Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2002, Page 29
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 2002 í 29 Ekki aðgerð hjá Keane Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United, segir að Roy Keane, fyrirliði liðsins, þurfi ekki á uppskurði að halda vegna hnémeiðsla sem hafa verið að hrjá hann allt frá lokum síð- asta tímabils. Engu að síður gætu meiðslin haft áhrif á getu leikmannsins þegar tekur að líða á tímabilið og leikimir fara að verða fleiri með minni hvíld á milli. Þetta eru gleðitíðindi fyrir United þar sem margir lykilmenn eiga við meiðsl að stríða, nú síðast Paul Scholes sem snéri á sér ökklann í sigurleiknum gegn Zalagerszeg í vikunni, og verður hann frá I tvær vikur hið minnsta. -vig Paö eru ekki allir | jafn velkomnir i | fööurlegan landsliösfaðm Atla Eövaldssonar I landsliösþjálfara ef marka má val hans á landsliöshópn- um i undanförnum tveimur vináttu- landsleikjum. DV-mynd E. Ól HM í körfuknattleik hefst í kvöld: Bandaríkjamenn sigurstranglegastir - þurfa þó að vara sig á liði Júgóslava Heimsmeistaramótiö I körfu- knattleik hefst í kvöld í Indiana- polis í Bandaríkjunum. Flestir búast við því aö Banda- ríkjamenn, sem eru í riðli meö Al- sir, Kína og Þýskalandi, fari með sigur af hólmi en þeir hafa harma að hefna eftir að hafa aðeins náð þriðja sætinu í Aþenu í Grikk- landi fyrir tveimur árum. Þeir stilla upp sterku liði þar sem leik- menn eins og Elton Brand hjá Los Angeles Clippers, Reggie Miller hjá Indiana Pacers og Michael Finley hjá Dallas Mavericks leika, og ætla sér að sjálfsögðu sigur. Þeir skulu þó vara sig á Júgó- slövum sem hafa titil að verja. Júgóslavar, sem eru í riðli með Angóla, Spáni og Kanada, eiga flmm leikmenn í NBA-deiIdinni, miðherjann Vlade Divac og fram- herjann frábæra Predrag Stoja- kovic, sem leika báðir með Sacra- mento Kings, miðherjann Predrag Drobnjak og framherjann Vlad Radmanovic sem leika báðir með Seattle Supersonics og bakvörðinn Marko Jaric sem leikur með Los Angeles Clippers. Meðal annarra leikmanna í NBA-deildinni sem verða í sviðs- ljósinu í mótinu eru Þjóðverjinn magnaði Dirk Nowitzki, sem leik- ur með Dallas Mavericks, hinn risavaxni Kínverji Yao Ming, sem valinn var fyrstur af Houston Rockets í nýliðavalinu í sumar, Spánverjinn Pau Gasol, sem lék mjög vel á fyrsta tímabili sínu með Memphis Grizzlies í fyrra og Rússinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz. Það má því búast við spennandi móti. -ósk * Brenndar bryr - eiga ákveðnir leikmenn ekki afturkvæmt í landsliðið undir stjórn^Atla? Þvi er ekki að neita að það læðist að manni sá grunur að ákveðnir ís- lenskir knattspyrnumenn eigi ekki afturkvæmt í landsliðið undir stjóm Atla Eðvaldssonar miðað við lands- liðshópana sem Atli hefúr valið í tveimur síðustu leikjum. Atli hefur gengið framhjá leik- mönnum eins og Tryggva Guðmunds- syni, Þórði Guðjónssyni og Amari Grétarssyni að ógleymdum Guðna Bergssyni og svo virðist sem þessir menn, sem þó allir standa sig með sóma í sínum félagsliðum, séu ekki hátt skrifaðir hjá landsliðsþjálfaran- um. Umræðan hefur verið mikil undan- farið ár, sérstaklega um Guðna Bergs- son og síðan Tryggva Guðmundsson og Þórð Guðjónsson og henni hefúr eiginlega aldrei linnt. Sá sem á stærstu sökina á því er