Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Blaðsíða 45
^ T?:iLiL^N^£íiVir/
BILASALAN SKEIFAN
• BÍLDSHÖFÐA 10 •
S: 577 2800 / 587 1000
LAUGARDAGUR 28.
SEPTEMBER 2002 l~~Í ÍCj arblaö TL>V 4 «9 ^
Nýr Audi 54 í París
Audi hefur svipt hulunni af nýrri
sportútgáfu A4 línunnar. Nýr Audi
S4 var frumkynntur á bílasýning-
unni í París í vikunni og eins og fyr-
irrennari sinn verður Audi S4 fram-
leiddur sem hlaðbakur og stallbak-
ur. Stærsta nýjungin í nýjum S4 er
vafalaust vélin, en hún er 4,2 lítra
V8 bensínvél sem skilar 344 hestöfl-
um við 7000 snúninga. Með sex gíra
handskiptum gírkassa er hröðunin í
hundraðið aðeins 5,6 sek. Vélin er
aðeins 464 mm að lengd og mun hún
vera fyrsta vélin af þessari stærð-
argráðu til að passa i bil í þessum
flokki. V8 vélin vegur aðeins 195 kg
en það er álíka og 2,7 lítra V6 vélin
sem er í fyrirrennara S4. Vélin hef-
ur mikið tog en hámarkstogi nær
vélin við 3500 snúninga eða 410 Nm.
Framluktir eru með Xenon-ljósum
og titaniumlituðum ljóskerum.
Speglar og krómlistar gefa bílnum
síðan mjög sterkan og ákveðinn
svip sem greinir hann frá öðrum
gerðum Audi. -NG
Nýtísku Nissan Micra
Nýjasta tíska er þema Nissan á
bílasýningunni í París og besta vís-
bendingin um það er ný tilraunaút-
gáfa Micra með fellanlegu þaki. Bill-
inn mun heita Micra C+C og bætist
hugsanlega við nýja framleiðslulínu
Micra sem væntanleg er á markað á
næsta ári. C+C er hugsaður fyrir
borgarbúa sem vilja útlit og stíl
opna bílsins án þess að þurfa að
fóma öryggi eða þægindum. Bíllinn
mun keppa við hinn vinsæla Peu-
geot 206 CC og verður með sætum
fyrir fjóra. Ef billinn fer á markað
er líklegt að hann fái e-4WD vélina
sem kynnt var í Tokyo í fyrra en
það er tveggja lítra vél með sex gíra
kassa eða valskiptingu. Afl vélar-
innar fer þá beint til framhjólanna
en þegar þörf er á drífa rafmótorar
afturhjólin áfram. í þessum litla bíl
verður upptakið gott en hann ætti r
að fara í hundraðið á sjö sekúndum.
Hjólahafið er 72 mm lengra en í
nýrri Micra sem þýðir meira pláss í
aftursætum og farangursrými.
Einnig eru aftursæti á sleða til að
auka fjölnýtimöguleika hans. -NG
Forvitnilegur sportbíll meö dísilvél
Lítíll og ódýr sportbíll frá Smart
Smart er lítill bílaframleiðandi
með litla bíla en stóra drauma.
Hann frumsýndi á bílasýningunni í
París lítinn sportbíl með vélina aft-
ur í, líkt og aðrir bílar fyrirtækisins.
Bíllinn var frumsýndur sem til-
raunabíll fyrir tveimur árum og er
lítil breyting á bílnum sem fer í
framleiðslu. Hann er á lengri undir-
vagni en er samt sem áður einn
minnsti bíll á evrópskum bílamark-
aði. Bíllinn er byggður á Tridion
stálgrind og eru ýmsir hlutar yfir-
byggingar úr plasti þótt hurðir séu
úr áli. Afturgluggi hallar skáhallt
aftur og bognar svo beint niður til
að auka útsýni. Farangursrými eru
tvö, 59 lítra í nefinu og 189 lítra í
skottinu bak við vélina. Litla þriggja
strokka vélin hefur stækkað úr 599
rúmsentímetrum í 698 rúmsentí-
metra og er nú 81 hestafl. Bíllinn er
aðeins 790 kíló og er þvi 103 hestöfl
á tonnið sem ætti að gefa honum
nokkuð líflega framkomu. Eyðsla í
blönduðum akstri á að vera undir
5,5 lítrum á hundraðið. Bíllinn fer á
markað í Evrópu á vormánuðum og
mun verðið fyrst verða aðeins 1,3
milljónir króna. -NG
Meðal forvitnilegustu bíla sem
frumsýndir eru í París er Opel Eco-
Speedster tilraunabillinn sem er
sportbíll með dísilvél. Opel notar bíl-
inn til að kynna fjórar nýjar dísilvél-
ar sem væntanlegar eru á þessu og
næsta ári. Þær eru allt að 177 hestöfl
en vélin í sportbílnum er 1,3 lítra
einbunuvél með mikinn hámarks-
hraða en litla eyðslu. Vélin, sem er
112 hestöfl, skilar þessum 660 kg bíl
í rúmlega 250 km hámarkshraða
meðan eyðsla í blönduðum akstri
var aðeins 2,5 lítrar á hundraðið.
