Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002
Fréttir X>V
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:
Ásta Möller og Katrín
Fjeldsted stefna á 4. sæti
- Pétur H. Blöndal undir feldi til mánaðamóta
Katrín Fjeldsted, sem skipaði 8.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins i
Reykjavik fyrir síðustu þingkosning-
ar, stefnir á 4. sæti í prófkjörinu sem
haldið verður 22.-23. nóvember. Ásta
Möller, sem skipaöi 9. sæti á lista
flokksins síðast, stefnir á 4. til 5.
sæti.
Fyrir síðustu kosningar skipaði
Sólveig Pétursdóttir 4. sæti listans.
Hún gefur kost á sér áfram.
„Ég stefni á eitt af efstu sætunum.
Vonandi fæ ég brautargengi til þess,“
sagði Sólveig við DV í gærkvöld.
Katrín Fjeldsted segist ekki vera
að bjóða sig fram gegn Sólveigu. „í
prófkjöri fer maður ekki gegn ein-
hverjum heldur til að láta á það
reyna hver staða manns er. Það á
enginn frátekin sæti í prófkjöri," seg-
ir Katrín.
Rétt er að hafa í huga að sá sem
hafnar í 4. sæti í prófkjörinu skipar
2. sæti á lista flokksins í öðru hvoru
Reykjavíkurkjördæmanna tveggja.
Sá sem hafnar í 3. sæti skipar 2. sæti
Ásta Pétur
Möller. Blöndal.
í hinu kjördæminu. Hlutkesti ræður
því á hvorum listanum efsti maður í
prófkjörinu tekur sæti og aðrir rað-
ast eftir því.
Davíð Oddsson sækist eftir stuðn-
ingi til að leiða listann á ný. Björn
Bjamason, sem skipaði 2. sæti síðast,
stefnir á eitt af efstu sætunum og
Geir H. Haarde, sem skipaði 3. sæti
síðast, stefnir á 2. sæti.
Lára Margrét Ragnarsdóttir, sem
skipaði 5. sæti síðast, segist stefna aö
endurkjöri. Guðmundur Hallvarðs-
son, sem skipaði 6. sæti, segist stefna
á 5. sæti.
Pétur H. Blöndal, sem skipaði 9.
sæti síðast, hefur ekki tekið ákvörð-
un um framboð. „Ég tek væntanlega
ákvörðun um mánaðamótin," sagði
Pétur í samtali við DV í gærkvöld.
Þingmönnum Reykjavíkur fjölgar
úr 19 í 22 í nýrri kjördæmaskipan.
Nýja skipanin hefði fært Sjálfstæðis-
flokknum 11 þingmenn í Reykjavík í
stað 9 í síðustu kosningum miðað við
óbreytt úrslit. -ÓTG
Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og IMS í höfn:
Kostnaðurinn óljós
- segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
Nýir stjórnendur
Fræösluyfirvöld í Hafnarfiröi hafa auglýst eftir skólastjóra og
aöstoöarskólastjóra viö Áslandsskóla. Skótinn starfar nú undir stjórn
Hafnarfjaröarbæjar, eftir aö samkomulagiö er í höfn.
Líkamsárás í togara
Austur-evrópskur maður hringdi í
lögregluna í Reykjavík um klukkan
fjögur aðfaramótt sunnudags og til-
kynnti að stórslösuð kona væri um
borð i togaranum Atlas við Granda-
bryggju í Reykjavíkurhöfn. Konan,
sem er frá Eystrasaltsríkjunum en bú-
sett hérlendis, var alblóðug og voru
sjúkraflutningamenn og lögreglumenn
sendir að togaranum. Hún var flutt á
slysadeild Landspítalans með höfúðá-
verka en var útskrifuð þaðan fyrir há-
degi í gær.
Lögreglan handtók litháískan skip-
verja af Atlasi grunaðan um líkams-
árás á konuna og var hann yflrheyrð-
ur í gær eftir að hafa sofið úr sér. Mik-
il ölvun var um borð í togaranum um
nóttina en ekki er vitað hvaða erindi
konan átti um borð. Skipverjamir
segja hana hafa dottið og slasast með
þeim hætti. Hins vegar er rannsakað
hvort henni hafi verið hrint. Að sögn
lögreglu er málið vandmeðfarið, enda
reyndist erfitt að eiga samskipti við
aðila málsins sökum timgumálaörðug-
leika. Túlkur var kailaður til en atvik-
ið er enn í rannsókn lögreglu.
