Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Blaðsíða 8
1995 Sigurður Kjartansson og Stefán Ámi skrifa handrit að stuttmyndinni Nautn og fengu þau til sín Daníel Ágúst, Magnús Jónsson, Hafdísi Huld, Emilíönu Torrini og Heiðrúnu Önnu, svo einhverjir séu nefndir. Þegar verkefnið fór af stað gafst smátími til að vinna að tónlistinni í myndinni og fengu þeir þá Birgi Þórarins- son (Bigga veiru) og Magnús Guðmunds- son (Magga legó) sem mynduðu dúettinn t-world. Var þar komin uppskriftin að hinni upphaflegu GusGus og eftir 10 daga (nætur) upptökusession varð úr fyrsta afúrð hljómsveitarinnar, sem nefndist einfaldlega GusGus. 29. OKTÓBER1995 Fyrsta GusGus-platan kemur út. 1996 Bretinn Lewis Jameson komst á snoðir um hljómsveitina og eftir frumsýningu Nautnar skrifaði GusGus undir 5 plötu samning við plötuútgáfuna 4AD. Ekki allir þeir sem komu að Nautn skrifuðu undir samninginn og héldu til að mynda Emilíana og Heiðrún Anna á brott. 7. OKTÓBER 1996 Polyesterday, fyrsta smáskífa GusGus, kemur út. 4. ácúst 1997 Polydistortion, fyrsta alþjóðlega plata GusGus, kemur út. Er henni vel tekið og hefst GusGus-ævintýrið fyrir fullt og allt. Hljómsveitarmeðlimir voru allir afskap- lega ánægðir með lífið og tilveruna og ekki si'st hver annan. 7. júlí 1998 Dr. Gunni fjallar um íslenskar hljóm- sveitir sem þá eru starfandi. Um GusGus segir hann: „ „Tilgerð og tækjafikt“ segja þeir öfundsjúku. Baldur framkvæmda- stjóri er meistarinn f þessum fjöllistahópi. Næsta plata sker úr um hvort bandið meikar’ða stórt eða floppar feitt.“ 19. FEBRÚAR 1999 r Opnu-umfjöllun um GusGus-sam- steypuna. Skipurit, Ifkt og því sem gerð eru í stórfyrirtækjum, er teiknað til að lýsa umfangssemi GusGus- fjöllistahópsins. 23. apríl 1999 Önnur plata GusGus, This Is Normal, kemur út. Dr. Gunni gefur þrjár stjömur f Fókus. „This Is Normal er platan sem freistar þess að koma GG á kortið í annað sinn. Ómögulegt er að spá fyrir um niðurstöður. Lfklega þykir island elckert sérlega merki- legt f ár og þó GG tjaldi ýmsu ágætu vantar illþyrmilega það sem bransinn gengur út á: smellinn gullna.” Á heimasíðu sveitarinnar, GusGus.com, lýsir Stephan Stephanson, samstarfi hljómsveitarinnar um þetta leyti þannig (þýtt úr ensku): „Þá þegar var GusGus orðin að flösku. Aðeins smárt gat var út- streymið fyrir sköpunargleði 9 manns og voru sprungur teknar að myndast á flöskunni.“ 29. APRÍL1999 I lafdís Huld er formlega rekin úr GusGus. ~h Nú fyrir skömmu kom ut 4. platan sem kennd er við GusGus, Attention, í Bandaríkjunum og innan skamms mun hún líta dagsins Ijós hér á landi og annars staðar í Evrópu. Þrjú ár eru liðin síðan This Is Normal kom út og hefur bandið gengið í gegnum vægast sagt miklar breytingar síðan þá. Ný söngkona er gengin til liðs við bandið, Urður Hákonardóttir, og spjailaði Fókus við hana um lífið í GusGus. Eins og að vera í 6 ara bekk Það kunna ef til vill margir að hafa lyft annarri augnabrúninni þegar þeir heyrðu að GusGus væri að gefa út nýja plötu, hvað þá með nýja söngkonu við hljóðnemann. Sem er kannski ekkert skrýtið miðað við það sem á undan hafði gengið. Sögu hljómsveitarinnar í grófum drátt- um má lesa hér til hliðar og er það merkilegt að sú hljómsveit sem gekk í gegnum slíkt ferli skuli enn vera á lífi. ,Áður en ég byrjaði í GusGus hafði ég lítið sem ekkert gert mér til framdráttar í tónlistinni," út- skýrir Urður og þarf það ekkert að koma á óvart því ef eitthvað hefur einkennt GusGus í gegn- um árin, er að sveitin hefur aldrei verið hrædd „Ég var að vinna sem þjónn á Kaffibarnum þar sem þeir komu iðulega til þess að fá sér hádegismat. Og í grunnatriðum er þetta hin klisjuiega saga um þjón- ustustúlkuna sem gerist söngkona fyrir tilviljun." við að fára ótroðnar slóðir. Urður bætir því reynd- ar við að hún hafi á sínum yngri árum verið í tón- listamámi en náði aldrei almennilega að festa sig í