Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Blaðsíða 4
Fréttir
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
DV
Þáttur Magnúsar Leópoldssonar í rannsókn Guðmundar- og Geirfinnsmálsins:
Rannsókn Láru V.
er langt komin
- ýmsir nýir hlutir komnir fram í dagsljósið
„Ég tel mig
vera langt
komna,“ sagði
Lára V. Júlíus-
dóttir, sem dóms-
málaráðherra
skipaði á síðasta
ári sem sérstak-
an saksóknara.
Henni var falið
að rannsaka með
hvaða hætti
Magnús Leópoldsson tengdist rann-
sókninni í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu og var í réttarstöðu
grunaðs manns þegar lögreglan
rannsakaði málið. Hann sat í
gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði.
Samkvæmt heimildum DV hefur
rannsóknin skýrt ýmislegt og leitt í
ljós hluti sem ekki hafa komið fram
í dagsljósið áður. Lára vildi hins
vegar ekkert tjá sig um rannsókn-
ina. Hún býst við að skila málinu
af sér í haust en hún fékk það í
hendur í júní á síðasta ári.
Ríkissaksóknari hafði áður hafn-
að kröfu lögmanns Magnúsar um
að taka mál hans upp sérstaklega.
Alþingi gerði tvisvar breytingu á
lögum um meðferð opinberra mála
áður en ráðherra notaði heimild í
lögum til að skipa Láru. Heimildin
kvaö á um að taka mætti mál sem
þetta upp þótt ætla megi að refs-
ingu verði ekki við komið. Einnig
var það ákvæði sett í lögin að sá
sem á hagsmuna að gæta - Magnús
í þessu tilviki - geti kært ákvörðun
ríkissaksóknara til dómsmálaráð-
herra hafi embættið hafnað beiðni
hans. Synjun ríkissaksóknara var
því kærð á fyrri hluta siðasta árs
og Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra skipaði Láru til að verða
sérstakur saksóknari. Hún er nú
komin með það á lokastig að rann-
saka hvers vegna Magnús blandað-
ist í málið og hvers vegna honum
var ekki sleppt fyrr úr gæsluvarð-
haldi en raun bar vitni.
Rétt er að geta þess að rannsókn-
in beinist ekki að refsiábyrgð
þeirra sem komu að rannsókn Guð-
mundar- og Geirfinnsmálsins.
-Ótt
Lára V.
Júlíusdóttir.
Biskup íslands:
Vígöi þrjú til
þjónustu
Við messu í Dómkirkjunni í gær-
dag vígði biskupinn yfir íslandi,
herra Karl Sigurbjörnsson, þrjá
guðfræðinga til þjónustu og fara
þeir til starfa sem prestar á næstu
vikum. Þetta eru þau sr. Helga Hel-
ena Sturlaugsdóttir sem verður
sóknarprestur næsta árið í Grund-
arfirði, sr. Fjölnir Ásbjömsson mun
til jafnlengdar að ári þjóna Sauöár-
krókssókn og Þorvaldur Víðisson
verður prestur í Vestmannaeyjum.
„Biskupinn sagði í ræðu dagsins
að við skyldum mæta viðfangsefn-
um okkar alls áhyggjulaus og vera
glöð i bragði. Það ætti lika að vera
auðvelt því við erum með fagnaðar-
erindið í farteskinu," sagði Þorvald-
ur Víöisson, verðandi Vestmanna-
eyjaprestur, í samtali við DV. Hann
sagði starfið leggjast vel í sig, en síð-
asta árið hefur hann verið æsku-
lýðsfulltrúi við Dómkirkjuna í
Reykjavík - og þvi ekki með öllu
ókunnugur störfum sem verkamað-
ur á vínakri drottins.
-sbs
DVWYND JOKULL
I Dómkirkjunni
Karl Sigurbjörnsson biskup í Dómkirkjunni ígær eftir vígsluathöfn. Honum á vinstri hönd er sr. Helga Helena Stur-
laugsdóttir en síöan þeir Fjölnir Ásbjörnsson og iengst til hægri Þorvaldur Víöisson.
Fullt út úr dyrum þegar íslensku sjávarútvegssýningunni lauk:
Skipstjóri Hólmaborg-
ar fiskimaður ársins
MYNDTXT: DVWYNDIR SJO
Flskimaður árslns
Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri Hóimaborgar, tekur viö verölaunum sínum
sem fiskimaöur ársins, en skip hans aflaöi 8.400 tonna á árinu. Honum á
vinstri hönd er Guöjón Einarsson, ritstjóri Fiskifrétta, sem afhenti verölaunin,
og hægra megin Gísli Marteinn Baldursson, sem var kynnir.
íslensku sjávarútvegssýningunni
2002 lauk á laugardaginn og var fuEt út
úr dyrum á sýningarsvæðinu þegar
henni lauk. Þátt tóku um 800 sýnendur
frá 30 þjóðlöndum. Góður rómur var
gerður að sýningunni.
