Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2002, Side 24
36
______________________MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2002
Tilvera X>V
Kynnir
kín-
verska
leikfimi
Kynning á kínversku leikfiminni
Tai Chi verður í kvöld í húsnæði
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
að Háaleitisbraut 11-13 og hefst kl.
20. Leiðbeinandi er kona að nafni
Khinthisa sem hefur kennt Tai Chi
í tuttugu ár, aðallega í London og
Sviss og hefur líka komið tvisvar á
ári til íslands síðustu tiu árin.
Lærifaðir hennar er Chen Xiowang
sem er margfaldur meistari og hef-
ur þróað einfold kerfl í þessari kín-
versku leikfimi þannig að hún henti
til daglegs brúks fyrir önnum kafna
alþýðu. Khinthisa verður með sýni-
kennslu og svarar fyrirspumum á
kynningunni í kvöld og aðgangur er
ókeypis.
Hársnyrtivörur í úrvaii
Stofnuð 1918
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 551 3010
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
Upplýslngar
fsíma 580 2525
Textavarp IÚ 110-113
RÚV281, 283 og 284
Alltaf á
miðvikudögum
Jókertölur
mlðvlkudags
9 6 0 2 5
I
|
|
|
£
DV-MYNDIR GUN.
Hott, hott
Boöiö var upp á hringferöir um miöbæinn í hestakerru og
nutu þær vinsælda yngri sem eidri.
Eldsmiðja á götunni
Ábúöarmiklir eldsmiðir voru aö störf-
um í víkingabás viö aöaigötuna.
Að lokinni sögustund
Sigurborg K. Hannesdóttir og harmónikuleikarinn Tatu Kantoma
voru meö áhrifamikla sögustund meö tónlistarívafi í hinu eld-
gamla Duushúsi. Margir þurftu aö þakka þeim á eftir og hér
ræöa Margrét Frímannsdóttir og Jón Borgarsson viö Sigurborgu.
Létt yfir fólki á Ljósanótt
Margir fylgdust með vel heppn-
aðri dagskrá Ljósanætur í Keflavík
sem haldin var á laugardag, en
veðrið lék við gesti. Meðal skemmti-
atriða vom teygjustökk, siglingar
og útsýnisflug með þyrlu. Sölubásar
voru við aðalgötuna og á útisviði
komu listamenn fram, nefna má
Léttsveit Reykjanesbæjar og Bæjar-
stjómarbandið sem gerði feikna-
lukku. í Duushúsi og fleiri menn-
ingarhúsum var einnig boðið upp á
sýningar og tónlistaratriði. Mikla
hrifningu vakti þegar víkingaskipið
íslendingur sigldi upp að berginu
rétt áður en þar hófst tilþrifamikil
flugeldasýning.
-Gun.
Andað lettar
Leikararnir og leikstjórinn aö lokinni frumsýningu. Frá vinstri: Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, María Fteyndal, Jóhanna Jónas og
Þrúöur Vilhjálmsdóttir.
DV-MYNDIR SIGURÐUR JÖKULL
Ánægðar með Beyglurnar
Brynhildur, Harpa, Sjöfn og Sólveig, vinkonur, og móöir Maríu Reyndal leik-
stjóra mættu að sjálfsögöu á sýninguna og skemmtu sér hiö besta.
Beyglurnar slógu í gegn
í leikritinu Beyglur með öllu er
kvennahúmorinn í algleymingi og
virtist hann hitta beint í mark hjá
báðum kynjum, ef marka má hlát-
ursrokur miklar á frumsýningunni
í Iðnó á fóstudagskvöld. Leikstjór-
inn, María Reyndal, og leikkonum-
ar fjórar sem fram koma eru höf-
undar handritsins svo þeirra er
heiðurinn allur. Eftir sýninguna
var svo haldið Beygluball og þar var
það kvennahljómsveitin Rokkslæð-
Bíógagnrýni
Regnbogínn/Smárabíó
Drápsvél eða dauðagildra
Árið 1961 er kalda stríðið í algleym-
ingi. Risamir í austri og vestri kepp-
ast um að koma sér upp vopnabúri
sem, ef notað yrði, gæti útrýmt jörð-
inni ótal sinnum þó að einu sinni
væri of oft. En stríð er ekki markmið-
ið heldur óttinn við stríð. Mitt í þessu
vopnaskaki er verið að leggja loka-
hönd á kafbátinn K-19 sem á að vera
stolt Rússa í baráttunni um völdin
neðansjávar. 1 óðagotinu að sýna Am-
eríkönum sem fyrst hvers kyns dráps-
vél þeir gætu búið til létu yfirmenn
flokksins í Moskvu öryggi áhafhar K-
19 lönd og leið, þannig að þegar hin
fullkomna vél lætur úr höfh í Murm-
ansk árið 1961 er hún illa undir það
búin, það vantar bæði nauðsynlegan
búnað og varahluti og óvanir menn
standa vaktina þegar vandræðin
steðja að. Þeir meðlimir sovéska hers-
ins sem em svo óheppnir að verða
þess heiðurs aðnjótandi að fá að fara
jómfrúrferðina með dauðagildrunni
K-19 lenda ekki í striði við andstæð-
inginn í vestri heldur við farartækið
sjálft og pólitíska yfirmenn í Moskvu
sem er sama þótt sendisveinninn deyi
ef skilaboðin rata á leiðarenda.
