Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2002, Blaðsíða 4
Þeir eru ekki af baki dottnir, aðstandendur Bíó Reykjavíkur: Bio- maraþon Hefur þú einhvem tíman heyrt um 44 tíma stanslaust kvikmyndamaraþon á ís- landi? Ef svo er skaltu tala við aðstandend- ur Bíó Reykjavíkur sem eru ábyggilega vís- ir til að gera betur en þeir ætla að gera nú um helgina. Yfir helgina verða sýndar 27 myndir, sú fyrsta er The Wolf Man frá 1941 sem sýnd verður á miðnætti í kvöld og sú síðasta er Inn Like Flint frá 1967, sögð áhrifavaldur við Austin Powers-myndirnar, sem lýkur klukkan 20.30 á sunnudags- kvöld. Þaulsetnasta fólkið fær verðlaun á mara- þoninu, þ.e. sá hópur fólks sem sér flestar myndimar verður gerður ódauðlegur á heimasíðu félagsskapsins. Kvikmyndamaraþonið fer fram í Kvik- myndaskóla íslands, Laugavegi 176 (gamla Sjónvarpshúsinu), þar sem gengið er inn á bakvið vinstra megin við húsið. Aðgangur er ókeypis og verður boðið upp á popp og aðrar veitingar. Allar nánari upplýsingar má finna á www.bioreykjavik.com. Jakob Halldórsson er einn aðstandendanna. Stuttmyndadögum iauk síðastlidið sunnudagskvöld þegar hátíðin var haldin í tíunda sinn. Að vanda mátti vel sjá gróskuna sem er í þessum geira hérlendis á hátíðinni þó framkvæmd hennar hafi ekki þótt boðleg þetta árið. Sigurvegarar keppninnar að þessu sinni var listahópurinn Lortur með myndina Marokkó: leitin að heiðarlega arabanum sem tekin var í Marokkó árið 2000, sama ár og hópurinn sigraði á Stuttmyndadög- um í fyrsta skiptið. „Þessi mynd er bara eitt af þeim verk- efnum sem eru í gangi hjá Lortinum um þessar mundir. Flestir okkar eru í út- löndum og við sem erum heima komumst ekki á hátíðina um síðustu helgi. Sigurinn kom ánægjulega á óvart,“ segir Halldór V. Sveinsson, sem gerði Leitina að heiðarlega arabanum ásamt Kristjáni L. Pálssyni, Hafsteini G. Sigurðssyni og Matthíasi Kristjáns- syni. Myndin var tekin upp á einni viku í ágústmánuði 2000 í Marokkó. Lýsir hún ferð þeirra fjögurra um landið og kynnum þeirra af innfæddum. Teppasali oc hassbóndi „Þetta er auðvitað írónískur titill," seg- ir Halldór. „Við komum þama, bleikir piltamir, og töldum okkur vita allt og vildum láta teyma okkur á ásnaeyrunum af pretturum. Að, sjálfsögðu féllum við í þá gryfju að pirrast, umburðar- lyndið er ekki meira en svo að við bugumst á endanum og finnúm ökkur griðarstað, einn af fáum McDonalds- stöðum í Marokkó, og önd- um léttar f úrkynjuðu vest- rænu umhverfi." Myndin gefur nokkra innsýn f menn- ingu Marokkó. Fyrst og ffemst lýsir hún þó ferðalagi fjórmenninganna um landið þar sem þeir reyna á árang- urslausan hátt að falla inn í hópinn. Að sjálfsögðu hittú þeir mikið af skemmtilegu fólki sem kemur fram í myndinni. „Já, já, þar má meðal ann- ars nefna teppasalann Larbie sem kættist mjög yfir því að við tækjum viðtal við hann og færum með það heim til fslands, það væri góð Kristján auglýsing fyrir hann. Svo tók hassbóndinn Abdul okkur opnum örmum. Hann bauð okkur te, sýndi plantekruna sína og verksmiðju en mis- skildi aðeins tilganginn hjá okkur. Hann ætlaði að selja okkur einhver kíló af hassi til að smygla og við þurftum að fara diplómatískar leiðir til að kveðju- stundin væri friðsæl," segir Halldór. Loksins á Ríkisskjáinn Eins og áður segir er þetta í annað sinn sem listahópurinn Lortur sigrar á Stutt- myndadögum. Árið 2000 sigruðu þeir með Georg: lifandi lag og síðan þá hafa þeir verið virkir í kvikmyndagerð. Nú síðast gerðu þeir Grön: mottan talar sem sýnd var við góðar undirtektir í Vesturporti fyrr í sumar. Alls hefur hóp- urinn unnið til fjögurra verðlauna á þessum tveimur árum. Þrátt fyrir það er Lorturinn ekki sáttur við hvemig hlúið er að unga fólkinu í þessari grein. Það er erfitt að standa í þessu. „Við sóttum um styrk hjá Kvik- myndasjóði til eftirvinnslu á Arabanum en það er svipað því að berja hausnum við stein. Við reyndum að selja hana til Sjónvarpsins en án árangurs. Við hljót- um bara að vera svona déskoti lélegir. Þetta er auðvitað hundleiðinlegt því við vildum sýna myndina. En nú er biðin á enda og Islendingar eiga í vændum gott kvöld fyrir framan Ríkisskjáinn seinna í vetur.“ L. Pálsson, Halldór V. Sveinsson og Hafsteinn G. Sigurðsson toku sigurmyndina a Stutt- myndadögum þegar þeir voru á ferðalagi í Marokkó. ------------- Fólk sem missir aðra höndina er hvorki með hægri eða vinstri hönd eftir. Awi/nMl'f'í'í KOMINN INfSTÖ VERSIUN DKElFINu iig MYNDFOKM S:S55-0400 f ó k u s 4 13. september 2002

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.