Vélin er afurð samstarfsverkefnis
Fiat og GM og kemur á markað á
næsta ári. Tilraunabíllinn byggir á
Speedster sportbílnum og er meö
vélina fyrir miðju. Mikið hefur ver-
ið lagt í að bæta loftflæði og náðu
hönnuðir Opel að lækka loftmót-
stöðu bílsins í 0,20 Cd. -NG
Toyota Land Cruiser 100 VX, 4700 Volvo S40, 2000 cc, 05/97,
cc, bensín, 07/00, ssk., ek. 67 þ. km. álfelgur, spoiler,
ek. 42 þ. km, ssk., leðuráklaeði, topp- dráttarkúla.
lúga, tölvustýrð fjöðrun og margt fleira. Verð 1.290.000
Verð 5.590.000
Peugeot 406 st, 2000 cc, bsk., 07/99,
ek. 61 þ. km. ABS, álfelgur, spoiler,
dráttarkúla.
Verð 1.320.000
Range Rover HSE, 4600 cc, 05/00,
ek. 23 þ. km, ssk., leðuráklæði,
topplúga, stillanleg fjöðrun,
dráttarkúla ásamt mörgu fleira.
Verð 5.700.000
Subaru Legacy 2000 cc, bsk., 10/00, Musso Grand luxe, 2900 cc, dísil,
ek. 25 þ. km, dráttarkúla, spoiler. beinskiptur, 03/00,
Verð 1.890.000 ek. 68 þ. km. Viðarmælaborð,
topplúga, dráttarkúla.
Verð 2.490.000
Hil
1H T9ÖÖ1
Nýr Subaru Forester
kynntur um helgina
Um helgina verður kynning á nýj-
um Subaru Forester hjá Ingvari
Helgasyni hf. Nýr Subaru Forester
kemur nú með nýju og gjörbreyttu
útliti, jafnt að utan sem innan. For-
ester hlaut meðal annars hæstu ein-
kunn hjá IIHS í Bandaríkjunum í
árekstrarprófl þeirra fyrir öryggi
ökumanns og farþega. Eitt af aðals-
merkjum Subaru Forester hefur ver-
ið mikil veghæð en jafnframt lágur
þyngdarpunktur sem gerir Subaru
Forester að góðum kosti þegar velja
á bíl sem nýtur sín mjög vel við all-
ar aðstæður. Að sögn Ragnars F.
Valssonar, sölufulltrúa hjá Ingvari
Helgasyni, hefur nýr Forester þegar
vakið mikla eftirvæntingu og hafa
nú þegar verið gerðar fjölmargar
pantanir á nýjan Subaru Forester.
„Grunnverð bílsins er 2.559.000 kr.
og þá 2.689.000 kr. sjálfskiptur. Lux-
ury útgáfan kostar svo 2.949.000 kr.
en hún er hlaðin aukabúnaði eins og
álfelgum, topplúgu, þokuljósum
o.fl.“ sagði Ragnar.
Skuldir
Daewoo
afskrifaöar
Lánardrottnar hins gjaldþrota
Daewoo-bílaframleiðanda ætla að
afskrifa stóran hluta skulda fyrir-
tækisins. Fyrirtækið er mjög
skuldsett svo ekki sé meira sagt,
skuldar 1400 milljarða króna, en
lánardrottnar munu afskrifa 77%
þeirra. Er þá síðustu hindruninni
rutt úr vegi svo að GM geti fjár-
fest í fyrirtækinu. Búist er við að
GM hefji endurreisn Daewoo í
næsta mánuði ásamt Suzuki bíla-
framleiðandanum og mun nýja
fyrirtækið heita GM Daewoo Auto
& Technology. Afgangur skulda
Daewoo verður greiddur með
rútu- og vörubílaframleiðslu Da-
ewoo og Pupyong-bílaverksmiðj-
unni sem ekki eru hluti af samn-
ingnum við GM. -NG
Blæjugerð bjöllunnar væntanleg
Blæjugerð bjöllunnar, New
Beetle Cabriolet, er meðal þeirra
bíla sem sýndir eru á bílasýning-
unni í París og mun koma á Evr-
ópumarkað á fyrsta ársfjórðungi
2003. Nýja Bjallan byggist á sterk-
um stoðum því hún kemur í kjöl-
far tveggja af mest seldu blæjubíl-
um í heimi, Golf Cabriolet og
blæjugerð gömlu bjöllunnar. í
bílnum verður boðið upp á fjöl-
hæfa notkun aftursæta, sem gefur
aukna möguleika á að flytja hluti,
og veltigrind sem kemur sjálf-
krafa upp ef bíllinn lendir í
óhappi. Heilsársblæjan er meðal
annars með upphitaðri afturrúðu
úr gleri. Nýja Bjallan verður fáan-
leg á Þýskalandsmarkaði með
fjórum vélum, þremur bensínvél-
um og einni dísilvél, með aflsvið
frá 75 upp í 115 hestöfl. Líkt og á
eldri gerð bjöllunnar liggur blæj-
an á ímyndaðri miðsúlu. Þessi
hönnun er gerð með ráðnum hug
til að undirstrika tengslin við
klassísku bjölluna. Á hinn bóginn
ber miklu minna á þessari blæju
þegar hún er brotin saman. Að
sögn Jóns Trausta Ólafssonar,
kynningar- og blaöafulltrúa
Heklu, verður hægt að sérpanta
blæjubjölluna frá Volkswagen í
apríl á næsta ári. „Við gerum
ekki ráð fyrir mikilli sölu á þess-
um bíl en þó er ljóst að þær blæju-
bjöllur sem við tökum inn eiga
eftir að vekja mikla eftirtekt.
Verð á blæjubjöllunni liggur ekki
fyrir fyrr en í vor,“ sagði Jón
Trausti. -NG