Harrison Ford er flottur í hlutverki
hins harða skipstjóra Alexei
Vostrikov, hann krefst hins ógerlega
af áhöfninni og hlífir engum. Nánasta
undirmanni hans, Mikhael Polenin
(Liam Neeson), var vikið úr stöðu
skipstjóra K-19 vegna þess að hann lét
tilfinningasemi hlaupa með sig í gön-
ur þegar hann lét afdrif áhafnarinnar
skipta sig meira máli en ímynd
flokksins. Hann er yfirmaður af allt
öðru sauðahúsi en Vostrikov, hann er
vinur undirmanna sinna, sá sem þeir
segja leyndarmál, syngja og drekka
með.
Togstreita og valdabarátta ein-
kenna öll störf í brúnni þar sem
Vostrikov ætlar sér að sýna Moskvu
og heiminum hvað hann og K-19 geta,
sama hvað það kostar, á meðan Polen-
in metur mannslif meira en heiðurs-
merki. Liam Neeson hefur sjaldan eða
aldrei verið betri en í hlutverki hins
húmaníska Polenins, leikur hans er
dempaður en kraftmikill.
Ingvar E. Sigurðsson leikur, eins og
alþjóð veit, aukahlutverk í K-19. Hann
leikur vélstjórann Viktor Gorelov sem
framan af er ekki áberandi en hlut-
verk hans verður veigameira þegar á
líður og hann er lykilpersóna í einni
dramatiskustu senu myndarinnar.
Ingvar er ýkjulaust frábær, hann hef-
ur lítinn texta og því reynir enn
meira á svipbrigði og látbragð. Það er
leitt að hann skyldi ekki vera sýni-
legri en ég spái því að það eigi eftir að
breytast í næstu mynd. Það myndi
æra óstöðugan ef telja ætti upp allan
þann fjölda (karlkyns)leikara sem
kemur fram í K-19 en saman mynda
þeir sterka og áhrifamikla heild.
Líkt og í kvikmyndinni 13 Days
sem fjallaði um Kúbudeiluna 1962 vit-
um við vel að ekkert varð úr kjam-
orkustyrjöld vegna K-19 þótt heimur-
inn væri hætt kominn. En spennan er
ólíkt meiri í kafbát langt úti á hafi þar
sem hvergi er hjálp að fá en í smekk-
lega innréttuðum skrifstofum Hvíta
an ásamt plötusnúðunum Gullfossi
og Geysi sem sáu um fjörið.
-Gun.
■ Mmi. -
K 19: ★ ★ ★
Sif
Gunnarsdótiir
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
hússins. Ólíkt Kúbudeilunni eru hins
vegar ekki margir sem nauðaþekkja
sögu K-19 og afdrif kafbátsins Kúrsk
sem enn er fólki ofarlega í minni auka
enn á áhrif myndarinnar. Leikstjóran-
um Bigelow tekst afar vel, í samvinnu
við tökumanninn Cronenweth og Karl
Júlíusson sviðsmyndahönnuð, að
skapa einstaklega óttalega og inni-
byrgða spennu í kafbátnum. Skipstjór-
arnir standa andspænis óleysanlegu
vandamáli: Báturinn er að drepa
áhöfnina en ef hún flýr er hætta á
slysi sem gæti haft ólýsanlegar afleið-
ingar i fór með sér. Hetjudáð áhafnar-
innar er framin af algjörri fómfýsi og
enn áhrifameiri vegna þagnarinnar
sem umlukti hana í næstum 30 ár.
Allar kafbátamyndir sem fram-
leiddar hafa verið undanfarin 20 ár
hafa verið bomar saman við meist-
araverkið Das Boot og K-19 kemur bet-
ur út úr þeim samanburði en margar
aðrar. Þótt hvorki sé barist ofan eða
neðansjávar er spennan nær yfir-
þyrmandi því afdrif áhafnarinnar
skipta okkur máli. Það eru bara síð-
ustu 10 mínútur myndarinnar sem
hefði svo gjaman mátt sleppa, þar er
skeytt við hjartanlegum endi svo allir
fari nú örugglega sáttir heim, en hann
virkaði bara uppáþrengjandi eftir
ansi magnaða upplifun.
Aöalleikarar: Harrison Ford, Liam
Neeson, Ingvar E. Sigurösson, Peter
Sarsgaard o.fl. Leikstjóri: Kathryn
Bigelow Framleiöendur: Kathryn Bigelow,
Sigurjón Sighvatsson o.fl. Handrlt:
Christopher Kyle Kvikmyndataka: Jeff
Cronenweth Tónlist: Klaus Badelt Sviðs-
mynd: Karl Júlíusson