Umræddur togari varð frægur á Is-
landi fyrir þremur ámm þegar skip-
veijar stóðu fyrir mótmælum vegna
vangoldinna launa. Gekk togarinn þá
undir nafninu Odincova og var í eigu
Letta. -jtr
Kostnaður vegna samkomulag
sem náðist i gærkvöld milli Hafnar-
fjarðarbæjar og íslensku mennta-
samtakanna í kjölfar ágreinings
vegna riftunar bæjaryfirvalda á
rekstrarsamningi skólans er enn
óljós, aö sögn Lúðvíks Geirssonar
bæjarstjóra. Hann sagði við DV i
gærkvöld að farið yrði í endanlegt
uppgjör vegna samkomulagsins
strax eftir helgina. Þær tölur sem
fyrir lægju myndi hann kynna bæj-
arstjóm áöur en farið yrði að fjalla
um þær opinberlega.
Umrætt samkomulag náðist eftir
stífar samningaviðræður aðila um
helgina. Samkvæmt því fellur samn-
ingur bæjarins og ÍMS frá 11. maí
2001 niður, að fengnu samþykki
bæjarstjómar Hafnarfjarðar. Fullt
samkomulag er orðið um skilmála á
yfirtöku á öllum þeim búnaði sem
ÍMS hafa notað til reksturs Áslands-
skóla. Þá náðist fullt samkomulag
um yfirtöku Hafnarfjarðarbæjar á
leigusamningiun vegna tölvubúnað-
ar og annars nauðsynlegs búnaðar,
um yfirtöku áfallandi rekstrar-
kostnaðar, yfirtöku réttinda og
skyldna gagnvart starfsfólki og um
greiðslu til ÍMS vegna kostnaðar og
vinnuframlags til uppbyggingar
skólastarfs Áslandsskóla. Þá taka
greiðslur til ÍMS einnig tillit til þess
hluta kostnaðar við uppbyggingu
skólans sem samtökin gerðu ráð fyr-
ir að kæmu til greiöslu á síðari
hluta þriggja ára samningstímans.
Lúövík sagði við DV að það sem
mestu skipti væri að búið væri að
ná góðu samkomulagi sem tryggði
að skólastarf færi fram með eðlileg-
um og friðsamlegum hætti. Það
væri álit beggja aðila að umrætt
samkomulag þjónaði best hagsmun-
um bamanna í Áslandsskóla.
Um helgina auglýstu fræðsluyfir-
völd í Hafnarfirði stöður skóla-
stjóra og aðstoðarskólastjóra í skól-
anum lausar til umsóknar. Einnig
var auglýst eftir sérkennara og
námsráðgjafa við skólann. Hafnar-
fjarðarbær hefur nú tekið yfir
starfsskyldur starfsmanna. Sunita
Gandhi, framkvæmdastjóri ÍMS,
lætur hins vegar af störfum við
skólann með tilkomu samkomu-
lagsins. -JSS
Amerískur hvíldarsfóll
Ótrúleqa þœgilegur!
Laugarnestangi:
íbúar kvarta yfir gæsaskít
„Þegar mest er þarf ég klukku-
tíma á dag til þess að hreinsa upp
gæsaskítinn héma fyrir utan hjá
mér. Það er mjög leiðinlegt að þurfa
að standa í þessu,“ segir Birgitta
Spur, íbúi á Laugarnestanga í
Reykjavík, í samtali við DV.
íbúar i þremur húsum á Laugar-
nestanga hafa sent bréf til umhverf-
is- og heilbrigðisnefndar borgarinn-
ar þar sem þeir kvarta yfir ágangi
gæsfugla. Þeim hefur fjölgað mjög
að undanfornu. Segja íbúar sem
blaðið ræddi við að nú sé svo kom-
ið að gæsimar séu orðnar algjör
plága en þær eru nú taldar i tugum.
