Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Fréttir
íslensk erfðagreining sagði upp 200 starfsmönnum. Gengi deCode rauk upp:
Tekjur af rannsóknum
standi undir rekstrinum
- níu milljarða samningur við lyfjafyrirtækið Merck markar tímamót
Gengi deCode, móðurfélags
íslenskrar erfðagreiningar hækkaði
verulega í gær eftir að fréttir bárust
um hagræðingu í rekstri og
mikilvægan samstafssamnings.
íslensk erfðagreining sagði í gær
upp 200 manns sem þýðir að fjöldi
starfsmanna fer úr 650 í 450. Tóku
uppsagnirnar strax gildi. Nær allir
umræddir starfsmenn voru á fjög-
urra mánaða uppsagnarfresti og
fengu hann strax gerðan upp.
Uppsagnirnar eru liður í endur-
skipulagningu fyrirtækisins. í til-
kynningu frá íslenskri erfða-
greiningu segir að ákveðið hafi verið
að hagræða í rekstri og stefna að já-
kvæðu fjárstreymi frá rekstri strax á
næsta ári. Erfltt er að fá áhættufé á
hlutabréfamörkuðum þar sem
fjárfestar eru ekki eins þolinmóður
og fyrir nokkrum árum. Því sé
nauðsynlegt að erfðafræðirannsóknir
og ýmsar þjónusturannsóknir fyrir
lyfjageirann skili fyrirtækinu um-
talsverðum tekjum og er gert ráð fyr-
ir að þær dugi til að fjármagna rekst-
urinn með um 450 starfsmenn.
Undanfarið hefur verið lögð
sérstök áhersla á að auka sjálfvirkni
og framleiðni í grunnrannsóknum
fyrirtækisins og því ekki búist við að
þessar aðgerðir minnki framleiðnina
svo nokkru nemi. Hins vegar gerðu
þær fyrirtækinu kleift að viðhalda
Eitt verðmætasta
fyrirtækið
Lyfjafyrirtækin Pharmaco hf. og
Delta hf. sameinuðust formlega í
gær undir nafni Pharmaco hf. Áætl-
að markaðsvirði hins nýja félags í
Kauphöll íslands er um 43 milijarð-
ar króna, að því er kom fram hjá
forsvarsmönnum þess í gær. Þetta
mun þvi vera eitt verömætasta fyr-
irtæki landsins.
Samruni fyrirtækjanna var sam-
þykktur á hluthafafundi í Delta í
fyrradag og í Pharmaco 22. ágúst
síðastliðinn. Starfsemi nýja félags-
ins verður tvískipt. Róbert Wessm-
an, forstjóri Delta, verður forstjóri
rekstrar og Sindri Sindrason, for-
stjóri Pharmaco, verður forstjóri
fjárfestinga. Starfsmenn eru um
5.300 talsins og samanlögð ársvelta
fyrirtækjanna á þessu ári er áætluð
24,6 milljarðar króna.
I október næstkomandi tekur ný
lyfjaverksmiðja dótturfyrirtækisins
Balkanpharma til starfa í Dupnitza
í Búlgaríu. Þegar verksmiðjan
kemst í gagnið verður heildarlyfja-
framleiðsla nýja fyrirtækisins 13,6
milljarðar taflna, þ.e. um 10 millj-
arðar í Búlgaríu, um 2,5 milljarðar
hjá dótturfyrirtækinu Pharmamed
á Möltu og um 1,1 milljarður í verk-
smiðjum Delta og Omega Farma á
íslandi. -JSS
Genginhækkun
Gengi deCode, móöurfélags íslenskrar erföagreiningar, hækkaði verulega í gær
eftir aö fréttir bárust um hagræöingu í rekstri og mikilvægan samstarfssamning.
sterkri lausafjárstöðu á meðan niður-
stöður erfðafræðirannsókna fyrir-
tækisins verða nýttar til þróunar
nýrra meðferðar- og greiningarúr-
ræða.
Gengið rauk upp
Fréttirnar af fækkun starfsfólks ís-
lenskrar erfðagreiningar höfðu strax
áhrif á gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum
vestanhafs. Gengið hafði verið á sí-
felldri niðurleið undanfarnar vikur
og mældist lægst 1,60 fyrr í vikunni.
í fyrradag v£ir lokagengið 1,82 en við
opnun markaða í gærmorgun rauk
gengið strax upp í 2,30. Um miðjan
dag var gengið komið í um 2,40 doll-
ara á hlut en seig aðeins aftur þegar
leið á daginn. Það var 2,19 þegar
blaðið fór í prentun í gærkvöld og
nam hækkunin þá 20,3 prósentum
Mest nam hækkunin tæplega 50 pró-
sentum.
Samstarf um offiturannsóknir
Á sama tíma og hagrætt var með
uppsögnum tilkynnti íslensk erfða-
greining um umfangsmikið samstarf
við fyrirtækið Merck & Co. en hvort
fyrirtæki um sig er leiðandi á sviði
erfðafræði og lyfjaþróunar. Er þetta
stærsti samningur sinnar tegundar
sem gerður hefur verið í heiminum
í 2 ár. Munu fyrirtækin vinna sam-
an að rannsóknum á erfðafræði
offitu og leita lyfjamarkaða sem
hægt er að hafa áhrif á með nýjum
lyfjum. Markmið samstarfsins, en
samningur þar um er til þriggja ára,
er að flýta uppgötvun nýrra lyfja
gegn offltu sem er orðið eitt alvar-
legasta heilbrigðisvandamál Vestur-
landa. Samstarflð mun afla Islenskri
erfðagreiningu umtalsverðra tekna
en verðmæti samningsins gæti orðið
allt að 90 milljónir Bandaríkjadoll-
ara, eða ríflega 9 milljarðar króna.
Þeir sem gerst þekkja segja að auk
samningsins sem slíks hafi verið
afar mikilvægt fyrir deCode, móður-
félag íslenskrar erfðagreiningar, að
sýna sérfræðingum fjármálamarkað-
arins vestanhafs fram á að mögulegt
væri að gera meiri háttar samstarfs-
samninga við önnur lyfjafyrirtæki
en Hoffman La Roche.
Nú sé slíkur samningur í höfn og
menn því bjartsýnni á gengi deCode
á mörkuðum.
-hlh/JSS
DV-MYND ÞÖK
Formleg sameining
Gengiö var formlega frá sameiningu Pharmaco hf. og Deltu hf. í gær. Margir voru viöstaddir þá sögulegu stund þegar þessi
tvö lyfjafyrirtæki runnu undir einn hatt. Þeirra á meöal var Björgólfur Thor Björgólfsson, sem sést hér fremstur á myndinni.
Vestfirðingar gefa Byggðastofnun falleinkunn:
Neikvæðu málin hafa áhrif
- segir bæjarstjórinn á ísafirði - ákveðin vonbrigði, segir Kristinn H. Gunnarsson
Byggðastofnun fær falleinkunn hjá
Vestfirðingum ef marka má niður-
stöður nýrrar skoðanakönnunar sem
vefmiðill Bæjarins besta á ísafirði
stendur fyrir. Þegar tæplega 300
manns höfðu svarað spurningunni:
Finnur þú fyrir jákvæðum áhrifum
Byggðastofnunar á vestfirskar byggð-
ir? höfðu hátt i 80% svarenda sagt
nei, 15,59% svarað játandi en 5,76%
enga skoðun haft á málinu.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á
ísafirði, segir að ein skýringin á þess-
ari neikvæðni sé að almenningur á
Vestfjöröum skynji ekki starfsemi
Byggðastofnunar. Þorri fólks hafi
ekki samskipti við stofnunina og auk
þess hafl umræðan um hana verið
neikvæð síðustu misserin sem hljóti
aö hafa áhrif. „Ég held líka að fóík á
Vestfjörðum sé orðið dálítið þreytt á
þessum byggðamálum og byggðaá-
ætlunum. Það vigtar eflaust líka inn
í þessi sjónarmið," segir Halldór.
