Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 40
>44 Helcjctrblað J3V LAUGARDACUR 12. OKTÓ8ER 2002 Sakamál Allt í lagi, mamma: Vona að ég sé ekki með fj öldamorðingj a Milljónir manna um allan heim fylgdust með þegar fluqvél Johns Kennedgs gnqri hvarf skammt undan strönd Cape Cod ló.júlí 1999. ívélinni með honum voru kona hans og sgstir hennar oq voru þau á leið til samkomu Kennedg-fjölskgldunnar á sumardval- Melissa Gosule var hjartagóð inanneskja sem lagði hart að sér til að láta gott af sér leiða. Svo lenti hún í klóm illmennis sem hún vildi engu illu trúa um. arstað hennar. Kennedg flauq sjálfur vélinni oq var qerð mjöq víðtæk leit að henni þeqar eftir að hún hvarf. Vélin fannst og lík þeirra sem íhenni voru oq heimspressan flutti stöðuqar fréttir af afdifum fræqa oq ffna fólksins. Cn fimm döqum áður hvarf unq kona nærri ströndinni sem Kennedgarnir köll- uðu sín heimkgnni. Það hvarf vakti ekki mikla fjöl- miðlaathgqli en hennar var ekki síður sárt saknað afsínum nánustu en qlæsiliðsins sem hvarf ísjó- inn íeinkafluqvél sinni. Lík Melissu Gosule fannst sama daginn og Kennedy yngri missti flugvél sína í sjóinn. Hún var 27 ára göm- ul, ógift og bjó hjá foreldrum sínum. Hún var góð- hjörtuö kona og varði frístundum sínum til hjálpar- starfa. En hennar mesta yndi var að hjóla 1 strandhér- uðunum. Fyrir kom að hún lenti í vanda en ávallt var einhver nærstaddur til að aðstoða hana og þáði hún það með þökkum, því henni þótti ekkert eðlilegra en að hjálpa öðrum sem illa stóð á fyrir. Það var að áliðnum sólríkum sunnudegi að Melissa lenti í vandræðum sem hún réö ekki við að leysa ein. Hún hafði verið að hjóla meðfram Cape Cod-skurðin- um, eins og margir aðrir hjólreiðamenn tíðkuðu. Fyrr um daginn lagði hún bíl sínum á stæði við veitinga- hús og gestir þar hjálpuöu henni að taka reiðhjólið af burðargrind á þaki bíls hennar. Konan settist á vand- að reiðhjól sitt og brunaði á braut. Undir kvöld kom hún til baka og festi hjól sitt á burðargrind bílsins og hugðist aka heim til að koma tímanlega í sunnudagskvöldmatinn og snæöa með foreldrum sínum. En þá fór billinn ekki í gang. Það er tilfinning sem allir bílstjórar þekkja. Hún reyndi aftur og aftur að ræsa vélina en allt kom fyrir ekki. Hún hafði skilið farsíma sinn eftir heima og sat undir stýri og hugsaði sitt ráð. Þarna var nærstaddur maður sem sá hvernig stóð á fyrir konunni og kom til Miehael Gentile í réttarsalnum. Hann bar fyrir sig inargs kyns lygar í yfirheyrsluin og við réttarhöldin yfir honum en sönnunargögn vitnuðu gegn honum. hjápar. Michael Gentile var 31 árs og bjó í bæ þarna skammt frá. Hann ók grænum pallbíl og lagði honum við bíl Melissu og bauð fram hjálp sína. Hann sagðist starfa við blaðadreif- ingu og væri að bíða eftir bunkunum sem hann síðan dreifði í verslanir og söluturna. Hann bauð konunni að nota farsima sinn tO að hringja í Fé- lag bifreiðaeigenda til að fá dráttarbíl til að koma bilaða bílnum á verk- stæði. Henni var gefið upp símanúmer næsta manns sem sá um að draga bíla en hann kvaðst ekki geta farið með bíl hennar alla þá leið sem var tO verkstæðisins sem Melissa vOdi skipta við. Michael bauðst þá tO að aka henni á stöð áætlunarbOanna en það var engin rúta á leið til heimabæjar Melissu svo seint á sunnudegi. Traust sem brást Michael yfirgaf hana ekki í nauðum og hún sýndi þakklæti sitt með því að greiða bensín á bO hans með sínu krítarkorti. Hún fékk að hringja nokkrum sinn- um í farsíma mannsins og hafði þá samband við heimOi sitt. Hún hringdi síðast kl. 20.22 og mælti sér mót við foreldra sina á hóteli sem var á miOi heimil- is hennar og þáverandi dvalarstaðar. Melissa talaði lengi við móður sína og sagði henni frá hjálpfúsa manninum sem hún bar greinOega fullt traust tO. Móðirin sagði síðar að hún hefði verið svo- lítið skelkuð að vita dóttur sína með ókunnugum manni en þau voru þá búin að vera sama í að minnsta kosti tvo klukkutíma og virtist maðurinn hvorki spara tima né umstang tO að hjálpa konunni í bilaða bílnum. Móðurinni varð rórra fyrir þá sök að dóttirin hingdi reglulega til að láta vita hvernig gengi. En þegar fór að skyggja fór móðirin að verða áhyggjufull og þau hjónin drifu sig af stað til að hitta Melissu á hótelinu þar sem þau mæltu sér mót. Síð- ast þegar þær töluðu saman í farsíma róaði dóttirin móður sína og sagði glaðlega að hún vonaði að minnsta kosti að hún væri ekki að aka á fáfömum vegi með fjöldamorðingja. Þá spurði móðirin hvort hún gæti ekki gefið sér upp númerið í farsímanum sem hún hélt á