalaust. Mér kæmi ekki á
óvart að einhver vandamál verði í
kerfinu langt fram á vetur," segir Jón
Baldvin Halldórsson.
Símakerfi þetta byggir á IP-tölvu-
tækni og Verslunarráð íslands gerði
athugasemdir til Ríkiskaupa, fyrir
hönd tilboðsgjafa í fyrra, um að slíkt
kerfi væri tekið upp. Bent var á ýmsa
tæknilega vankanta við rekstur tölvu-
símakerfa í spítalaumhverfi.
Ingólfur Þórisson segir góða
reynslu af notkun IP-símakerfa víða
um lönd. Lína.Net hafi verið með
ódýrasta tilboðiö af þessum toga og
samt það fullkomnasta. Landspítalinn
kaupi ekki símakerfið, heldur borgi
fyrir notkun og rekstur þess um 26
milljónir króna á ári. Önnur tilboð
hafi verið frá þessu verði og upp í um
70 milljónir króna. Þar hafi ýmist ver-
ið um að ræða gamaldags kerfi,
blöndu af því og kerfum með IP-tækni
og síðan hrein IP-kerfi.
Bilanir á kostnað Línu.Nets
Kostnaður vegna hugsanlegra bil-
ana lendi alfarið á rekstraraðila kerf-
isins. Þá segir Ingólfur að ef kerfið
fari niður fyrir 99,997% öryggi í
rekstri, þá greiði Lína.Net sektir
vegna tafa sem kunna að verða.
Vegna þessa sé í raun um að ræða
þrjár símstöðvar sem taki hver við af
annarri ef eitthvað bilar.
„Þá spörum við okkur milljónatugi
á því að þurfa ekki að setja upp sér-
stakt stimpilklukkukerfi við hlið
simakerfisins. Við erum að fá til okk-
ar í heimsókn í september tæknimenn
frá norskum spítölum. Þeir vilja
kynna sér þetta þar sem mjög mikill
áhugi er hjá þeim að taka þar upp
sams konar kerfi," segir Ingólfur Þór-
isson. -HKr.
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvlöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
Veðriö kl. 6
AKUREYRI rigning 9
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK rigning 8
EGILSSTAÐIR þokumóöa 8
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 9
KEFLAVÍK léttskýjað 9
RAUFARHÖFN rigning 8
REYKJAVÍK þoka 8
STÓRHÖFDI þoka 9
BERGEN rigning 16
HELSINKI léttskýjaö 16
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 18
ÓSLÓ þokumóöa 14
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN rigning 12
ÞRÁNDHEIMUR úrkoma í gr. 12
ALGARVE þokumóöa 19
AMSTERDAM þoka 15
BARCELONA léttskýjaö 18
BERLÍN þokumóða 19
CHICAGO léttskýjaö 19
DUBLIN súld 17
HALIFAX léttskýjaö 14
FRANKFURT þokumóöa 18
HAMBORG skýjaö 16
JAN MAYEN skýjað 6
LONDON mistur 15
LÚXEMBORG þokumóöa 17
MALLORCA léttskýjaö 16
MONTREAL 14
NARSSARSSUAQ alskýjaö 6
NEW YORK rigning 19
ORLANDO skýjaö 24
PARÍS þokmumóöa 17
VÍN skýjað 17
WASHINGTON rigning 14
WINNIPEG heiöskírt 16
imnMiujmi.iHii,',u:mi.iii:hMiiimi;ri