Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
Fréttir DV
Halldór vill forsætisráðuneytið:
Eðlilegur metnaður
- segir Árni Mathiesen
„Það hvernig Halldór Ásgrímsson
myndi spjara sig sem forsætisráð-
herra ræðst auðvitað alveg af því
hvaða flokkar yrðu með honum í
ríkisstjórn," sagði Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra í
samtali við DV. Eins og fram kom í
DV um helgina lýsti Halldór því yfir
á fundi með innsta kjarna Fram-
sóknarflokksins á Selfossi sl. föstu-
dag að framsóknarmönnum væri
mikið í mun að leiða næstu ríkis-
stjóm sem hann myndi þá leiða.
Kjósendur ættu þó lokaorðið og
málefnin réðu
við stjórnar-
myndun.
Árni M.
Mathiesen segir
að draumsýn um
forsætisráðherra-
stól hljóti hjá
Halldóri Ás-
grímssyni ... að Halidór Ásgríms-
vera ofur eðlileg- son.
ur metnaður hjá
stjórnmálamanni og sanngjörn
krafa stjórnmálaflokks að vilja leiða
ríkisstjóm," seg-
ir Árni. Hann tel-
ur þetta á engan
hátt loka fyrir
áframhaldandi
stjórnarsamstarf
Framsóknar-
flokks og Sjálf-
stæðisflokks, sem
nú hefur staðið í
tvö kjörtímabil.
Frekar megi ætla
að yfirlýsing Halldórs nú sé í ein-
hverju samhengi við vangaveltur
um hugsanlega innkomu Ingibjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur á sviö
landsmálanna. Vilji Halldór þá i
þeirri umræðu hafa áður merkt sér
stól forsætisráðherra.
„Þó vil ég ævinlega forðast allar
samsæriskenningar. Þær eru yfir-
leitt miklu fleiri en samsærin sjálf,“
segir Árni, sem kveðst telja litlar
líkur á að vinstri stjóm verði mynd-
uð eftir næstu kosningar. Skoðana-
kannanir bendi ekki til að slíkt sé
gerlegt.
-sbs
Árni M.
Mathiesen.
Nóg af
kartöflum
„Meðan tíðin er svona er bjart yflr
okkur,“ sagði Sigurbjartur Pálsson,
kartöflubóndi í Skarði í Þykkvabæ, við
DV í gær en þar, eins og annars staðar
á landinu, er kartöfluupptaka komin á
fullt. Sigurbjartur telur uppskeruhorf-
ur bærilegar þótt sprettan sé síðri en í
fyrra enda hafi það ár verið með ein-
dæmum gott. „Það stefnir í meðalár,“
sagði hann og bætti við að garðamir
hefðu verið blautir og erfiðir yfirferðar
í síðustu viku en eftir þurrviðrið um
helgina horfði allt til betri vegar.
„Ég býst við að nóg verði til af kart-
öflum," sagði Ægir Jóhannsson á
Grenivík og var ánægður með að
Norðurland hefði sloppið við nætur-
frost. í Homafirði sagði Hjalti Egilsson
á Seljavöllum: „Hér er uppskeran með
besta móti, stefnir í toppár."
Sigurbjartur og Hjalti vom sam-
mála um að lenging skólaársins væri
fremur bagaleg fyrir kartöflubændur
því þar misstu þeir dýrmætan vinnu-
kraft inn í skólastofurnar. -Gun.
Valt undir Ingólfsfjalli
Bíll fór út af veginum og valt ofan í skurö á þjóöveginum ofan viö Selfoss undir Ingólfsfjalli í gærdag. Tveir farþegar
voru í bílnum. Báöir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi. Læknir á slysadeildinni sagöi í gærkvöld aö meiösli þeirra
sem lentu í slysinu væru minni háttar, annar væri útskrifaöur og hinn væri í skoöun en líklega yröi hann útskrifaöur
aö henni lokinni. Aö sögn lögreglunnar á Selfossi í gær var ekki búiö aö komast aö því hvaö olli slysinu.
