Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 6
22 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Sport i>v Selfoss-Frani 27-29 FH-Stjarnan 21-21 Fram: Mörk/viti (skot/viti): Þórir S. Sigmunds- son 7 (9), Valdimar Fannar Þórsson 7 (10/2), Þorri Gunnarsson 4 (5), Björgvin Þór Björg- vinsson 4/1 (7/2), Hjálmar Vilhjálmsson 3 (8), Héöinn Gilsson 2 (3), Haraldur Þorvarö- arson 2 (4), Gunnar B. Jónsson (2). Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Þórir 3, Þorri 2, Valdimar). Vítanýting: Skorað úr 1 af 4. Fiskuö víti: Þórir 2, Hjálmar, Haraldur. Varin skot/viti (skot á sig): Sebastian Alex- andersson 10 (29/4, hélt 2, 30%), Magnús Gunnar Erlendsson 2 (10/3, hélt 1,15%). Brottvisanir: 20 mínútur. (Guölaugur Am- arsson og Hjálmar rautt fyrir 3x 2 mín.). Sjötta tap Selfyssinga 2-0, 3-2, 4-7, 7-3, 8-12 (9-13), 10-13, 11-15, 13-16,16-17,17-21, 21-22, 22-24, 25-27, 27-29. Selfoss: Mörk/víti (skot/víti): Ramunas Mikalonis 9/1 (15/1), Hannes Jón Jónsson 9/6 (16/6), Hörður Bjamarson 3 (5), Reynir Freyr Jakobsson 3 (8), ívar Grétarsson 2 (3), Andri Olfarsson 1 (1). Mörk úr hraóaupphlaupum: 0. Vitanýting: Skorað úr 7 af 7. Fiskuö viti: Mikalonis 3, tvar 2, Hannes, Reynir. Varin skot/viti (skot á sig): Jóhann Ingi Guðmundsson 23/3 (52/4, hélt 10, 44%). Brottvisanir: 12 minútur. Maður leiksins: Jóhann Guðmundsson, Selfossi „Við vorum dálítið taugastrekktir í leiknum. Það hefur ekki gengið vel að undaníomu og strákamir vildu gera betur en það er oft erfitt að koma í svona leiki og rífa sig upp úr lægðinni. Selfyssingarnir börð- ust allan tímann og spOuðu skyn- samlega, við vorum í vandræðum með nokkra leikmenn þeirra," sagði Heimir Rikharðsson, þjálfari Fram, eftir leikinn á Selfossi á fóstudag. „Það var líka mikið rekið út af og þess vegna erfitt að spila skipulagð- an leik, bæði í vöm og sókn. Mark- varslan og vamarleikurinn virkuðu ekki sem skyldi í kvöld frekar en undanfarið og við fengum á okkur mikið af mörkum og það er það sem við erum að reyna að laga. Ég er að- allega glaður að fá þessi tvö stig. Þau skipta máli því að það em all- ir að vinna alla,“ sagði Heimir. Leikurinn fór rólega af stað. Sel- íyssnigar stilltu upp i 3-2-1 vörn og mættu gestunum því framarlega. Á fyrstu mínútunum áttu heimamenn fhimkvæðið og komust fljótlega yfir en um miðjan fyrri hálfleik höfðu gestimir skoðað sig um í gryfiunni á Selfossi undir fararstjórn Valdi- mars Fannars Þórssonar sem nú lék í fyrsta skipti gegn sínu gamla liði. Valdimar var reyndar klipptur út nánast allan leikinn en gerði Sel- fyssingum þó oft skráveifur. Síðari hálfleikur var allur í járn- um og Selfyssingar nöguðu hælana á Frömumm allan tímann. Mikalon- is fór að hitta á markið og gestimir áttu engin svör við þrumufleygum hans og Jóhann Ingi skellti Selfoss- markinu í lás og gleypti lykilinn. Hann varði m.a. þrjú víti, tvö frá fyrmm félaga sínum, Valdimar. Þrátt fyrir að Selfyssingar minnkuðu muninn jafnt og þétt tókst þeim cddrei að jafna þó að þeir hefðu oft tækifæri til þess. Ófá skot lentu í tréverkinu og einnig misstu þeir boltann úr höndunum á mikil- vægum augnahlikum. Eftir mikinn baráttuleik höfðu Framarar sigur enda höfðu þeir lukkudisimar með sér yfir heiðina. Bestur í liði Fram var Þórir Sig- mundsson en hann skoraði 7 mörk, rétt eins og Valdimar sem þó var haldið niðri allan leikinn. Þótt Stiarnan: Mörk/viti (skot/víti): Jóna Margrét Ragnarsdóttir 8/4 (13/5), Margrét Vilhjálmsdóttir 4 (6), Ebba S. Brynjarsdóttir 3 (4), Amela Hegic 2 (4), Júlíana Þóröardóttir 1 (1), Elísabet Gunnarsdóttir 1 (1), Sól- veig Kæmested 1 (3), Anna Blöndal 1 (3), Kristín Clausen (1), Hind Hannesdóttir (1), Svanhildur Þengilsdóttir (1).. Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Margrét 2, Amela, Ebba, Anna). Vítanýting: Skoraö úr 4 af 5. Fiskuð vitU Margrét 2, Ebba, Kristín, Elísabet. Varin skot/víti (skot á sigk Jelena Jovanovic 24/2 (45/6, hélt 15/1, 53%, tvö víti í stöng). Brottvísanir: 10 mínútur. (Hrund Sigurðard. fékk rautt spjald). Ótrúlegur karkater FH - jafnaði á lokasekúndunum gegn Stjörnunni eftir að hafa verið mest 9 mörkum undir Þó að stigin hafi skipst jafnt á milli FH og Stjömunnar í Kaplakrika á fóstudagskvöld er ekki hægt að segja það sama um gleðina eftir leikinn. Hún var öll FH-inga eftir að þær skor- uðu jöfhunarmark á lokasekúndum leiksins. Stúlkumar höfðu verið á hælunum mestallan leikinn, einkum í fyrri hálfleik, en sýndu gríðarlegan karakter með því að minnka mun Stjömunnar og jöfnuðu síðan með frá- bærum kafla á síðustu fimm mínút- um leiksins. Það var Dröfn Sæmunds- dóttir sem tryggöi jafnteflið með marki langt fýrir utan punktalínu á lokasekúndum leiksins en þá voru Stjörnustúlkumar reyndar tveimur leikmönnum færri. Leikurinn fór annars rólega af staö. Eftir 11 mínútna leik var staðan 3-4, Stjömunni i vil, en þá skildi leiðir. Það var ekki heil brú í leik FH-inga á meðan Stjömustúlkur léku við hvum sinn fingur, einkum þó Jóna Margrét Ragnarsdóttir, og hver glæsisóknin rak aðra á meðan allt sat fast hjá FH. Á 14 mínútum gerði Stjaman átta mörk í röð og komst í 3-12. Fyrstu 20 mínútur seinni hálfleiks var jafnræði með liöunum og fátt sem benti til annars en að Stjömustúlk- umar fæm með öraggan sigur af hólmi. En það sem gerði útslagið síð- ustu fimm mínútumar var innkoma Kristínar Guðjónsdóttur í mark FH. Hún kom inn á í stöðunni 17-21 og byrjaði á því að verja vítakast og hélt svo markinu hreinu á meðan FH-ing- ar jöfnuðu leikinn og var sigurmarkið gert á lokasekúndunum eins og áður er lýst hér að framan. „Við gátum ekki spilað verr en viö gerðum í fyrri hálfleik og þá var bara um að gera að rífa sig upp. Við unnum upp stóran mun á móti Víkingum líka þannig að við vissum alveg að við gát- um þetta,“ sagði Dröfn Sæmundsdótt- ir, hetja FH-inga, eftir leikinn. Og um sigurmarkið sagði hún: Ákvað að nýta plássið „Við héldum að þær myndu koma út á móti okkur þannig að við ætluð- um að spila fyrir utan og gefa boltann annaðhvort á línu eða út í homið. Þær vörðust hins vegar aftarlega þannig að ég fékk pláss sem ég ákvað að nýta mér.“ Sigrún Gilsdóttir átti mjög góðan leik fyrir FH, bæði á miðjunni og á línunni, og Dröfn og Björk áttu góða spretti. Þá var innkoma Kristínar í markinu mikilvæg i lokin. „Við köstuðum frá okkur stigi í þess- um leik. Við spiluðum mjög vel á tutt- ugu mínútna kafla í fyrri hálfleik þar sem við sýndum okkar rétta andlit. Fyrstu 15 minútumar í seinni hálfleik spiluðu svo bæði liðin álíka vel en síð- an hélst einbeitingin ekki og það var sama hvaða stöðubreytingar ég reyndi að gera, enginn kláraði það sem átti að klára, sérstaklega í vöminni. En þetta er reynsla sem við munum læra af. Þetta er ekki búið fyrr en dómarinn flautar af,“ sagði Matthías Matthías- son, þjálfari Stjörnunnar. Jelena Jovanovic og Jóna Margrét Ragnarsdóttir voru langbestu menn Stjörnuliðsins og Margrét Vilhjálms- dóttir sýndi á köflum ágæta takta. En lykilmenn eins og Anna Blöndal og Amela Hegic náðu sér ekki á strik í leiknum og það munar um minna.