Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Blaðsíða 2
2
________________________________________________________________LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
Fréttir I>‘V
Mestu rigningar í manna minnum á Suðausturlandi:
Aldrei séð neitt þessu líkt
- sagði Þorsteinn Sigfússon, bóndi á Skálafelli
Þjóðvegur eitt i Suðursveit rofn-
aði skammt frá Skálafelli þegar
mikið hlaup kom í ána Kolgrímu
seinni hluta fimmtudags og náði
hámarki um kl. 4 á föstudagsnótt.
Vatnselgurinn rauf um 100 metra
skarð í veginn um 500 metra vest-
an við brúna.
Þorsteinn Sigfússon, bóndi á
Skálafelli, segir að ekki sé vitað til
þess að svona stórt hlaup hafi áður
komið í Kolgrímu og aldrei hafi
hún flætt vestur yfir túnin neðan
við bæinn og alltaf haldið sig í far-
veginum.
„Ég hef aldrei séð hér neitt
þessu líkt og það var einn fjörður
um allt hér vestan við bæ hjá okk-
ur,“ sagði Þorsteinn í samtali við
DV.
Hann telur að dýpt vatnsins á
túninu hafi verið um einn og hálf-
ur metri. Um 8-10 hektarar af tún-
inu hafa farið undir vatn og eru
girðingar ónýtar. Þar sem vall-
lendi var í gær eru klappir, grjót,
aur og ísjakar í dag því jarðvegur-
inn hefur sópast burt af túninu í
hlaupinu og ljóst er að tjón er
mikið.
Ekki er vitað hvaðan hlaupið
hefur komið í ána. Þegar flogið
var yfir Vatnsdal fyrir tveim vik-
um, en þaðan hafa hlaup í Kol-
grímu komið, var þar ekkert vatn
að sjá eða neitt sem bent gæti til
hlaups. Ekki hefur verið hægt að
fljúga yfir svæðið vegna slæms
veðurs. Það sem er óvenjulegt við
þetta hlaup er hvað áin óx snöggt
en venjulega hefur hún verið
nokkra daga að ná hámarki. Síð-
asta stórhlaup varð í ánni 1994 og
Létust í bílslysi
Mæðgurnar sem létust af völd-
um áverka, sem þær hlutu í um-
ferðarslysinu á Kirkjubólshlíð í
Skutulsfirði siðastliöinn sunnu-
dag, hétu Þórdís Anna Pétursdótt-
ir, fædd 5. júlí 1965, Elín ísabella
Kristinsdóttir, fædd 12. ágúst 1993,
Mirra Blær Kristinsdóttir, fædd
18. september 1994. Mæðgurnar
voru búsettar að Dynsölum 16 í
Kópavogi.________________-aþ
er talið aö það hafi verið mesta
hlaup sem komið hafi fram að
þessu. Þorsteinn segir aö það hafi
ekkert verið í líkingu við þetta
hlaup sem nú er.
Gert verður við veginn til bráða-
birgða í dag og ætti umferð að
komast í lag undir kvöldið.
Varnargarðar Hólmsár í hættu
Unnið var að því að styrkja
varnargarða austan við Hólmsá á
Mýrum í gærdag og undir kvöldið
var talið að búiö væri að koma í
veg fyrir að áin bryti sér leið til
austurs. Gífurlegt vatn var í ánni í
gær og var hún sem sjór yfir að
líta. Mátti ekki hækka mikið í
ánni svo hún flæddi yfir hringveg-
inn.
Ný brú var byggð yfir Hólmsá á
þessu ári og er hún ekki talin í
hættu. Allar jökulár á Suðaustur-
landi eru í miklum vexti vegna
mikilla rigninga síðustu daga og
óvenju mikillar bráðnunar á
jöklunum. -JI
- Sjá fréttaljós á bls. 14
DV-MYND JÚLÍA
Vegurinn í sundur
Um 100 metra skarð kom í hringveginn við Skálafell í Suðursveit þegar hlaup
kom í ána Koigrímu.
Leyniskyttan í Bandaríkjunum:
Lamandi hræðsla
vegna launmorðanna
- segir Sigríður Lucas í Maryland
„Maður hugsar sig tvisvar um að
fara út í búð og fer ekki út úr húsi
aö gamni sínu,“ segir Sigríður
Lucas, sem búsett er í borginni
Rockville í Maryland-ríki í Banda-
ríkjunum, á sama svæði sem
óþekktur launmorðingi hefur skotið
tíu manns síðustu daga. Morðing-
inn velur fómarlömb sín af handa-
hófi og skýtur fólk þegar það er við
hversdagslega iðju utandyra. Ein
kona var skotin i gegnum höfuðið á
bekk fyrir utan verslunarmiðstöð,
annar maður var myrtur þegar
hann sló garöinn sinn og þrir hafa
faliið í valinn þar sem þeir voru að
dæla bensíni á bílinn sinn.
„Hugarfarið hefur breyst mikið og
fólk hefur sífellt í huga að þaö gæti
orðið fyrir skoti úr launsátri. Ég vel
mér núna bensínpumpu sem næst
bensínstöðinni, flýti mér að setja
dæluna í og sit inni í bíl þar til hann
fyllist," segir Sigríöur, sem hefur
búið í Bandarikjunum frá árinu 1996
og hefur aldrei upplifað annað eins.
Þegar DV hafði samband viö Sig-
ríði var hún að sækja ellefu ára son
sinn í skólann, en nú liggur 13 ára
drengur þungt haldinn á sjúkrahúsi
eftir aö hafa verið skotinn á leiðinni
úr bíl foreldra sinna í skólann. Lög-
reglumenn vopnaðir rifflum halda
nú vakt við alla skóla á svæðinu.
„Fólk verður að halda áfram, það er
ekki annað að gera,“ segir Sigríður.
Víðtæk leit er nú gerð að morð-
ingjanum í Virginíu og Maryland,
en óttast er að um sé að ræða fleiri
en einn mann. -jtr
Nánari umfjöllun um laun-
morðingjann á bls. 8 og 12.
„Ef þú œttir að
lesa eina bók
óður en |>ú deyrð
þú er það
Don Kíkóti“
Bcn Okri
rilhöfundur
SKEMMTILEGASTA OG VINSÆLASTA SKÁLDSAGA VERALDAR
Valln af 100 frægum höfundum frá 54 löndum áriö 2002.
Miguel de Cervantes
Don Kíkóti
★ ★★★
tima
Bræðraborgarstíqur 7
Sími 575 5600
DV-MYND ÞÖK
Hörmungar hversdagslelkans
Nú þegar hafa 28 manns farist í umferðarslysum á árinu og eru fórnarlömb um-
ferðarinnar ellefu fleiri í ár en á sama tíma í fyrra. Leita þarf aftur til ársins
1988 til að fmna viölíka umfang banaslysa á íslandi og er áriö enn ekki á enda.
E3BaiK
Ingibjörg styöur Bryndísi
Á fundi stuðnings-
manna Bryndísar
Hlöðversdóttur í gær
sagðist Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgar-
stjóri styðja Bryndísi í
fýrsta sæti listans í
öðru Reykja-
víkkjördæminu en Jóhanna Sigurðar-
dóttir sækist einnig eftir því sæti.
Síminn í hugbúnaöinn
Landssíminn og íslenski hugbúnað-
arsjóðurinn undirrituðu í gær samn-
ing um kaup Símans á 16 prósenta
eignarhlut í hugbúnaðarsjóðnum.
Samningurinn felur i sér 140 miiljóna
króna beina fjárfestingu Símans og er
hann nú orðinn stærsti hluthafmn í
sjóðnum.
Ókeypis viöskiptavefrit
Viðskiptaskrifstofa utanrikisráðu-
neytisins hefur gefið út fyrsta tölublað
vefrits síns sem hlaut naftiið Stiklur.
Síöasti dagur fagsýningar
Agora, fagsýningu þekkingariðnað-
arins, lýkm- í dag. Sýningin er opin ai-
menningi frá klukkan 11 til 19.
Peningalykt yfir Grindavík
Kvörtunum hefur rignt yfir yfirvöld
vegna óþefs sem leggur af fiskimjöls-
verksmiðjunni i Grindavík undanfar-
ið. Bræðslu kolmunna lauk í gær en
fnykurinn af honum mun vera stækari
en af loðnu og sOd. Víkurfréttir
greindu frá.
Hjörvar vill á þing
Helgi Hjörvar, vara-
borgarfúlltrúi R-listans
í Reykjavík, hefur til-
kynnt um framboð sitt
til forkosninga Sam-
fylkingarinnar fyrir
komandi alþingiskosn-
ingar. Helgi var áður
oddvití R-listans.
Þjófár gripu í tómt
Brotist var inn i tölvuverslunina
Samhæfrii/Tækniiausnir í Keflavík í
fyrrinótt. Ekki var snert við tölvubún-
aðinum en hins vegar var hafður á
brott tómur kassi. Líklegt er að styggð
hafi komið á þjófana.
Árekstrar í Eyjum
Harður árekstur varö í Vestmarma-
eyjum í gær og þurfti að draga báðar
bifreiðimar á brott með kranabíl.
Þetta er annar harði áreksturinn í Eyj-
um í vikunni, sem er afar fátítt. Ekki
hafa orðið alvarleg meiðsl á fólki.
Árekstur viö Selfoss
Tveir bílar skuliu saman á Eyravegi
á Selfossi í gær með þeim afleiðingum
að þeir stórskemmdust báðir. Tildrög
slyssins voru þau að annar bílstjórinn
gleymdi sér í akstrinum og rásaði yfir
á rangan vegarhelming. Báðir bílstjór-
amir em á sextugsaldri og geta þcdrk-
að bílbeltanotkun sinni fyrir að ekki
hlutust nema smávægileg eymsli af
samstuðinu. -jtr
I myndatexta á forsíðu DV í gær,
föstudag, sagði að Sindri Sindrason
væri fjármálastjóri Pharmaco. Hið
rétta er að Sindri er forstjóri fjár-
festingarsviðs Pharmaco. Sagði enn
fremur að þar mætti sjá Sverri
Hauk Guðjónsson en hið rétta er að
Sverrir Haukur er Gunnlaugsson.
Ekki að hætta
Ofsagt var í þættinum Árinu eldri
í DV-Magasíni á fimmtudag aö
Bergur Felixson, framkvæmdastjóri
Leikskóla Reykjavíkur, sem verður
65 ára nk. mánudag, væri að láta af
störfum. Bergur situr enn sem fast-
ast - og allar sögur af starfslokum
hans eru stórlega ýktar.