Yfirlýsing Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs Group ehf.:
Segir Jón Sullenberger
hafa blekkt lögregluna
- og hafa haft í hótunum um að skaða sig og fyrirtækið
„Allar greiðslur Baugs Group hf. til
Nordica Inc. vom samkvæmt reikn-
ingum útgefnum af Nordica Inc. sem
er alfarið í eigu og stjómað af Jóni
Gerald Sullenberger. Þessar greiðslur,
sem samtals hljóðuðu upp á 491.000
bandaríkjadali og náðu yfir tveggja og
hálfs árs tímabil, runnu til uppbygg-
ingar á starfsemi Nordica Inc. Enda
var það mat forsvarsmanna Baugs
Group hf. á þeim tíma að samstarf fyr-
irtækjanna yrði til hagsbóta fyrir
Baug Group hf. Þessum viðskiptum
var slitið um leið og í ljós kom að
frammistaða Nordica Inc. stóð ekki
undir væntingum. Þar sem skjótt var
bmgðist við varð fjárhagslegur skaði
Baugs Group hf. vegna þessara við-
skipta óverulegur," segir Jón Ásgeir
Jóhannesson, stjómarformaður
Baugs Group, i yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í gærkvöld vegna að-
gerða embættis Ríkislögreglustjóra
gagnvart fyrirtækinu.
Jón Ásgeir segir jafnframt að Baug-
ur Group hf. tengist á engan hátt
skemmtibátnum Thee Viking. Hann
sé í eigu félags Jóns Geralds, New
Viking. Fjárfestingarfélagið Gaumur
lánaði Jóni Gerald 38 milljónir króna
vegna kaupa á þessum bát, én hefúr
enn ekki fengið afsal fyrir hlut í New
Viking eins og ráðgert var, né fengið
fullnægjandi tryggingar fyrir láninu
þótt eftir þessu hafl ítrekað verið leit-
að. Skuld Jóns Gerald við Gaum er
skráð í bókhaldi félagsins og hafa end-
urskoðendur þess staðfest það við
embætti Ríkislögreglustjóra, segir
Jón Ásgeir.
í yflrlýsingunni segir að Jón Ger-
ald hafl tjáð lögregluyfirvöldum að
Baugur Group hf. hafi gjaldfært
reikning upp á $ 589.000 í bókhaldi fé-
lagsins til hagsbóta fyrir yfirstjórn-
endur þess. Hið rétta sé hins vegar að
umræddur reikningur sé kreditreikn-
ingur og því færður til tekna hjá fyr-
irtækinu. Þetta hafi lögregluyfirvöld
staðfest við málflutning hjá Héraðs-
dómi Reykjavíkur.
Haft í hótunum
„Einsýnt er að Jón Gerald Sullen-
berger hefur vísvitandi blekkt lög-
regluyfirvöld í því skyni að hefja op-
inbera rannsókn vegna málsins," seg-
ir í yfirlýsingunni.
„Eins og sjá má af ofansögðu urðu
viðskipti félaga, sem ég er í forsvari
fýrir, við Jón Gerald Sullenberger
ekki með þeim hætti sem að var
stefnt. Traust er undirstaða í ölium
viðskiptum og ég gat ekki lengur
treyst Jóni Gerald. Viðbrögð hans við
því að Baugur Group hf. hætti við-
skiptum við Nordica Inc. hefur styrkt
þetta mat mitt enn frekar. Jón Gerald
hefur í samtölum við bæði ættingja
mína og starfsfólk þeirra félaga, sem
ég veiti forstöðu, haft í hótunum um
að skaða bæði þessi félög og mig per-
sónulega. Hann hefur sömuleiðis
reynt að koma sögusögnum um við-
skipti okkar á framfæri við fjölmiðla
á íslandi en ekki haft erindi sem erf-
iði.
Baugur Group hf„ stjómendur
þess, lögmenn og endurskoðendur,
hefðu með einföldum hætti getað
hrakið ávirðingar Jóns Gerald ef emb-
ætti Ríkislögreglustjóra heföi viljað
kanna sannleiksgildi þeirra. í stað
þess að leita skýringa ruddist flokkur
lögreglumanna í höfúðstöðvar Baugs
Group hf„ lagði hald á bókhaldsgögn
og færði stjómendur fyrirtækisins til
yfirheyrslu."
