Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 46
3 0
H&lqarblacf 3Z>V LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
Suzuki Jimmy JLX, bsk.
Skr. 6/00, ek. 32 þús.
Verð kr. 1200 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk.
Skr. 6/00, ek. 59 þús.
Verð kr. 1380 þús.
Ford Focus High-series,
bsk.
Skr. 11/99, ek. 36 þús.
Verð kr. 1220 þús.
Toyota Corolla Touring.
Skr. 7/97, ek. 125 þús.
Verð kr. 860 þus.
Renault Mégane RT, bsk.
Skr. 3/99, ek. 47 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Galloper 2,5. dísil, ssk.
Skr. 9/99, ek. 78 þús.
Verð kr. 1490 þus.
Suzuki Baleno G, 3 d.. ssk.
Skr. 10/99, ek. 21 þus.
Verð kr. 790 þus.
Isuzu Troo
Skr.
Verð kr. 2490 þús.
•r 3,0. dísil, bsk.
, ek 64 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
—✓//>—...... ....
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100
Nissan Terrano II 2,4, bsk.
Skr. 7/01, ek. 43 þus.
Verð kr. 2280 þús.
Formúla 1
Er Ferrarí að misnota
yfirburði sína með
leikaraskap?
Max Mosley, forseti alþjóða akstursíþróttasambandsins, situr hér
blaðamannafund fyrir keppnina í Japan.
Það er óhætt aö segja að spennan
fyrir síðustu Formúlu 1-keppni árs-
ins sé með allra minnsta móti þetta
árið í ljósi yfirburða Ferrari og ótrú-
legrar uppákomu ökumanna liðsins í
síðustu keppni þegar Schumacher og
Barrichello fóru samhliða yfir enda-
línuna. Ferrari-keppnisliðið, sem
hafði ekki unnið heimsmeistaratitil
ökumanna í tuttugu og eitt ár árið
2000, hefur nú tryggt sér þriðja öku-
mannstitilinn í röð og fjórða liðatitil-
inn á jafn mörgum árum. Yfírburðir
liðsins hafa verið gífurlegir og eru
fjórtán sigrar í höfn á árinu, þar af
sjö tvöfaldir. Drottnun Ferrari hefur
verið svo mikO að menn eru farnir
að hafa af því miklar áhyggjur. Það
eru ekki bara áhorfendur heima í
stofu eða blaðamenn sem keppast við
að skrifa um tilvistarkreppu For-
múlu 1, heldur hafa Bernie Ecclesto-
ne, súperprímus Formúlunnar, og
Max Mosley, forseti FIA, báðir kom-
ið með tillögur að breytingum til að
jafna leikinn. Eins og staðan er í dag
virðist ekkert lið hafa nokkurt svar
við ítölsku meisturunum sem er
komnir eru með 205 stig og getur það
með tvöföldum sigri í nótt endað
tímabilið með fleirri stig en öll hin
liðin samanlagt. Ekki er hægt að bú-
ast við öðru en að Ferrari bæti við
enn einni rósinni í hnappagatiö á
hinni 5,8 km löngu Suzuka-keppnis-
braut í nágrenni Nagoya sem hefur
verið Ferrari hliðholl undanfarin ár.
Formúla 1 á tímamótum
Max Mosley, forseti alþjóða akst-
ursíþróttasambandsins, FIA, hefur
undanfama mánuði verið með í
smiðum tillögur aö breytingum á
Formúlu 1 keppnisfyrirkomulag-
inu til þess að gera keppnina jafn-
ari og ódýrari fyrir keppnisliðin.
Þar á meðal eru margar róttækar
tillögur sem snúa að keppnisfyrir-
komulagi og tæknilegum breyting-
um á bílunum.
„Við erum á krossgötum, það er
engin spuming um það. Við verðum
að bæta keppnina og minnka kostn-
aðinn ef keppnisliöin og kappakstur-
inn á að lifa af í þeirri mynd sem viö
þekkjum hann í dag.“ Max segist
vera með áætlanir um að spara allt
að því 40 milljarða samanlagt í For-
múlunni. Á þessu ári hafa Prost- og
Arrows-liðin horfið af sjónarsviðinu
og Max vill koma í veg fyrir að
fleirri fari í kjölfarið.
„Vandamálið er að kostnaður hef-
ur farið upp úr öllu valdi á meðan
innkoman hefur minnkað og nú
vilja sjónvarpsstöðvar greiða minna
þvi það eru færri áhorfendur. Við
þurfum að laga hlutina áður en
fleiri lið leggja upp laupana.“
Ástæða minna áhorfs er ekki síst
óheyrilegir yflrburðir Ferrari á
þessu ári og það sem hefur skemmt
enn meira er að ökumenn liðsins
hafa ekki keppt sín í milli og úrslit-
um hefur verið hliðrað.
Eru Ferrari of góðir?
