Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Síða 10
10
Utlönd
MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
DV
^SAL^ Sími 562-1717
*v MATTHIASAR
Miklatorgi - á besta stað
Nissan Patrol disil turbo 1991. VW Golf Joker 1998,
V. 980 þ. ek. 71 þ„ beinsk.
V. 760 þ.
Éygp .. Æ&Æ
Iveco Turbo dfsil 1991, Hyundai Starex,
ek. 132 þ. bensín, beinsk., 3/99, ek. 70 þ.
V. 780 þ. V. 1.690 þ. Áhv. 930 þ.
Z 3 1
telfeliaÐiSfM iii. jr" 131Mr\ :
; aar
- - ’ ■
*
Sjá fleirl myndir á www.bilalif.is
BMW 525 turbo dísil intercooler MMC Pajero, stuttur, 9/99,
1992, sjálfsk., 6 cyl. ek. 41 þ„ sjálfsk.
V. 590 þ. V. 2490 þ.Áhv. 1400 þ.
Hyundai Starex bensfn, Jeep Cherokee Grand Limited
beinsk., 2/99, ek. 60 þ. 1999, ek. 55 þ.
V. 1690 þ.Áhv. 1100 þ. V.3370þ.
Volvo 460 1995,
ek. 129 þ„ sjálfsk.
V. 490 þ.
Ford Puma 4/99,
ek. 39 þ„ beinsk.
V. 1280 þ.
b ílaía >,w,w.wl d i la l i f
&
Fyrirætlanir al-Qaeda breyttust:
Vildu hrapa á
kjarnorkuver
Alræmdu hryðjuverkasamtökin
al-Qaeda ætluðu upphaflega að
steypa farþegaþotum inn i banda-
rísk kjamorkuver, að því er tveir af
helstu samstarfsmönnum Osama
Bin Ladens segja í viðtali við arab-
ísku sjónvarpsstöðina al-Jazeera.
Samtökin hættu hins vegar við
kjamorkuárásimar í bili af ótta við
að þau myndu missa stjórn á
ástandinu í kjölfarið. Al-Jazeera,
sem er í Qatar, mun á flmmtudag-
inn birta viðtal við Khalid Sheikh
Mohammed og Ramzi Binalshibh.
Þeir eru báðir á topp-tíu lista banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI, yfir
eftirsóttustu menn í heimi og eru
settir rúmir tveir milljarðar króna
til höfuðs hvorum þeirra.
Höfundur heimildarmyndarlnn-
ar, Yosri Fouda, var tekinn á leyni-
legan stað í Pakistan, þar sem hann
dvaldist í tvo daga á meðan hryðju-
verkamennirnir tveir vörpuðu ljósi
á árásimar á Bandaríkin þann 11.
september í fyrra. Hann segir þá
ekki hafa skilað sér myndbandsupp-
tökum af viðtölunum en hann held-
ur eftir hljóðupptökum.
í viðtölunum kemur fram að
fiórða flugvélin, sem talið var að
hafi veriö beint að Hvíta húsinu,
átti að lenda á þinghúsinu, en far-
þegar náðu að yfirbuga flugræningj-
ana. Arásimar voru vel skipulagðar
og fór fiöldi manna í frumkönnunar-
leiðangra til Bandaríkjanna á und-
an flugræningjunum. Mohammed
og Binalshibh áttu samskipti í gegn-
um tölvupóst og þóttust vera
kærustupar. Þann 29. ágúst var dag-
setning árásanna gefin og liðsmönn-
um al-Qaeda í Evrópu og Bandaríkj-
unum sagt að hverfa á brott.
Pappalögga í Litháen
Yfírvöld í Eystrasaltsríkinu Litháen hafa komiö upp þrjú hundruö pappalögg-
um á gatnamótum í höfuöborginni Vilnius í þeim tilgangi aö auka öryggi á
götunum. Pappalöggurnar eru settar upp nærri 90 skólum borgarinnar,
en kennsla er nýhafin.
1. vcrðinuit 2. vetmum 3. verðfaun Aukaverðlaun
Þú getur lagt inn
myndir í keppnina hjá
KODAK EXPRESS um
land allt, sent þær beint
til DV, Skaftahlíð 24,105
Reykjavík eða sent þær á
stafrænu formi á
sumarmynd@kodakexpress.is.
Merktu myndina
"SUMARMYNDAKEPPNI 2002“
Kodak DX-3600 Easy Share KodakAdvantix T-700
myndavél að verðmæti: að verðmæti:
Kodak Advantix T-570
að verðmæti:
»1®
Kbdak
Einnota myndavél
+ framköllun
+ sumarglaðningur
Nepal:
Maóistar myrtu
49 lögregluþjóna
Þúsund maóískir skæruliðar gerðu
í gær árás á lögreglustöð í hliðum
Himalajafialla austur af Katmandu,
höfuðborg Nepals, og myrtu að
minnsta kosti 49 lögregluþjóna.