Við Laugamestanga 65 býr Hrafn
Gunnlaugsson kvikmyndagerðar-
maður sem haldið hefur gæsir und-
anfarin ár. Enginn íbúanna sem
skrifaði undir bréfið treysti sér hins
vegar til þess að alhæfa um að allar
gæsimar væra hans. „Við getum
sagt að gæsimar komi sem ungar úr
eggjum," sagði Kolbrún Björgúlfs-
dóttir leirlistakona sem býr í húsi
númer 62 á Laugamestanga.
Erindi íbúa í Laugamesi var tek-
ið fyrir á fundi umhverfisnefndar í
síðastliðinni viku undir þeirri yfir-
skrift að beöið væri um „uppræt-
ingu gæsa“ á svæðinu. Afgreiðslu
málsins var frestað. -sbs
Kvartaö yflr ágangi
Umhverfisnefnd borgarinnar hefur
fengiö erindi um máliö.
Flakið veröi fjarlægt
Norska umhverfisráðuneytið krefst
þess að flak Guðrúnar Gisladóttur KE,
sem strandaði við Lófót í sumar, verði
fjarlægt fyrir 1. maí nk. Þá á að vera
búið að fjarlægja olíu úr skipinu fyrir
15. næsta mánaðar.
Nýr sveitarstjóri
Einar Öm Thorlacius lögfræðingur
hefur verið ráðinn sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps og tekur við starfinu um
mánaðamótin. Fráfarandi sveitarstjóri
er Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.
Ráðherraheimsókn
Halldór Ásgríms-
son átti í gær fund
með Dlamini Zuma,
utanríkisráðherra
Suður-Afríku, en sá
síðamefndi er í
heimsókn hérlendis.
Ráðherramir ræddu
meðal annars sam-
skipti íslands og Suður-Afríku og
ástand mála í sunnanverðri Afríku.
Rangt að breyta lögum
Varaformaður fjárlaganefndar Al-
þingis, Einar Oddur Kristjánsson,
kveðst hafa miklar efasemdir um að
rétt sé að gera breytingar á raforku-
lögum eins og gert er ráð fyrir i nýju
stjómarfrumvarpi. Framvarpið bygg-
ist á tilskipun Evrópusambandsins en
þingmaðurinn segir nauösyn að kann-
aðir verði möguleikar á undanþágum
frá fyrmefndri tilskipun. RÚV greindi
frá.
Paprikuræktun niður
Útlit er að helmingi minna verði
ræktað af papriku hér á næstu árum
en nú tíðkast. Þetta er niðurstaðan ef
tekið er mið af umsóknum grænmetis-
bænda um úreldingu gróðurhúsa en
umsóknir um úreldingu 60% þeirra
liggja nú fyrir. RÚV greindi frá.
Tiu félög í eitt
Stofnfundur Verkalýðsfélags Vest-
firðinga fór fram á ísafirði í gær. Þá
sameinuðust 10 verkalýðsfélög innan
vébanda Alþýðusambands Vestfjarða.
Um 1440 manns era í félaginu.
Ferjan óhentug
Hraðferja þeirrar tegundar, sem
nefnd hefur verið sem hugsanlegur
arftaki Herjólfs, þykir óhentug enda
getur hún ekki siglt i meira en 5 metra
ölduhæð. Vestmannaeyingar héldu
fund um helgina þar sem ræddar vora
samgöngubætur fyrir eyjaskeggja.
Vilja ekki samstarf við D-lista
Ungliðahreyfing vinstri grænna
skorar á forystu flokksins að hafiia
samstarfi við Sjálfstæðisflokk. Unglið-
amir, sem héldu aðalfund um helgina,
vilja að mynduð verði vinstri stjóm
eftir kosningamar á vori komanda.
Ekki með riðu
Niðurstaða rannsóknar sem gerð
var á tilraunastöð Háskóla íslands í
meinafræðum að Keldum leiðir í ljós
að granur um að kind frá Ásunnar-
stöðum í Breiðdal væri riðuveik er
ekki á rökum reistur.
Sturla gefur kost á sér
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra gaf út yfirlýsingu á fundi Sjálf-
stæðisfélagsins Skjaldar í Stykkis-
hólmi þess efhis að hann gæfi kost á
sér til þingstarfa áfram og óskaði eftir
að skipa 1. sæti flokksins í Norðvest-
urkjördæmi. Fundurinn fór ffarn á
fóstudagskvöld.
-aþ