Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Qupperneq 25
LAUGARD AGU R 28. SEPTEM BER 2002
H&lgctrblað I>’V
25
DV-myndir E.Ól.
Anna Vala mælir með chiliá-
vexti með lifrinni og chiliið
sker hún smátt áður en hún
kryddar með því.
Ekki er sama hvernig matur er
reiddur fram. Anna Vala býr
sig undir að skreyta diskinn og
gera matinn með því lystugri.
Steikt lifur er fljótlagaður mat-
ur enda á hún að stoppa stutt á
pönnunni. Þegar þessi réttur er
útbúinn er því best að byrja á
að sulta rauðlaukinn.
Einstakt bragð frá Bordeaux
og ávaxtaríkt frá Suður-Afríku
- er val Ómars og Steinþórs hjá Rafkóp-Samvirki
Það kann að hljóma undarlega en það er ekki
oft sem vín frá Frakklandi hafa verið til umfjöll-
unar á þessum vettvangi, landi sem öðru fremur
hefur verið tengt vínframleiðslu. Áherslan hefur
gjarnan verið á vín frá ítaliu og Spáni auk vína
frá Chile, Ástralíu og Bandaríkjunum. Enda úr-
valsvín sem þaðan koma og falla landanum vel í
geð. En nú bregðum við okkur í franskar stelling-
ar og skellum okkur til Bordeaux, þar sem vín-
hjartað slær.
Þeir Ómar S. Gíslason og Steinþór Einarsson
hjá Rafkóp-Samvirki sögðust ekki í vafa þegar DV
leitaði til þeirra, hugurinn leitaði strax upp í hlíð-
ar Saint Germain í Bordeaux. Þaðan kemur úr-
valsvínið Chateau Jonqueyres sem er djúprautt
að lit, með fjólubláum kanti. Hinn heimsþekkti
vínmeistari Michel Rolland hefur nostrað við
þetta einstaka vín líkt og gert er við stóru Bor-
deaux „boltana" þar sem berin eru handtínd í litl-
ar körfur á besta þroskastigi. Blanda af Merlot og
Cabernet Sauvignon þrúgum er látin liggja á eik-
artunnum í eitt ár og síðan síuð með eggjahvítu.
Vínið hentar mjög vel með lambakjöti og
smellpassar með lambalifur. Það yfirgnæfir ekki
villibráðarbragðið af lambakjötinu, sem er mikil-
vægt, en bætir við þessu einstaka bragði sem
frönsk vín eru þekkt fyrir og allt of margir hafa
gleymt. Chateau Jonqueyres er verðugur fulltrúi
franskrar víngerðar á veisluborðum vetrarins.
Chateau Jonqueyres fæst í flestum verslunum
ÁTVR á höfuðborgarsvæðinu og kostar flaskan
1.350 krónur.
Frá Frakklandi liggur leiðin langt í suður, til
Suður-Afríku. Edonia Ruby Cabernet er vín
sem kemur frá Coastal Region i Suður-Afr-
íku, frá svæði þar sem heitt Indlandshaf-
ið og kalt Atlantshafið mætast. Þessar
andstæður móta veðurfar svæðisins og
gróður þess og hentar Ruby Cabernet
þrúgunni mjög vel. Edonia Ruby Caber-
net hefur i meðallagi opinn og unglegan
ilm. Soðnir ávextir og kirsuberjasulta
koma gjarnan upp í hugann. Vinið ein-
kennist annars af mjúku tanníni og endist
þægilega án þess að yfirgnæfa matarbragð-
ið. Það fer vel með rauðu kjöti og grillmat.
Suður-afrísk vín hafa verið á mikilli upp-
leið undanfarin ár og falla þau unnendum
góðra vína vel í geð. Edonia Ruby Cabernet
er i sölu í flestum verslunum ÁTVR og
kostar 1.300 krónur.
í báðum tilfellum er að um að ræða vin
í verðflokki þar sem gera má sannkölluð
kjarakaup, fá hreint út sagt afbragðsvin
miðað við verð.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson