Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
DV
Fréttir
Ásta Möller þingmaður vill markvissari heilbrigðisþjónustu:
Sparnaður spurning
um skýrari vinnubrögð
- Nú liggur fyrir að rekstur
Landspítala - háskólasjúkrahúss
sé kominn 600 milljónir króna
fram úr áætlun og lyfjakostnaður
um 160 milljónir króna. Menn við-
urkenna að þetta sé kunnugleg
staða á þessum tíma árs en segja
að áætlanagerð sé erfið. Er það
trúverðug skýring?
„Já, að hluta til. Einnig eru þama
inni í dæminu ýmsir þættir. Til
dæmis hefur skurðaðgerðum verið
fjölgað til að minnka biðlista, aukið
álag er á fæðingardeild sjúkra-
hússins, meðal annars vegna lokana
fæðingardeilda sjúkrahúsa í ná-
grenni Reykjavíkur. Þá vitum við
líka að inn á bráðamóttöku kemur á
ári hverju á annan tug þúsunda tO-
vika sem heilsugæslan ætti frekar
að sinna. Mjög margir hringja á
sjúkrahúsið og leita þar ráða vegna
smárra og stórra mála. Það eru mál
sem mörg mætti afgreiða öðruvísi,
til dæmis með því að setja upp síma-
torg þar sem fólk gæti fengið ráð-
leggingar um hvernig það eigi að
bera sig að. Sparnaður í rekstri LSH
er því meðal annars spuming um
skýrari vinnubrögð og verkaskipt-
ingu innan heilbrigðiskerfisins,
þannig að LSH sinni ekki verkefn-
um sem eru betur komin á höndum
annarra, s.s. heilsugæslu, félags-
þjónustu eða öldrunarstofnana."
- Nú hefur öldrunarþjónustan
verið sérstaklega til innræðu und-
anfarið. Er hún vanræktur þáttur
í heilbrigðiskerílnu?
„Já og nei. Ég tel vera rangar
áherslur í öldrunarþjónustunni, of
mikil áhersla á stofnanir og of lítil á
heimaþjónustu og heimahjúkrun.
Það hlýtur til dæmis að vera um-
hugsunarefni að við erum með hlut-
fallslega flest stofnanarými fyrir
aldraða hér á landi miðað við önnur
vestræn ríki.“
Manneskjulegt og ódýrara
- Erum við ekki bara svona góð
við gamla fólkið og látum það í
ljós með steinsteypu?
„Erum við að gera vel við fólk
með því að setja það inn á stofnan-
ir? Eigum við ekki frekar að gera
fólki kleift að vera sem lengst heima
hjá sér? Það tel ég vera manneskju-
legra fyrirkomulag, sem auk þess er
ódýrara. í Danmörku er tO dæmis
mjög þróuð þjónusta i heimahjúkr-
un og viö eigum að hafa slikt sem
fyrirmynd. Hér er við lýði heObrigð-
isáætlun og samkvæmt henni eiga
75% fólks sem er áttrætt og eldra að
geta dvalist heima og stofnanir að
vera tO taks fyrir hina. Ef við setj-
um fjölda hjúkrunarrýma fyrir addr-
aða í dag i samhengi við þetta þá
erum við með 200 rýmum of mikiö.
Samt sem áður gera áætlanir ráð
fyrir að 400 tO 450 hjúkrunarrými
verði byggð tO viðbótar á næstu
árum. Ég efast reyndar ekki um að
þörfm er veruleg hér á höfuðborgar-
svæðinu en víðast úti um land er
þetta í ágætu jafnvægi. Samt sem
áður frnnst mér mikilvægt að stað-
an öU verði endurmetin og þeirri
spumingu velt upp hvað sé í raun
skynsamlegast að gera. Erum við
með réttar áherslur og vOja aldrað-
ir ekki aUra helst búa heima eins
lengi og hægt er og fá til þess nauð-
synlega aðstoð?"
- Nú hefúr það verið svona
Siguröur Bogi Sævarsson
blaöamaöur
sunnudagaumræða á íslandi að
við eigum að búa öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld, rjúfa ekki
kynslóðabilið, gera fólki kleift að
búa heima og svo framvegis. Þú
ert þar með að segja að við eigum
að ræða þetta í beinu samhengi
við hvað sé ódýrast í heilbrigðis-
kerfinu?