Hagsmunum ógnað
Loks segir i yfirlýsingunni: „í ljósi
þess að Baugur er enn eitt islenska
fyrirtækið á síðustu tólf mánuðum
sem verður fyrir sambærilegri aðför
ríkisvaldsins ættum við hjá Baugi
Group hf. ef til vill að láta þetta yfir
okkur ganga þegjandi og hijóðalaust.
En einmitt sökum þess hversu algengt
þetta er orðið er ástæða til að mót-
mæla. Hjá Baugi Group hf. starfa um
4.000 manns. Félagið veltir um 50
milljörðum króna. Um tvö þúsund ís-
lendingar eiga hlut í félaginu. Baugur
Group hf. er mikilvægur þáttur 1 ís-
lensku samfélagi. Það er því óásættan-
legt að embætti Ríkislögreglustjóra,
sem starfar í umboði okkar allra,
skuli í skjóli rakalausra fullyrðinga
Jóns Gerald Sullenberger setja í
hættu hagsmuni starfsmanna, hlut-
hafa og viðskiptavina Baugs Group
hf.,“ segir Jón Ásgeir. -Ótt
Gengur á bak orða sinna
Halldór Ásgríms-
son, formaður Fram-
sóknarflokksins,
sagði í fréttum Stöðv-
ar 2 að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borg-
arstjóri væri að
ganga á bak orða
sinna ef hún gæfi
kost á sér í forystusæti fyrir Samfylk-
inguna í alþingiskosningum næsta vor.
Fyrstu með MBA
Háskólinn í Reykjavik hefur útskrif-
að fyrstu nemendur sína með alþjóð-
legt MBA-próf (GEM), en 31 nemandi
HR tók þátt í útskriftarathöfn í EGA-
DE-viðskiptaháskólanum í Monterrey
í Mexíkó. Mbl. sagði frá.
Náttúrufræðihús
Brátt sér fyrir endann á fram-
kvæmdum við Náttúrufræðihúsið í
Vatnsmýrinni í Reykjavík, en fyrsta
skóflustungan var tekin sumarið 1996.
Stefht er að því að húsið verði opnað
haustið 2003. Mbl. sagði frá.
Hlaut vísindverðlaun
Bergljót Halldórsdóttir meinatæknir
hlaut vísindaverðlaun Alþjóðasamtaka
meinatækna á alþjóðamóti meina-
tækna sem haldið var í Orlando i
Bandaríkjunum. Mbl. sagði frá.
Vill 1. sætið
Magnús Stefánsson alþingismaður
gefúr kost á sér í fyrsta sæti á lista
Framsóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi í komandi alþingiskosningum.
Davíð hjá Berlusconi
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra átti á
föstudag fund með
Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra ítal-
íu, í Róm. Þá hélt
iiann til Sardiníu þar
sem hann dvelur í
einkaheimsókn hjá
ítalska forsætisráðherranum. Með því
er endurgoldin heimsókn Berlusconis
til Islands síðastliðið vor.
í dag heldur Davíð Oddsson til Róm-
ar á ný. Á morgun mun hann flytja er-
indi á hádegisverðarfundi íslensk-
ítalska verslunarráðsins.
Léleg veiði
Laxveiði í Rangánum á Suðurlandi
er ekki nema tæpur þriðjungur í sum-
ar af því sem var í fýrra.
Sala jókst
Heildarsala á krabbameinslyfjum
flórfaldaðist í krónum talið frá 1996 til
2001. Gert er ráð fýrir að kostnaður
hins opinbera hafi aukist í réttu hlut-
falli við aukna sölu.
Vika símenntunar
Menntamálaráðherra ýtti Viku sí-
menntunar úr vör á Hofsósi i Skaga-
firði í gær. Yfirskrift vikunnar er Sí-
menntun í atvinnulifinu og verður sér-
stök áhersla lögð á að vekja athygli
fólks á mikilvægi þess að afla sér þekk-
ingar allt lífið.
Hrifinn af kvótakerfi
Will Hogarth, aðstoðarfiskimála-
stjóri Bandaríkjanna, telur íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfið hafa reynst
vel og vill hann beita sér fýrir því að
sams konar kerfi verði tekið upp í
Bandaríkjunum.
-hlh
RÖGUM Á MDRGUN
Fáöu þér miða! síma 800 6611 eða á hhl.is
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings