Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2002, Blaðsíða 20
36 MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 2002 Islendingaþættir DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson m 100 ára IGuðrún Eggertsdóttir Norödahl frá Hólmi, Stórholti 17, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Sigurður Júlíus Eiríksson sem lést 1966. Foreldrar Guðrúnar voru Eggert Guðmundsson Norðdahl, bóndi á Hólmi, og Vaigerður Guömundsdóttir Norðdahl húsfreyja. Guðrún er að heiman en mun taka á móti ættingjum og vinum í Félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, 1. hæð, að kvöldi afmælisdagsins 23.9. kl. 20.30-22.30. 90 ára Sverrlr Baldvinsson, Lindasíðu 4, Akureyri. Hann veröur að heiman á afmælisdaginn. 85 ára Baldvin Ásgeirsson, Furulundi 15c, Akureyri. Hólmfríöur Eyjólfsdóttlr, Kópavogsbraut la, Kópavogi. Stefán Magnússon, Hólalandi 4, Stöðvarfirði. 90 9ta Borghildur Kjartansdóttir, Langagerði 94, Reykjavík. Helgi Þorvaröarson, Frostafold 121, Reykjavík. Ólöf Pálína Siguröardóttir, Hverahlíö 20, Hveragerði. 75 árp Bergur Þorvaldsson, Möörufelli 1, Reykjavík. Elín Bjarnadóttir, Laugarnesvegi 112, Reykjavík. Haila Hersir, Hringbraut 50, Reykjavík. 70 ára Asta Torfadóttir, Brekku, Tálknafirði. Elma Jónatansdóttlr, Miövangi 12, Hafnarfirði. Geir Guönason, Nesgötu 33, Neskaupstaö. Guölaug Hróbjartsdóttir, Hofteigi 6, Reykjavík. Vernharöur Guðmundsson, Fífuseli 4, Reykjavík. Þuríöur Jónsdóttir, Garðatorgi 7, Garðabæ. 60 ára Birgir Orn Birgisson, Dalalandi 11, Reykjavík. Egill Ólafsson, Kaldaseli 10, Reykjavík. Guðfínna Svava Sigurjónsdóttir, Hjallabrekku 14, Kópavogi. Stefán Aðalsteinsson, Melgerði 24, Reykjavík. Steinn Lárusson, Fífumýri 7, Garöabæ. Svanhlldur Alexandersdóttir, Asparási 8, Garðabæ. 50 ára Friöþór Eydal, Lækjarhjalla 8, Kópavogi. Guöbjörg Garðarsdóttir, Garöastræti 15, Reykjavík. Guðmundur Jónsson, Æsufelli 6, Reykjavík. Hermann Guömundsson, Heiðarhrauni 1, Grindavík. Inga Erllngsdóttir, Vallarbraut 10, Seltjarnarnesi. Inga Lis Östrup Hauksdóttir, Ránargötu 30, Reykjavík. Jónas Steinþórsson, Sundabakka 7, Stykkishólmi. Þór Eiís Pálsson, Grandavegi 4, Reykjavík. 40 ára Anna Kristjana Ásmundsdóttir, Syöra-Langholti 4, Árnessýslu. Benedikt Steinþórsson Kroknes, Selvogsgötu 13, Hafnarfiröi. Birgir Arnar Birglsson, Bárugötu 20a, Akranesi. Borghlldur M. Bergvinsdóttlr, Brekkugötu 5b, Akureyri. Frlörik Bergþór Ástþórsson, Birkigrund 22, Selfossi. Guöbjörg H. Sigurðardóttir, Hraunbæ 162, Reykjavík. Hávaröur Finnbogason, Kvistalandi 22, Reykjavík. Helöa Krlstín Þ. BJarnadóttlr, Veghúsum 25, Reykjavík. Ingólfur Kjartansson, Sveinseyri, Tálknafirði. Ragnhelöur Júníusdóttir, Kársnesbraut 45, Kópavogi. Rannveig Krlstín Siguröardóttlr, Hlíöarhjalla 61, Kópavogi. Sigfús Eövald Eystelnsson, Byggöavegi 91, Akureyri. Súsanna Ernudóttir, Stekkjarholti 7, Akranesi. Fímmtugur Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld og rektor Listaháskóla íslands Hjálmar Helgi Ragnarsson, tón- skáld og rektor Listaháskóla ís- lands, er flmmtugur í dag. Starfsferill Hjálmar fæddist á Ísaíirði. Hann nam tónlist hjá íoður sínum við Tónlistarskóla ísafjarðar og síðar píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá MR 1972, BA-prófi í tónlist frá frá Brandeis University, Mass., 1974, stundaði nám í raf- og tölvutónlist við Instituut voor Sonologie í Ut- recht 1976-77, lauk MFA-prófi í tón- fræðum og tónsmíðum frá Comell University, New York, 1980 en loka- ritgerð hans fjallar um Jón Leifs, æviferil hans, störf og tónsmíðar. Hjálmar var tónlistarkennari við Tónlistarskóla ísafjarðar og MÍ og söngstjóri Sunnukórsins 1974-76; tónlistarkennari og deildarstjóri tónfræðadeildar við Tónlistarskól- ann í Reykjavík 1980-88; söngstjóri Háskólakórsins 1980-83; kennari í raftónlist við Tónmenntaskólann í Reykjavík 1981-82; borgarlistamað- ur Reykjavíkur 1988-91; og fyrsti rektor Listaháskóla íslands frá 1999. Hann sat í stjóm Islenskrar tón- verkamiðstöðvar 1983-89; var for- maður Tónskáldafélags íslands og í stjóm STEFs 1988-92; formaður full- trúaráðs STEFs 1992-94, 1996-98 og 2000-2002; varaforseti Bandalags ís- lenskra listamanna 1989-91 og for- seti samtakanna 1991-98. Þá hefur hann setið í stjóm listamannalauna frá 2001 og i stjóm Menningarsjóðs SPRON frá 1996. Meðal helstu tónsmíða hans eru Sex sönglög fyrir rödd og kammer- sveit 1978-79; Rómanza, tríó 1981; Canto fyrir þrjá blandaða kóra 1982; Fimm prelúdíur fyrir píanó 1983-85; Ave Maria fyrir blandaðan kór 1985; Messa fyrir blandaðan kór 1982-89; Tengsl, sönglög fyrir rödd og strengjakvartett 1988; Rauður þráð- ur, ballett fyrir hljómsveit 1989; Spjótalög fyrir sinfóníuhijómsveit 1989; Rhodymendia palmata, ópera 1992; Kaili og sælgætisgerðin, ópera 1991-93 (ófullgerð); Sónata, ævin- týraópera 1994; Te Deum fyrir blandaðan kór 1995; Konzert fyrir orgel og hljómsveit 1997; í svart- hvítu fyrir sinfóníuhljómsveit 2000. Hjálmar einnig samið tónlist við Fimmtug fjölmörg leikrit, m.a. Yermu, Rómeó og Júl- íu, Stóran og smáan, Pétur Gaut, Þrettándu krossferðina, Trölla- kirkju og Cyr-ano de Bergerac, og við kvik- myndirnar Tár úr steini og Sporlaust. Hann hefur enn frem- ur skrifað fjölda greina um tónlistarmálefni, menningarpólitík og náttúruvemd, og samið kvikmyndahandrit i samvinnu við aðra. Verk Hjálmar hafa verið flutt víða um heim, bæði á tónleikum og í útvarpi, og mörg þeirra hafa verið geftn út á hljóðritunum. Hjálmar fékk riddara- kross hinnar íslensku fálkaorðu 1996. Fjölskylda Kona Hjálmars er Ása Richards- dóttir, f. 19.8. 1964, framkvæmda- stjóri. Foreldrar hennar eru Jónina Júlíusdóttir, f. 20.8. 1928, fyrrv. deildarstjóri, og Richard Björgvins- son, f. 1.8. 1925, d. 23.4. 1999, við- skiptafræðingur og fyrrv. bæjarfuil- trúi. Fyrri eiginkona Hjálmars er Sig- ríður Dúna Kristmundsdóttir, f. 13.8. 1952, mannfræðingur. Böm Hjálmars em Ragnar, f. 18.9. 1978, stjórnmálafræðingur; Nína Sigríður, f. 26.6. 1992; Snorri, f. 5.10. 1993. Systur Hjálmars eru Anna Ás- laug, f. 7.11. 1946, pianóleikari í Múnchen; Sigríður, f. 31.10. 1949, skólastjóri á ísafirði. Foreldrar Hjálmars eru Sigríður Jónsdóttir Ragnar, f. 26.7. 1922, d. 10.3.1993, kennari frá Gautlöndum í Mývatnssveit, og Ragnar H. Ragnar, f. 28.9.1898, d. 24.12.1987, söngstjóri og tónlistarskólastjóri frá Ljótsstöð- um í Laxárdal i S-Þingeyjarsýslu. Ætt Föðurbróðir Hjálmars var Torfi, faðir Magnúsar hæstaréttardómara. Ragnar var sonur Hjáimars, b. á Ljótsstöðum í Laxárdal, bróður Áma, fóður Gunnars, pr. í Kópa- vogi, og afa Þórs Vilhjálmssonar prófessors. Annar bróðir Hjálmars var Sigurður, afi Jónasar Jónssonar búnaðarmálastjóra. Hjálmar var sonur Jóns, b. á Skútustöðum, Ámasonar. Móðir Jóns var Þuríður Helgadóttir, ættfoður Skútustaða- ættar, Ásmundssonar. Móðir Ragnars var Áslaug, systir Ragnheiðar, móður Snorra