því. „Eftir ákveðinn tíma, þegar mér fór að leið- ast, hætti ég einfaldlega. Eg var mikið þannig að ef mér finnst ekki enn þá gaman eftir nokkra mánuði tekst mér ekki að halda athyglinni við verkefnið og dett úr því smám saman." Við skul- um vona fyrir hönd GusGus að slíkt endurtaki sig ekki í þessu tilviki. Það mun líklega þó ekki gerast þar sem hún segist nú vera þar sem hana hafi alltaf langað til að halda sig. „Mig hefur alltaf langað mjög mikið að syngja og var til að mynda t þremur hljómsveitum í gaggó en þorði aldrei að gera neitt meira úr þvf‘. Þannig er til dæmis Attention fyrsta þreifanlega afurðin sem Urður hefúr lagt hönd á plóg við gerð þess. Waitress turns singer-klisjan En hvemig skyldi það hafa komið til að þessi 21 árs gamla stúlka lenti í slagtogi við hina sjó- uðu eftirlifandi GusGus-meðlimi, þá Birgi Þórar- insson (Bigga veiru, Buckmaster), Magnús Guð- mundsson (Magga legó) og President Bongo (Stephan Stephensen)? „Ég var að vinna sem þjónn á Kaffibamum þar sem þeir komu iðulega til þess að fá sér hádegismat. Ög í grunnatriðum er þetta hin klisjulega saga um þjónustustúlkuna sem gerist söngkona fyrir tilviljun. Málið var að ég kannaðist aðeins við þá og langaði að gera eitt- hvað með þeim. Ég bað þá því um hjálp við að gera demó fyrir mig eða eitthvað slíkt og byrjuð- um við þvf að vinna saman. Það gekk svo vel að lagið sem við vorum að vinna að endaði svo á plötunni sem var að koma út,“ segir Urður. Og nú, eftir mikið húllumhæ, er bandið greini- lega búið að finna langþráð listrænt jafhvægi á meðal meðlima sinna. „Andrúmsloftið hjá okkur er mjög afslappað og gott. Ef einhver fær hug- mynd þá vinnum við f henni og ræðum hana. Þetta er í sjálfu sér eins og að vera í 6 ára bekk þar sem maður getur allt í einu ákveðið að fara í mömmó eða teikna og þarf ekkert endilega að vera að læra. En samt er maður í skólanum. Sama má segja um þessa vinnu. Maður er í vinnunni en samt ekki.“ Stressuð fyrir Bandaríkjareisu Eins og gefúr að skilja mátti sjá á Urði að * '-es Urður Hákonardóttir, eða Earth eins og hún kallast á alþjóðlegum vettvangi, er greinilega mikill hugsuður. Skrautlegir GusGus-meðlimir. Frá vinstri eru þeir President Bongo, Maggi legó, Earth og Biggi veira. Svona lítur hin listræna kápa á nýrri plötu GusGus, Attention, út. henni stóð nú ekki á sama um yfirvofandi tón- leikaferð um Bandaríkin. „Jú, ég er nokkuð stressuð," segir hún brosandi. „Ég er nú bara þannig að ég á það til að ofgera hlutunum fyrir mér og keyra þá svolítið upp. Stundum gleymi ég því að maður á bara að hafa gaman af hlutun- um.“ Ástæðan fyrir því að þau eru á ferð um Bandaríkin í þessum mánuði er eins og áður seg- ir að plata þeirra kom þar út í lok ágúst. „Það var Moonshine sem gaf hana þar út og þeir stjóma öllu því sem við kemur markaðsmálum þar og það sama má segja um Evrópu þar sem platan kemur út undir merkjum Underwater." Ferðalagið hófst fyrir alvöru á mánudaginn var með tónleikum í Los Angeles og voru þeir víst teknir upp á myndband og því aldrei að vita að þeir verði gefnir út. Það er síðan þétt prógramm fram undan og er búist við því að ljúka þessari ferð í New York þann 30. september. Þau eru reyndar ekkert ókunnug ferðalögum og hafa verið dugleg við að ferðast um Evrópu undan- fama mánuði. Þau hafa til að mynda verið með mánaðarlegt „gigg“ í Nitsa-klúbbinum í Barcelona og svo að spila hér og þar um álfuna, svo sem í Berlfn og á Ibiza. Þar sem þau eru svona sjóuð í klúbbabransanum hljóta þau að hafa skoðanir á klúbbamenningu íslands? „Skemmtanalífið hér á landi er ömurlegt," segir Urður og hristir hausinn af hneykslan. „Það er bara ekki til sá staður á íslandi sem starfar sem klúbbur þar sem maður getur farið til þess eins að dansa. Það vantar algerlega svoleiðis staði enda eru einu staðirnir þar sem eitthvað er dansað á skemmtanalífinu á miðju gólfi á einhverjum bar. Fólk