Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Helgarblað DV
•i
Hvar verður tónlist hans flokkuð í fraiiitíðinni? Verður hann
svanur?
Tónlist
Ljóti andar-
unginn
Skemmtitónlist í háum gæðaflokki
Píanóleikarinn og tónsmið-
urinn Jacques Loussier hefur
leikið sína útgáfu af sígildum
tónverkum i meira en fjóra
áratugi. Að námi loknu lék
hann víða um heim, m.a. sem
undirleikari Catherine
Sauvage og Charles Aznavour.
Sígildu tónlistina lét hann bíða
en lék því meira með sígauna-
hljómsveitum. Árið 1959 stofn-
aði hann svo Play Bach-tríóið
sem sameinaði djassáhuga
hans og túlkun á verkum J.S.
Bachs.
Tríóið ávann sér ótrúlega
hylli, þrátt fyrir það að djass-
áhugamenn teldu Loussier
ekki leika djass og aðdáendur
sigildrar tónlistar væru langt
frá því -að vera hressir með
túlkun hans á Bach. En hér var
komin ný gerð af skemmtitón-
list sem ekki var hægt að
flokka sérstaklega. Á þremur
árum, 1960-63, hljóðritaði trió
Loussiers fjórar plötur fyrir
Decca hljómplötufyrirtækið.
Þessar plötur lögðu grunninn
að gífurlegum vinsældum. Á
fimmtán árum seldust rúmlega
sex milljónir eintaka af þessum
plötum.
Vinsældirnar urðu til þess
að Loussier lagði tríó sitt niður
árið 1978 og naut afrakstursins
á heimili sínu í Provence. Þar
byggði hann hljóðver þar sem
stjörnur poppsins voru fasta-
gestir. Þeirra á meðal voru
Elton John, Pink Floyd, Sting
o.fl. Jacques Loussier sneri sér
að tónsmíðum en illa gekk að
koma þeim á framfæri. Á af-
mælisári Bachs, 1985, stofnaði
hann því nýtt tríó sem hefur
m.a. hljóðritað verk eftir Bach,
Scarlatti og Hándel, og það var
þetta tríó sem heimsótti okkur
20. sept. Það er nú skipað þeim
André Arpino trommuleikara
og bassaleikaranum Benoit
Dunoyer de Segonzac.
Ekki verður sagt annað en
að þessir félagar Loussiers séu
frábærir tónlistarmenn. Bassa-
leikarinn, de Segonzac, spilaði
afburðahreint og fallega. Þegar
hann, einstaka sinnum, fékk
tækifæri til að leika sínar eigin
línur og djassa örlítið kom i
ljós að hann er einn af betri
bassaleikurum sem hafa sótt
okkur heim. Hann „skálmaði"
og „blúsaði" eins og best gerist,
en á tónleikunum fékk hann
aðeins eitt tækifæri og það að-
eins í nokkra takta.
Arpino sýndi frábæran leik.
Hann lék að mestu leyti eins og
slagverksleikari í sígildum tón-
listarflutningi, en grunnurinn
var mögnuð djasstilfinning
sem því miður fékk ekki að
njóta sín til fulls.
Jacques Loussier hefur
stækkað tónverkaskrá tríósins
undanfarin ár. Auk Goldberg-
tilbrigða Bachs verða nú Al-
binoni, Pachelbel, Scarlatti og
Handel fyrir barðinu á sveiflu-
meðferð þeirra félaga. Þá lék
trióið verk byggð á frönskum
tónverkum eftir Satie, Debussy
og Ravel. Loussier virtist
kunna best við sig i útfærslu
sinni á verki Saties en áheyr-
endur fógnuðu mest flutningi
tríósins á Bolero eftir Ravel
þar sem de Segonzac laumaði
inn kunnuglegum línum eftir
Charles Mingus á skemmtileg-
an hátt.
Það er erfitt að heimfæra út-
gáfur Loussiers á sígildum tón-
verkum. Þetta er skemmtileg
og leikandi tónlist sem varla
telst til djassverka - persónu-
leg túlkun á sígildum verkum
sem varla telst til dægurtónlist-
ar. Ferill Jacques Loussiers
minnir óneitanlega á sögu H.C.
Andersens um Ljóta andarung-
ann, en það er bara óvíst hvar
tónlist Loussiers verður flokk-
uð þegar þar að kemur.
Næsta tilraun Loussiers til
að nálgast djasstónlistina verð-
ur í Þýskalandi í næsta mánuði
þegar Dave Brubeck og
Jacques Loussier leika „Brand-
enburgarkonsert" eftir Brueck
á tónleikum.
Ólafur Stephensen
Tríó Jacques Loussiser lék í Háskóla-
bíói 20.9. 2002: Loussier, pno, Benoit
Dunoyer de Sogonzac, bs, Andrc Arp-
ino, trm.
04/1999 • Ekinn 74 þús. km
Verð 990.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 730.000 kr.
06/2001 • Ekinn 21 þús. km
Verð 1.340.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 1. 150.000 kr.
04/1999 * Ekinn 69 þús. km
Verð 1.020.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 730.000 kr.
02/1999 • Ekinn 77 þús. km
Verð 1.120.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 880.000 kr.
02/1999 • Ekinn 71 þús. km
Verð 1.140.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 880.000 kr.
04/1999 • Ekinn 87 þús. km
Verð 970.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 730.000 kr.
NISSAN ALMERA GX
I 1/1999 • Ekinn 75 þús. km
Verð 790.000 kr.
TILBOÐSVERÐ 620.000 kr.
tilboðs-
bílar!
Ingvar Helgason
notaðir bílar
Sævarhöfða 2 • Sími 525 8020 ■ www.ih.is/notadir
Gólfefna
25-40%
2.990 kr./m2
Flís Almonia.
Amadeus.
Mottur
25 til 50% afsláttur,
mikiö úrval, margar stærðir.
Lamella parket
Eik Country Verð 2.890 kr./m2
Beyki Standard verð 2.990 kr./m2
Merbau Classic verð 3.995 kr./m2
Barnamottur
30% afsláttur
1.390 kr.
Rykmottur 60x90.
Heimilisdúkar
Verð frá 1.150 kr./m2
Verð frá
m
Alloc Smelluparket.
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
2.495 kr./m2