Á fostudagskvöld voru íslensku
sjávarútvegsverðlaunin afhent en alls
var um 14 verðlaun að ræða í tveimur
flokkum. M.a. má nefha að hátæknifýr-
irtækið Marel hlaut verðlaunin fyrir
bestu nýju framleiðsluvöruna, Skelj-
ungur hlaut verðlaun fyrir besta sýn-
ingarbásinn, Færeyingar fyrir besta
hópsýningarbásinn en Danir fyrir
framúrskarandi starf að markaðsmál-
um. Samherji hlaut verðlaun sem
framúrskarandi útgerð og bar þar
hærri hlut gegn útgerðarfýrirtækjun-
um Gjögri og Vísi, en í öllum flokkum
komu fram þrjár tilnefningar. Útgerö-
arfélag Akureyringa hlaut verðlaun
sem framúrskarandi fiskvinnsla. Skag-
inn hf. á Akranesi hlaut verðlaun sem
framúrskarandi íslenskur framleið-
andi á sviði fiskvinnslubúnaðar. Skag-
inn hefur þróað nýja tegund af laus-
frysti sem er byggður á nýrri tækni
þar sem hefðbundnar aðferðir sem not-
Framúrskarandl fiskvinnslubúnaöur
Forsvarsmenn Skagans hf„ þeir Sig-
mar Guöni Sigurösson og Ingólfur
Árnason, tóku viö veröiaunum fyrir
framúrskarandi íslenska framleiöslu
fiskvinnslubúnaöar. Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Útfiutningsráös ís-
lands, lengst t.v., afhenti verölaunin.
aðar eru við frystingu í dag eru sam-
einaðar í einu tæki. Vakti sýningarbás
þeirra mikla athygli.
Þorsteinn Krisfjánsson, skipstjóri á
Hólmaborg frá Eskifirði, hlaut viður-
kenningu sem framúrskarandi fiski-
maöur en skip hans aflaði um 8.400
tonna upp úr sjó á 12 mánaða tímabili,
sem er hreint frábær árangur. -GG
Netumferð á
Cantat
Viðgerð hefur staðið yfir á Cantat
3-sæstrengnum sem nettengir ísland
við umheiminn. Loka þurfti fyrir
umferð á strengnum meðan á við-
gerð stóð en nú hefur netumferð
verið sett aftur á hann. Talsamband
Símans er enn í gegnum gervitungl.
Ekki er gert ráð fyrir að viögerð
ljúki endanlega fyrr en 11. septem-
ber nk. -HÞG
VG í Suðurkjördæmi:
Mótmælir Þjórs-
árvirkjunum
Öllum áform-
um um virkjanir
og vatnsmiðlun í
efsta hluta Þjórs-
ár og Þjórsárver-
um er harðlega
mótmælt i álykt-
un fundar kjör-
dæmisráðs
Vinstrihreyfing-
arinnar - græns
framboðs í Suður-
kjördæmi sem haldinn var um helg-
ina. Fundurinn var haldinn vestast í
hinu nýja víðfeðma kjördæmi, það er
í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Formaður flokksins, Steingrímur
J. Sigfússon, mætti þar til skrafs og
ráðagerða og meðal annars var farið
yfir áherslur í nýju kjördæmi í kom-
andi kosningum og hvemig best
verður að undirbúa kosningabarátt-
una. Valin var nefnd til að fjalla um
uppstillingu listans og henni falið að
heQa störf sem fyrst.
í virkjunarályktim fundar VG seg-
ir að óumdeilt sé að Norðlingaöldu-
veita muni valda verulegum óaftur-
kræfum spjöllum í Þjórsárverum.
„Fundurinn lýsir undrun á úrskurði
Skipulagsstofnunar og skorar á um-
hverfisráðherra og Alþingi að hafna
öllum áformum um frekari fram-
kvæmdir á svæðinu," segir í ályktim.
-sbs
Margir stútar í
Kópavogi
Óvenjumargir voru teknir fyrir
ölvun við akstur i Kópavogi um
helgina. Sjö ökumenn fengu sér neð-
an í því og tóku þá óskynsamlega
ákvörðun að keyra eftir drykkjuna.
Lögreglan tekur að meðaltali tvo til
þrjá um hverja helgi fyrir þessa iðju
þannig að þetta verður að teljast
mjög mikið. Þaö þarf ekki að taka
fram að viðurlög við ölvunarakstri
er svipting ökuleyfis og háar sektir.
-HÞG
Steingrímur J.
Sigfússon.
Sprenging í Járn-
blendinu
Mikil sprenging varð í Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga á laugardagskvöld. Engan
sakaði en einhverjar skemmdir
urðu. Náðu starfsmenn að slökkva
eld sem kviknaði við sprenginguna
áður en slökkvilið kom á staðinn.
Talið er að vatn hafi verið í keri
sem glóandi jámi var hellt í og við
það hafi myndast sprenging. Ekki
er taliö að mikið fjárhagslegt tjón
hljótist af og hefur vinnsla ekki
stöðvast vegna þessa. -HÞG
Tveir á slysadeild
Harður árekstur varð á homi
Miklubrautar og Grensásvegar í
fyrrinótt. Þar lentu saman tveir
fólksbílar og þurfti aö flytja tvo á
slysadeild úr öðrum bílnum. Liðan
þeirra er góð að sögn læknis á slysa-
deild. Áreksturinn var það mikill að
Orkuveitan þurfti að koma á stað-
inn til gera við götuljós sem
skemmdust er annar bíllinn lenti á
þeim. -HÞG