skálds og Torfa, fyrrv. tollstjóra. Áslaug var dóttir Torfa, skólastjóra í Ólafs- dal, Bjamasonar og Guðlaugar Zak- aríasdóttur. Sigríður var systir Böðvars, b. á Gautlöndum, og Þorláks, afa Hjáim- ars Jónssonar dómkirkjupr. Sigríð- ur var dóttir Jóns Gauta, b. á Gaut- löndum í Mývatnssveit, bróður Hólmfríðar, móður Málmfríðar Sig- urðardóttur, fyrrv. alþm. Jón var sonur Péturs, ráðherra á Gautlönd- um, bróðir Kristjáns ráðherra. Syst- ir Péturs var Rebekka, móðir Har- alds ráðherra og amma Jóns Sig- urðssonar, fyrrv. ráðherra. Pétur var sonur Jóns, alþm. á Gautlönd- um, Sigurðssonar og Sólveigar Jónsdóttur, ættfóður Reykjahlíðar- ættar, Þorsteinssonar. Móðir Jóns Gauta var Þóra Jónsdóttir, b. á Grænavatni, Jónassonar og Hólm- fríðar Helgadóttur, systur Þuríðar, móður Hjálmars á Ljótsstöðum. Móðir Sigríðar var Anna Jakobs- dóttir, systir Bjöms, stofnanda íþróttaskólans á Laugavatni. Dagný Haraldsdóttir launafulltrúi í Reykjavík Dagný Haraldsdóttir fulltrúi, Barðavogi 22, Reykjavík, er fimm- tug í dag. Starfsferill Dagný fæddist I Keflavík og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1969. Dagný stundaði skrifstofu- og af- greiðslustörf til 1983, starfaði á Pósti og síma til 1992, stundaði verslunarstörf á Kópaskeri 1992-94, var launafulltrúi og gjald- keri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar 1994-99 og hefur síðan starfað á launadeild Hrafnistu í Reykjavík. Dagný starfaði í mörg ár meö Leikfélagi Keflavíkur og var for- maður þess, sat í stjóm Alþýðu- bandaiagsins í Reykjavík, sat í miðstjóm þess og vann við kosn- ingastjóm þess í Reykjavík í tvennum kosningum. Fjölskylda Dagný giftist 13.9. 1975 Guð- mundi Axelssyni, f. 21.5. 1953, út- gerðarmanni. Dagný og Guðmund- ur skiidu. Dagný giftist 24.9. 1994 Steinari Harðarsyni, f. 8.4.1944, tæknifræð- ingi og deildarstjóra hjá Vinnueft- irliti ríkisins. Hann er sonur Harð- ar Ólafssonar, vélstjóra i Reykja- vík, og Guðrúnar Ingimundardótt- ur húsmóður. Sonur Dagnýjar og Steinars er Símon, f. 19.5. 1992. Systkini Dagnýjar eru Marta, f. 29.5. 1954, skrifstofumaður hjá sýslumanninum í Keflavík; Helga, f. 20.5. 1958, verslunarmaður í Reykjavík; Haraldur, f. 15.2. 1961, bifvélavirki og húsamálari í Kefla- vík. Foreldrar Dagnýjar: Haraldur Guðmundsson, f. 18.8. 1930, d. 21.3. 1991, iðnverkamaður í Keflavík, og k.h., Erla Sigurðardóttir, f. 3.12. 1929, fyrrv. starfsmaður við Sjúkrahús Ketlavíkur. Ætt Haraldur var sonur Guðmundar, múrara í Reykjavik, Guðmunds- sonar, b. í Sölkutóft á Eyrarhakka, Magnússonar, b. á Heimalandi í Flóa, Jónssonar. Móðir Guðmimd- ar i Sölkutóft var Rannveig Jóns- dóttir, b. á Ragnheiðarstöðum, Bjamasonar. Móðir Guðmundar múrara var Halldóra, systir Svan- hildar, móöur Sigurgeirs biskups, föður Péturs biskups. Haiidóra var dóttir Sigurðar, formanns í Neista- koti á Eyrarbakka, Teitssonar. Móðir Sigurðar var Guðrún, systir Ólafar, langömmu Jóns, toðiu’ Hannesar Jónssonar, fyrrv. sendi- herra, foður Hjálmars sendiherra. Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á Hrauni, Þorgrímssonar, b. í Holti, Bergssonar, ættfoður Bergsættar, Sturlaugssonar. Móðir Guðrúnar var Ólöf Jónsdóttir, hálfsystir Þor- kels, langafa Salóme Þorkelsdótt- ur, fyrrv. alþingisforseta. Móðir Haralds var Marta Þor- leifsdóttir, múrara í Reykjavík, Ámasonar, hreppstjóra í Grænu- mýrartungu, Einarssonar, b. í Há- túni á Vatnsleysuströnd, Jónsson- ar. Móðir Mörtu var Helga Helga- dóttir, sjómanns á Kötluhóli, Áma- sonar. Meðal systkina Erlu má nefna Sigurð Sigurðsson, fyrrv. íþrótta- fréttamann. Erla er dóttir Sigurð- ar, kaupmanns í Þorsteinsbúð í Reykjavík, bróður Hildar, móður Guðna, fyrrv. rektors MR. Sigurð- ur var sonur Sigurðar, útvegsb. í Seli í Reykjavík, Einarssonar, af Bollagarðaætt. Móðir Erlu var El- ísabet Böðvarsdóttir, bakara í Hafnarfirði, Böðvarssonar og Sig- ríðar Jónasardóttur, b. í Drangs- hlíð, Kjartanssonar, pr. i Ytri-Skóg- um, Jónssonar. Móðir Jónasar var Sigríður Jafetsdóttir, stúdents í Ytri-Skógum, Högnasonar. Móðir Sigriðar var Ragnhildur Sigurðar- dóttir, pr. á Heiði í Mýrdal, Jóns- sonar. Móðir Ragnhildar var Sig- ríður Jónsdóttir eldprests Stein- grimssonar. Ray Charles 72 ára Eðaisöngvarinn Ray Charles á afmæli í dag. Charles hefur verið biindur frá því hann var sjö ára gamall. Hann nýtur mikillar virðingar meðal kollega sem og almenn- ings og þykir einn fremsti soulsöngvari sem uppi hefur verið. Mörg lög hefur Charles gert þekkt en frægast er I Can’t Stop Loving You frá árinu 1962. Charles hefur tvisvar giftst og á níu böm. Um tónlistina segir hann: „Ég fæddist með tónlistina í mér. Ef ætti að aðskilja hana frá mér þyrfti ég að fara á skurðarborðið." Gildir fyrir þriöjudaginn 24. september Vatnsberinn 120. ian.-18. febr.l: Hvort sem þér líkar betur eða verr eru það mál annarra en þín sem verða í brennidepli í dag. Þú stendur svo sannarlega ekki einn. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: I Hugmyndaflug þitt er með mesta móti, sérstaklega hvað varðar endurbætur á heimiíinu. Vertu óhræddur við að taka ákvarðanir. Hrúturinn (21. mars-19. apríll: Þú þarft að gæta að öðrum. Þú hefur um nóg að hugsa í dag en það er ekki sama hvemig þú gerir hlutina. Happatölur þínar eru 12,14 og 29. Nautið 170. april-20. maíl: Þú ert orkuminni en venjulega og ættir ekki að taka að þér erfið verkefni. hiningamálin eru í einhverjiun flækjum. Tvíburarnir m. maí-21. iúníi: Þú verður fyrir y^^vonbrigðum í dag en I kvöldið bætir það margfait upp. Farðu samt varlega í mannlegum samskiptum. Krabbinn (??. iúni-??. iúin: Þú hefur óþarflega mikl- ar áhyggjur af sjálfum þér. Þú ættir að leita _____ leiða til að auka sjáifs- traust þitf. Það er gott að deila áhyggjum sínum með góðum vinum. Liónlð 123. iúli- 22. áeústl: SSKSBSk Mtur út fyrir að þú verðir ekki valda- mikill í dag og látir aðra um að taka forystuna. Þér hættir til að vera kærulaus varðandi eigur þínar. Mevian (23. ágúst-22. sept.l: Nú er rétti tíminn til að taka ákvarðanir ^^^■.varðandi fjölskylduna ^ f og heimilið. Þú þarft að sýna lipurð í samskiptum. Þú færð fréttir af vini í fjarlægð. Vogln (23. sept.-23. okt.l: Þú verður mjög metnaðargjam í dag en verður samt að gæta þess að ganga ekki á rétt annarra. Happatölur þínar eru 9, 13 og 17. Snorðdrekl (?4. okt.-2i. nóv.i: Nú er öll áhersla lögð á að rækta vinskapinn en þú ættir að varast að blanda viðskiptum inn í þáu mál. Samvinna hentar þér vel í dag. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: ,Ef þú ert ósammála einhveijum skaltu fylgja eigin sann- færingu. Ráð annarra munu ekki duga þér. Það hjálpar þér hve þú ert rólegur. Stelngeltin (22. des,-19. ian,): Þú hefur ekki mikinn tima fyrir sjálfan þig þar sem fjölskyldan þarfnast allra krafta þinna. Kvöldið lofar góðu og rómantikin blómstrar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.