„Fyrst og fremst þarf þetta að
vera skUvirkt og skynsamlegt kerfi.
Við þurfum tO dæmis að staldra við
og spyrja okkur hvort það sé menn-
ing eða ómenning að beina öldruð-
um í svo ríkum mæli inn á stofnan-
ir. Er ekki meiri menningarbragur
að stuðla að því að þeir geti dvalist
heima mun lengur en nú er gert?
Almennt tel ég að vandinn í heU-
brigðiskerfmu sé spurning um
betra skipulag og stefnumótun."
Raunkostnaður
dregist saman
- Nú segir heilbrigðisráðherra
að menn hafi ef til viU verið helst
til of ákafir að sjá beinan ávmning
og spamað af sameiningu sjúkra-
húsanna. Ertu sammála því?
„Tölur sem við höfum verið að fá
benda tU þess að raunkostnaður
vegna rekstrarins hafi dregist sam-
an, tU dæmis um rúmt eitt prósent
mUli áranna 2000 og 2001, sem ég tel
vera árangur út af fyrir sig. Ég tel
að menn hafi verið að gera óraun-
hæfar kröfur um að verulegur
ávinningur komi fram strax.“
- í nýlegum pistU á heimasíðu
þinni gagnrýnir þú seinagang
borgaryfirvalda vegna uppbygg-
ingar hjúkrunarheimila fyrir
aldraða. Nú segist heilbrigðisráð-
herra í DV í gær vera að vinna í
anda viljayfirlýsingar sem hann
gerði um þetta efni við borgina
fyrir síðustu kosningar. Ber ekki
að fagna þessu?
„Jú, vissulega ber að fagna því að
borgaryfirvöld taki við sér í öldrun-
armálum í borginni. HeUbrigðisráð-
herra talar þarna um VífOsstaði sem
fyrsta kost í málinu en ég spyr á
móti: Hefði ekki verið skynsamlegra
þarna að huga að því að gera eitt-
hvað varanlegra í málinu, í stað þess
að endurbæta gamalt hús? Á höfuð-
borgarsvæðinu hefur miðað seint í
uppbyggingu á þessu sviði og þar
held ég að komi meðal annars til að
þetta er sameiginlegt verkefni ríkis
og sveitarfélaga. Sveitarfélagið á að
hafa yfirsýn yfir stöðu öldnmarmála
hjá sér og meta þörf fyrir og hafa t.d.
frumkvæði að byggingu hjúkrunar-
heimila. Að mínum dómi gætu náðst
mun markvissari vinnubrögð ef
þetta væri alfarið sett í hendur ann-
ars aðilans. Þannig gæti frekar
myndast raunverulegt forystuhlut-
verk eins og oft þarf að vera.“
Finnst þér hafa skort á það?
„Hér í Reykjavík er heimaþjón-
usta við aldraða á vegum borgarinn-
ar - en heimahjúkrun aftur á móti
verkefni heilsugæslunnar sem ríkið
rekur. Á Akureyri og eins á Horna-
flrði, sem bæði eru reynslusveitar-
félög, er verkefnið hins vegar alfar-
ið á höndum bæjarfélaganna og
reynslan af þessu þar er mjög góð.
Tekist hefur að samhæfa krafta og
standa vel að þessu. Það eru að mín-
um dómi góð vinnubrögð og skörp
sýn á hvemig vinna má með mOdu
markvissari hætti víða í heObrigðis-
þjónustunni."
Styrkur að vestan
- ung söngkona hlýtur styrk á aldarafmæli Önnu Karolinu Nordal
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzósópran hlaut á fóstudaginn
styrk úr sjóði Önnu Karolinu Nor-
dal, 400.000 kr. Guðrún Jóhanna
fæddist 1977 og hefur menntast í
söng hér heima, m.a. hjá Rut Magn-
ússon, og í Guildhall School of
Music i London. Þaðan lauk hún
mastersgráðu 2001 og stundar nú
nám við óperudeOd sama skóla.
