Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002
DV
Fréttir
Sameining Brúarskála og Staðarskála hefur verið rædd
Halda ársfund
á íslandi
Merkjasöludagar
Hjálpræðishers-
ins hafnir
Hinir árlegu merkjasöludagar
Hjálpræðishersins á íslandi verða
að þessu sinni frá fimmtudeginum
29. ágúst til laugardagsins 31. ágúst.
„Merkjasala Hjálpræðishersins er
þýöingarmikil fjáröflunarleið fyrir
starf hans hér á landi. Tekjur af
merkjasölunni eru notaöar til að
fjármagna barna- og unglingastarf
sem nú er að hefjast að afloknu
sumarfríi,“ segir Knud Gamst,
deildarstjóri Hjálpræðishersins.
Merkið verður selt á götum
Reykjavíkur og Akureyrar og
einnig verður víða selt í húsum.
Verðið er hið sama og undanfarin
ár, kr. 200. „Það er okkar von að
sem flestir kaupi sér merki og
styrki þannig félags- og hjálparstarf
Hjálpræðishersins," segir Knud. -ss
Hörgárbyggð:
Helga Arnheiður
sveitarstjóri
Nýr sveitarstjóri hefur verið ráð-
inn í Hörgárbyggö. Helga Amheið-
ur Erlingsdóttir, í Landamótaseli í
Þingeyjarsveit, varð fyrir valinu en
hún er fyrrum oddviti Ljósavatns-
hrepps til margra ára og núverandi
varaþingmaður Vinstri grænna.
Ríflega 20 manns sóttu um og sagði
Helgi Steinsson, oddviti Hörgárbyggð-
ar, í samtali við DV í morgun að fjöldi
umsækjenda hefði farið fram úr björt-
ustu vonum en endurspeglaði þann
áhuga sem menn sýndu sveitarstjóra-
störfum þessa dagana. Helgi segir að
einhugur hafi ríkt um ráðningu Helgu
Arnheiðar og mikil ánægja sé með
valið. „Hún hefur mikla reynslu af
bókhaldi og öðru því sem við vorum
að sækjast eftir.“
Hörgárbyggð er nýlegt sveitarfélag
sem varð til um áramótin 2000-2001
við sameiningu Glæsibæjarhrepps,
Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps. Ibú-
ar eru tæplega 400 talsins. -BÞ
Hundrað „nýlr“ bætast við.
Séð yfir bílasafniö á Garösstööum viö ísafjaröardjúp. Nokkuö afbílum ergeymt inni.
Garðsstaðir við ísafjarðardjúp:
Hundrað bílar bætast við á túninu
Fyrir ári birtist viðtal í DV við
Þorbjörn Steingrimsson á Garð-
sstöðum í Ögurvík við Ísaíjarðar-
djúp og mynd af um 180 bílum sem
hann á og er með á túninu heima
hjá sér. Þessi grein í DV vakti at-
hygli margra sem síðan hafa gert
sér ferð til Þorbjamar til að skoða
bílana sem eru í misjöfnu ástandi
en er skipulega uppraðað á túninu.
Þorbjörn hefur ekki slegið slöku við
að safha því um eitt hundrað bílar
hafa bæst við á árinu. Auk bílanna
á hann mikið af varahlutum í alls
konar bíla og segir að margir leiti
til sín eftir varahlutmn. -JI
Grænlenska sveitarfélagasam-
bandið heldur ársfund sinn á ís-
landi dagana 3. til 6. september nk.
Fundurinn verður haldinn á Hótel
Örk í Hveragerði. Jafnframt hefur
Grænlandsnefnd Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sömu daga
skipulagt ráðstefhu um sveitarfélög-
in og atvinnulífið með þátttöku inn-
lendra og erlendra fyrirlesara.
Einnig gefst grænlensku þátttak-
endunum tækifæri til að skoða all-
mörg fyrirtæki og að ræða við full-
trúa sveitarfélaga um hlutverk
þeirra og reynslu af atvinnumálum.
Á fundinum veröa fulltrúar firmnt-
án af átján sveitarfélögunum í
Grænlandi. -GG
Kaupfélag Hrútfirð-
inga hættir rekstri
Hjörleifur
Jakobsson
Oliufélagið hf. tekur þessa dagana
við rekstri veitingaskálans á Brú i
Hrútafiröi af Kaupfélagi Hrútfirð-
inga vegna ákaf-
lega bágrar stöðu
kaupfélagsins
sem skulda mun
um 600 milljónir
króna. Sagðar
eru fyrirhugaðar
fleiri breytingar í
kjölfarið, s.s. að
ESSO leggi Brú-
arskála og gömlu
símstöðina á Brú
inn i Staðarskála og sameini þannig
veitingaskálana tvo í eitt félag. Við
Staðarskála er selt bensín frá Skelj-
ungi en ef af sameiningu verður
mun ESSO taka þar við. Bent hefur
verið á að þá muni Skeljungur horfa
til þess að opna nýja greiðasölu á
Gauksmýri. Kristinn Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Staðarskála,
neitar þessu, segir að þetta hafi ekki
komið til umræðu.
Hjörleifur Jakobsson, forstjóri
Olíufélagsins, segir að félagið hafi
þegar tekið yfir rekstur Brúar-
skála með kaupum á skálanum af
Kaupfélagi Hrútfirðinga en sest
verði yfir það á næstu vikum
hvernig rekstrinum veröi hagað
og hvort breytingar verði á hon-
um.