-HI Best á vellinum: Jelena Jovanovlc, Stjörnunni Dröfn Sæmundsdóttir tryggöi FH-stúlkum jafntefli gegn Stjörnunni meö fallegu marki á lokasekúndum leiksins. FH- stúlkum tókst aö vinna upp níu marka forystu Stjörnustúlkna á lokamínútunum. Rótbu rst - Haukastúlkur unnu Fylki/ÍR með 22 marka mun Það var heldur betur rótburst á Ásvöllum á laugardaginn þegar Haukar mættu sameinuðu liði Fylk- is/ÍR í Essodeild kvenna. Munurinn í leikslok varð tuttugu og tvö mörk, 38-16, og segja má að þessi leikur hafi veriö eins og létt æfing fyrir heimastúlkurnar. Framan af leik tókst gestunum að hanga I heimastúlkunum en fljót- lega skildi leiðir og einstefna er eig- inlega rétta lýsingarorðið fyrir þennan leik. Haukaliðið keyrði grimmt í hraðaupphlaupin og þar fór fremst í flokki sjálf hraðaupp- hlaupsdrottningin, Hanna G. Stef- ánsdóttir, sem skoraði úr átta slík- um. Þau hefðu sjálfsagt orðið mun fleiri efhúnhefðispilaðeitthvaðað ráði í síðari hálfleik en munurinn var þá það mikill að Haukaliðið gat leyft sér þann munað að hvila helstu kanónur liðsins og leyfa ung- um og efnilegum stelpum að spreyta sig og stóðu þær fyrir sínu. Haukamir eru allir að braggast eftir frekar slaka byrjun, liðið er jú íslandsmeistari, en hafa ber í huga að talsverðar breytingar hafa oröið á því. Góðir leikmenn eru horfnir á braut og það tekur smátíma fyrir þá nýju að komast á fulla ferð. Nína aö komast í gang Til að mynda er Nína Bjömsdótt- ir rétt að komast í gang en hún ákvað nýlega að hætta við að hætta, sem betur fer fyrir Haukana. Nýr markvörður liðsins, Lukresija Bok- an, lofar góðu en hún verður þó ekki alveg metin af þessum leik, fékk á sig mikið af auðveldum skot- um. Þá gerði góð vöm henni lífið frekar auðvelt. Missti boltann of oft Lið gestanna náði nokkrum góð- um andartökum en það missti bolt- ann alltof oft klaufalega og skrifast það á reynsluleysi og taugaspennu. Sigurbirna Guðjónsdóttir var þeirra sterkust og var í raun sú eina sem ógnaði eitthvað að ráði. -SMS 1-0, 24, 34, 3-12, 4-13 (7-13), 8-13, 9-16, 11-17, 13-18,14-20,17-20, 17-21, 21-21. FH: Mörk/víti (skot/viti): Sigrún Gilsdóttir 7/2 (10/3), Dröfii Sæmundsdóttir 6/1 (16/2), Björk Ægisdóttir 4 (7), Harpa Vífilsdóttir 2/1 (7/3), Berglind Björg- vinsdóttir 1 (1), Eva Albrechtsen 1 (4), Sigurlaug Jónsdóttir (1), Bjarný Þorvaröardóttir (1), Bima Helgadóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Sigrún 2, Dröfii, Björk). Vítanýting: Skorað úr 4 af 8. Fiskuö vitU Sigrún 2, Berglind 2, Eva, Harpa, Sig- urlaug, Bjamý. Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 9 (24/3, hélt 9,38%), Kristin María Guðjónsdóttir 5/1 (11/2, hélt 3/1,.45%). Brottvisanir: 6 mínútur. Dómarar (1-10): Ingi Már Gunnarsson og Þorsteinn Guönason (4). Gœöi leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 100. Sebastian verði lítið tók hann mikil- væga bolta undir lok leiksins. Sel- foss getur þakkað markverði sínum, Jóhanni Inga, að ekki fór verr og Mikalonis fór mikinn í seinni hálf- leik. Þá átti hinn efnilegi Reynir Freyr Jakobsson ágætan leik. Ekkert sem heitir réttlæti „Þetta var mjög sárt tap en við verðum ekki sakaðir um að gefast upp hér í kvöld. Við áttum fullt af færum til að klára leikinn en verð- um enn og aftur að kenna reynslu- leysinu um. Það er ekki spuming að við áttum að fá stig í þessum leik en það er ekkert sem heitir réttlæti í þessu. Ég vona að þetta sé það sem koma skal og að fólk fari að koma á leiki og styðja okkur því að við stöndum öllum þessum liðum á sporði hér á heimavelli,“ sagði Gísli Guðmundsson, þjálfari Selfoss, í leikslok. -GKS Dómarar (1-10): Hlynur Leifsson og Anton G. Pálsson (8). Gœói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 109.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.