Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Side 30
30
H&lgarblað JOV
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Verður Leeds
hindrun fyrir Arsenal?
Milan Baros hefur verið að fá tækifæri með Liverpoolliðinu og nýtt þau með því að skora nokkur inörk.
Verður Leeds einhver hindrun fyrir Arsenal? Pat-
rick Viera, leikmaður Arsenal, hefur í það minnsta
ekkert sérstakar áhyggjur af þvi og segir að Arsenal
geti unnið hvaða lið sem er. Liðin mætast á Elland
Road í dag en Arsenal verður án Martins Keowns,
sem er meiddur, en i hans stað mun koma Pascal
Cygan sem leikur þar með sinn fyrsta leik fyrir fé-
lagið. Þá verður Dennis Bergkamp ekki með vegna
meiðsla. Hjá Leeds-liðinu koma þeir Matteo og
Kewell aftur inn og þá verður Alan Smith með þrátt
fyrir að hafa meiðst í tapleiknum gegn Blackbum.
Liverpool mætir sínum gamla liðsmanni Kevin
Keegan og lærisveinum hans í Man. City í
Manchester. Leikmannahópur Liverpool er ekki
árennilegur en þeir mæta með sitt sterkasta lið, fyr-
ir utan að Smicer er meiddur, en þrátt fyrir þennan
sterka hóp hefur liðið ekki náð að sýna það sem í því
býr. Það eru skörð í liði Man. City þar sem fyrirlið-
inn Ali Benarbia er í leikbanni og þeir Richard
Dunne og Shaun Goater eru meiddir.
Man. Utd heldur til London þar sem það mætir
Charlton. Undir flestum kringumstæðum ætti
Charlton ekki að vera nein fyrirstaða fyrir fyrrum
meistarana en eins og Man. Utd hefur verið að leika
er ekkert öruggt. Jesper Blomquist verður hugsan-
lega í leikmannahópi Charlton en talsverð meiðsli
hrjá leikmenn liðsins. Það er áfall fyrir Man. Utd að
þeir Veron og Silvestre verða ekki með vegna
meiðsla en það gæti þýtt að Scholes verði dregin á
lappir og látinn leika í dag.
Lið Tottenham er smám saman að skríða saman
en sjúkralisti liðsins er búinn að vera mjög langur.
Að öllum líkindum kemur Christian Ziege aftur inn
i liðið og þeir Steffen Freund og Sergei Rebrov léku
með varaliðinu í vikunni. -PS
Leikir laugardags
Leeds-Arsenal
Bolton-Southampton
Charlton-Man.Utd
Chelsea-West Ham
Everton-Fulham
Man. City-Liverpool
Sunderland-Aston Viila
Tottenham-Middlesbro
Birmingham-Newcastle
Samningar um byggingu nýs Wembleys í höfn:
Kostnaður slagar upp í
kostnað við 10 velli á HM
Nú liggur loks fyrir að nýr þjóðarleikvangur Englend- eru síðan umræður og undirbúningur vegna bygging-
inga verður byggður í stað Wembley-leikvangsins ar nýs Wembleys hófst. Nýi völlurinn mun bera sama
sem þegar hefur verið rifinn niður að hluta. Sjö ár nafn og fyrirrennari hans og kosta um 100 milljarða
Tölvumynd af nýjum Wembley.
íslenskra króna. Samningar um byggingu leikvangs-
ins glæsilega voru undirritaðir í gær og fjármögnun
byggingarinnar er tryggð. Þetta er stór dagur fyrir
knattspyrnuáhugamenn í Englandi því að undan-
förnu hefur þurft að leika marga af stærstu leikjun-
um þar í landi í Wales.
Um er að ræða glæsilega byggingu en það er ljóst að
eitt helsta sérkenni gamla Wembleys, turnarnir tveir,
munu ekki prýða nýja völlinn heldur verður um að
ræða glænýja hönnun sem hefur tekið miklum breyt-
ingum á hönnunartímanum, enda hefur áætlaður
kostnaður þrefaldast. Það þótti við hæfi að völlurinn
hefði eitthvert sérkenni, þannig að ákveðið var að
reisa risastóran stálboga yfir endilangan völlinn.
Nýr Wembley mun taka 90 þúsund áhorfendur sem er
næstum því jafnmikið og gamli völlurinn tók þegar
hann var opnaður árið 1923. Nú eru hins vegar allir
áhorfendur í sætum sem var ekki um að ræða á þeim
tíma. Þegar vellinum var lokað fyrir tveimur árum
tók hann 78 þúsund manns í sæti.
Þrátt fyrir mikla hamingju margra aðila í Englandi
yfir þvi að málið skuli nú vera í höfn eru margar
gagnrýnisraddir á lofti, sérstaklega nú. Kostnaðurinn
við bygginguna hefur farið fyrir brjóstið á mörgum
knattspyrnuáhugamanninum í Englandi, enda ef tek-
ið er mið af þeim 120 milljarða kostnaði sem Suður-
Kóreumenn lögðu út i byggingu og lagfæringar á alls
10 knattspyrnuvöllum fyrir HM síðastliðið sumar eru
kostnaðartölur þessar æði athyglisverðar. Þá þykir
tímasetningin óheppileg þar sem peningaflæði innan
knattspyrnunnar í Englandi hefur dregist töluvert
saman og mörg félög þar í landi eiga í fjárhagserfið-
leikum og eru á barmi gjaldþrots. Nefna menn einnig
að tekjur úrvalsdeildarfélaganna hafi dregist um allt
að 40% á milli ára.
Hvað sem allri gagnrýni líður virðist sem ekkert fái
stöðvað byggingu þessa glæsilega mannvirkis á
grunni þess gamla sem í hugum marga er heimili
knattspyrnunnar -PS