en svarið var að ekki væri hægt að hringja í hann af óútskýrðri ástæðu. Hið síðasta sem Melissa sagði var að hún myndi hitta foreldra sina í hótelinu eftir fjörutiu min- útur. Þau komu á hótelið á tOskOdum tíma en Melissa ekki. Þau biðu í móttökunni tO miðnættis og höfðu þá samband við lögregluna og tilkynntu að Melissa væri týnd. Skipulögð leit hófst næsta morgun. Nokkur vitni mundu eftir að hafa séð grænan pallbO við hlið bOs týndu konunnar á bílastæði veitingahússins. En hún var búin að segja móður sinni að sá hjálpfúsi væri á þannig bO. Á farsíma Michaels sást að hann hafði hringt í af- greiðslustjóra blaðadreifingarinnar kvöldið áður og tilkynnt að bOl hans væri bOaður og gæti hann því ekki keyrt blöðin út. í fyrstu var aðeins leitaö að týndri konu en brátt vöknuðu grunsemdir um að alvarlegur atburður hefði gerst. Vitað var að Michael GentOe var bOstjór- inn sem ók á brott með Melissu. Var auglýst eftir honum og gaf hann sig brátt fram á næstu lögreglu- stöð. Hann var yfirheyrður sem vitni og síðan sleppt. Hann sagðist hafa hjálpað konunni og ekið með hana að tOtekinni verslun og skOið við hana þar. En starfsfólk þar kannaðist ekki við að hafa séð græna paObílinn né konuna eða manninn sem I honum áttu að vera. Fjölskylda Melissu skipulagði líka leit og fékk sjálf- boðaliða til að leita í skóginum og í nokkrum tjörn- um í nágrenni við þann stað þar sem haldið var að síðast hefði orðið vart við konuna. Fjórum sólarhringum eftir hvarf Melissu fann lög- reglan eitthvað af fótum hennar, reiðhjólið og nokkra hluti úr eigu hennar. Gallabuxurnar voru úthverfar. Órækar sannanir Michael GentOe var handtekinn og pallbíllinn tek- inn til nákvæmrar rannsóknar og leitin að Melissu hélt áfram. Næsta mánudag, átta dögum eftir að hún sást síðast á lífi, fannst lík hennar í afskekktu mýr- lendi. Nákvæm rannsókn fór fram í nágrenninu og líkið var sent tO Boston þar sem líkskoðun fór fram. Rannsóknir leiddu í ljós að konan hafði verið bund- in við tré skammt frá þeim stað þar sem lík hennar fannst. Henni hafði verið nauðgað aftur og aftur og hún verið stungin tO bana. Mörg stungu- og skurð- arsár voru á líkamanum og marblettir á handleggjum eftir böndin sem hún var bundin með. Seglgarnsspottar sem fundust í bO Michaels voru sams konar og spottar sem fundust á morðstaðnum og á reiðhjóli Melissu. Á heimOi mannsins fann lögregl- an blóðug föt og jarðvegs- og jurtaleifar sem greini- lega voru frá þeim stað þar sem ódæöið hafði verið drýgt. Það er kaldhæðnislegt að meðal annars hafði Melissa reynt að láta gott af sér leiða með því að vera sjálfboðaliði í neyðarathvarfi kvenna sem þurftu á hjálp að halda eftir nauðgun. Daginn áður en henni sjálfri var nauðgað og hún myrt var hún á vakt á at- hvarfinu. Hún var þvi vel kunnug þeim öfugugga- hætti sem fórnarlömb nauðgara líða fyrir. En hún kunni ekki að varast vingjarnlegt og hjálpfúst viðmót nauðgarans sem varð henni að bana. Þegar Ola leikið lík Melissu fannst var Michael handtekinn og hann ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði. Hann neitaði sakargiftum. En sannanir hlóðust upp gegn honum. Á heimili hans, þar sem hann bjó með foreldrum sínum og systur, fundust eins og áður sagði blóðug föt og jarðvegur frá morðstaðnum. Við réttarhöldin kom fram að þótt Michael hefði verið sleppt eftir fyrstu yfirheyrslu hefði lögreglan fylgst með honum allt tið síðan þar sem hann þótti grunsamlegur í meira lagi. Þegar blóð Melissu fannst á buxum hans og skóm útskýrði hann að þannig stæði á þvi að þau hefðu haft samfarir og hefði hún þá haft á klæðum. Líkskoð- arinn var á öðu máli. Tvö vitni báru að hafa séð grænan pallbO í skógi nærri þeim stað þar sem líkið fannst. Micheal Gentile þekkti svæðið vel. Á unglingsárun- um var hann handtekinn á sama staða og föt Melissu fundust fyrir bOþjófnað. Síðan þá hafði hann framið fjölda afbrota, verið handtekinn 22 sinnum, fengið margar kærur og setið af sér fangelsisdóma. Allt sem hann sagði lögreglunni um fundi þeirra Melissu var lygi og uppspuni frá rótum. Eins hafði hann skrökvað að henni og notfært sér trúgirni henn- ar til að fuUnægja sínum brengluðu hvötum. Þegar sakborningurinn var færður mOli fangelsis og réttarsalar var hann hafður í skotheldu vesti sem hann klæddist einnig í réttarsalnum. Það var talin hætta á að einhver tæki að sér hlutverk dómara og böðuls ef færi gæfist. Dómsúrskurður var sá að Michael GentOe var dæmdur í lífstíðarfangelsi án réttar tO að sækja um náðun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.