er greinilega miklu meira upptekið af því að drekka sig fullt á bamum og spáir ekki mikið í annað,“ segir hún. Bara venjulec huómsveit Hin gamla GusGus titlaði sig ávallt sem fjöl- listahóp og leiðrétti þann sem dirfðist að kalla hann hljómsveit. Þar voru 9 einstaklingar á ferð sem voru sífellt að vasast í hinu og þessu. „Það „Það má segja að þetta hafi verið frekar snobbað. Ég myndi segja að GusGus í dag væri bara venjuleg hljómsveit." má segja að þetta hafi verið frekar snobbað. Ég myndi segja að GusGus í dag væri bara venjuleg hljómsveit þótt svo að stundum tökum við að okkur verkefhi sem tengjast ekki beint tónlist- inni.“ En þó virðist sem að öll tengsl séu ekki rofin við fortíðina. Daníel Ágúst, gamall söngvari bandsins, syngur eitt lag á plötunni sem gesta- söngvari og ber Urður honum söguna vel. „Hann var f góðu stuði. Það var alveg frábært að vinna með honum að þessu.“ Urður segir að Attention hafi verið tvö ár í vinnslu. „Við byrjðum á því að gera tvö lög, Dav- id og Unnecessary sem eru reyndar mjög sterk og einkennandi fyrir plötuna alla.“ Og skyldi hún vera ánægð með útkomuna? „Ég hef ekki tekið hana af geislanum síðan ég fékk plötuna í hendumar fyrir nokkrum mánuðum," segir hún fremur vandræðaleg. „Já, ég er mjög ánægð með hana.“ Næsta spuming: Hafðir þú hlustað mikið á fyrri GusGus-plötur áður en þú fórst sjálf í bandið? „Nei...,“ svarar hún með rólegum tóni. „Ég byrj- aði eiginlega ekkert að hlusta á GusGus fyrr en ég byrjaði í henni...“ Ágæt lokaorð. 30. aprÍl 1999 DV-Fókus ffamkvæmir skoðanakönnun um 10 bestu hljómsveitir íslands allra tfma. GusGus fær eitt atkvæði en hringt var í 600 manns. 7. maí 1999 Hafdís Huld segir í viðtali við Fókus frá sinni hlið. Þar er tekið á hversu utanvelta hún var „enda allir strákamir miklu eldri en ég“, segir hún. „Sunnudagastúlka með sukkuðum poppboltum" var meðal annars skrifað til að lýsa ástandinu. Viðbrögð utan úr heimi eru blendin og efúðust margir um ffamtíð GusGus án Hafdísar Huldar. 14. maí 1999 Fram kemur í Fókus að This Is Normal fær víðast hvar ágæta dóma. Gagnrýnandi NME lýsir hljómsveitinni sem „sálar- lausri". 21. MAÍ1999 Frétt um velgengni GusGus á tónleikum vfða um heim birt í Fókus. „Allir söknuðu þó Hafdísar, bæði áhorfendur og hljóm- sveitarmeðlimir," segir í fféttinni. 10. DESEMBER1999 í viðtali við Daníel Ágúst sem birtist í Fók- us þennan dag útskýrir hann hvemig það stóð á því að GusGus breytt- ist úr fjöllistahópi í „venjulega" hljóm- sveit. „Okkur fannst nauðsynlegt að hafá þetta þannig að allir yrðu hamingjusamir og sáttir við breytingamar sem voru óhjá- kvæmilegar til að GusGus gæti haldið áfram.“ Og þeir hamingjusömu voru, auk Daníels sjálfs, Stephan Stephanson, Biggi veira og Sigurður Kjartansson. 30. DESEMBER 1999 Fókus fær sérffóða menn til að tilnefna 5 bestu plötur ársins sem var að líða. This Is Normal varð 10. stigahæsta platan. 10. MARS 2000 Ladyshave af This Is Normal var tilneffit til íslensku tónlistarverðlaunanna sem besta lagið. Platan sjálf var þó ekki til- nefnd. 24. APRÍL 2000 Þriðja plata undir merkjum GusGus kem- ur út, öusGus vs. t-world. Platan er sam- ansafn af lögum t-world (Maggi legó og Biggi veira) frá árunum 1994-1996. 2001 Daníel Ágúst ákvað að yfirgefa hljómsveit- ina til að einbeita sér að sólóferli sínum. Sigurður Kjartansson hélt einnig á brott og varð að listamanninum Celebrator. 1 stað þeirra kom Maggi legó aftur inn f bandið og söngkonan Urður Hákonardótt- ir (Earth) var „uppgvötuð" og tekin inn í bandið þegar hún þjónaði þeim reglulega á Kaffibarnum. 27. ÁCÚST 2002 Fjórða GusGus-platan, Attention, kemur út f Bandaríkjunum. Platan verður eefin út í Evrópu, þ.m.t. lslandi, f byrjun október. Texti: Eiríkur Stefán Ásgeirsson - Myndir: E.Ól. &. GusGus f ó k u s 13. september 2002 13. september 2002 f ó k u s +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.