Tímamunur á milli Ferrari og
Minardi hefur verið allt að fjórar
sekúndur i tímatökum og er það of
mikið að margra mati. „Það er al-
mennt samkomulag um að við verð-
um að gera eitthvað," segir Max sem
hefur lagt það til að fyrir hvert stig
sem efsti ökumaður hefur i stiga-
keppninni, skuli bætt einu kiló-
grammi í bíl hans til að jafna leik-
inn. „Það er ekki nokkur spurning
að sú tillaga aö setja þyngingar í bíl-
ana er gegn hefðum Formúlunnar,
en stundum finna menn sig í þeirri
stöðu að það er haldið fast í hefðirn-
ar, en öllum er sama, því það fylgist
enginn með.“ Schumacher, sem nú
hefur 63 stiga forskot á Barrichello,
yrði sennilega 18 sekúndum hægari
en félagi hans og varla líklegur til
komast í gegnum tímatöku ef þessar
tillögur ná fram að ganga. Einnig
hefur verið rætt um að festa loft-
flæðistillingar bílanna og notkun á
einni vél fyrir hálft tímabilið. Fyrir-
komulaginu á tímatökum yrði
breytt og væri samanlagður tími úr
hálftíma tímatökum fóstudaga og
laugardaga notaður til að ákvarða
rásröð. „Við erum á þeim tíma-
punkti að það verður að vega og
meta hefðir á móti breytingum og
sjá hvað það getur gert fyrir sportið.
Við hjá FIA erum með róttækar hug-
myndir um að gera keppnina áhuga-
verðari og spara mikla fjármuni,"
sagði Mosley.
Ron Dennis ekki sammála
Allar þessar tillögur sem Max
Mosley talar um og Bernie í grafinu
hér til hliðar, verða ræddar á sam-
ráðsfundi þeirra aðila sem koma að
Formúlu 1 þann 28. október. Þar hafa
fulltrúar allra keppnisliðanna neit-
unarvald og eru þvi mjög áhrifamikl-
ir í ákvörðunum sem snerta framtíð
kappakstursins. Ron Dennis, keppn-
isstjóri McLaren, hefur sagt að hann
komi aldrei til með að kvitta upp á
svo róttækar breytingar. „Við hjá
McLaren munum ekki samþykkja
þyngingar í Formúlu l-bílunum,“
segir Ron. „Ég skil vel áhyggjurnar
yfir skorti á sönnum kappakstri um
þessar mundir en það er eingöngu
vegna þess að Ferrari er að gera frá-
bæra hluti,“ segir Dennis sem viður-
kennir að lið hans hafi ekki staðið
sig nægOega vel á þessu ári. „Það er
hins vegar hlutverk allra hinna lið-
anna að taka sig saman í andlitinu
og við munum gera það. Það vill eng-
inn sigra Ferrari, einfaldlega vegna
þess að þeir eru með þyngri bíla en
allir hinir.“ Paul Cascoyne, tækni-
stjóri Renault, er ekki alveg viss um
að þetta gangi upp hjá FIA. „Eftir að
hafa stillt bílunum upp í hraðaröð í
tímatökum þar sem hraðasti bíllinn
er fremstur og sá hægasti aftastur,
og þegar þeir eru ræstir klukkan tvö
á sunnudegi, er harla óliklegt að þeir
fari að taka fram úr hver öðrum. Við
verðum að krydda þetta svolítið
meira," segir hann og vUl einskorða
þyngdartakmörkin við tímatökur.
„Við viljum sjá Ferrari ræsa af tí-
unda rásstað í stað þess fremsta og
sjá hvað þeir koma til með að geta
unnið úr þeirri stöðu. Þá komum við
til með að sjá framúrakstur og
spennandi kappakstur," sagði
Cascoyne að lokum.
Lokakeppnin
Japanski kappaksturinn sem háð-
ur verður í nótt verður sá síðasti á
þessu keppnistímabili líkt og hann
hefur verið síðan 1987, með örfáum
undantekningum. Suzuka-keppnis-
brautin, sem Honda byggði árið 1962
til prófana, hefur þá óvenjulegu sér-
stöðu að hún myndar töluna átta.
Suzuka-brautin, sem hefur i gegnum
tíðina hýst margar sögulegar keppn-
ir, er einn af bestu keppnishringjun-
um í Formúlu 1 og hefur verið sett á
stall með SPA i Belgíu og er í uppá-
haldi flestra ökumanna. Reynslan
nýtist sérstaklega vel á Suzuka og
eru S-beygjurnar mjög erfiðar og
erfitt að finna hina gullnu meðalleið
þar í gegn þar sem hver hlykkurinn
tekur við af öðrum. Michael
Schumacher, sem hefur verið snill-
ingur í að aka í gegnum þessar
beygjur, er heimsmeistari þessa árs
ásamt liöi sínu, Ferrari. Yfirburðirn-
ir hafa verið slíkir að lengi verður
munað eftir. Útsending á RÚV á
lokakeppninni verður klukkan 5.10 í
nótt og endursýnt á morgun. -ÓSG