Skæruliðamir hófu baráttu fyrir
kommúnísku eins flokks kerfi árið
1996. Þeir vilja kollvarpa stjórnar-
skrárbundnu konungsveldi í Nepal,
sem þeir segja spillt stjórnarkerfi
með lénsskipulagi. Meira en 4800
manns hafa látist í borgarastríðinu í
landinu, sem er eitt af tíu fátækustu
ríkjum heims. Aðeins tvö lík skæru-
liða fundust eftir árásina sem stóð í
meira en 5 tima. Þeir lögreglumenn
sem gáfust upp fyrir skæruliðunum
voru líflátnir á staðnum. Yfirvöld í
Nepal íhuga að lýsa yfir neyðar-
ástandi i landinu vegna árásarinnar.
Hvítir menn flýja
frjósamar jarðir
Tugir hvítra bænda flúðu í gær af
frjósömum jörðum sínum norðan
við Harare, höfuðborg Simbabves,
eftir að stjómvöld sendu út lokatil-
skipun um að þeir skuli rýma jarð-
ir sínar fyrir svörtum bændum.
Hvítum var sagt að yfirgefa jarðim-
ar í gær, eflegar yrðu þeir hand-
teknir. Að minnsta kosti tveim hvít-
um bændum var haldið í gíslingu á
bóndabæjum sínum af blökkum
mönnum sem gerðu tilkall til jarða
þeirra. 50 þúsund af 13 milljónum
Simbabvemanna era hvítir.
mssacs
Saddam boðar kosningar
Saddam Hussein
íraksforseti hefur
kveðið upp þann
úrskurð að forseta-
kosningar verði
haldnar í írak 15.
október næstkom-
andi, að því er kem-
ur fram í íröskum
fiölmiðlum. Saddam hlaut 99,96 pró-
sent atkvæða í síðustu kosningum
árið 1995 og greiddu 99,47 prósent
þjóðarinnar atkvæði.
írskur múgur lamdi löggur
Um 80 manna hópur af krá í
hverfi lýðveldissinna í Belfast á
Norður-írlandi réðst á fimm lög-
reglumenn í reglubundnu eftirliti
aðfaranótt sunnudags. Einn þeirra
er alvarlega slasaður.
Afhöfðaði dóttur sína
íranskur maður afhöfðaði sjö ára
dóttur sína á dögunum vegna gruns
um að frændi hennar hefði nauðgað
henni. Krufning leiddi í ljós að
stúlkan var óspjölluð.
Baskar brjóta bann
Um þúsund manns mótmæltu I
Baskaborginni San Sebastian í gær
þrátt fyrir bann stjórnvalda.
Baskneska lögreglan mátti ekki við
margnum og ákvað að draga sig í
hlé til að forðast alvarlegt uppþot.
Fagna 11. september
Bresk-múslímski öfgahópurinn
al-Muhajiroun hyggst halda ráð-
stefnu um jákvæð áhrif hryðju-
verkaárásanna á Bandarikin á árs-
afmæli árásanna.
Tengir Kína við hryðjuverk
Chen Shui-bian,
forseti Taivans,
sakar Kínverja um
að hrella þjóð sina
með hryðjuverka-
töktum. Tilefni um-
mæla hans er ný
skýrsla frá kín-
verska hemum sem
mælir með takmarkalausum hern-
aði, meðal annars dreifingu tölvu-
vírusa.
Hermannaveiki í Noregi
Tveir miðaldra menn hafa greinst
með hermannaveiki í bænum
Stafangri i Noregi. Sjö manns létust
í fyrra þegar faraldur gekk yfir
landið.
Uppgjör hjá Heider
f —r <21 varakanslarinn Sus-
A 1 -v; anne Riess-Passer
1 issinnuðum meiri-
Heiders í gær. Auk
þess sagði fiármálaráðherra lands-
ins sig úr Frelsisflokki Heiders, en
ástæðan var valdabarátta milli
Heiders og Riess-Passer.
Schröder töfraði þjóðina
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari bar ótvírætt sigur úr
býtum í lokakappræðum hans og
Edmunds Stoiber í þýsku kosninga-
baráttunni. Eitt helsta deilumálið
var yfirvofandi árás Bandaríkjanna
á írak, sem Schröder hafnar ein-
dregið. Kanslarinn þótti hnyttinn og
valdsmannslegur í kappræðunum
en Stoiber var stirður og fúllyndur.