landsliðsþjálf- arinn sjálfur sem hefur aldrei haft kjark til að segja sína skoðun heldur farið eins og köttur í kringum heitan graut og gefið loðin svör sem enginn hefur trúað. Atli gæti verið búinn að loka þess- ari umræðu í eitt skipti fyrir öll með því að vera hreinskilinn. Sannleikurinn sagna bestur Hver er ástæða þess að hann velur ekki Tryggva Guðmundsson, marka- hæsta leikmanninn i norsku úrvals- deildinni, í tvo vináttulandsleiki sem eiga að vera undirbúningur fyrir alvöruleiki haustsins? Er það af því að það er svo mikið álag á Tryggva og hann vill hvíla hann? Er það af því að hann veit hvað Tryggvi getur og því þarf hann ekki að spila neina lands- leiki? Er það af því að honum fmnst Tryggvi ekki vera nógu góður til að spila með landsliðinu? Eða er það vegna þess að Tryggvi er fljótfær og á það til að missa út úr sér ummæli í blöðum sem hefðu sennilega betur verið ósögð? Atli gefur þá skýringu að hann þurfi ekki að skoða Tryggva. Trúir þessu einhver? Atli þarf að segja það sem honum býr í brjósti og þegar hann gerir það mun hann njóta meiri virðingar jafnvel þótt menn séu ekki sammála honum. Annað mál er Þórður Guð- jónsson. Þórður var lykilmaður í landsliði föður síns Guðjóns en eftir að Atli Eð- valdsson tók við fjaraði fljótt og örugglega undan lands- liðsferli Þórðar. Það var reyndar í takt við erflðleika hans með félagsliðum sínum en það hlýtur að vera með ólíkindum að leik- maður, sem er að spila frábærlega í nýrri stöðu hjá efsta liðinu í þýsku 1. deildinni, skuli ekki vera inni í mynd- inni hjá þjálfara íslenska landsliðsins. Það að segja að hann sé að koma sér fyrir og ná áttum eftir tveggja ára bekkjarsetu á Spáni og í Englandi og því eigi að gefa honum frið til koma sér í gang er bamalegt og með ólík- indum léleg afsökun. Þórður ætti að þola þriggja daga ferðalag á milli Þýskalands og íslands án þess að líf hans raskaðist mikið. Það hlýtur að búa meira að baki þessari ákvörðun Atla að velja hann ekki í þessa tvo vináttulandsleiki þar sem það hefði verið kjörið að skoða leikmann, sem Atli þekkir ekki í þeirri nýju stöðu sem hann er að spila. Telur Atli landsliðið betra statt án Þórðar en með hann innanborðs? Er Þórður ekki nægilega góður leikmaður í aug- um Atla eða er hann lélegur karakter eftir að hann lét í ljós vonbrigði sín með lítinn spilatíma hjá landsliðinu í fjölmiðlum? 1 dag höfum við ekki pláss fyrir markahæsta leikmanninn í Noregi, fyrirliða liðs í ensku úrvalsdeildinni og varnartengilið, sem jafnframt er einn besti leikmaðurinn í efsta liðinu í þýsku 1. deildinni, í landsliðinu okk- ar. Ég fagna því og segi: Rosalega hlýtur landsliðið að vera gott. -ósk HMlMITiTn Ekkert verður af fyrirhuguðum kaupum Newcastle á ástralska væng- manninum hjá Feyenoord, Brett Em- erton. Newcastle buðu átta milljónir punda en Feyenoord vildu fá níu milljónir og eru forráðamenn New- castle ekki reiðubúnir að reiða fram svo háa fjárhæð. Finnski landsliósframherjinn hjá Liverpool, Jari Litmanen, mun ekki ganga til liðs við Galatatasary, að sögn umboðsmanns leikmannsins. Litmanen, sem hefur aðeins fengið örfá tækifæri hjá Liverpool síðan hann gekk til liðs við félagið, ætlar að halda áfram aö berjast fyrir sæti sinu í liðinu. David Thompson, sem er til mála hjá enska 1. deildar