Verðlaunaafhendingin var haldin
sérstaklega hátíðleg vegna þess að
þá voru rétt hundrað ár liðin frá
fæöingu Önnu Karolinu. Hún var
Vestur-íslendingur, fædd 6. septem-
ber 1902 í Kanada. Foreldrar hennar
DV-MYND TEITUR
Styrkur að vestan
Þóröur Júlíusson, frændi Önnu
Karolinu, afhendir Guörúnu
Jóhönnu styrkinn.
voru báðir fæddir hér heima, móðir-
in, Rósa Davíðsdóttir Nordal, að
Kristnesi í Eyjaflrði, og faðirinn,
Lárus Bjami Rafnsson Nordal, á
Akranesi.
Anna Karolina Nordal var mjög
músíkölsk, lagði m.a. stund á píanó-
leik og var organleikari um skeið í
báðum íslensku kirkjunum á Gimli.
En hlutskipti hennar varð að annast
gamalt fólk, fyrst foreldra sína eftir
að móðir hennar veiktist. Eftir and-
lát hennar hélt Anna Karolina hús
með fööur sínum og vann jafnframt
við hjúkran á elliheimOinu Bethel á
Gimli. Hún kom aldrei tO íslands en
hug sinn tO íslendinga sýndi hún
með því að stofna sjóð árið 1990 til að
styrkja unga söngvara og fiðluleik-
ara. Anna lést árið 1998.
t sjóðstjórn eru nú Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari, Vigdís
Ezradóttir, forstöðumaður Salarins,
og Þórður Júlíusson fyrir hönd fjöl-
skyldu Önnu. í bígerð er að tengja
styrkveitinguna framvegis við Vest-
urfarasetrið á Hofsósi og heimkynni
Önnu í Kanada. Mun Guðrún Jó-
hanna að líkindum halda tónleika á
báðum stöðum. Fyrstu tónleikar
hennar voru í Salnum sl. laugardags-
kvöld við geysigóðar undirtektir.-SA
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 20.16 20.01
Sólarupprás á morgun 06.35 06.20
Síðdegisflóó 20.01 00.34
Árdegisflóð á morgun 08.26 12.59
Víða léttskýjað
Suðlæg átt, 3-8 m/s og skýjaö með
köflum en austlægari átt á morgun.
Hægari og víða léttskýjað noröan- og
austanlands. Hiti 10 til 20 stig og
hlýjast norðaustantil. Mun svalara í
nótt, einkum inn til landsins.
V
Skýjað með köflum
Austlæg átt, 8-13 m/s viö
suðurströndina en annars hægari.
Rigning sunnanlands en skýjað með
köflum og úrkomulaust
norðvestantil.
1 «sð?iðfí
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
O o
Hiti 9° Hiti 10° Hiti 10°
til 16° til 18° til 16°
Vindur: 8-13 >»/» Vindur: 5-15‘V* Vindun 4-12 ">A
Austlæg átt, rígning sunnan- og suðaustantil. Skýjaö meö köflum. Suöaustlæg átt, skýjaö meö köflum. Skúrir og súld meö köflum sunnarv og suövestantil. Suöaustiæg átt, skýjaö meö köflum. Skúrir og súld meö köflum sunnarv og suövestantil
msF;'
Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassviðri Stormur Rok Ofsaveður Fárviðri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,6-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7
skyjaö 11
BERGSSTAÐIR rigning 10
BOLUNGARVÍK alskýjað 13
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 12
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 11
KEFLAVÍK alskýjaö 9
RAUFARHÖFN skýjað 8
REYKJAVÍK skýjaö 8
STÓRHÖFÐI skýjað 8
BERGEN skýjað 11
HELSINKI þokumóða 16
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 18
ÓSLÓ 15
STOKKHÓLMUR 12
ÞÓRSHÖFN alskýjað 10
ÞRÁNDHEIMUR skýjað 12
ALGARVE heiðskírt 17
AMSTERDAM þokumóða 15
BARCELONA skýjaö 21
BERUN skýjað 15
CHICAGO heiöskírt 18
DUBUN skýjað 8
HAUFAX léttskýjað 16
FRANKFURT þoka 15
HAMBORG skýjað 14
JAN MAYEN rigning 8
LONDON skýjaö 12
LÚXEMBORG léttskýjaö 13
MALLORCA léttskýjaö 22
MONTREAL heipskírt 21
NARSSARSSUAQ þokumóöa 5
NEWYORK heiðskírt 20
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS skýjaö 16
VÍN léttskýjað 14
WASHINGTON heiðskírt 14
WINNIPEG alskýjaö 15