Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Page 36
40
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
HelQorblaö I>V
í heimi brúðunnar
Bernd Ogrodnik er Þjóðverji sem bgr á íslandi en ferðast
um allan heiminn til að halda brúðuleiksýninqar fgrir
fullorðna. Hann vill kenna íslendingum að meta slíkar
sgninqar en er einnig á kafi ígerð kvikmgndar í fullri
lengd þarsem brúður leika öll hlutverkin.
Bernd siníöar allnr sínar brúður sjálfur og liér er hann á vinnustofu sinni, umkringdur smíðisgripum sínum. Haun deilir húsnæði með hestunum sínum en viiinustofan er
innréttuð í öðrum endanum á hesthúsinu. DV-mynd E.Ól.
Sumt er eiginlega ekki til á Islandi. Þegar venju-
legur íslendingur heyrir talað um brúðuleikhús þá
fer hann að hugsa um Lilla og Brúðubílinn og sýn-
ingar á barnaleikritum. Það er nefnilega engin hefð
fyrir brúðuleik fyrir fullorðna á íslandi og brúðu-
sýningar fyrir fullorðna eru svo fátíöar aö það er
hægt að telja þær á fingrum annarrar handar.
Á þessu eru þó örfáar undantekningar og ein
þeirra verður i Salnum í Kópavogi á sunnudags-
kvöld kl. 20. Þá verður flutt þar sýningin Næturljóð
leikbrúðunnar eða Puppet Serendade eins og sýn-
ingin heitir á ensku. Þar flytja Bernd Ogrodnik og
leikbrúður hans ljóðrænan óð til lífsins, kryddaðan
töfrandi tónum, snjöllum húmor og heiðarleika eða
þannig er það að minnsta kosti orðað í kynningu
Salarins. Bernd mætir til sýningarinnar með stóra
kistu og í henni leynast brúðurnar, trjábútar og
silkislæður sem allt lifnar í höndum brúðumeistar-
ans.
Bemd semur sýninguna, smíðar brúðurnar,
saumar búningana, semur tónlistina og leikur hana
sjálfur á hljóðfæri, bæði píanó, gítara og flautu. Þar
fyrir utan stjórnar hann brúðunum.
Bara tvær hendur
Eftir að hafa heyrt þessa lýsingu kom það mér
eiginlega á óvart þegar Bemd reyndist aðeins vera
með tvær hendur eins og hver annar maður. Hann
býr á mótum borgar og sveitar þar sem heitir
Dimmuhvarf við Elliðavatn og hefur komið sér
þægilega fyrir með vinnustofu sína í hálfu hesthúsi.
Þar er hann umkringdur af brúðum á ýmsum
smíðastigum og aragrúa verkfæra.
Bernd hefur lagt gjörva hönd á margt um dagana
en hann er fæddur í Þýskalandi og sýningin í Saln-
um er reyndar í tilefni þýskra daga á íslandi og
haldin í samvinnu við þýska sendiráðið.
Bemd er samt eiginlega heimsborgari því hann
hefur árum saman dvalið og starfað í Ameríku
ásamt því að ferðast um allan heiminn til þess að
sýna brúðuleikhús fyrir fullorðna. Hann er nú sest-
ur að á íslandi en fyrsta verkefni hans hérlendis á
sviði brúðugerðar var að búa til og stjórna Pappírs-
Pésa í samnefndri kvikmynd.
Bemd útskýrir fyrir blaðamanni að það hafi ver-
ið ný reynsla fyrir hann að koma til íslands og
halda brúðusýningar fyrir börn.
„Ég hafði eingöngu haldið sýningar fyrir full-
orðna áður og var vanur áhorfendum sem eru aldir
upp við ríka hefð á þessu sviði. í Japan og Kóreu er
brúðuleikhús gríðarleg formfast og rík hefð. Mér
hefur hins vegar fundist óskaplega skemmtilegt og
gefandi að skemmta börnum hér á íslandi og hef
bæði haldið fjölda sýninga í Reykjavík og farið í
skóla úti á landi. Það er mikil og gefandi reynsla
sem ég mun hér eftir halda og vil ekki fara á mis
viö.“
Ákvað ferilinn fimm ára
I samræðum okkar kemur í ljós að Bernd er ekki
sérmenntaður á sviði brúðugerðar og segist ekki
vera mikill skólamaður þótt eftirsótt sé að fá hann
til halda námskeiö og vinnubúðir fyrir aðra brúðu-
gerðarmenn.