félaginu Coventry, er á leiö til Blackburn. Thompson á aðeins eftir að skrifa undir samning en kaupverðiö er rúmar 300 milljónir króna. Fyrrverandi leikmaður Tottenham, Chris Armstrong, mun að öllum lík- indum ganga til liðs við Guóna Bergsson og félaga í Bolton áður en frestur til félagaskipta í Englandi rennur út þann 31. ágúst. „Hann er fœddur markaskorari og verður án efa mikilvægur hluti af hópnum um leið og hann hefur kom- ið sér í form. Það var nauðsynlegt að styrkja hópinn fyrir baráttuna sem fram undan er,“ segir Sam Allar- dyce, framkvæmdastjóri Bolton, um Armstrong sem hefur þegar staðist læknisskoðun hjá félaginu og á að- eins eftir aö semja um kaup og kjör við liðið. Frakkinn Oliver Panis mun keyra fyrir lið Toyota næstu tvö keppnis- tímabil í formúlu 1 kappakstrinum. Mika Salo og Allen McNish, sem voru ökumenn liðsins í ár, verða hvorugur með á næsta ári en þeim hefm- ekki gengiö vel í ár. Talsmenn Toyota hafa ekki gefið upp hver hinn ökumaður liðsins verði en líklegast er talið að hinn brasilíski Cristiano da Matta, fremsti kart-ökumaðurinn í heimin- um í dag, verði fyrir valinu hjá jap- anska keppnisliöinu sem ætlar sér stóra hluti á komandi timabili. -vig Hermann leggur skóna á hilluna - hættur vegna þrálátra bakmeiðsla eftir farsælan feril Hermann Hauksson, sem hefur ver- ið einn af bestu körfúknattleiksmönn- um landsins síöustu ár, hefúr lagt skóna á hilluna og er orðinn aðstoðar- þjálfari hjá meistaraflokki KR. Her- mann á glæsilegan feril að baki en hann lék lengst af með KR, fyrir utan tvö ár með Njarðvík og eitt sem at- vinnumaöur í Belgíu. Hermann var valinn besti leikmaður íslandsmóts- ins 1996 og á fjöldann allan af lands- leikjum að baki. Hermann hefur átt við bakmeiðsli í mörg ár en í október sl. kom í ljós að hann var með ónýtan liðþófa á milli hryggjarliða og því lék Her- mann aðeins einn leik á síð- asta tímabili. Hann segist sjáifur vera búinn að sætta sig við það að vera búinn að leika sinn síðasta leik. „Ég get ekkert beitt mér lengur í körfunni þannig að ég verð að hætta. Maður hef- ur lítið að gera í efstu deild þegar maður getur ekki hoppað lengur eða reynt eitthvað á sig. Læknamir vilja ekki skera þar sem liöþófmn er svo nálægt mænunni og mikið af taugum í kringum hann. Hermann Hauksson. Ég var búinn að glíma við bakmeiðsli í mörg ár eða síðan 1994 en alltaf geta ver- ið i boltanum með því að vera í stanslausri sjúkra- þjálfun en núna verð ég ein- faldlega að hætta. Ég var bú- inn að fara til margra lækna og allir voru með mismun- andi skýringar á þessum meiðslum minum þannig að ég var aldrei viss hvað þetta væri ná- kvæmlega. Ég er fínn dags daglega en karfan er ekki lengur á dagskrá. Ég kannski held mér við með bumbunni hjá KR bara svona til að leika mér. Ég er alveg búinn að sætta mig við þetta núna en gerði það ekki í fyrstu. Ég er búinn að eiga ágætis feril þar sem ég hef spilað með góðum liöum og prófað ýmislegt." En hvernig líst honum á aö vera að- stoöarþjálfari í meistaraflokki? „Þaö er gaman að það skuli hafa verið leitað til manns. Ég er reyndar ekki að stefna á neinn þjálfaraferil heldur bara vera enn viðloðinn liðið í stað þess að kúpla mig alveg út úr þessu,“ sagði Hermann að lokum. -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.