Bæjarstjórinn bendir einnig á að
opinber umræða sé oft á þann veg að
Vestfiröingar upplifi að þeir þurfi að
verja að Byggðastofnun veiti fjár-
magni til svæðisins en hitt þyki hon-
um sýnt að starfrækja beri Byggða-
stofnun áfram þótt deila megi um ár-
angurinn.
Ákveðin vonbrigði
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks-
ins, hefur setið lungann af kjörtíma-
bilinu sem stjórnarformaður
Byggðastofnunar. Hann segir að
niðurstöðumar séu ákveðin von-
brigði en bendir á að könnun sem
þessi sé ekki hrein vísindi þar sem
aðeins þeir svari spumingunni sem
vilji svara henni. „Hins vegar held
ég að meginskýringin á þessu sé sú
að öll atvinnuþróun á Vestfjörðum
er niður á við. Það finnur almenn-
ingur,“ segir Kristinn.
Kristni hefur verið borið á brýn
að hafa hyglað Vestfirðingum um of
meðan hann sat sem stjómarfor-
maður Byggðastofhunar en hann
segir að þessi niðurstaða sýni að
það sem stofnunin hafi gert til að
byggja upp atvinnumál hafi ekki
dugað til. -BÞ
bjíivai/ÍvJJ
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 19.08 18.50
Sólarupprás á morgun 07.30 07.17
Síödegisflóö 22.20 14.32
Árdegisflóð á morgun 11.00 02.53
Fremur hæg vestlæg eða breytileg
átt og smáskúrir en úrkomulítið
austanlands. Suöaustan 5-8 m/s og
fer aö rigna vestanlands síðdegis.
Hiti 2 til 10 stig.
Rigning eða skúrir
Sunnan 5-10 m/s og rigning eða
skúrir en skýjaö og úrkomulítið á
austanverðu landinu. Hiti 7 til 10
stig.
miu shijþj
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
a
HHi 8'
Hiti 9“
Hiti 9“
til 13" tii 12° til 11°
Virtdur: 5-101"V* Vindur: 5-10 "V* Vindur: 5-10“/»
Á t t
Suöaustanátt og rigning sunnan- og vestanlands en skýjaö meö köflum og þurrt noröaustan til á landinu. Hlti 8-13 stig. Suölæg átt og vætusamt, einkum sunnarv og vestanlands. Fremur Wýtt í veöri. SuÖlæg átt og vætusamt, einkum sunnarv og vestanlands. Fremur hlýtt í veöri.
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13.9- 17,1
17,2-20,7
20,8-24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
AKUREYRI skýjaö 8
BERGSSTAÐIR skýjaö 10
BOLUNGARVÍK skúr 8
EGILSSTAÐIR skýjaö 11
KIRKJUBÆJARKL. súld 8
KEFLAVÍK þokumóöa 9
RAUFARHÖFN léttskýjaö 8
REYKJAVÍK skýjaö 9
STÓRHÖFÐI súld 9
BERGEN rigning 12
HELSINKI skýjaö 9
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 12
ÓSLÓ skýjaö li
STOKKHÓLMUR 10
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 12
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 5
ALGARVE skýjaö 22
AMSTERDAM skýjaö 16
BARCELONA léttskýjaö 23
BERLÍN skýjaö 12
CHICAGO þokumóða 15
DUBLIN léttskýjaö 16
HAUFAX skúr 14
FRANKFURT skúr 12
HAMBORG skýjað 13
JAN MAYEN súld 4
LONDON alskýjaö 17
LÚXEMBORG skýjað 14
MALLORCA léttskýjaö 25
MONTREAL heiöskirt 14
NARSSARSSUAQ 2
NEW YORK þokumóöa 16
ORLANDO skýjaö 25
PARÍS skýjað 16
VÍN skýjaö 14
WASHINGTON þokumóða 14
WINNIPEG alskýjað 2