- Er fyrirhuguö sameining á
Brúarskála og Staðarskála í kjöl-
farið?
„Við erum búnir að kaupa rekst-
urinn í tengslum við íjárhagslega
endurskipulagningu kaupfélagsins
Þaö er oft mikii umferö um Brú, ekki síst aö vetrarlagi þegar allra veöra er von.
og þurfum á næstu vikum að fara
yfir málið en ég sé ekki fyrir mér
nú að skálinn á Brú verði lagður
niður. Við erum ekki að kaupa
hann til að leggja hann niður. Brú-
arskáli stendur vel við þjóðveginn
og grípur bæði þá sem fara norður
og vestur. Það er ekki markmið
okkar að reka sjálfir skálann á Brú
til lengri tíma litið, við rekum ein-
göngu bensínstöðvar á höfuðborgar-
svæðinu, annars staðar erum við yf-
irleitt í samvinnu við heimamenn
og munum ræða við ýmsa aðila á
næstunni. Kaup okkar núna eru
fyrst og fremst til að tryggja okkar
hagsmuni, við vildum hafa okkar
hluti á hreinu.“ segir Hjörleifur
Jakobsson.
Ragnar Pálmason, oddviti Bæjar-
hrepps og bóndi á Kollsá II, segir að
sem félagsmaður sé honum full-
kunnugt um vandkvæði Kaupfélags
Hrútfirðinga sem standi mjög illa
en sveitarstjórn hafi ekki rætt um
þá stöðu sem kynni að koma upp ef
kaupfélagið hætti rekstri eða yrði
gjaldþrota, hvað þá ef rekstri Brúar-
skála yrði hætt. Það vinni margir í
sveitarfélaginu á Brú og það yröi
því alvarlegt áfall. Á Borðeyri rekur
Kaupfélag Hrútfirðinga dagvöru-
verslun og pakkhús með byggingar-
vörur og landbúnaðarvörur og sam-
starf er við aöila í Búðardal um
þjónustu þar. Ragnar telur allar lík-
ur á að breytingar verði á starfsemi
kaupfélagsins á næstunni en ef
verslun legðist af á svæðinu yrði
gríðarlega langt í næstu verslun fyr-
ir íbúana.
Guðbrandur Ólafsson á Sólheim-
um, varaformaður stjómar kaupfé-
lagsins, vildi ekkert tjá sig um mál-
ið. Karl Sigurgeirsson á Hvamms-
tanga, sem sér um daglegan rekstur
kaupfélagsins, segir að verið sé að
leita að samstarfsaðilum að rekstr-
inum.
„Kaupfélag Hrútfirðinga er að
selja reksturinn á Borðeyri og Brú-
arskála auk gistihússins á Brú þar
sem áður var símstöð. Olíufélagið
yfirtekur reksturinn á Brú en Kaup-
félag Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga reksturinn á Borð-
eyri. Síðan mun kaupfélagið vinna
úr sínum málum í framhaldi af því
en ljóst er að það hættir rekstri en
verður vonandi eignarhaldsfélag
um ákveðnar eignir. Það er ekki
stefnt i gjaldþrot en félagið er lítið í
litlu samfélagi og við ráðum ekki
við þetta umhverfi.
Þessi endurskipulagning hefur
staðið til í nokkur ár, fyrst með því
að selja hluti félagsins í sláturhúsi
og mjólkurstöð," segir Karl Sigur-
geirsson. -GG
Ny merki
Til að panta skjámerki sendir þú skeytið: fokus logo
númer. T.d.: fokus logo 1508, til að velja Police
merkið, og sendir á þitt þjóustunúmer. 99 kr. stk.
DOWNLOADING- UlhUS fllN'T NEED NO FUCKINC LOGO Ííiiiíái:iíliiilll
1301 1307 1314
rrWINNIE \ POOM!! 1302 OET UR DiFITY HANDS OFF MY PUONE!!!! 1310 S^Playenl 1501
THI55I0EUP
1303 1311 1507
'ftí CjfOT( HltlpEWEK
1304 1316 1508
lcpgiRL&^ SCHODL SUCHS UHMman
1305 1317 1509
Stjörnuspá
Fáðu stjörnuspána þína beint í farsímann
þinn. Ef þú ert t.d. fiskur sendirðu skeytið
is fiskur. Á hverjum degi munum við senda
þér stjörnuspá dagsins beint í farsímann
þinn. Til að stöðva þjónustuna sendu
is fiskur stoppa.
Að móttaka hvert skilaboð kostar 49 kr.
is Steingeit
is Hrutur
is Naut
is Tviburi
is Krabbi
is Ljon
is Meyja
is Vog
is Sporddreki
is Bogamadur
is Fiskur
is Vatnsberi
■ kr./stk.
Ljoskubrandari í simann þinn!
Sendu SMS: Smart Joke, og fáöu
sprenghlægilegan Ijóskubrandara fyrir
aöeins 99 kr. Þú færð aldrei sama
brandarann tvisvar.
Eíngöngu fVr,r
sin13
smant> srr>s
Sendu skeytin á 1415 Tal eða 1848 Síminn eða Gluggi>Nýtt Íslandssími (ekkimerki).
www.smartsms.com
J