Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 38
A- 2
H&lgarölad 3Z>"V
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 2002
Aðalfundur
Leigjendasamtakanna á
íslandi verður haldinn að
Hverfisgötu 105,
Reykjavík (3. hæð, sal
Iðnnemasambandsins),
mánudaginn 30.
september nk.,
kl. 20.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg
aðalfundarstörf.
2. Önnur mál, m.a. framtíð
Leigjendasamtakanna.
Mnspjöld
‘ STAFRÆNA
PRENTSTOFAN
LETURP R E N.T
Síðumúla 22 - Sími: 533 3600
Netfang: stafprent@stafprent.is - Veffang: www.stafprent.is
boxið!
Boxhanskar
Boxpúðar
Boxhlífar
Vafningar
Handapúðar
Belti
o.fl.
ÖRNINNf*
STOFNAÐ 1925
Skelfunnl 11, Slml S88 9890
Opið laugard. 11-15 www.orninn.is
Pétur Iljálmarsson rafvirkjameistari fékk Daewoo Tacuna frá DV:
Hvarflaði ekki að mér
að é£ fengi bílinn
- nýr bíll verður dreginn úr áskriftarpotti DV í desember
„Ég hef verið áskrifandi að DV af
og til í gegn um tíðina, hef alltaf ver-
ið hrifinn af blaðinu. í vor vorum við
hjón í Kringlunni og ég gaf mig á tal
við sölumann sem var að selja
áskriftir og gerðist áskrifandi á ný.
Það voru þarna sjónvörp og fleiri
vinningar til sýnis og ég leit satt að
segja hýru auga á DVD-spiIarann,
mig hefur alltaf langað i svoleiðis. Að
fá bílinn hvarflaði ekki að mér, hugs-
aði sem svo að ég fengi aldrei bíl, það
væru alltaf einhverjir aðrir sem
fengju þann stóra. Ég á heima í Hlíð-
unum og var meira að segja búinn að
aka ótal sinnum fram hjá bílnum
sem var uppi á gámnum við DV-hús-
ið. En, nei, hann fengi ég ekki. Það
var því ekki nema von að ég yrði
hissa þegar ég kom í DV-húsið og var
skyndilega orðinn eigandi bílsins
góða,“ sagði Pétur Hjálmarsson raf-
virkjameistari eftir að hann hafði
veitt Daewoo Tacuma, fjölnota bil frá
Bílabúð Benna, viðtöku á fimmtudag.
Fjöldi ánægðra vinningshafa
DV hefur verið í sumarskapi í allt
sumar. Auk Péturs hefur fjöldi
áskrifenda fengið glæsilega vinninga
fyrir það eitt að vera áskrifendur.
Þar má telja sjónvörp af ýmsum
stærðum, tölvur, fartölvur, hljóm-
tæki og pitsuveislur.
Bíllinn góði er annar bíllinn sem
heppinn áskrifandi fær frá DV en i
júlí í sumar fékk annar heppinn
áskrifandi Toyota Corolla. I desem-
ber verður þriðji bíllinn dreginn úr
áskriftarpotti DV, sannkallaður
jólaglaðningur.
Sumarskapið hefur dregið að sér
áskrifendur en mikill fjöldi fólks hef-
ur gerst áskrifendur að blaðinu í
sumar. Áskrift borgar sig. Það getur
Pétur Hjálmarsson vitnað um en
hann gerðist áskrifandi á ný í Kringl-
unni í vor.
Himnasending
„Þegar ég var að ganga inn í DV-
húsið, tilbúinn að taka við matar-
körfu eða bíómiðum, stóð fólk við bU
fyrir utan og allir voru eitthvað svo
hljóðir. Skyndilega var sagt að ef ég
væri Pétur Hjálmarsson þá ætti ég
þennan bíl. Ég hreinlega fraus og er
enn hálfdofinn," sagði Pétur. Hann
átti 15 ára gamlan bU fyrir, hálfgerð-
an skrjóð, og sagði Daewoo-bUinn
góða koma eins og himnasendingu.
-hlh
Annar bíllinn
Páll Þorsteinsson, markaðsstjóri DV, afliendir Pétri lyklana að Daewoo-
bílnum góða. Fjölmargir áskrifendur DV hafa hlotið vinninga í sumar
fyrir það eitt að vera áskrifendur. f desember verður dreginn út annar
bíll úr áskrifcndapottinum. Það borgar sig að vera áskrifandi.
Já, það borgar sig
Pétur Hjálmarsson rafvirkjameistari er ekki í vafa um að það borgi sig
að vera áskrifaudi að DV. Hér hampar hann lyklinum að Daewoo
Tacuna frá Bílabúð Benna sein dreginn var úr áskriftarpotti DV á
fimmtudag
ÞRÓUNARFÉLAG ÍSLANDS HF.
Hluthafafundur
Boðað er til hluthafafundar í Þróunarfélagi íslands hf.
að Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 7. október
2002 og hefst fundurinn kl. 15.
Dagskrá: 1. Tillaga stjórnar félagsins um samruna félagsins
og Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn hf.
2. Önnur mál.
Tillaga ásamt samrunaáætlun og fylgigögnum
liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Boðað er til annars hluthafafundar í sameinuðu félagi
Þróunarfélags íslands og Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn
sama dag og á sama stað kl. 16, verði tillögur stjórnar um
samruna samþykktar á fyrri fundinum, og eru hluthafar
beggja félaganna boðaðir til þess fundar.
Dagskrá: 1. Lagðar fram nýjar samþykktir fyrir hið
sameinaða félag.
2. Kosning stjórnar.
3. Önnur mál.
Stjórnin
6FH
Hluthafafundur
Boðað er til hluthafafundar í Eignarhaldsfélaginu
Alþýðubankinn hf. að Grand Hótel Reykjavík mánudaginn
7. október 2002 og hefst fundurinn kl. 15.
Dagskrá: 1. Tillaga stjórnar félagsins um samruna félagsins
og Þróunarfélags íslands hf.
2. Tillaga stjórnar félagsins um aukningu hlutafjár
um 1.100.000.000 kr. til að mæta samrunanum.
3. Tillaga stjórnar um breytingu á ákvæðum
um atkvæðisrétt á hluthafafundum.
4. Önnur mál.
Tillögur ásamt samrunaáætlun og fylgigögnum
liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Boðað er til annars hluthafafundar í sameinuðu félagi
Þróunarfélags Islands og Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankinn
sama dag og á sama stað kl. 16, verði tillögur stjórnar um
samruna samþykktar á fyrri fundinum, og eru hluthafar
beggja félaganna boðaðir til þess fundar.
Dagskrá: 1. Lagðar fram nýjar samþykktir
fyrir hið sameinaða félag.
2. Kosning stjórnar.
3. Önnur mál. Stjórnin