„Ég ákvað eiginlega þegar ég var fimm ára gam-
all að verða brúðuleikari. Ég held aö það hafi verið
brúðuþættir í sjónvarpinu heima sem ég hreifst af.“
Bemd lagði stund á smíðar og fleira sem tengist
brúðugerðinni en hann smiðar og sker út allar sín-
ar brúður sjálfur. Hann leikur á hljóðfæri af ýmsum
gerðum og hefur lagt stund á bardagalistir af ýmsu
tagi um árabil. Hann fékkst við myndskreytingar
lengi og myndskreytti margar barnabækur meðal
annars. Allt tengist þetta saman í brúðugerðinni og
kemur að góðu haldi.
Einstakt verkefni
Bernd hefur síðan hann settist að á íslandi notaö
það fyrir nokkurs konar heimavöll en lagst í víking
úti um allan heim til að halda sýningar því hann
hefur um langa hríð verið bókaður marga mánuði
fram í tímann. En nú hefur hann hreinsað dagbók-
ina sína töluvert langt fram í tímann því hann er
kominn á kaf í risavaxið verkefni í Danmörku sem
tengist gerð kvikmyndar sem mun heita Strings.
„Þetta er mjög sérstæð mynd og um margt ein-
stakt verkefni í sinni röð,“ segir Bernd.
„Þetta er kvikmynd í fullri lengd þar sem leik-
brúður, nánar tiltekið strengjabrúður, fara með öll
hlutverk. Myndin er unnin í Danmörku en styrkt af
Nordisk Film. Ég kom ekki strax inn í verkefnið en
var fenginn eftir að aðstandendur myndarinnar
fréttu af sýningu minni í Danmörku.
Ég mun smíða brúðurnar, stýra einhverjum
þeirra og þjálfa stjórnendur hinna brúðanna.
Þetta er kvikmynd með bardagasenum og mjög
flókinni „aksjón" þar sem notast er við brúður sem
eru töluvert stærri en venjulegt er en samt stjórnað
með strengjum."
Það kemur í ljós að við undirbúninginn hefur
þurft að leysa ótal tæknileg vandamál og sumt af
þvi viðurkennir Bernd að sé ef til vill í fyrsta sinn
í heiminum sem tilteknar lausnir eru notaðar. Það
hlýtur að þurfa talsvert hugvit og sköpun til þess að
koma með nýjungar inn í leikhúsform sem telur ald-
ur sinn í tugum alda.
Framlenging orkunnar
Þegar brúður sjást í kvikmyndum fyrir fullorðna
eru þær ekki alltaf í flokki góðra persóna. Skemmst
er að minnast röð hryllingsmynda um brúðuna
Corky sem var andsetin af djöflinum og kostaði
ýmsa meðleikara sína lífið. Við munum öll eftir
Konna sem sat á lærinu á Baldri Georgssyni og virt-
ist vera lifandi. Þegar maður horfir í kringum sig á
vinnustofu Bernds er auðvelt að trúa því að tré og
glerkúlur í augna stað geti öðlast líf þá og þegar.
Hvað er svona heillandi við þetta að stjórna
nokkrum spýtum i spotta og fá okkur hin til að sýn-
ast þær lifandi?
„Það er einhver orka þarna að verki,“ segir
Bernd.
„Það er erfitt að útskýra það án þess að fara mjög
djúpt í hlutina en í ákveðnum athöfnum og ritúali
er fólgin sjálfstæð orka sem við skynjum án þess að
skilja nákvæmlega hvernig. Zen fjallar einmitt um
þetta hvernig tedrykkja getur búið yfir orku og
hvernig sverðið er aðeins framlenging orku stríðs-
mannsins. Mér finnst að mörgu leyti það sama gilda
um brúðurnar. Þær eru framlenging orku og ein-
beitingar listamannsins og þess vegna sýnast okkur
þær vera lifandi."
-PÁÁ